Morgunblaðið - 24.07.1990, Qupperneq 37
37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990
Minning:
Halldór Vigfússon,
rafSrirkjameistari
Fæddur 6. janúar 1910
Dáinn 15. júlí 1990
í dag, þriðjudaginn 24. júlí, verð-
ur gerð frá Bústaðakirkju útför
Halldórs Vigfússonar, rafvirkja-
meistara. Halldór fæddist á
Kvígsstöðum í Andakíl, þann 6. jan-
úar 1910. Foreldrar hans voru hjón-
in Margrét Jónsdóttir frá Sauðhaga
á Völlum í Suður-Múlasýslu og Vig-
fús Auðunsson frá Grund í Skorra-
dal og var Halldór elsta barn þeirra
af þremur, hin voru Vilborg og
Auðunn, sem bæði eru látin.
Halldór var kvæntur Guðrúnu
Sigurðardóttur frá Eyrarbakka og
áttu þau saman eina dóttur, Mar-
gréti. Guðrún átti fyrir 3 börn, sem
Halldór reyndist í alla staði vel.
Þegar þeir kveðja, sem eru manni
kærir, vakna upp minningar frá lið-
inni tíð. Halldór var sú manngerð
sem verður minnisstæð vegna þess
hversu hógvær hann var um sína
visku og mannkosti. Þeir sem næst-
ir honum stóðu vissu jafnvel ekki
fyrr en á reyndi að þeir gátu leitað
til hans um næstum hvaða fróðleik
sem þeir höfðu áhuga á. Hann var
víðlesinn og hafði gaman af að
grúska í ættfræðiritum, enda átti
hann gott bókasafn valinna bóka.
Hann var mjög vel að sér í sögu
lands og þjóðar og stærðfræði var
honum hugleikin.
Ég minnist þess er ég eitt sinn
þurfti að leysa flókið stærðfræði-
dæmi. Ég var lengi búin að velta
dæminu fyrir mér fram og aftur
en ætíð varð útkoman j'öng. Halldór
var ekki langt frá. Ég bað hann
að líta á þetta með mér og það var
eins og við manninn mælt, þrautin
var leyst á augabragði. Þá áttaði
ég mig á því að hann bjó yfir visku-
brunni, sem ég hafði ekki vitað um.
En um þessa visku sína var hann
ekki raupsamur. Hann vissi að
mennt er máttur en jafnframt að
menntaður maður í orðsins fyllstu
merkingu „hátt ei hreykir sér“ og
reyndar má segja að hann hafi
haft þessi orð Hávamála að leiðar-
ljósi:
„Að hyggjandi sinni
skyli-t maður hræsinn vera,
heldur gætinn að geði;
þá er horskur og þögull
kemur heimisgarða til,
sjaldan verður víti vörum,
því að óbrigðra vin
fær maður aldregi
en mannvit mikið.“
Borgarfjörðurinn var Halldóri
einkar kær. Þar átti hann sín
bernskuspor og þar voru rætur
hans, þar lék hann sér sem barn
og hóf sína skólagöngu. Er Halldór
var ungur maður var Bændaskólinn
á Hvanneyri menntasetur ungra
bændasona og þar stundaði Halldór
nám. Síðar meir fór hann í raf-
virkjanám og lauk því með miklum
ágætum. Eftir það vann hann hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur í rúm
30 ár eða þar til hann hætti störfum
sakir aldurs.
Benedikt G. Óskars-
son — Kveðjuorð
Um morguninn 29. júní sl. sátum
við Theódóra systir mín í eldhúsinu
hjá mér og drukkum kaffi og spjöll-
uðum saman, hún nýkomin úr súm-
arfríi að austan, þegar síminn
hringir og bróðursonur okkar er í
símanum og tilkynnir mér lát elsku-
legs bróður okkar, Benna.
Þó að maður hefði um nokkurt
skeið átt von á þessu þá kemur það
alltaf á óvart, og manni verður
hugsað til þess hvers vegna þær
urðu ekki fleiri, heimsóknirnar til
þeirra hjóna, eins og það var gott
að koma til þeirra, en þannig verð-
ur það nú oft að þó svo viljinn sé
fyrir hendi að þá einhvern veginn
verður aldrei úr því.
Benedikt fæddist 7. nóvember
1930 í Reykjavík, sonur Óskars
Guðbrandssonar og Bentínu Bene-
diktsdóttur. Við vorum átta systkin-
in og var Benni næstelstur. Elst er
Karlotta Ósk, gift Hilmari Stein-
þórssyni og eiga þau einn son. Síðan
kom Bendikt. Þar á eftir Theódóra,
gift Hauki Guðmundssyni og eiga
þau 5 börn. Síðan sú sem þetta rit-
ar, Jónína, gift Níels Joensen og
eigum við 5 börn. Þá Andrés, giftur
Sveinfríði Sigmarsdóttur, þau eiga
5 börn. Næstur í röðinni er Stefán,
giftur Önnu Magnúsdóttur, þau
eiga 3 börn. Næstyngstur var Aril-
íus heitinn (lést í janúar 1970), gift-
ur Erlu Sigurþórsdóttur, eiga þau
3 börn. Og yngstur er Gylfi, giftur
Maríu Joensen og eiga þau 5 börn.
Ég þakka Benna bróður fyrir
allar þær ánægjustundir sem við
áttum saman í bernsku á Eskifirði
í stórum systkinahópi. Það voru oft
erfiðir tímar og fátæktin mikil, en
lundin var létt. Hann var alltaf
kátur og hress, rnikið stríðinn en
alltaf í gamni. Hann giftist 29.
október 1955, Sigríði Ilauksdóttur,
ættaðri frá Arnarstöðum í Helga-
fellssveit og eignuðust þau 4 börn.
Þau eru Haukur Pétur, giftur
Hrefnu B. Karlsdóttur, Benedikt,
giftur Jónínu Þ. Gunnarsdóttur,
Hólmfríður Kristjana, gift Þóri Erni
Ólafssyni, og Egill Valberg, unn-
usta hans er Inga Þ. Traustadóttir.
Barnabörnin eru níu.
Það var mjög gott að koma í
heimsókn til Benna og Siggu, þar
var maður alltaf velkominn. Eg gisti
Halldór var fremur dulur maður
um sig og sína hagi. Fátt lét hann
t.d. uppi um líðan sína í sínum erf-
iðu veikindum, slíkt æðruleysi er
fáum gefið, en þakklátur var hann
fyrir heimsóknir og aðstoð eigin-
konu sinnar og vina sem vöktu yfir
velferð hans dag og nótt, þann tíma
sem hann dvaldist í Borgarspítalan-
um, og gleðiglampinn í augum hans
leyndi sér ekki er dóttir hans birtist
hvern einasta dag svo mánuðum
skipti með sínar líknarhendur hon-
um til hjálpar er kraftar voru þrotn-
ir til alls.
Að lokum vil ég þakka Halldóri
fyrir allt sem hann var mér og
mínum nánustu með þessum orðum:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Sigrún Alda Michaels
oft hjá þeim hér á árum áður og
alltaf var tekið vel á móti mér, ég
þakka fyrir það. Þau áttu mjög
myndarlegt heimili og Sigga átti
mikinn þátt í því, því hún er mikil
húsmóðir og börnin öll myndarleg.
Við vottum þér, Sigga mín, og
börnum og fjölskyldum þeirra, inni-
lega samúð og biðjum Guð að
styrkja ykkur öll í sorg ykkar.
Ég vil að lokum þakka Benna
fyrir allt gott og óska honum góðr-
ar heimkomu. Guð geymi hann.
Jónína S. Óskarsdóttir
og fjölskylda.
HYGEA, Austurstræti 16, Reykjavik • REGNHLÍFABÚÐIN,
Laugavegi 11, Reykjavík • HYGEA, Laugavegi 35, Reykjavík •
SOFFIA, Hlemmtorgi, Reykjavik • SNYRTILÍNAN, Fjarðarkaup-
um, Hafnarfirði • LÍSEtTA, Samkaupum, Keflavik • RANG-
ÁRAPÓTEK, Hellu og Hvolsvelli • STJÖRNUAPÓTEK, Akureyri.
Vinningstölur laugardaginn ^ • jÚIÍ 1990
iéj>3
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 4.905.621
o "jSiaSSIp Z. 4af5Yjf^ 3 284.849
3. 4af 5 326 4.521
4. 3af 5 9.683 355
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
15.577.100 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Níðsterkir og litekta
sólstólar
1195 kr
HUSASMIOJAN
Skútuvogi 16 ■ Sími 687700
w M
RYMINGARSALA A ISLENSKUM FATNAÐI
Jakkaföt
frá
kr. 14.900
Stakir
jakkar
frá
kr. 8.900
Þetta tækifæri gefst aðeins
einu sinni.
Komið og gerið góð kaup.
ft
SNORRABRAUT 56 SIMI 13505