Morgunblaðið - 24.07.1990, Side 7

Morgunblaðið - 24.07.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990 7 Guðrún Stefánsdóttir 100 ára: Man vel eftir Suður- landsskjálftanum 1896 GUÐRÚN Stefánsdóttir, fyrrum klæðskeri og rjóinabústjóri, varð hundrað ára í gær. Guðrún, sem er vistmaður á elliheimilinu Grund, er fædd árið 1890 á bænum Kotleysu nærri Stokkseyri, og bjó hún þar til tíu ára aldurs, er hún fluttist til Stokkseyrar. Guðrún fór sextán ára gömul til Reykjavíkur, þar sem hún lærði hannyrðir og saumaskap, auk þess sem hún lærði til rjómabústjóra, en lengst af starfaði hún við karlmannafatasaum. Guðrún er ern og góð til heilsunn- ar, og kann vel að greina frá því sem drifið hefur á daga hennar. Til að mynda man hún vel eftir Suðurlandsskjálftanum sem reið yfir árið 1896, og þeim hörmungum sem þeim náttúruhamförum fylgdi. Eins og fyrr segir fór Guðrún árið 1906 til náms til Reykjavíkur. „Það var lítið um peningana í þá daga og því varð ég að kosta mitt nám sjálf, og réði mig sem vinnu- konu að heimili Thors Jensens og Ólafar konu hans í Tjarnargötunni. Thor er besti maður sem ég hef hitt um ævina, hann var ávallt að hjálpa þeim sem minna máttu sín.“ Guðrún dvaldi einn vetur og vor í húsi Thors, og minnist þess tíma með hlýjum hug. „En mig langaði alltaf að komast áfram í lífinu, og leið mín lá því til Hvítárvalla, þar sem ég lærði til ijómabústjóra. Ég lærði síðan klæðskurð hjá Guð- mundi Vikari, og starfaði við það lengst af. Ég vann þó alltaf við ijómabúin á sumrin, enda hafði ég þar um fimmtíu krónur í kaup á móti þeim átta krónum, sem vinnu- konur höfðu í þá daga.“ Guðrún eignaðist dóttur árið 1923, Sígríði Sigurðardóttur, og réðst sem einstæð móðir í að koma yfir sig þaki í Norðurmýrinni í Reykjavík, byggði þriggja hæða hús að Vífilsgötu 15, og voru þrjár íbúð- ir í húsinu. „Það höfðu nú ekki all- ir trú á að kona gæti eignast hús, Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðrún ásamt bróður sínum Valdimar, sem verður 94 ára í septem- ber, í 100 ára afmælisveislu, sem haldin var Guðrúnu til lieiðurs á Grund í gær. en ég vann mikið til að geta borgað til hún hætti að vinna 1975, þá það, og lauk því fyrr en ég þurfti," áttatíu og fimm ára gömul. Guðrún sagði Guðrún þegar talið barst að hefur síðan dvalist í Hveragerði og húsi hennar. í húsinu bjó hún þar á Grund. GEmini HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 OG 674300 --------------------------------------------------------------------li ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN! Árlega koma fulltrúar framleiðenda hingað til lands og skoða bílana, eigendum að kostnaðarlausu. ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ! Við bjóðum nú þriggja ára ábyrgð á þessum frábœru bílum. Greiðslukjör eru við allra hœfi. Öll verð eru staðgreiðsluverð. Bílarnir eru ryðvarðir, skráðir. tilbúnir á götuna með útvarpi og segulbandi. —' —■ SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFELAGA ■ ■ ■ Isuzu Gemini. LT þriggja dyra hlaðbakur kostar aðeins þúsund og LT fjögurra ðyraJQ^ þúsund krónur. Isuzu Gemini er kallaður STÓRISMÁBÍLUNN, vegna hins ótrúlega rýmis sem í honum er. í Gemini sameinast frábœr stjórnsvörun, spameytni, viðbraðgssnerpa og þœgindi. Vélin er 1300cc. 72 hö„ hann er framhjóladrifinn, 5 gíra, með aflstýri, aflhemlum, PCV-lœsingavara á hemlum og upphitaðri afturrúðu. Komdu með fjölskylduna og reynsluaktu þessum frábœrabíl!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.