Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990 Morgunblaðið/Einar Falur Opnað milli Austurvall- ar og Hall- ærisplans í sumar VALLARSTRÆTI verður opn- að milli Austurvallar og Hall- ærisplans í sumar. Auk þess er fyrirhugað að opna leið milli Hallærisplansins og Fógeta- garðsins á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar, segir að þess- ar breytingar séu gerðar í sam- ræmi við staðfest deiliskipulag miðbæjarins. Verið sé að ganga frá samningum vegna opnunar-' innar milli Hallærisplans og Aust- urvallar og fyrirhugað sé að fjar- lægja byggingar, sem þar eru, nú í sumar. Jafnframt sé fyrirhugað að opna milli Hallærisplans og Fógetagarðsins, en það mál sé ekki eins langt á veg komið. Táragassprengja í Flónni á Tálknafírði? Olíuskip til móts við dráttarbát OLÍUSKIPIÐ Kyndill fór á sunnu- dag á móts við dráttarbátinn Ori- on II, sem er með tvo 60 metra flutningapramma í togi á leið til íslands frá Bandaríkjunum. Orion II, sem Köfúnarstöðin hf. hefúr keypt, hreppti slæmt veður alla síðustu viku og gekk mjög á olíu- birgðir hans. Skipin mættust suð- ur af Grænlandi í gær og var þá bætt í geyma Orions. Áætlað er að koma til landsins á föstudag og mun ferðin þá hafa stað- ið í 30 daga yfír 4.500 sjómílur. Dráttarbáturinn og prammarnir voru keyptir í Morgan City í Louisiana í Bandaríkjunum. Samkvæmt upplýs- ingum frá Köfunarstöðinni er Orion II öflugasti dráttarbátur hérlendis, með tvær 600 hestafla aðalvélar. Annar prammanna verður notaður til að auka afköst dýpkunarskipa Köfunarstöðvarinnar, en hinn verður útbúinn fyrir boranir og sprengingar í höfnum landsins. Deilt um beit í landi „Mistur yfir salnum og ég hélst ekki við nema nokkrar sekúndur“ Búðahrepps HREPPSNEFND Búðahrepps og landeigendur í Fáskrúðsfjarðar- hreppi deila nú vegna beitar sauð- §ár í Búðahreppi. Deilt er um hver eigi að kosta gerð girðingar á landamörkum. Þorpsbúar í Búðahreppi hafa kvartað yfir því að fé hafí komist í garða þeirra og étið gróður. Síðast- liðinn fimmtudag var 19 ám og nokkrum lömbum smalað úr þorpinu að frumkvæði hreppsyfirvalda og eru þær nú geymdar í girtum hólfum. Hreppsyfirvöld vilja að bændurnir leggi fram vinnu við endurbætur á girðingu við mörk Búðahrepps og Fáskrúðsfjarðarhrepps, þannig að hún verði fjárheld, en bændumir vilja fá æmar afhentar án skilyrða, enda beri þeim ekki skylda til að taka þátt í kostnaði vegna girðingarinnar. Málið kom til kasta sýslumannsins á Eskifirði á mánudag, þar sem lög- fræðingur bænda krafðist þess að kindurnar yrðu afhentar og hafa hreppsyfirvöld fengið frest til mið- vikudags til að leggja fram greinar- gerð vegna málsins.' Ein kindanna, sem hreppsyfirvöld tóku í sína vörslu drapst um helgina og er talið að verið geti að hún hafi verið með riðuveiki. Héraðsdýra- lækni hefur verið falið að skoða hin- ar kindurnar vegna þessa. Vinnslan rekin með hagnaði þrátt fyrir greiðslu í Verðjöfiiunarsjóð - segir Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðva segir Gunnlaugur Sig’fusson - 14 leituðu læknis FJÓRTÁN manns leituðu til læknis vegna gaseitrunar eftir að hylki, sem ýmislegt þykir benda til að hafi innihaldið táragas, var sprengt í ruslastampi á veitingastaðnum Flónni á Tálkna- firði um klukkan éitt aðfaranótt sunnudagsins. Um 70 gestir voru þá á staðnum, auk starfsfólks. Gunnlaugur Sigfússon var í forsvari fyrir samkomuhaldinu, sem var að ljúka, og stóð við dyrnar að hleypa gestum út. „Það gaus skyndilega reykur upp úr rusla-stampinum og þeir sem stóðu nálægt heyrðu dynk,“ sagði Gunnlaugur. „Hins vegar sá enginn hver laumaði þessu þarna ofan í. Fólk fór strax að svíða í augu og andlit og maður sem stóð nálægt var fljótur að átta sig á hvað var að gerast, tók stampinn og bar hann út fyrir.“ Gunnlaugur sagði að gestimir hefðu verið rólegir og greiðlega hefði gengið að rýma húsið. „Eg fór síðan inn aftur til að athuga hvort einhver hefði orðið eftir inni. Þá lá mistur yfir salnum og ég hélst ekki við inni nema í fáein- ar sekúndur." Gunnlaugur sagðist vita til að þrír þeirra sem leitað hefðu til læknis væru frá Tálknafirði en í veitingahúsinu hefði einnig verið nokkur fjöldi fólks frá Patreks- firði og Bíldudal. Margir þeirra sem inni voru, þeirra á meðal þunguð kona, munu hafa orðið varir ýmissa ein- kenna, svo sem sviða í augum og öndunarfæmm, ógleði og höf- uðverkjar af völdum gassins og var þeim ráðlagt að leita læknis. Eftir því sem best er vitað hafa allir þeir sem fyrir áhrifum gass- ins urðu náð sér. Lögreglan á Patreksfirði kom á staðinn og sendi sýni úr stamp- inum suður til Reykjavíkur til efnagreiningar en ekki mun þykja Ijóst hvort um táragas hafi verið að ræða. Að sögn lögreglu er ekki vitað hver ber ábyrgð á þess- um atburði en unnið er að rann- sókn málsins. „Ég trúi ekki öðru en að sá sem gerði þetta hafi gert það í einhveijum óvitaskap, hafi ekki vitað hvaða afleiðingar Gunnlaugur Sigfússon þetta hefði í för með sér, “ sagði Gunnlaugur Sigfússon. var hins vegar orðin 11-12% í síðastliðnum mánuði,“ sagði Þórð- ur. Stjórn Verðjöfnunarsjóðs ákvað að greiða 5% -verðbætur á skel- fletta rækju úr íslensku hráefni í ágúst, sem er sama hlutfall og í þessum mánuði, en að sögn Þórðar Friðjónssonar er hugsanlegt að verðbæturnar verði minni en 5% í ágúst vegna lítillar innistæðu í rækjudeild sjóðsins. Hins vegar hefði rækjuverðið lækkað frá því í júní síðastliðnum. Innistæðan í rækjudeildinni kom úr Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðar- ins, sem lagður var niður 1. júní síðastliðinn, þegar Verðjöfnunar- sjóður sjávarútvegsins tók til starfa, en lög um hann voru sam- þykkt á Alþingi í vor. Samkvæmt lögunum skal greiða í sjóðinn þeg- ar markaðsverð afurða í hverri deild sjóðsins er 3-5% hærra en meðalverð síðustu fimm árin og á innborgunin að vera 50% af því sem umfram er. Þórður Friðjónsson sagði að ekki hefði verið tilefni til inngreiðslu í botnfiskdeild Verðjöfnunarsjóðs í júní síðastliðnum miðað við 5% verðbil. Hins vegar hefði verið til- efni til inngreiðslu ef ákveðið hefði verið að hafa verðbilið 3% eða 4% í júlí. „Ákveðið var að hafa verð- bilið 4% í ágúst en þrátt fyrir 5% verðbil í ágúst hefði orðið einhver inngreiðsla í sjóðinn. Það er í sam- ræmi við lögin um sjóðinn að fara niður í 3% verðbil, hvenær sem sú ákvörðun verður annars tekin.“ Þórður sagði að rök skynsem- innar mæltu með greiðslum til sjóðsins í góðæri. „Búið er að breyta Verðjöfnunarsjóði úr milli- færslusjóði á milli fyrirtækja og greina í sjóð, sem er með verðjöfn- unarreikning á nafni hvers fram- leiðanda, þannig að hver og einn fær aldrei meira úr sjóðnum en hann leggur í sjóðinn og aðrir fá ekki aðgang að þeim fjármunum," sagði Þórður. „MIÐAÐ við 1% inngi-eiðslu af verðmæti botnfiskafúrða í Verðjöfh- unarsjóð er fiskvinnslan rekin með 0,4% hagnaði en afkoma henn- ar hefúr batnað um 2,4% í þessum mánuði, aðallega vegna verð- hækkana á frystum afúrðum. Frystingin er því rétt yfir núllinu en saltfiskvinnslan rétt undir því,“ sagði Arnar Sigurmundsson formað- ur Samtaka fiskvinnslustöðva. Stjóm Verðjöfnunarsjóðs sjáv- arútvegsins ákvað í gær að greiða skuli 1% af fob-verðmæti unninna og óunninna botnfiskafurða í sjóð- inn í ágúst næstkomandi, það er að segja frystum afurðum, saltfiski og óunnum botnfiski. Þessi upp- hæð er um 45 milljónir króna þann mánuð, þar af um 25 milljónir fyr- ir frystar afurðir, um 10 milljónir fyrir saltfisk og um 10 milljónir fyrir óunninn botnfisk en þetta er í fyrsta skipti, sem greitt er í verð- jöfnunarsjóð vegna útflutnings á óunnum fiski. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar og varaformað- ur stjómar sjóðssins, sagði að flest- ir í sjávarútveginum reiknuðu með að verð á sjávarafurðum lækkaði ekki á næstunni og hækkaði jafn- vel enn frekar. „Það er því Iíklegt að verðjöfnunin verði jafnvel aukin á næstu mánuðum. Mér sýnist að heildarverð á botnfiskafurðum verði heldur meira á þessu ári en í fyrra, þrátt fyrir að spáð hafi verið að botnfiskaflinn verði 5-6% minni í ár en á síðastliðnu ári. Mér sýnist hins vegar að Ioðnu- og grá- lúðuaflinn í ár verði heldur minni en spáð var. Verðhækkun á sjávar- afurðum er um 10% á þessu ári en verðhækkun á botnfiskafurðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.