Morgunblaðið - 24.07.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 1990
11
TÁKN FRÁ FORNRITÍÐ
Nína Gautadóttir: Þjóðhöfðinginn er kona, 1989.
_______Myndlist
EiríkurÞorláksson
Vestursal Kjarvalsstaða sýnir
Nína Gautadóttir um þessar
mundir málverk sem hún hefur
unnið að síðustu tvö ár, þar sem
hún byggir viðfangsefni sitt á
fornum táknum norrænum nin-
um, egypskum híeroglýfum og
ýmsum fornum galdrastöfum.
Nína er einn þeirra listamanna
sem hefur verið lengst af sínum
ferli erlendis. Eftir að hafa lokið
hjúkrunarnámi hér heima 1969
hélt hún til Frakklands, þar sem
hún lagði stund á listnám í París.
Nína hefur ferðast mikið víða um
lönd, og t.d. verið langdvölum í
nokkrum ríkjum Afríku; þeir sem
séð hafa fyrri sýningar hennar
hér á landi minnast þess á hvern
hátt slíkt kom fram í verkum
hennar á þeim tíma.
Við alla listsköpun leita lista-
menn í tvær áttir að þeim við-
fangsefnum og tjáningarmáta,
sem þeim hentar: annars vegar
í hinn ytri heim samfélags- og
umhverfisáhrifa, sem er að fínna
allt í kring um okkur, bæði í
nálægð okkar eigin menningar
og í fjarlægð framandi þjóða og
siða, og hins vegar í innri heim
hvers einstaklings, þar sem upp-
eldi, skoðanir, tilfinningar og
menntun skapa hverjum og ein-
um það lifsmynstur, sem almennt
er kallað persónuleiki.
Allur ferill Nínu hingað til ber
vitni um mikla leit og forvitni
um hinn ytri heim; list hennar
hefur endurspeglað þetta eftir
því sem hún hefur reynt að vinna
úr hinum ytri áreitum og komið
þeim til skila í myndlistinni.
Stefnubreytingar í leitinni bera
því helst vitni, að listakonan hafi
ekki enn fundið það sem hún leit-
ar að, eða ekki náð að sameina
það sínum innri heimi eða per-
sónulegu væntingum. Því hlýtur
þessi sýning nú að teljast eitt
skrefið enn í þeirri leit, og óhægt
um að segja hvort Nína er ánægð
með árangurinn.
Einn sérstakasti þáttur mynd-
listar er hin mikla notkun tákna,
sem þar er oft að finna. Trúar-
brögð eru flest sérstaklega rík
af táknum, og mörg þeirra ganga
í gegnum listasöguna allt til
þessa dags. Ýmsir listamenn hafa
á síðustu 100 árum tileinkað sér
tákn fjarlægra þjóða og menn-
ingarsamfélaga, og kynnt sem
framlög til vestrænnar menning-
ar. Þessa gætir jafnvel hér á landi
á allra síðustu árum, þar sem
Gunnar Örn rekur uppruna síns
slöngufólks að nokkru til bysant-
ískrar heimsmyndar, og Halldór
Ásgeirsson hefur notað tákn
þjóða suðurhafseyja talsvert í
ríkulegum myndflötum sínum.
Jafnframt þessu skapa listaménn
síðan sitt eigin táknmál, þar sem
þeirra persónulega reynsla og
lífssýn ræður mestu um gildi
tákna.
Undanfarin tvö ár hefur Nína
Gauta lagt stund á fornegypsku,
og er það nám bakgrunnur verk-
anna á sýningunni. Meginhluti
verkanna er að uppistöðu til
myndgerð setninga eða orða á
því máli, þar sem hið egypska
myndletur, híeroglýfur, kemur í
stað hinna latnesku stafa sem
við notum öðru jöfnu. Þannig eru
verk eins og „Lífíð er þitt“,
„Þessi maður er ritari“ og „Sjón-
varpsþáttagerðarmaður“ sköpuð
í kringum þá egypsku stafi, sem
mynda orðin. Til að þetta sé öll-
um ljóst, eru verkin merkt með
handskrifuðum miðum (sem eru
lítið augnayndi) þar sem viðkom-
andi setning er bæði skrifuð á
íslensku og með híeroglýfum.
Vandamálið er hins vegar að
hið egypska myndmál byggir á
hljóðstöfum, en ekki myndtákn-
um; því er listakonan í raun að
bregða fyrir sig tilvísunum í let-
urgerð, en ekki að vinna með
tákn af neinu tagi í þessum
myndum. Enda virðast fom-
egypsku stafirnir oftar trufla en
hitt; í ýmsum myndum bregður
fyrir skemmtilegu samspili lita í
expressionísku handbragði, eins
ogt.d. í „Sem höfðingi, sem bróð-
ir, sem vinur“ (nr. 49) og „Þjóð-
höfðinginn er kona“ (nr. 47), en
stafimir draga athyglina frá
þessum gildi myndanna. — Hið
sama má í raun segja um þær
myndir þar sem norrænt rúnalet-
ur eða galdrastafir eru þunga-
miðja verkanna; þau tmfla mynd-
bygginguna.
Styrkur verkanna er mestur
þar sem stafirnir vega minnst,
þ.e. í smámyndunum af forn-
egypska stafrófinu (nr. 57-81)
og af forn-egypskum fomöfnum
(nr. 10-37). Ef sleppir þeirri
málfræði- og stafakennslu sem
þarna fer fram, þá em þessar
myndir sterkar í smæð sinni, þar
sem bjartir litir og fijálst hand-
bragð ná að skapa mjög lifandi
verk, sem taka flestum hinum
stærri fram. Þar er Nína nær því
að finna sér þann myndstíl sem
kemur myndhugsun hennar til
skila til áhorfenda en í þeim verk-
um þar sem stafir og tákn binda
hendur hennar. í góðri myndlist
verða tákn eðlilegur hluti mynd-
málsins og styrkir það, en hvorki
takmarkar tjáningarmöguleika
listamannsins né njörvar hann
niðúr.
Sýningarskrá Nínu er vei unn-
in, skýr og hefur ótvírætt heim-
ildargildi fyrir listunnendur. Ann-
að mál er svo hvort listakonan
þurfí ekki, eins og raunar fleiri,
að athuga sinn gang betur varð-
andi verðlagningu verka sinna; á
íslenskum listmarkaði er fímm
og kvart milljón króna fyrir öll
verkin í salnum ef til vill heldur
hátt stefnt.
Galína Vishnevskaja
lærði eða kæmi fram. Þegar svo
Galína réðst til Óperettuleikhússins
1944, lauk hjónabandinu.
Hér hefur aðeins verið stiklað á
stóru í bernsku og uppvexti Galínu
— því nær útlokað er að endur-
segja þann óhugnað sem hún geng-
ur í gegnum og lýsir á snilldarlegan
hátt, rétt eins og hlutlaus áhorf-
andi; Hún hefur engu gleymt, en
hefur tekið sér stöðu í tilfinninga-
legri órafjarlægð. Um það leyti sem
söngferill hennar hefst hefur maður
það á tilfinningunni að hún ætli að
segja sögu sína með aðferð mynda-
vélarinnar — og að nú sé öllum
hennar hörmungum lokið.
En það er öðru nær. Smátt og
smátt hverfur myndavélin og það
er Gaina af holdi og blóði sem birt-
ist í bókinni — og hún á sér eitt
markmið i lífinu; að komast af til
að syngja. Og bara það að komast
af, er hægara sagt en gert í því
samfélagi sem hún lifir í. Hún gift-
ist öðru sinni, Mark Ilitsj Rubin,
stofnanda og stjórnanda leikflokks-
ins og ferðst vítt og breitt með
sýningar. Jafnvel þótt hún sé barns-
hafandi, heldur hún ótrauð áfram
að vinna. Hún vinnur með leik-
flokknum í nokkur ár — þar til hún
fer út á einsöngsbrautina og Mark
verður framkvæmdastjóri hennar.
Rödd hennar var langt frá því að
vera fullmótuð eða í einhverri þjálf-
un, en dag einn hittir hún Veru
Nikolajevnu Garínu, söngkennara,
sem gjörbreytti lífi hennar. Upp frá
því fara hún og Mark að fjarlægj-
ast — og þrátt fyrir berkla og aðr-
ar hörmungar, tekst Galínu að
þjálfa rödd sína og komast að hjá
Boshojleikhúsinu. Hjónaband henn-
ar hékk þó einhvern veginn saman
— þar til hún hitti Rostropovitsj.
Hún giftist honum — og stærsti
hluti bókarinnar fjallar um feril
þessarra miklu listamanna. Þau fá
leyfí til að ferðast til útlanda og
meira að segja leyfi til að búa út
af fyrir sig í íbúð sem Rostropivitsj
hafði keypt. Galína lýsir því hvernig
vegur þeirra eykst — heima fyrir
og erlendis — en hún lýsir líka þeim
hremmingum sem aðrir listamenn
lenda í, í hinu sovéska kerfi; lista-
menn á borð við tónskáldin Prok-
ofjev og Shostakovitsj og rithöfund-
inn Pasternak. í rauninni er saga
Galínu um baráttu listamanna við
hið óhugnanlega sovéska kerfi, þar
sem tugþúsundir manna vinna við
það eitt að túlka listaverk, orð og
athafnir manna, til að geta fordæmt
þá. Enginn er öruggur, því upp-
ljóstrarar eru inni á öllum stofnun-
um — og þú veist aldrei hveijir
þeir eru. Galína og Rostropovitsj
komast æði lengi upp með að halda
sig utan við sprengjusvæði, og neita
að skrifa undir ásakanir á hendur
öðrum listamönnum. Svo virðist
sem valdhafar hafi verið eitthvað
hræddir við að hrófla við þessum
heimsfrægu listamönnum.
En þar kemur, að þau hýsa
Solzhenitsyn í sumarhúsi sínu og
Rostropovitsj reynir að koma verk-
um hans á framfæri. En þar sem
Solzhenitsyn hefur með skrifum
sínum gerst óvinur alþýðunnar og
er þar af leiðandi sekur maður, er
fljótlega skrúfað fyrir feril
Rostropovitsj; fyrst til að byija með
fær hann ekki að vinna erlendis,
en síðan leiðir eitt af öðru — uns
svo er komið, árið 1974, að þau
hjónin biðja um leyfi til að fá að
dvelja erlendis í tvö ár. Fjórum
árum seinna eru þau svipt sovésk-
um ríkisborgararétti.
Saga Galínu er engu lík. Strax
á fyrstu síðu er hún þrungin spennu,
átökum, sorgum og sigrum. I raun-
inni ætti Galína að vera dauð, að
minnsta kosti sex sinnum. Þótt hún
sneiði að mestu hjá því að segja frá
heimilislífi sínu — kemur það ekki
að sök, því þetta er saga afburða-
listamanns og það er sköpunar- og
tjáningaþörfin sem er í fyrirrúmi.
Þetta er alvöru ævisaga, sérlega
vel skrifuð og Galína lætur sig ekki
muna um að taka ráðamenn í Sov-
étríkjunum í karphúsið — þeir fá
allrosalega útreið í bókinni. Þetta
er virkilega bók sem enginn ætti
að láta fram hjá sér fara; bók um
mannlegar tilfinningar, heiður og
æru og baráttu í vonlausu samfé-
lagi. Ekki hef ég átt þess kost að
lesa bókina á frummálinu, en þýð-
ing hennar hlýtur að hafa verið
mikið þrekvirki, þar sem söguþráð-
ur, framvinda og lýsing hins sov-
éska kerfis eru æði flókin. Málfarið
er mjög þjált og frágangur með
hinum mesta sóma.
...ekki barakaffi
Karíó - Skemmtiferðaskip á Níl - Baðstrandardvöl við Rauðahafið -
Pýramídar - Gull og grafir faraóanna - Stórkostlegustu söguminjar
veraldar - Fagurt landslag og framandi þjóðlíf.
EGYFTALANDSFERÐ-ÆVWmAHEIMUR
19 daga lúxusferð 26. ágúst
Þið njótið frábærrar þjónustu SAS alla leið frá Keflavík til Kaíró. Fimm stjörnu lúxus-
hótel og fallegasta skemmtiferðaskipið á Níl.
Takmarkaður sætafjöldi - Hægt er að stansa í Kaupmannahöfn á heimleiðinni.
íslenskur
fararstjóri.
SfS
— <=>ULHRFLUG
Vesturgötu 12, símar 620066 og 15331