Morgunblaðið - 24.07.1990, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 24.07.1990, Qupperneq 17
Veruleg fjölgun hefur orðið á forsjá- deilum á þessum tíma, en mikill fjöldi af deilum kemur ekki fram nema hjá lögmönnum þegar foreldr- um.bama gengur illa að ná sáttum í deilumálum sínum. Og ekki er vafi á að fjöldi barna verður fyrir verulegum tilfínningalegum skaða vegna ósamkomulags foreldranna. Við vitum að foreldranir eiga bágt eftir skipbrotin í ástarlífnu og það eiga börnin líka. Barnaheill veit að möguleiki er á því að gera skipbrot þolanlegri fyrir alla aðila. Möguleikár eru á því að með sér- fræðilegri aðstoð megi fyrirbyggja talsvert af skilnuðum og enginn vafi er á því að aðstoð á erfiðum tímabilum í Ijölskyldum getur fyrir- byggt mikið af tilfinningalegum sárum, sem sum gróa aldrei. Alla vega er hægt að draga verulega úr sársauka og gera skilnaði þolan- legri fyrir alla aðila. Fjölsky lduráðgjöf Fjölskylduráðgjafarstöð er ekki til í landinu. Tilraunir hafa nokkrum sinnum verið gerðar til að koma upp fjölskylduráðgjöf en ending hefur aldrei orðið sem skyldi. Ein af þeim framkvæmdum, sem Barnaheill hefur ákveðið að leggja í er að stuðla að því að komið verði upp slíkri stöð, jafnvel með því að taka að sér stofnun hennar. Mikil hvatning til slíkrar framkvæmdar hefur komið frá málflutningsmönn- um, sem einatt verða að horfa að- gerðalausir upp á það hvernig for- eldrar leggja stundum líf barna sinna í rúst með illvígum deilum. Vegalaus börn þurfa athvarf Ekki eru það margir sem vita, að tugir bama eða hundruð eru á hrakhólum í landinu. Þau eiga mörg vanmáttuga foreldra, sem ekki ráða við vanda barnanna sinna. í stað þess að eiga sér öruggan dvalarstað flakka börnin milli fósturheimila, stofnana, sjúkrahúsa, sérfræði- deilda og félagsmálastofnana, sem ekki hafa nægilega möguleika til að bæta aðstæður barnanna og stöðva flakkið. Flest þessi börn eru sjúk og eiga sjúka foreldra, sem eiga fullt í fangi með að ráða við eigið daglegt líf. Börnin eru mörg svo erfíð að ófaglærðir aðilar ráða ekki við umönnun þeirra. Sum þeirra þurfa að komast um lengri og skemmri tíma á meðferðarheim- ili. En samfélaginu hefur ekki auðn- ast að koma upp nægilega mörgum og sérhæfðum ráðstöfunum fyrir þessi börn. Mörg þeirra geta eftir dvöl á meðferðarheimilum aftur flutt til foreldra sinna eða nýtt sér fóstur, svo framarlega, sem slík fósturheimili og foreldranir fá nægilegan faglegan undirbúning og stuðning. Eitt af þeim verkefnum, sem Barnaheill hefur markað sér er það að skera upp herör til að bæta úr þessari vöntun. Það kostar mikið fé, en þjóðin hefur margsýnt hversu örlát hún er þegar henni er bent á verðug verkefni. íslenskt samfélag þarf að verða barnvingjarnlegt Á íslandi er lífsbaráttan hörð. Fólkið, ríkið og sveitarfélögin vant- ar peninga. Það gleymist gjarnan að fjárfesta í börnunum, þegar sam- félagið raðar upp forgangsverkefn- um — oft vegna þess að börnin vantar nógu sterka málsvara til að tala þeirra máli. Hingað til hafa verið þtýstihópar til að veija mál- stað fjölmargra, sem þurfa á mik- illi athygli að halda en börnin hefur vatnað sinn þrýstihóp, sem talar þeirra máli og ver hagsumi þeirra og réttindi. Sá þrýstihópur er nú kominn á laggirnar. Samtökin Barnaheill ætlar sér stórt hlutverk. En því stóra hlutverki verður-ekki fullnægt nema hópurinn verði stór. Við viljum helst fá meirihluta þjóð- arinnar í röð félagsmanna og mun- um við á næstu mánuðum reyna að kynna samtökin og hin ýmsu aðkallandi málefni barna, sem bíða okkar. En þeir, sem eru tilbúnir, geta strax gerst félagsmenn. Síminn hjá Barnaheillum er 680545. Höfundur er formaður stjónmr Barnaheilla. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990 17 __ _________________ * Bikarkeppni BSI __________Brids____________ Arnór Ragnarsson Öllum leikjum er nú lokið í fyrstu umferð Bikarkeppninnar. Sveit Jóns Sigurbjörnssonar frá Siglufírði lék fyrir nokkru gegn sveit Alfreðs Kristjánssonar frá Akranesi, og hafði sveit Jóns sigur, skoraði 100 impa gegn 44 impum Alfreðs og félaga. Sveit Jóns Sigurbjörnssonar á heimaleik gegn sveit Sveins Rúnars Eiríksonar frá Reykjavík í annarri umferð. Sveit Forskots atti kappi við sveit ML frá Laugarvatni í fyrstu umferð, og var þar um ójafna viðureign að ræða. Sveit Forskots vann allar loturnar og leik- inn með 186 ipum gegn 37. Sveit Forskots á leik í annarri umferð gegn sveit Karls Grétars Karlssonar frá Sandgerði, og það er Karl sem á heimaleik. Einum leik er þegar lokið í annarri umferð Bikarkeppn- innar. Sveit DELTA vann öruggan sigur á sveit Einars Vals Kristjáns- sonar frá ísafirði í annarri umferð, lokatölur 136 impar gegn 75. Annarri umferð á að vera lokið 26. ágúst. Sumarbrids 1990 Þátttaka er nú orðin mjög góð í sumarbrids, og þriðjudaginn 17. júlí mættu 92 spilarar til leiks. Spil- að var í tveimur 16 para riðlum (meðalskor 210) og einum 14 para (meðalskor 156). Urslit urðu eftir- farandi í A-riðli: Alfreð Kristjánsson — Gylfí Gunnarsson 254 Lárus Hermannsson — Guðlaugur Sveinsson 253 Björn Árnason — BaldurBjartmarsson 234 Lovísa Eyþórsdóttir — Hildur Helgadóttir 225 Óskar Sigurðsson — Friðrik Jónsson 224 í B-riðli urðu úrslit þessi: Sigurður B. Þorsteinsson — Gylfi Baldursson 273 Þröstur Ingimarsson — Þórður Björnsson 247 Ástvaldur Oli Ágústsson — Karl Pétursson 242 Kjartan Jóhannsson — Jón Þorkelsson 233 Jakob R. Möller — Sigurður Sverrisson 229 Þetta er í fjórða sinn í röð sem Sigurður og Gylfi vinna riðil sem þeir spila í. Úrslit urður eftirfarandi í C-riðli: Helgi Jónsson — Helgi Sigurðsson 212 Ragnar Hermannsson — Anna Þóra Jónsdóttir 189 Svavar Björnsson — Sveinn Rúnar Eiríksson 183 Ragnar Magnússon — Páll Valdimarsson 182 Aðalsteinn Jörgensen — Guðlaug Jónsdóttir 168 Björn Arnarson — Jónas Elíasson 168 Hér er hægt að gera við og lagfæra steypuskemmdir Semkís eru íslensk viðgerðarefni fyrir steinsteypu. Semkís efnin eru prófuð af Rannsóknarstofnun byggingariðnaðar- ins og fagmönnum í byggingariðnaði. Það erekki óleysanlegt vandamál að lagfæra frostskemmdir í steypu, ryðskemmdir út frá járnabindingu, sprungur í veggjum, brotna kanta og stærri eða minni múr- og steypuskemmdir ef notuð eru Semkís viðgerðarefnin. Réttu viðgerðarefnin eru íslensku Semkís efnin, þróuð og framleidd fyrir íslenskar aðstæður. Semkís efnin eru framleidd undir ströngu gæðaeftirliti. Framleiðandi er Sérsteypan sf. á Akranesi sem er sameign Sementsverksmiðju ríkisins og (slenska jámblendifélagsins. Semkís VIOO: Fljótharðnandi án trefja fyrir minni viðgerðir. Semkís V200 Fljótharðnandi með trefjum fyrir viðgerðir á álagsflötum og stærri rifum, sprungum eða holum. Semkís V300: Flægharðnandi með trefjum og mikilli viðloðun. Ætlað til viðgerða á stærri flötum þar sem álag er mikið. Semkís FIOO: Stálvari til að ryðverja steypustyrktarjárn. Semkís AIOO Steypuþekja til verndunar á steypu- viðgerðum, múrhúðun og allri venjulegri steypu. Heildsöludreifing: Sementsverksmiðja ríkisins, Afgreiðsla Sævarhöfða Reykjavik s: 91-83400 Afgreiðsla Akranesi, s: 93-11555. Semkís efnin fást hjá öllum helstu byggingarvöruverslunum og hjá SANDI h.f. Viðarhöfða í Reykjavík s: 91-673555 KALMANSVÖLLUM 3, 300 AKRANES. SlMI: 93-13355

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.