Morgunblaðið - 24.07.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKlPn/AlVlNNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990
29 v
Efnahagsmál
Gertráð fyrir 0,5% hagvexti
Samkvæmt spá breska ráðgjafafyrirtækisins
Corporate Treasury Consultants
BRESKA ráðgjafarfyrirtækið
Corporate Treasury Consult-
ants hefur birt spá um þróun
efhahagsmála í flestum vestæn-
um ríkjum, þar á meðal íslandi,
á næstu mánuðum. I spánni er
gert ráð fyrir að gengi íslensku
krónunnar verði því sem næst
óbreytt út þetta ár en talið að
gengisfellingar geti verið að
vænta á næsta ári. Gert er ráð
fyrir um 0,5% hagvexti á þessu
ári.
í spánni kemur fram að hækkun
fiskverðs, talsverð lækkun gengis
undanfarin misseri og minnkandi
verðbólga geri það ólíklegt að grípa
verði til gengisfellingar fyrr en á
næsta ári. Spáð er því að verðbólga
verði um 10% í lok þessa árs en
að þá sé hætta á að hún fari aftur
vaxandi.
Gert er ráð fyrir að nafnvextir
lækki lítillega í kjölfar minnkandi
verðbólgu en að raunvextir fari
lítið eitt hækkandi vegna aukinna
fjárfestinga í kjöjfar batnandi
efnahagsástands. Áætlað er að
fjárlagahalii verði um fjórir og
hálfur milljarður króna.
í skýrslunni kemur fram að þess
er að vænta að vaxtagreiðslur af
erlendum lánum fari hækkandi og
það veiki þjónustujöfnuð. Engu að
síður er gert ráð fyrir að halli á
viðskiptajöfnuði minnki og verði
um 4 milljarðar á árinu.
Lítillega er minnsta á umræðu
um mögulega inngöngu Islands í
EB og þess sagt að vænta að sú
umræða verði háværari en að ekki
megi búast við því að Islendingar
sæki um inngöngu næstu árin.
■M.I.I.M.H.IIIJ .—
Framleiðsla á líirænu
eldsneytí í landbúnaði
Dregið úr loftmengun með því að blanda
hreinum vínanda við bensín
VÍÐA á Vesturlöndum er mikill áhugi meðal stjórnvalda og bænda
að laga hefðbundinn landbúnað að lífrænuin orkubúskap. Vonir eru
bundnar við að lífræn orkuframleiðsla komi til með að draga stór-
lega úr loftmengun, minnka innflutning á eldsneyti og efla innlendan
landbúnað. Hugmyndin hefur þó mætt andstöðu margra, aðallega á
þeirri forsendu að innlent hráeftii sé of dýrt til þess að framleiðsla
lífrænnar orku geti borgað sig.
NÝ STÆRÐ — Á
vegum Sprota hf. er nýlega
hafin í Borgarnesi fram-
leiðsla á Icy-vodka í nýrri
flöskustærð. Þetta er 1,75
lítra glerflaska, sem er eins
og kristalsklumpur. Tveir
40 feta gámar hafa verið
sendir til Bandaríkjanna
með Eimskip og mun
markaðisetning nýju flösk-
unnar hefjast þar í ágúst-
mánuði. Sproti framleiðir
nú Icy-vodka í fjórum
flöskustærðum, smáflösk-
um, þriggja pela, eins lítra
og nú í nýju 1,75 lítra flösk-
unum.
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
MORGUNVERÐARFUNDUR
EVRÓPUBANDALAGIÐ
Fundir
Frans Andr-
iessen á morg-
unverðarfúndi
hjá VÍ
FRANS Andriessen, varaforseti
framkvæmdastjórnar EB verður
ræðumaður á morgunverðar-
fundi hjá Verslunarráðinu föstu-
daginn 27. júlí og mun hann
fjalla um fi’amtíðarverkeftii Evr-
ópubandalagsins, s.s. uppbygg-
ingu sameiginlegs markaðar
1992, breytingar í Austur-Evr-
ópu, sem gera miklar kröfur til
bandlagsins og samningaviðræð-
unum við EFTA. Andriessen
verður hér á landi í opinberri
heimsókn í boði utanríkisráð-
herra.
í frétt frá Skrifstofu viðskipt-
alífsins segir, að Andriessen sé einn
helsti áhrifamaður í Evrópu um
þessar mundir og sé eftirsóttur sem
fyrirlesari og ræðumaður, þar sem
fjallað sé um pólitíska, viðskipta-
lega eða efnahagslega framtíð Evr-
ópu. Frans Andiessen er Hollend-
ingur og varð doktor í lögum 1951.
Hann hefur gegnt ýmsum áhrifa-
miklum stöðum síðan, s.s. fjármála-
ráðherra Hollands, verið varafor-
seti framkvæmdastjórnar EB með
ábyrgð á landbúnaðar- og fiskveiði-
málum og síðar skógrækt. Frá ár-
inu 1989 hefur hann haft með
höndum utanríkismál EB, við-
skiptamál þess og tengsl við önnur
EB-ríki.
Frans Andriessen
Svíar hafa um árabil rannsakað
möguleikana á að nota vínanda með
hefðbundnu eldsneyti. Það hefur
komið í ljós að bensín sem hefur
verið blandað saman við vínanda
að fimm hundraðshlutum gefur 15
til 20% minni kolsýru frá sér við
bruna, en kolsýra er eitruð loftteg-
und. Ennfremur dregur úr kol-
tvísýringsmengun, en hún getur
orsakað gróðurhúsaáhrif. I frétta-
tilkynningu frá upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins kemur fram að
samkeppnisstaða vínandans gagn-
vart innfluttu eldsneyti hefur stór-
batnað á síðustu árum í Svíþjóð og
sænsk stjórnvöld íhugi nú að veita
fé í nýja verksmiðju sem framleiðir
vínanda úr innlendu hráefni, til
dæmis hveiti. Þá ráðgerir Mats
Hellström, landbúnaðarráðherra
Svíþjóðar, að veita fimm milljörðum
íslenskra króna til þess að styrkja
landbúnaðinn í að laga sig að
lífrænni orkuframleiðslu. Það er lið-
ur í fimm ára umfangsmikilli áætl-
un Svía um að markaðsvæða þar-
lendan landbúnað og ætla sænsk
stjórnvöld að veija til þess tæplega
140 milljörðum íslenskra króna.
í fréttatilkynningunni segir að
ekki sé þörf á að breyta venjulegum
bílvélum fyrir bensín sem er hóflega
blandað vínanda, en hins vegar
getur of lítill skammtur af vínand-
anum lækkað oktanstyrk bensínsins
niður fyrir æskileg mörk. Tilraunir
hafa leitt í ljós að bensín með 5%
af vínanda heldur nægilegum okt-
anstyrk án þess að það þurfi að
breyta venjulegum bílvélum. Sumir
ganga þó enn lengra og í Banda-
ríkjunum eru menn víða farnir að
nota bensínblöndu með 10%
vínanda til þess að draga enn frek-
ar úr mengun. Öllu meira mál er
að fá díselvélar til þess að ganga
fyrir vínanda, en til þess þarf að
breyta þeim verulega. Sú mikla
mengun sem díselvélar valda hefur
þó gert það að verkum að víða á
Vesturlöndum er verið að þróa
slíkar vélar sem ganga að hluta til
fyrir vínanda.
Á 10. ÁRATUGNUM
HVAÐ ER FRAMUNDAN?
Verslunarráð íslands heldur morgunverðarfund föstu-
daginn 27. júlí kl. 8:15 í Átthagasal Hótels Sögu.
Ræðumaður:
FRANS ANDRIESSEN,
varaforseti framkvæmdanefndar EB.
Andriessen mun fjalla um framtíðarverkefni Evrópu-
bandalagsins og svara fyrirspurnum fundarmanna.
Þátttaka tilkynnist í símum 83088 og 678910.
Þátttökugjald kr. 500.-
Morgunverður innifalinn.
Laugavegi' 97 S. 621655