Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 Kveðjuorð: Helga K. Bjarna- dóttir, Akranesi Fædd 2. mars 1931 Dáin 27. maí 1990 Mig langar að minnast elsku frænku minnar nokkrum orðum og þakka henni hversu vel hún reynd- ist mér alltaf. Helga Stína, en svo var hún alltaf kölluð, hafði átt við wnheilsu að stríða í nokkur ár. Kallið kom samt mjög óvænt og snöggt. Mér finnst mjög óraunveru- legt að ég eigi ekki framar eftir að sjá frænku mína, a.m.k. ekki í þessu lífi. Ég trúi því að hún hafi það gott þar sem hún er núna. Ég vil votta öllum aðstandendum sam- úð mína. Guð blessi minningu Helgu Stínu. Rósa Björk Hún Helga Stína, Helga Kristín Bjarnadóttir, er dáin. Slíka stað- reynd er erfitt að sætta sig við, næstum óbærileg tilhugsun. Helga Stína var um margt ein- stök manneskja, sem sífellt var að fefa öðrum, ekki bara veraldlega hluti sem hún var óspör á, heldur jós hún af nægtabrunni sálar sinnar. Hún átti svo létt með að laða að sér fólk, sama á hvaða aldursstigi það var, og ekki síst börnin sem hún gat talað svo skemmtilega við. íslenska gestrisnin var svo sann- arlega í hávegum höfð. Allir voru hjartanlega velkomnir og öllum mætti sama hlýjan, sem frá henni stafaði. Hún var sífellt veitandinn og allt þótti svo sjálfsagt, sama hver átti í hlut. Þegar fjölskyldan fluttist hér í húsið fyrir tæpum 19 árum mynd- uðust strax vináttutengsl á milli heimilanna og þau tengsl urðu æ traustari eftir því sem árin liðu. Þær eru margar ferðirnar sem við höfum átt yfir götuna til að líta inn hjá Helgu Stínu og Snorra, og um margt var spjallað og málin rædd frá öllum hliðum. Þetta voru ómet- anlegir tímar. Ég minnist hennar þegar hún kom inn úr dyrunum með hýra bros- ið sitt og settist við eldhúsborðið Minning: Júlíana Jónsdóttir Fædd 26. júlí 1906 Dáin 16. júní 1990 í dag er kvödd hinstu kveðju Júlíana Jónsdóttir sem andaðist 16. þessa mánaðar. Júlia, en svo var hún oftast kölluð, fæddist 26. júlí 1906 að Vörum í Garðinum. For- eldrar hennar voru þau Jón Árni Gíslason og Sigríður Magnúsdóttir. Eiginmaður Júllu var Karl Eiríksson sem lést fyrir nokkrum árum. Þau bjuggu á Karlagötu 10. Þegar Rut, fósturdóttir Júllu, hringdi í mig og sagði mér frá láti hennar efaðist ég eitt augnablik því að ég var búinn að ákveða að heim- sækja hana 17. júní og jafnframt að fara í heimsókn með hana til móður minnar sem dvelur á DAS í Hafnarfirði, en þær voru miklar vinkonur. Dauðinn var því svo fjær í huga mfnum varðandi Júllu. Ég kynntist Júllu þegar ég sem ungur drengur dvaldi hjá henni þegar foreldrar mínir fóru í ferða- lög. Þá leit ég á Júllu og reyndar fram á þennan dag sem mína aðra móður. Það var alltaf góð vinátta milli mín og Júllu og eitt af því sem var ómissandi í lífi mínu var að fara á aðfangadag jóla á hverju ári og eiga stund með henni áður en hátíðin gekk í garð. Þessum stund- um gleymi ég aldrei. Það var gott að koma á Karlagötuna. Þar leið manni vel. Þar var friður og ró. Júlla var blíð og góð kona. Hún vildi alltaf vera að gefa. Það var 'hennar tjáning. Það verður erfitt að sætta sig við að geta ekki lengur farið á Karlagötuna og notið gestrisni Júllu, en þetta er gangur lífsins og kannski áminning til okkar yngra fólksins að gefa þeim eldri meiri tíma og spjalla saman. Ég vil að lokum þakka Júllu fyr- ir allt sem hún hefur gert fyrir mig og fjölskyldu mína og flyt kveðju frá móður minni, sem er sjúklingur og getur ekki fylgt henni síðasta spölinn. Ég sendi Rut og fjölskyldu og öðrum vandamönnum mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Lárus Loftsson Til greinahöftinda Minningarorð Það eru eindregin tilmæli rit- stjóra Morgunblaðsins til þeirra, sem rita minningar- og afmælis- greinar í blaðið, að reynt verði að forðast enduitekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri t greinar eru skrifaðar um sama einstakling. Þá verða aðeins leyfð- ar stuttar tilvitnanir í áður birt ljóð inni í textanum. Ef mikill fjöldi greina berst blaðinu um sama einstakling mega höfundar og aðstandendur eiga. von á því að greinar verði látnar bíða fram á næsta daga eða næstu daga. a Að undanförnu hefur það færst mjög í vöxt, að minningargreinar berast til birtingar eftir útfarar- dag og stundum löngu eftir jarð- arför. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að birta ekki minningar- greinar sem berast því eftir að útför hefur farið fram. Morgunblaðið hefur ekki birt ný minningarkvæði um látið fólk, en leyft tilvitnanir í gömul, áður prentuð kvæðí. Blaðið áskilur sér rétt til að stytta þessar tilvitnanir eða fella þær niður, ef þær eru sífellt endurteknar í blaðinu. Þá mun Morgunblaðið ekki birta heil kvæði, áður birt, en stundum fylgja óskir um það. Ritstj. hjá mér. Ævinlega sagði hún eitt- hvað fyndið sem kom mér í gott skap. Hún var þeim eiginleikum gædd að sjá alltaf skoplegu hliðarnar á öllum hlutum. Eiginleiki sem gerði hana svo eftirsótta. Oft var Haukur í fylgd með henni, þau voru nánast óaðskiljanleg og dáðu hvort annað. Það er erfið raun 5 ára snáða að missa bæði ömmu sína og bestu vinkonu. Litlu ömmubörnin í Reykjavík stóðu líka hjarta hennar nærri og hún bar hag þeirra mjög fyrir brjósti. Og börnin hennar áttu alltaf öruggt skjól þar sem hún var. Nú er söknuður og tregi hjá Snorra og bömunum, en eftir lifír minningin um góða konu. í mörg ár átti hún við erfiðan sjúkdóm að stríða og þegar hún fann til tók hún tungutöflurnar sínar. Þær kallaði hún bensínið sitt á sinn skoplega hátt. En þegar liðagigtin fór að hrjá hana síðustu árin fór heilsunni hrakandi en það var ekki hennar mottó að kvarta og reisn sinni hélt hún til síðasta dags. Hún fékk að fara á þann hátt sem hún hafði óskað sér, en alltof fljótt fannst okkur sem þótti svo vænt um hana. Elsku Snorri, böm, barnaböm og tengdaböm, við vottum ykkur innilega samúð. Kveðja frá fjölskyldunni á Vesturgötu 140. Sigríður R. Haralds- dóttir - Kveðjuorð Fædd 3. desember 1900 Dáin 10. júní 1990 Elsku amma, Sigríður Ragnhild- ur Haraldsdóttir, er dáin. Það er komið að leiðarlokum hjá þessari merku konu, sem hefur lifað tímana tvenna. Hún fékk hægt andlát að morgni 10. júní sl. Nú förum við ekki í heimsókn á Dalbrautina til ömmu og langömmubörnin fara ekki í skúffuna og þiggja góðgæti, eins og þau voru vön. Amma hafði skilað sínu hlutverki á þessari jörð og þráði að komast heim. Það er svo margt sem hægt er að skrifa og segja frá, því amma var orðin 89 ára gömul þegar kall- ið kom. Ung giftist hún afa okkar, Stef- áni Árnasyni Scheving, og bjuggu þau allan sinn búskap í Firði í Seyð- isfirði, en húsið þeirra hét Brekka. Amma hafði nóg að gera eins og gengur og gerist þegar börnin voru orðin mörg en þau eignuðust sjö böm. Hún gekk í alla þá vinnu sem bauðst, til að færa björg í bú og aðstoða afa okkar við að afla til heimilisins. Amma og afi urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa tvo drengi og eina stúlku. Þau sár greru aldrei. Amma var ósérhlífin við vinnu sína, hörkudugleg og sam- viskusöm. Hún var heiðarleg og réttlát kona. Alla ævi var hún heilu- hraust að mestu leyti, en hún fékk slæmt fótsár sem greri aldrei. Afi okkar lést 1. nóvember 1963, eftir ifiikil veikindi í mörg ár. Eftir það flytur hún til Reykjavík- ur og réð sig sem ráðskona hjá fjöl- skyldum í nokkur ár. Hún flytur síðan til Garðars sonar_ síns og fjölsk. og bjó þar í 10 ár. Árið 1977 flytur amma í Þjónustuíbúðir aldr- aðra við Dalbraut 27 í Reykjavík. Þar var heimili hennar til æviloka. Amma hafði frá miklu að segja okkur afkomendum sínum, um fyrri tíð, búskaparhætti og það sem okk- ur langaði að fræðast um. Hún var hafsjór í sambandi við ættfræði, og stóð aldrei á svari ef spurt var. Amma hafði mikla ánægju af að vera með barnabörnum sínum, svo stækkaði hópurinn er langömmu- börnin komu. Henni varð oft að orði: „Ég er rík.“ Þar átti hún ekki við veraldlegan auð, heldur afkom- endur sína, því þeir voru henni allt. Við systkinin nutum þess oft að amma gætti okkar ef mamma fór í „siglingu" með pabba. Það var svo gaman að hafa ömmu. Hún hafði gaman af öllu glensi og gríni, því að hún var léttlynd og skapgóð. Það hefur eflaust hjálpað henni mikið í gegnum lífið. Ámma var staðföst og hafði sínar skoðanir svo það var hægt að leita ráða hjá henni. Þegar amma kom í heimsókn til okkar, var föst venja að hún kom færandi Konga-súkkulaði og Sin- alco, eða eitthvað annað sem okkur fannst gott. Amma var heilsteypt, trúföst og mikil persóna. Bárum við mikla virðingu fyrir henni. Guð blessi minningu hennar. Jóhanna og fjölskylda Kveðjuorð: Valgarður J. Vilmundarson Fæddur 11. janúar 1973 Dáinn 19. maí 1990 Okkur langar með fátæklegum orðum að minnast félaga okkar, vinar og jafnaldra, Valgarðs Jóns Vilmundarsonar. Á björtum vordegi 19. maí virtist skyndilega dimma, þegar fréttin um að Valli væri dáinn barst okkur. Sumt er svo óskiljanlegt og órétt- látt. Við skiljum ekki hvers vegna Guð tók til sín efnilegasta íþrótta- og námsmanninn úr hópnum, sem hafði nýlokið prófum frá framhalds- deild Seyðisfjarðarskóla. En við trú- um því að hann hafi verið valinn til verðugri starfa í öðru lífi, því hann gat öðrum fremur valdið hverju verkefni, sem fyrir hann var lagt, af samviskusemi, dugnaði og skynsemi. Undanfarnar vikur höfð- um við fjórir verið að skipuleggja ferðalag til Bandaríkjanna og til- hlökkunin var mikil. En skjótt skip- ast veður í lofti, við förum í ferð- ina, en það ferðaiag verður ekki það sama, því nú erum við bara þrír. En Valli kemur með okkur í hugum okkar og þar mun ætíð lifa minningin um góðan dreng og fé- laga. Við vottum foreldrum hans og systkinum, ömmu og öfum, okkar dýpstu samúð, megi Guð gefa ykk- ur kjark og hugrekki í sorginni. Sameiginlega munum við alltaf eiga minninguna um hann. Danni, Eiður, Máni Hví var þessi beður búinn, bamið kæra, þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin hljóma gegnum dauðans nótt. Það er kveðjan: kom til mín! Þú ert blessuð hans í höndum, hólpin sál með ljóssins öndum. (Sb. 1886. B. Halld.) Ég frétti það að morgni mánu- dags 21. maí að Valgarður væri látinn. Það er sárt að vita til þess að hann sé horfinn á braut svona ungur. Ég á margar góðar minning- ar um hann, því að hann var engum líkur. Við Valgarður (eða Valli eins og við kölluðum hann) vorum búin að vera skólafélagar frá 10 ára aldri eða frá því ég flutti til Seyðisfjarð- ar, en ég get ekki sagt að samband okkar hafi verið náið. En í svona litlu bæjarfélagi eins og Seyðisfirði binst maður öllum einhverjum böndum. Valli var mjög hress strák- ur og átti til að koma með hin ýmsu uppátæki og ekki lét hann það vera að stríða okkur stelpunum. Fyrstu önnina í framhaldsskóla sát- um við stundum saman í dönsku- tíma og vorum að stríða hvort öðru og ræða hvað við ætluðum að gera þegar við værum orðin „stór“ því hann stríddi mér alltaf á því hvað ég var „stór“. Ég held að öllum hafi líkað vel við Valla, hann geisl- aði allur og vildi engum illt. Hann var mjög duglegur. Við vorum að vinna ásama stað undanfarin sum- ur, þ.e.a.s. í beitingu, og er það ekki það skemmtilegasta starf sem hægt er að finna, en hann lét það ekki á sig fá og hló bara og sagði að hér vantaði sko karlmannshend- ur, þegar ég var að ergja mig yfir beitingaflækjunum sem hann kall- aði „puslur“. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka þann tíma sem ég fékk að þekkja hann. Að lokum vil ég biðja góðan Guð að blessa minn- ingu hans. Öllum ástvinum votta ég dýpstu samúð. Sigrún Steinarsdóttir bekkjarfélagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.