Morgunblaðið - 24.07.1990, Page 25
Bandaríkin
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990
Vilja verðlækkun á
inillilandasamtölum
International Herald Tribune.
BANDARÍSK yfirvöld hafa ákveðið að stuðla að auknum símhringing-
um frá útlöndum til Bandaríkjanna og í því sambandi hafa þau m.a.
hafið baráttu fyrir því að ríkiseinokunarfyrirtæki lækki gjaldskrá
sína.
Þar sem það er hlutfallslega
ódýrt fyrir Bandaríkjamenn að
hringja til útlanda og þar sem þeir
nota símann mikið rennur dijúgur
hluti af tekjum bandarískra símafé-
laga til erlendra símafyrirtækja í
formi þjónustugjalda.
Mun dýrara er að hringja til
Bandaríkjanna en frá þeim og eru
símtöl þangað því færri. Tekjur
bandarískra símafélaga af milli-
landasamtölum em því mun lægri
en hinna erlendu.
Bandaríska fjarskiptaráðið
(FCC) hefur nú ákveðið að knýja
fram lækkun á gjaldskrám fyrir
millilandasamtöl með því að setja
þak á upphæðina sem bandarísk
símafyrirtæki mega greiða erlend-
um ef þau síðarnefndu lækka ekki
gjaldskrá sína í samræmi við lækk-
un tilkostnaðar.
Samkvæmt upplýsingum FCC
hefur kostnaður vegna símaþjón-
ustu stórlækkað á undanförnum
árum en það hefur þó ekki komið
neytendum til góða. Þannig verður
kostnaður við að setja upp línu yfir
Atlantshafið kominn niður í aðeins
4.500 dollara (270 þúsund ÍSK)
árið 1992 en var 557.600 dollarar
(36 milljónir ÍSK) árið 1956, að
sögn FCC.
Að sögn Gregory Staple, ráðgjafa
i símafjarskiptum í Washington, er
raunverulegur kostnaður símafyrir-
tækja af samtali milli Banda-
ríkjanna og Evrópu tvö til þtjú sent,
eða innan við tvær krónur, á
mínútu.
Hins vegar er gjald pósts og síma
í Þýskalandi (Deutsche Bundespost)
1,92 dollarar, 115 ÍSK, fyrir einnar
mínútu samtal til Bandaríkjanna
og síðan bætist við það 18 króna
skattur. Fyrir samtal til Vestur-
Þýskalands taka bandarísk símafé-
lög hins vegar allt niður í 62 sent,
eða 36 krónur á mínútu. Þau verða
hins vegar að greiða pósti og síma
í Þýskalandi 78 sent á mínútu í
þjónustugjald vegna slíks samtals.
Er það gjald byggt á úreltri viðmið-
un fyrir samtöl sem fara fram með
aðstoð talsímavarða. Að sama skapi
borgar þýska símafélagið þeim
bandarísku sömu upphæð fyrir
samtöl vestur um haf. En þar sem
samtöl vestur um eru mun færri
en austur yfir Atlantshafið tapa
bandarísku fyrirtækin á þessari
þjónustu. Greiddu þau t.d. 153 millj-
ónum dollara meira til Deutsche
Bundespost í þjónustugjöld en þau
fengu til baka vegna samtala vestur
yfir hafið. Að Sögn Staple lætur
nærri að á heimsvísu hafi halli af
þessu tagi numið 2,5 milljörðum
dollara.
Evrópsk símafélög hafa ekki tek-
ið afstöðu til tillagna FCC um lækk-
un símgjalda. Þær eru nú til umfjöll-
unar hjá framkvæmdastjórn Evr-
ópubandalagsins og verða notaðar
sem vopn í baráttu hennar fyrir því
að afnema einokun í símaíjarskipt-
um. Að sögn Gregory Staple eru
óeðlilega há gjöld á samtölum milli
EB-ríkja þegar haft væri í huga að
raunverulegur kostnaður við þau
sé svo til hinn sami og af innan-
landssamtölum. Eðlilegt hljóti að
vera að gjald fyrir símtöl séu í sam-
ræmi við tilkostnað. Þýði það að
símafélög verði að koma sér upp
tækjabúnaði er mæli annars vegar
kostnað við innanlandssamtöl og
hins vegar við millilandasamtöl. I
Japan hafi fyrirkomulag af því tagi
verið tekið upp að fullu og leitt til
50% lækkunar á millilandasam-
tölum á síðustu 18 mánuðum.
Ítalía:
Fréttir um meintan
þátt CIA í hryðju-
verkum gagnrýndar
Róm. Reuter.
FRANCESCO Cossiga, forseti Ítalíu, hefur gagnrýnt ítalska ríkissjón-
varpið fyrir fréttir þess af ásökunum um að bandaríska leyniþjónust-
an CIA hafi stutt hryðjuverkamenn á Italíu og átt aðild að morðinu
á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar. Málið hefur valdið miklum
deilum á Ítalíu um hlutverk ljölmiðla.
Ásakanirnar komu fram í frétta-
þáttum sjónvarpsins 28. júní til 2.
júlí. Þar hélt kaupsýslumaður frá
Oregon í Bandaríkjunum, Dick
Írak/Kúvæt:
Vongóðir um
að lausn finnist
Kaíró. dpa.
HOSNI Mubarak, forseti Egypta-
lands, og Hussein Jórdaníukon-
ungur sögðust í gær vongóðir
um að olíudeila íraka og Kúvæta
leystist.
Leiðtogarnir höfðu hitt Tariq
Aziz, utanríkisráðherra íraks, að
máli í Alexandríu. Hussein sagði
að fundurinn hefði stuðlað að sátt-
um arabaþjóðanna og Mubarak
kvað fjölmiðla hafa gert alitof mik-
ið úr deilunni, sem kom upp er Irak-
ar sökuðu Kúvæta um að hafa stol-
ið olíu fyrir 2,4 milljarða dala úr
olíulindum sínum á undanförnum
tíu árum.
Brenneke, sem sagðist vera fyrrum
njósnari CIA, því fram að leyniþjón-
ustan hefði átt þátt í hryðjuverkum
á Ítalíu á áttunda áratugnum og
morðinu á Palme árið 1986. Endur-
teknar voru ásakanir, er komu fram
í bók í fyrra, um að fyrrum foringi
ítölsku frímúrarareglunnar P-2,
sem er bönnuð, hefði sent skeyti
til aðstoðarmanns George Bush, þá
varaforseta Bandaríkjanna, þremur
dögum fyrir morðið á Palme og
sagt: „Sænska tréð fellur“.
Cossiga skrifaði Giulio Andre-
otti, forsætisráðherra landsins, bréf
þar sem hann hvatti til þess að
rannsókn hæfist á fréttaflutningi
sjónvarpsins. Sjónvarpið hefur sætt
harðri gagnrýni fyrir að birta slíkar
ásakanir án þess að kanna hvort
einhver fótur sé fyrir þeim. Yfir-
maður fréttastofu sjónvarpsins ver
hins vegar fréttaflutningin og segir
að það sé skylda fréttamanna að
leita sannleikans þótt í því kunni
að felast ákveðnar hættur.
Talsmaður CIA sagði í gær að
ásakanirnar væru „algjör þvætting-
ur“ og Brenneke hefði aldrei starfað
fyrir leyniþjónustuna.
25 >
„Anægðir með árangurmn mið-
að við hvað mótið var sterkt“
- segja íslensku keppendurnir
HEIMSMEISTARAMÓTI barna í skák í Fond du Lac í Wiscons-
infylki í Bandaríkjunum er nú lokið. Fjórir íslendingar tóku
þátt í mótinu; Helgi Áss Grétarsson, Arnar Gunnarsson, Jón
Viktor Gunnarsson og Hrund Þórhallsdóttir.
Úrslit mótsins urðu á þá leið,
að í opnum flokki 14 ára og
yngri sigraði Judit Polgar frá
Ungveijalandi, en Helgi Áss
Grétarsson varð ásamt fleirum í
5. sæti. Alls voru keppendur 42.
í opnum flokki 12 ára og yngri
sigraði Avrukh frá Sovétríkjun-
um, Arnar Gunnarsson varð
ásamt fleirum í 23. sæti, en alls
voru keppendur 35. í opnum
flokki 10 ára og yngri var Nur
frá Bandaríkjunum í fyrsta sæti,
Jón Viktor Gunnarsson og fleiri
lentu í 6. sæti, en alls voru kepp-
endur 28. í stúlknaflokki 14 ára
og yngri varð Darchia frá Sov-
étríkjunum í fyrsta sæti, Hrund
Þórhallsdóttir varð ásamt fleir-
um í 20. sæti, en alls voru kepp-
endur 29. Jón Viktor Gunnarsson
sigraði í óformlegu hraðskák-
móti sem haldið var á meðan
heimsmeistaramótinu stóð.
Andri Áss Grétarsson, farar-
Slasaður á
auga eftir
grófa árás
RÁÐIST var á átján ára pilt í
Aðalstræti skömmu eftir mið-
nætti aðfaranótt sunnudags og
hann barinn og slasaður svo að
hann þurfti að gangast undir
aðgerð vegna sprungins augn-
botns.
Pilturinn var á gangi ásamt fé-
laga sínum þegar þeir mættu fjór-
um piltum um þritugt. Einn þeirra
veittist að piltinum, sparkaði und-
an honum fótunum og gekk í
skrokk honum. Félagi hans reyndi
að koma til hjálpar en félagar árás-
armannsins fældu hann þá frá með
höggum og spörkum. Hann hljóp
þá og sótti lögreglu. Þegar hún
kom á vettvang voru árásarmenn-
irnir á bak og burt en sá sem ráð-
ist hafði verið á var með talsverða
áverka og stokkbólgið auga. Hann
fór á slysadeild þar sem í ljós kom
að líklega þyrfti hann skurðað-
gerðar við.
Lögregla leitaði árásarmann-
anna árangurslaust um miðborg-
ina, þar sem nokkur fjöldi fólks
var samankominn.
stjóri íslensku keppendanna,
segir að mótið hafi verið mjög
stíft. Keppnisdagar hafi verið 7
og fjóra daga í röð hafi tvær
umferðir farið fram daglega. Það
hafi líka komið á daginn, að í
síðustu umferðunum hafi kepp-
endur verið farnir að þreytast
nokkuð. Andri segir að aðbúnað-
ur á mótinu hafi verið þokkaleg-
ur, en skipulag og stjórnun þess
hefði mátt vera betri.
íslensku keppendurnir komu
heim í gærmorgun nema Hrund
Þórhallsdóttir, sem enn er í
Bandaríkjunum. Þeir segjast
nokkuð ánægðir með árangurinn
á mótinu miðað við hvað það
hafi verið sterkt. Nefndu þeir að
Nur frá Bandaríkjunum og Judit
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd:
Á kvikmyndasíðu Morgun-
blaðsins sunnudaginn 22. júlí sl.
birtist dálkur þar sem rætt er um
bíómyndina Total Recall og
ímynduð afskipti Kvikmyndaeftir-
lits ríkisins af henni. Þar sem flest
í greinarstúf þessum eru staðlaus-
ir stafir verður ekki hjá því kom-
ist að gera athugasemd.
Það er algjörlega úr lausu lofti
gripið, að skoðunarmenn Kvik-
myndaeftirlitsins hafi „klippt“
umrædda mynd eða einstök atriði
hennar. Klippingar eru einfald-
lega ALDREI framkvæmdar af
eftirlitinu, enda enginn stafur um
slíkt í lögum.
Þar sem glögg augu kvik-
myndarýnisins sjá þannig klipp-
ingu í ákveðnu atriði myndarinnar
er sennilega um hreina ímyndun
hans að ræða, eða snyrtingu, sem
undirrituð veit engin deili á. Þess
má þó geta, sem allir kvikmynda-
fróðir menn vita, að framleiðendur
senda oft á markað fleiri en eina
gerð hverrar myndar, einkum
þegar um mikið ofbeldi er að
ræða. Einstök atriði eru þá mýkt
eða stytt og kaupendur geta síðan
valið úr tveimur til þremur gerð-
um myndarinnar.
Kvikmyndaeftirlit ríkisins star-
far samkvæmt lögum um vemd
Polgar hafi verið hvað sterkustu
skákmennirnir þar.
Drengirnir segja skákina vera
aðaláhugamál sitt. Þeir hafi lært
manngánginn 5 eða 6 ára gaml-
ir og farið að æfa reglulega þeg-
ar þeir urðu 6 eða 7 ára. Þeir
kepptu allir á Norðurlandamót-
inu í skólaskák í vor, með ágæt-
um árangri.
Þeir segjast hafa farið að und-
irbúa sig fyrir Heimsmeistara-
mótið í júní. Helgi Áss segist
aðallega hafa skoðað ýmsar byrj-
anir, en Jón Viktor og Arnar að
þeir hafi teflt mikið. Þeir segjast
einnig lesa mikið af skákbókum
og fara yfir skákir góðra skák-
manna, jafnframt því sem þeir
skoði eigin skákir eftir á og at-
hugi hvort þeir hefðu getað fund-
ið betri leiki.
Fjölmörg fyrirtæki styrku
skákmennina til fararinnar en
helstu styrktaraðilar voru Ágúst
Ármann hf, Sjóklæðagerðin hf
og Sláturfélag Suðurlands hf.
barna og ungmenna og lögum um
bann við ofbeldismyndum. Svo
sem glöggt má sjá af ákvæðum
þessara lagabálka er hlutverk
skoðunarmanna eftirlitsins fyrst
og fremst að meta einstakar
myndir með tilliti til þess, hvort
börn innan ákveðinna aldurs-
marka fá aðgang að þeim. Þá
þurfa skoðunarmenn stöku sinn-
um að meta hvort myndir bijóti
hugsanlega í bága við ákvæði laga
um bann við ofbeldismyndum.
Myndin Total Recall er sannar-
lega í hópi hrottalegustu mynda
og var skoðuð og metin sem slík.
Robocop, mynd eftir sama höf-
und, var á sínum tíma bönnuð
alfarið, en styttri útgáfa hennar
síðar leyfð. Báðar myndirnar voru
bannaðar börnum og unglingum
yngri en 16 ára.
Ekki er ástæða til að elta ólar
við aðrar rangfærslur í greininni,
en það skal tekið fram að skoðun-
armenn kvikmynda meta hveija
einstaka kvikmynd faglega og án
allra fordóma og mætti höfundur
greinarstúfsins líka temja sér slík
vinnubrögð.
Auðvelt er að fá réttar upplýs-
ingar um starfsemi eftirlitsins, og
eru þær fúslega veittar, hvenær
sem eftir er leitað.
Auður Eydal, forstöðumaður
Kvikmyndaeftirlits rikisins.
Athugasemd frá Kvik-
myndaeftirliti ríkisins
Heimsmeistaramót barna í skák:
Þrír íslensku keppendanna á Heimsmeistaramóti barna í skák i Bandaríkjunum eltir komuna heim.
Frá vinstri: Jón Viktor Gunnarsson, Helgi Áss Grétarsson og Arnar Gunnarsson.