Morgunblaðið - 24.07.1990, Page 48
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1990 * VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Félagsdómur dæmir háskólamenntuðum ríkisstarfsmönnum 4,5% launahækkun frá 1. júlí:
ASÍ og BSRB krefiast sömu
hækkunar fyrir sína félaga
ALÞÝÐUSAMBAND íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
munu gera kröfu um sömu hækkun eða 4,5% til handa sínum félags-
mönnum og Félagsdómur dæmdi ríkið til að greiða háskólamenntuðum
ríkisstarfsmönnum á grundvelli kjarasamnings aðila írá því í fyrra-
vor. Félag islenskra náttúrufræðinga höfðaði mál á hendur íjármála-
ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og gekk dómur í málinu í gær. Ólafur
Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, segir að Félagsdómur telji greini-
lega að ekki sé til efnahagslegur veruleiki utan samningsins og dómur-
inn hafi sett vítisvél óðaverðbólgu í gangá ný. Páll Halldórsson, formað-
ggii'' BHMR, segir að það sé leitt til þess að vita að það þurfi Félagsdóm
til að hjálpa Ijármálaráðherra að lesa sinn eigin samning.
Einar Oddur Kristjánsson, for-
maður VSÍ, segir að orsök þess að
málum sé svona komið sé sá samn-
ingur sem ríkið hafi sjálft gert og
að vinnuveitendum séu allar bjargir
bannaðar meðan hann sé í gildi, því
. samkvæmt honum fái BHMR sjálf-
krafa sérstakar hækkanir til viðbót-
ar því sem semdist um við alla aðra
launþegahópa.
Halldór Ásgrímsson, starfandi
forsætisráðherra, segist telja að
ríkisstjórnin verði að gera allt sem
í hennar valdi stendur til að koma
í veg fyrir víxlverkun launahækkana
að dóminum gengnum.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASI, segir að það sé augljóst að ríkis-
stjórnin hafi haldið klaufalega á
þessu máli og stærsti klaufaskapur-
inn sé kannski sá að átta sig ekki
á hvað skrifað var undir.
Lokið við
Jbundið
slitlag í
Hvalfírði
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segir að samtökin muni aldr-
ei geta skrifað undir aukinn launa-
mun BSRB-félaga og háskóia-
manna, en það feliSt í samningi
BHMR og ríkisins.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, segir
að Reykjavíkurborg muni strax hefja
undirbúning að því greiða þeim
starfsmönnum, sem samningurinn
taki til, umrædda launahækkun.
Kröfum stefnda um frávísun þar
sem kröfugerð FÍN heyri undir úr-
skurðarnefnd samkvæmt 9. grein
samningsins var hafnað, þar sem
úrskurðarvald nefndarinnar nái til
fyrirkomulags launabreytinga sem
byggist á niðurstöðum kjarasaman-
burðar en ekki til þeirra ákvæða
samningsins sem kveði á um greiðsl-
ur eða viðurlög, liggi lokaálit kjara-
samanburðarnefndar ekki fyrir inn-
an tilskilins tíma.
Um efni málsins segir að ákvæði
í 1. grein samningsins um að breyt-
ingar á kjörum BHMR-félaga sam-
kvæmt samningnum skuli ekki valda
röskun á hinu almenna launakerfi í
landinu verði ekki skýrt öðruvísi en
svo að telji annar hvor aðilanna slíka
röskun vera yfirvofandi verði hann
að leita samkomulags við hinn um
hvernig skuli bregðast við. Ekki sé
fallist á það með stefnda að ákvæð-
ið hafi heimilað honum að ákveða
einhliða frestun greiðslna enda hafi
ekki verið leitt með óyggjandi hætti
í ljós að afleiðingar samningsins
verði aðrar en þær er sjá mátti fyr-
ir við gerð hans. Sýknukröfu byggðri
á því að kröfugerð stefnanda eigi
ekki stoð í samningnum vísar Fé-
lagsdómur á bug með því að segja
á þá leið að 6. mgr. 5. gr samnings-
ins verði ekki skilin á annan veg en
þann að stefnda beri að greiða fé-
lagsmönnum stefnanda upp í hækk-
un sem þeir kynnu að eiga rétt á
samkvæmt kjarasamanburðinum
þar sem honum hafi ekki verið lokið
innan tilskilins tíma.
Sjá dóm Félagsdóms í heild á
bls. 18-21 og viðtöl á bls. 4-5.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá uppkvaðningu dóms Félagsdóms í gær. Taldir frá vinstri Birgir Guðjónsson, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, Gunnar Björns-
son, lögfræðingur í Ijármálaráðuneytinu, Birgir Björn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri BHMR og Páll Halldórsson, formaður BHMR.
Bandaríkin:
Verð á íslenskum þorskflök-
um hefiir aldrei verið hærra
LOKIÐ var í síðustu viku við
að leggja bundið slitlag á
tveggja kílómetra kafla í Hval-
firði og er þá bundið slitlag alla
leið frá Reykjavík að Dalsmynni
í Norðurárdal.
Það var verktakafyrirtækið
Borgai-verk hf., sem Iagði slitlagið
á tveimur köflum sitt hvora megin
fcölíustöðvarinnar í Hvalfirði. Hófst
verkið í mars og lauk síðasta
fimmtudag. Að sögn Sigvalda
Arasonar, framkvæmdastjóra
Borgarverks, er þó nauðsynlegt
að keyra varlega á kaflanum og
gæta þess að aka ekki í sömu hjól-
förum meðan klæðningin er ný.
„VIÐ höfum nýlega hækkað
verð á þorskflökum í fímm
punda pakkningum um 8,3%,
úr 2,40 Bandarikjadölum í 2,60
dali fyrir pundið, en verðið
hækkaði síðast í byrjun júní sl.
Við hækkuðum einnig verð á
öðrum þorskflakapakkningum
um 15-20 sent fyrir pundið,“
sagði Magnús Gústafsson, for-
stjóri Coldwater Seafood Corp.,
dótturfyrii-tækis Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna í Banda-
ríkjunum.
Verð á íslenskum þorskflökum
og þorskblokk í Bandaríkjunum
hefur því komist upp fyrir fyrra
metverð í dollurum talið, sem
fékkst árið 1987, að sögn Magnús-
ar.
Verð á þorskflökum í fimm
punda pakkningum var 2,30
Bandaríkjadalir um síðustu ára-
mót, þannig að Coldwater Seafood
hefur hækkað verðið um 13% á
þessu ári. „Við höfum hækkað
verð á beinlausum karfa lítilshátt-
ar en seljum pundið af ýsu áfram
á 2,90 dali,“ sagði Magnús Gú-
stafsson. Hann sagði að vonast
væri til að aftur kæmist góð hreyf-
ing á söluna á ýsu vegna verð-
hækkunar á þorski.
Coldwater Seafood hækkaði
nýlega verð á þorskblokk í 2,05-
2,10 Bandaríkjadali fyrir pundið,
þannig að verðið á henni hefur
hækkað um 27,3% í Bandaríkjun-
um á þessu ári.
Suðaustlæg átt
fram að helgi
GERT er ráð fyrir að áfram verði
suðaustlæg átt á landinu næstu
daga, en vindur verður hægari.
Magnús Jónsson veðurfræðingur
sagði í samtali við Morgunblaðið
að samkvæmt spám mætti búast
við að veðrið héldist svona a.m.k.
fram á föstudag. í dag verður
líklega rigning á Suðurlandi ög
síðan skúrir, en á Norðurlandi verð-
ur þurrt, bjart og hlýtt.
Salmonellusmit á Austurlandi
SALMONELLA kom upp á sveitabæ á Austurlandi skömmu fyrir
síðustu mánaðamót. Leikur grunur á að búpeningur hafí smitað
fólkið á bænum. Ekki hefur orðið vart við salmoncllusmit á bæjun-
um í kring og virðist sem um einangrað tilfelli sé að ræða.
Það voru nokkrir nautgripir á
bænum, sem talið er að hafi smit-
að heimamenn. Ekki er vitað
hvernig skepnurnar veiktust, en
4 að sögn Brynjólfs Sandholt yfir-
dýralæknis verður salmonellusýk-
ing í dýrum yfirleitt vegna fóð-
urs, sem þau éta. Brynjólfur sagði
að ekki væri vitað hvað skepnurn-
ar hefðu látið ofan í sig, sem hefði
valdið sýkingunni. Verið væri að
rannsaka sýni, meðal annars úr
fóðri og mjólk, en niðurstöður
lægju ekki fyrir.
Hvorki skepnur né menn munu
hafa veikzt alvarlega af völdum
salmonellunnar og telja heilbrigð-
isyfirvöld á Austurlandi að um
einangrað tilfelli sé að ræða.