Morgunblaðið - 24.07.1990, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 24.07.1990, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 1990 21 við samningsgerð. Þannig valdi nú launahækkun um 1,5% að meðal- tali sem samsvari hálfum launa- flokki ótvírætt röskun, hvað þá hækkun um 4,5% eða einn og hálf- an launaflokk að meðaltali. Um það vísast til skýrslu Þjóðhagsstofnunar dags. 22. júní 1990. B. í annan stað er sýknukrafa reist á því að kröfugerð stefnanda eigi ekki stoð í 5. gr. kjarasamnings aðila. í kjarasamningi sé ekki að finna nein ákvæði sem almennur réttur allra félagsmanna stefnanda til launaflokkatilfærslna um einn og hálfan launaflokk frá 1. júlí sl. yrði reistur beint á. Um almennar launahækkanir sé ijallað í ákvæðum 2. kafla samn- ingsins, sbr. í því sambandi yfir- skrift hans og einkum 12. gr. Slíkar hækkanir geti og komið til skv. ákvæðum 15. gr. sem er í 3. kafla. Kröfugerð stefnanda um almenna hækkun launa með launaflokkatil- færslu um 1 ‘A launaflokk til félags- manna sinna á hins vegar ekki stoð í þeim ákvæðum. Alls ekki er fjallað um neinar almennar launahækkanir í 1. kafla samningsins. í þeim kafla er aðeins íjallað um sérstakar hækkanir til tiltekinna starfsmanna sem stað- reynt hefur verið að ástæða sé til að leiðrétta sbr. 1., 2. og 5. gr. Mat á því hvort tilefni er til leiðréttinga er skv. 3. mgr. 2. gr. í höndum kjarasamnanburðarnefndar eða gerðardóms rísi ágreiningur um það. Á grundvelli þess mats er stefnt að því að leiðrétta þann mun sem þannig kann að koma í ljós, með launaflokkatilfærslum sbr. 5. gr. Þær skulu gerast í sem jöfn- ustum árlegum, áföngum sbr. 2. mgr. 5. gr. Aðilar eða gerðardómur skipta þeim áföngum niður. Réttur einstakra starfsmanna til tilfærslna skal ákveðinn af aðilum samnings- ins nái þeir um það samkomulagi, ella úrskurðar gerðardómur skv. 9. gr. um það. Kröfugerð stefnanda á hins veg- ar ekki stoð í rétti sem hafi verið þannig ákveðinn. Þannig er óum- deilt að ekki liggur fyrir matsniður- staða þess efnis að kjaramunur sé til staðar sem tilefni sé til að leið- rétta og þaðan af síður að slíkt eigi við félagsmenn stefnanda, einhvem eða alla. Þá skal auk þess vakin athygli á því, að stéttarfélag hefur skv. 7. mgr. heimild til að semja um önnur kjaraatriði er jafngildi þeirri tilfærslu sem tilefni gefst til eða hluta hennar. Hugsanlegt til- efni til að færa einhveija félags- menn til í launaflokki veitir þeim þannig ekki einu sinni beinan rétt til launaflokkatilfærslu. Kostnaði af tilfærslum milli launaflokka í hverjum áfanga er settur ákveðinn rammi sbr. 3. mgr. 5. gr. Samkvæmt henni skal í hverj- um áfanga miða við að hækkun nemi einum launaflokki hið minnsta að meðaltali, en einstök starfsheiti og einstakir starfsmenn hækki þó ekki meira en nemur 3 launaflokk- um og er þar miðað við launaflokka skv. 10. gr. samningsins eða jafn- gildi þeirra verði launatöflu breytt. I tilvísuninni til eins launaflokks hið minnsta að meðaltali og hins vegar ákvæði um hámarkstilfærslu milli launaflokka felst augljóslega að gert er ráð fyrir því, að launa- flokkatilfærslur einstakra manna verði mismiklar. Af 3. mgr. leiðir þannig að út frá því var gengið að margir myndu enga tilfærslu fá en aðrir frá 1 og upp í 3 launaflokka í hverjum áfanga. Auk þess var og er í launatöflu kjarasamningsins sem vitnað er til í 3. mgr. 5. gr., eingöngu að finna heila launá- flokka. Engin skylda er lögð á stefnda í 5. gr. eða í öðrum ákvæð- um samningsins til að búa til hálfa launaflokka vegna framkvæmdar endurskoðaðs launakerfis eða greiðslna upp í væntanlega hækkun skv. 6. mgr. 5. gr. í 5. gr. er þann- ig ótvfrætt gengið út frá því að launaflokkatilfærslur fari fram í heilum launaflokkum hið minnsta. Af hálfu stefnda er ekki fallist á að í ákvæði 6. mgr. 5. gr. felist að launaflokkatilfærsla skv. 6. mgr. sbr. 3. mgr. geti átt sér stað án þess að staðreynt hafi verið að rétt- mætt tilefni sé til að brúa launa- mun. Ákvæðið verður að túlka í réttu samhengi við 3. mgr. 2. gr. þar sem fjallað er um að kjarasam- anburðarnefnd eigi að meta tilefni til leiðréttingar á kjörum og skila áfangaskýrslu eigi síðar en 1. mars 1990. Áfangaskýrslan er undanfari lokaálits nefndarinnar og taka á mið af niðurstöðum þeirrar áfanga- skýrslu við 1. áfanga í endurröðun í launaflokka. Af orðalagi 3. mgr. 2. gr. má ljóst vera að áfangaskýrsl- unni var ætlað að innihalda bráða- birgðaniðurstöður um tilefni til leið- réttingar á kjörum í einstökum störfum. í því tilviki að lokaálit lægi ekki fyrir hinn 1. júlí 1990 ráðgerði 6. mgr. 5. gr. að þeim sem þannig væri tilefni til að leiðrétta sam- kvæmt áfangaskýrslunni, og sem áttu rétt á tilfærslu milli launa- flokka í þeim áfanga, yrði greitt upp í væntanlega hækkun til bráða- birgða. í því efni væri þá ekki við annað að styðjast en áfangaskýrsl- una. Þeim yrði greitt upp í væntan- lega hækkun þannig að tilfærslur milli launaflokka skv. 3. mgr. yrðu að jafnaði ‘A launaflokki meiri en lágmark skv. 3. mgr. hefði verið frá 1. júlí, þ.e. hækka úr 1 launa- flokki í 1 !A launaflokk hið minnsta að meðaltali en óbreytt var það hámark að enginn skyldi hækka meira en næmi 3 launaflokkum. Við endanlega ákvörðun 1 áfanga skyldi þó enginn lækka í launa- flokki. Það felur í sér að þeir sem kynnu að fá launaflokkatilfærslu á grundvelli áfangaskýrslunnar skyldu halda henni jafnvel þó loka- álitið gerði ekki ráð fyrir slíkri hækkun á röðun þeirra í þeim áfanga. Af því leiddi því þá niður- stöðu að launaflokkahækkun til þeirra gæti komið til einu eða hugs- anlega tveimur árum fyrr en efni stóðu raunverulega til. í þeim tilvik- um að endurröðun á grundvelli áfangaskýrslu leiddi til algerlega óverðskuldaðrar launaflokkahækk- unar skyldi hún þrátt fyrir það ekki ganga til baka. Tilgangur reglunnar var sá að setja svipu á ríkisvaldið svo það myndi ekki tefja fram- kvæmd á launaflokkatilfærslum sem áfangaskýrsla staðfesti að væru efnislega réttmætar. Ákvæði 6. mgr. 5. gr. er þannig ekki sjálfstætt viðurlagaákvæði um dulbúna, almenna launahækkun allra er taka laun eftir kjarasamn- ingnum. Slíkur skilningur kom heldur aldrei fram í samningsgerð- inni. Ákvæðið er sérregla um 1. áfanga endurröðunar á starfsheit- um í launaflokka. Hún felur í sér að leiðrétting komi með meiri þunga í 1. áfanga en ella hefði orðið, liggi lokaálit ekki fyrir hinn 1. júlí 1990 enda sé töf á því að rekja til full- trúa ríkisins. Hvorki liggur fyrir staðreynt til- efni til leiðréttingar né er uppfyllt þeim tilgangi sem 6. mgr. 5. gr. byggir á og sem er forsenda fyrir að henni verði beitt. Alls ekki er þannig um það að ræða að ríkisvald- ið hafi reynt að tefja störf í kjara- samanburðarnefnd til að draga framkvæmd launaflokkatilfærslna sem séu efnislega réttmætar skv. áfangaskýrslu. Almenn greiðsluskylda með launaflokkatilfærslu í þá veru sem stefnukrafan felur í sér, á sér þann- ig ekki neina stoð í ákvæðum 5. gr. kjarasamningsins. Samkvæmt því ber að sýkna stefnda af öllum kröfum stefnanda. C. Krafa um sýknu að svo stöddu byggir á því, að þau sjónar- mið sem reifuð eru hér á undan til stuðnings frávísunar- og sýknu- kröfu og lúta að því að krafa stefn- anda sé ekki enn orðin til, hljóti a.m.k. að leiða til sýknu að svo stöddu. III Aðilar máls þessa gerðu með sér kjarasamning hinn 18. maí 1989. 1. kafli hans fjallar um endurskoðun á launakerfi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, og er hann í 9 greinum. 2. kafli fjallar í gr. 10-14 um launahækkanir frá 1. maí 1989 til 30. september 1990. í 3. kafla er í 15. gr. samið um að félagsmenn stefnanda fái einnig sömu hækkan- ir og aðrir launþegar kunna að fá eftir 30. nóvember 1989. Kröfur stefnanda lúta að því að stefnda hafi á grundvelli 6. mgr. 5. gr. kjarasamningsins borið að greiða félagsmönnum stefnanda sérstaka hækkun á laun þeirra hinn 1. júlí 1990 við þær aðstæður að ekki var lokið þeirri endurskoðun á launakerfi háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna, sem 1. kafli samn- ingsins mælir fyrir um. Stefndi telur að vísa beri málinu frá Félagsdómi þar sem kröfugerð stefnanda eigi a.m.k. á þessu stigi undir nefnd samkvæmt 9. gr, samn- ingsins. Hins vegar er af hálfu stefnda ekki dregið í efa dómsvald Félagsdóms um mismunandi túlkun aðila á 1. gr. kjarasamningsins. Félagsdómur hefur skv. 3. tl. 26. gr. laga nr. 94/1986 almennt úr- skurðarvald um ágreining um skiln- ing á kjarasamningum opinberra starfsmanna. Almenn lögsaga í þessum efnum er því í höndum Félagsdóms, enda hafi aðilar ekki ráðstafað sakarefni til annars úr- lausnaraðila. I 9. gr. kjarasamnings málsaðila segir: „Rísi ágreiningur milli aðila um framkvæmd kjarasamanburðar eða túlkun á niðurstöðum skv. 2. gr. eða fyrirkomulag breytinga skv. 5. gr. getur hvor aðili um sig óskað eftir, að ágreiningnum verði vísað til úrskurðar þriggja manna nefndar...“ Ekki er hér vísað til 1. gr. samn- ingsins, þar sem segir m.a: „Standa skal að umræddum breytingum með þeim hætti, að ekki valdi röskun á hinu almenna launakerfi í landinu“. Túlkun þessa ákvæðis er eitt helsta ágreiningsatriði málsins. Tilvísun 9. gr. til 5. gr. samningsins tekur til fyrirkomulags launabreytinga, er byggist á niðurstöðum kjarasam- anburðarins, en ekki til ákvæða 6. mgr. 5. gr. samningsins, sem kveða á um greiðslur, og eftir atvikum viðurlög, hafi samanburðarnefnd skv. 3. mgr. 2. gr. ekki skilað loka- áliti hinn 1. júlí 1990. Úrskurðar- vald nefndarinnar tekur því ekki til þess ágreinings um skilning á kjara- samningnum, sem hér er lagður fyrir Félagsdóm, og ber því að hafna frávísunarkröfu stefnda. Sýknukrafa stefnda er í fyrsta lagi á því byggð að honum hafi verið heimilt og skylt að fresta framkvæmd nýs launakerfis og að honum sé því óskylt skv. 1. gr. samningsins að inna af hendi hina umkröfðu greiðslu til félagsmanna stefndu, þar sem slík launahækkun valdi röskun á hinu almenna launa- kerfi í landinu. Ekkert ákvæði kjarasamningsins tekur til þess hvernig sú aðstaða skuli skilgreind að framkvæmd til- tekinna ákvæða hans fari í bága við þetta markmið, sem aðilar tóku sameiginlega á sig að stefna að. Verður þetta ákvæði samningsins ekki skýrt öðru vísi en svo, að telji annar hvor samningsaðilanna slíka röskun vera yfirvofandi, verði hann að leita samkomulags við hinn aðil- ann um hvernig við því skuli brugð- ist. Er því ekki fallist á með stefnda, að ákvæði 1. gr. samningsins hafi heimilað honum að ákveða einhliða frestun greiðslna samkvæmt 1. kafla samningsins, sem koma áttu til framkvæmda 1. júlí 1990, enda hefur ekki verið í ljós leitt með óyggjandi hætti, að afleiðingar samningsins verði aðrar en þær er sjá mátti fyrir við gerð hans. Aýknukrafa stefnda lýtur í öðru lagi að því að kröfugerð stefnanda eigi ekki stoð í 5. gr. kjarasamnings aðila. Þeim kjarasamanburði, sem 1. kafli samningsins fjallar um, var ekki lokið fyrir 1. júlí 1990. Hafði kjarasamanburðarnefnd ekki skilað lokaáliti þann dag, en fulltrúar stefnda í nefndinni lögðu hins vegar fram sitt lokaálit hinn 29. júní 1990. 6. mgr. 5. gr. kjarasamningsins er svohljóðandi: „Hafi nefnd skv. 3. mgr. 2. gr. ekki skilað lokaáliti hinn 1. júlí 1990, sk'al greitt upp í væntan- lega hækkun þannig að tilfærslur milli iaunaflokka skv. 3. mgr. verði að jafnaði 'A launaflokki meiri en lágmark skv. 3. mgr. hefði verið frá 1. júlí 1990. Við endanlega ákvörðun áfangans skal þó enginn lækká í launa- flokki“. Ákvæði 3. mgr. 5. gr., sem hér er vísað til, hljóðar svo: „í hverjum áfanga skal þá miða við að hækkun nemi einum launaflokki hið minnsta að með- altali, en einstök starfsheiti og einstakir starfsmenn hækki þó ekki meira en nemur 3 launa- flokkum. Er hér miðað við launa- flokka skv. 10. gr. eða jafngildi þeirra, verði launatöflu breytt." Af orðalagi 6. mgr. 5. gr. er ljóst að ákvæðið mælir fyrir um greiðsl- ur ef framkvæmd kjarasamanburð- arins dregst fram yfir 1. júlí 1990. Verða hin tilvitnuðu ákvæði ekki skýrð á annan veg en þann, að stefnda beri að greiða félagsmönn- um stefnanda upp í hækkun sem Tlutancv Hcílsuvörur nútímafólks þeir kunni að eiga rétt á samkvæmt kjarasamanburðinum, þar sem hon- um var ekki lokið hinn 1. júlí 1990. Samkvæmt 6. mgr., sbr. 3. mgr., 5. gr. nemur þessi greiðsla einum og hálfum launaflokki samkvæmt 10. gr. samningsins. Með hliðsjón af þessu verður sýknukrafa stefnda ekki tekin til greina, og lagarök standa ekki til þess að sýkna að svo stöddu. Rétt þykir að stefndi greiði stefn- anda málskostnað, sem ákveðst kr. 200.000, ásamt vöxtum eins og krafist er. DÓMSORÐ: Frávísunarkröfu stefnda fjár- málaráðherra f.h. ríkissjóðs er hrundið. Viðurkennt er að stefnda fjár- málaráðherra f.h. ríkissjóðs sé frá 1. júlí 1990 skylt að greiða félags- mönnum stefnanda, Félags íslenskra náttúrufræðinga, sem starfa hjá stefnda og taka laun samkvæmt kjarasamningi aðila frá 18. maí 1989, fjárhæð sem nemur 1 'A launaflokki til viðbótar launum viðkomandi félagsmanns sam- kvæmt 10. gr. kjarasamnings aðila. Stefndi greiði stefnanda kr. 200.000 í máls kostnað, er beri dráttarvexti skv. III. kafla vaxta- laga nr. 25/1987 frá 15. degi eftir dómsuppsögu til greiðsludags. Garðar Gíslason Sigurður Reynir Pétursson Ingibj'örg Benediktsdóttir Ragnar Halldór Hall Þorsteinn A. Jónsson PLENÍTUDE L'ORÉAL EKKI PRÍLA! NOTAÐU BELDRAY Beldray fæst í byggingavöruverslunum og kaupfélögum um land allt. EINKAUMBOÐ I.GUÐMUNDSSON & CO HF. SÍMI 24020 Álstigarnir og tröppurnar frá Beldray eru viðurkennd bresk gæðavara - öryggisprófuð og samþykkt af þarlendum yfir- völdum. Beldray er rétta svarið við vinnuna, i sumarbústaðnum og á heimilinu. Verðið er ótrúlega hagstætt - gerðu hiklaust samanburð. iTIi 64.5cm 87.0cm K)a5cm I32.0cm !54.5cm 177.0cm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.