Morgunblaðið - 24.07.1990, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 1990
23
Bretland:
Námumenn sækja
Scargill til saka
vegna meðferðar á fé
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsms.
Framkvæmdastjórn Breska
námumannasambandsins ákvað í
síðustu viku að sækja Arthur
Scargill, leiðtoga breskra námu-
manna, til saka fyrir dómi til að
ná fé, sem stjórnin telur sína
eign.
Fyrir nokkru kom út skýrsla, sem
virtur lögmaður gerði um fram-
göngu Scargills og annarra forystu-
manna námumannasambandsins í
verkfalli námumanna veturinn
1984-85. Þá flutti Scargill fé Sam-
bands breskra námumanna á reikn-
inga í útlöndum til að komast hjá
því að bresk yfirvöld tækju það
eignarnámi og sætir hann ámæli
fyrir það. í skýrslunni er Scargill
einnig sakaður um að halda fé á
reikningi í eigu Alþjóða námu-
mannasambandsins, en hann er for-
seti þess, sem var gjöf sovéskra
námumanna til breskra.
Alþjóða námumannasambandið
neitaði að aðstoða rannsóknar-
nefndina við störf hennar. I síðustu
viku ákvað framkvæmdastjórn
Breska námumannasambandsins að
leita stuðnings dómstóla til að ná
fé af reikningi í Dyflinni, sem er í
eigu Alþjóða námumannasam-
bandsins, en Scargill er einn af fjór-
um prókúruhöfum reikningsins.
Ákvörðunin var samhljóða. Áður
en hún var tekin, var Scargill ásamt
helsta aðstoðarmanni sínum vísað
af stjórnarfundinum. Degi seinna
var gefin út kæra á alla ijóra pró-
kúruhafana og reikningurinn fryst-
ur.
Á laugardag ætlaði Scargill að
fljúga til Parísar undir dulnefni til
að ráðgast við aðra frammámenn
Alþjóða námumannasambandsins
um viðbrögð við kærunni. Fjöl-
miðlar komust á snoðir um ferðir
hans og fylgdust með honum í
París.
Á næstunni er búist við, að
Scargill fái fleiri kærur frá Sam-
bandi brezkra námumanna vegna
meðferðar hans á fjármunum þess.
GARÐURINN
Kringlunni
1990
3ja daga af mælisveisla þriðjudag, miðvikudag og f immtudag
Hard Rock hamborgar
Stýrishjól úr gamla Pecan baka í desert
Gláumbæ sem brann
1971
AiMÆLISMATSEÐILL
Hard Rock hamborgari... 395,-
Grísasamloka........490,-
BAR.B.Q. kjúklingur 790,-
Eftirlæti rokkarans.990,-
(Glóðagrilluð lambasneið)
Eftirréttur fylgir öllum mat
Gosdrykkir 50,-
ALLIR VELKOMNIR Á
HARD ROCK CAFE
Hard Rock Opal „MAD HATTER" bún-
ingur Eltons John
Heimsreisa 1974
ELSKUM ALL A - Þ JONUM OLLUM
HARDROCKCAFE, KRINGLUNNI8-12, SÍMI .89888