Morgunblaðið - 24.07.1990, Side 5

Morgunblaðið - 24.07.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 1990 5 Davíð Oddsson: Samningarn- ir voru tíma- sprengja „VIÐ mununi strax í dag hcfja undirbúning að því að greiða þeim starfsmönnum borgarinnar sem samningarnir taka til þá hækkun sem félagsdómur hefur úrskurð- að,“ segir Davíð Oddsson borgar- stjóri um þýðingu niðurstöðu Fé- lagsdóms í deilu BHMR og ríkis- ins. „Samningar íjármálaráðherra við BHMR voru tímasprengja og ljóst að aldrei var hald í túlkun ráðherrans á 1. grein samingsins." Davíð segist hafa sagt við ráð- herra að aðferð ríkisstjórnarinnar við að fikta einhliða í kjarasamningunum stæðist ekki lög. „Þetta hefur nú komið á daginn. Það var ljóst frá upphafi að búa yrði betur um hnút- ana, annað hvort með viðræðum við samningsaðila eða með því að treysta lagagrundvöll ákvörðunar ríkis- stjórnarinnar. Hvorugt var gert og nú þarf ríkisstjórnin að horfast í augu við það. Þá er það fráleitt hjá fjármálaráðherra að reyna að koma sök á félagsdóm, sem fjallar auðvitað aðeins um efni þess samnings sem ráðherrann skrifaði undir.“ Einar Oddur Krisljánsson: Okkur eru allar bjargir bannaðar I meðanþessi samningur er í gildi EINAR Oddur Krisljánsson, for- maður Vinnuveitendasambands Islands, segir að nú sé nær ár síðan hann fyrst hefði varað við þessum samningi ríkisins og BHMR opinberlega. Það hefði verið klifað á því síðan að öllum mætti vera ljóst að önnur laun- þegasamtök í landinu gætu aldrei lifað við það að ein ákveðin launa- þegasamtök í landinu, skipti engu máli hvað þau hétu, væru með samning til margra ára sem kvæði á um sérstakar hækkanir til við- bótar þeim hækkunum sem semd- ist um við alla aðra launþegahópa. „Nú er það komið fram sem við höfum varða við allan þennan tíma og sagt að ekki mætti gerast. í samningi okkar og 'Alþýðusam- bandsins er það ein forsendan að launaþróun annarra hópa verði sú sama og þar er gert ráð fyrir. Við höfum gengið að því sem vísu að þetta ákvæði væri inni í öllum kjara- samningum og þessir hópar myndu gera kröfu um sams konar launa- hækkun og BHMR hefur fengið fram núna. Segjum sem svo að við verðum við þeirri kröfu, þá fengi BHMR sömu hækkun og svo koll af kolli. Þetta er keðjusprenging í þjóðfélag- inu og gæti gengið mjög hratt fyrir sig. Við kölluðum þetta tíma- sprengju þar eð þessi samningur ríkisstjórnarinnar frá því í fyrrasum- ar var stilltur á ákveðinn tíma, 1. júlí 1990,“ sagði Einar Oddur. Aðspurður hvernig vinnuveitend- ur myndu taka í kröfu um 4,5% launahækkun, sagði hann: „Við þurfum ekkert að ræða það. Það geta allir séð í hendi sér að okkur eru allar bjargir bannaðar meðan þessi samningur er í gildi milli há- skólamanna og ríkisins. Við höfum skorað á stjórnvöld alveg frá því í __ fyrrasumar að nema hann úr gildi. Það er ekki hægt að lifa með hon- um. Eg hef margoft gert grein fyrir því að þessi samningur sé arfarugl. Það er minnsta mál í heimi að hækka kaup, en við erum í miklum vanda staddir með það að bæta kjör. Við getum jú hækkað ASÍ samninginn á morgun og þá hækkar BHMR samningurinn daginn eftir og svo framvegis og framvegis. Það er eng- inn vandi að bæta einu núlli við eða tveimur eða þremur. Það er ekki málið, við höfum leikið þann leik í áratugi og menn ættu allir að þekkja árangurinn af því. Vandamálið er ekki að hækka kaup, heldur er hið mikla vandamál sem við eigum við að stríða og það verkefni sem við eigum að reyna að klára er að bæta kjörin,“ sagði Einar Oddur. Hann sagði að niðurstaða Félags- dóms hefði ekki komið sér á óvart, enda hefðu lögfræðingar VSÍ reikn- að með því að ríkið tapaði þessu máli. Niðurstaða Félagsdóms væri ekki orsökin fyrir því að málum væri svo komið heldur sá samningur sem ríkið hefði sjálft gert. „Ég segi ekki meir. Stjórnvöld hljóta að nota næstu klukkustundir til þess að hugleiða ástæður sínar. Ég held það sé bara nóg að ætla þeim morgundaginn til þess,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson að lokum. Halldór Asgrímsson: Ríkisstjórn- in grípi til ráðstafana „ÉG TEL að ríkisstjórnin verði að gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir vixlverkun launahækkana að þessum dómi gengnum," segir Halldór Asgrímsson starfandi for- sætisráðherra þegar spurt er um viðbrögð hans við niðurstöðu fé- lagsdóms í deilu BHMR og ríkis- ins. Halldór kveðst ekki geta sagt á þessu stigi, til hvaða ráðstafana verði hægt að grípa. „Ástæðan fyrir því að ríkisstjórn- inni þótti nauðsynlegt að hækkanir kæmu ekki til framkvæmda 1. júlí, var hættan á að það myndi raska launakerfinu í landinu og leiða til mikillar verðbólgu. Ég á von á að eftir þessa niðurstöðu geri ýmsir kröfu um meiri hækkanir en þegar eru fengnar. Það á auðvitað eftir að koma í ljós, en ég er enn þeirrar skoðunar að þarna sé mikil hætta á ferðum," segir Halldór Ásgrímsson. Halldór segir niðurstöðu félags- dóms sýna að annað hvort hafi ekki verið nægjanlega vel frá samningun- um gengið eða þá að mat dómsins sé ekki rétt. „En það tíðkast ekki hér að deila við dómarann. Félags- dómur hefur túlkað samninginn með þessum hætti, en fyrstu greininni var ætlað að koma í veg fyrir það sem nú hefur átt sér stað. Dómnum hefur sýnilega ekki þótt þetta ákvæði fullnægjandi." Ólaftir Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra og Páll Halldórs- son formaður BHMR takast í hendur eflir undirritun samning- anna 18. maí í fyrra. ..EIMUEIN SÍUI Yfirbyggingin er teiknuð af hinum ítalska snillingi Giugiario. ,.ER SMEKKLE! INNRÉTTABUR Éílí Öll innri hönnun er verk þýska meistarans Karmann. ..it TKKHHIU VU ÍÍINN RÍUI Hreyfill, gírkassi og drifbúnaður kemur frá hinum rómuðu Porsche verksmiðjum í Þýskalandi. ..n iifi ríui Enda kostar hann aðeins frá 577.000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.