Morgunblaðið - 28.07.1990, Blaðsíða 1
40 SIÐUR B
169. tbl. 78. árg.
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Líbería:
Uppreisnarmenn segj-
ast hafa náð völdum
London. Reuter.
CHARLES Taylor, leiðtogi uppreisnarmanna í Líberíu, tilkynnti í
gær að hann hefði tekið völd í landinu og að ríkisstjórn Samuels
Doe forseta hefði verið sett af. Uppreisnarmenn hafa sótt látlaust
fram undanfarnar vikur; þeir hafa umkringt höfuðborgina Monroviu
og falli forsetans hefur margoft verið spáð.
OPEC-ríkin hækka lág-
marksverð í 21 dollara
Genf. Reuter.
OLÍURÁÐHERRAR samtaka olíuframleiðsluríkja (OPEC) náðu í gær
samkomulagi um að hækka lágmarks viðmiðunarverð á oliufati úr
18 dollurum (1.050 ÍSK) í 21 (1.226 ÍSK) og draga úr framleiðslu sem
nemur einni milljón fata á dag. Er þetta í fyrsta sinn frá því á OPEC-
fúndi í Balí í Indónesíu 1980 að ráðherrarnir ná samkomulagi um
verðhækkun en þá var fatið hækkað í 34 dollara. I millitíðinni hefur
verðið fallið vegna offramleiðslu og ósamkomulags um framleiðslu-
kvóta.
Það var útvarpsstöð uppreisnar-
manna í Vestur-Afríku-ríkinu
Líberíu, Radio Elwa, sem flutti
tíðindin um valdatöku þeirra. Taylor
flutti þar ávarp og sagði að stjórn-
arskrá landsins hefði verið felld úr
gildi. Hann sagði að útgöngubann
væri frá kvöldi til morguns en bað
íbúa landsins að halda ró sinni.
Flugvöllum og höfnum landsins
Jeltsín hitt-
ir forseta
Eystrasalts-
ríkjanna
Moskvu. Reuter.
FORSETAR
Eystrasalts-
ríkjanna
þriggja og Bor-
is Jeltsín, for-
seti Rússlands,
hafa komið sér
saman um að
hefja þegar í
stað viðræður
um samning er
myndaði ramma um tengsl lýð-
veldanna fjögurra.
Þetta var tilkynnt í bænum
Jurmala í Lettlandi í gær. Þar hitt-
ust Vytautas Landsbergis, forseti
Litháens, Arnold Ruutel, forseti
Eistlands, og Anatolijs Gorbunovs,
forseti Lettlands. Jeltsín kom
óvænt til fundarins og átti viðræð-
ur við starfsbræður sína. Að fund-
inum loknum var tilkynnt að
Eystrasaltslöndin og Rússland
myndu auka samstarf sitt.
hefði verið lokað og bönkum og
ríkisstofnunum sömuleiðis. Taylor
sagði að hin nýja stjórn ætlaði að
halda kosningar innan sex mánaða.
Sjónarvottar sögðu að flótti hefði
brostið í liði forsetans, sumir hefðu
kastað frá sér vopnum en aðrir ráð-
ist inn á heimili óbreytta borgara.
Rúmlega 8.000 manns hafa leitað
hælis í sendiráði Bandaríkjanna í
höfuðborginni Monrovíu. Ekki er
vitað um afdrif forsetans sjáifs sem
ekki hefur yfirgefið höll sína um
nokkra hríð. Doe sem komst til
valda fyrir tíu árum er sagður eiga
við drykkjuvandamál að stríða og
að sögn hefur hann glatað raun-
veruleikaskyni sínu. Undanfarið
hefur hann verið hálfgerður fangi
hermanna sinna sem óttuðust að
þeir yrðu teknir af lífi ef Doe flýði
land án þeirra.
Sjá „Doe forseta spáð ..“ á bls.
16.
Samkomulagið í gær náðist fyrir
tilstilli Saudi-Araba en írakar höfðu
krafist þess að verðið yrði hækkað
í 25 dollara. Auk þess að hækka
lágmarksverð skuldbundu ráðherr-
amir sig til að halda sig við nýjan
framleiðslukvóta sem hljóðar upp á
22,5 milljónir fata á dag. Gangi það
eftir mun samanlögð olíufram-
leiðsla OPEC-ríkjanna minnka um
eina milljón fata á dag frá því sem
verið hefur. Að kröfu íraka eru ríkin
skyldug til að halda kvótann og
verður sérstöku eftirliti komið á í
því skyni. Með þessu er ætlunin að
draga úr offramleiðslu, minnka
birgðir og koma skyndimarkaðs-
verðinu upp. Kúvæt og Sameinuðu
arabísku furstadæmin hafa lengi
virt alla kvóta að vettugi en í gær
hétu ráðherrar þeirra að halda hinn
nýja kvóta sem þeim var skammtað-
ur.
Hisham Nazer, olíuráðherra
Saudi-Arabíu, sagðist í gær eiga
von á að markmiðum ráðherrafund-
arins yrði náð í desember næstkom-
andi, en þá birgja Vesturlönd sig
upp af olíu fyrir veturinn. Sérfræð:
ingar Merrill Lynch-fjármálafyrir-
tækisins spáðu því að með stefnu-
breytingu OPEC-ríkjanna í olíu-
verðlagningu mætti búast við að
ríki á Vesturlöndum svöruðu verð-
hækkunum þeirra með sköttum og
öðrum aðgerðum til að draga úr
olíunotkun.
íranir eru sagðir hafa átt tals-
verðan þátt í að málamiðlun náðist
á OPEC-fundinum í Genf. Hvatti
Ali Akbar Hashemi Rafsanjani for-
seti írans í gær til þess að helstu
olíuframleiðsluríki heims að Sov-
étríkjunum meðtöldum ynnu saman
að því að koma olíufatinu í 30 doll-
ara í framtíðinni.
Markaðsverð á olíu hefur hækkað
um fjóra dollara undanfarnar vikur
þar sem búist hafði verið við að
samkomulag um nýtt lágmarksverð
næðist á OPEC-fundinum. Hækkaði
verðið því aðeins um 25 sent i gær
og kostaði fatið af viðmiðunarolíu
úr Norðursjónum 19,51 dollara en
Dubai-olía 17 dollara.
Bjargað eft-
ir 11 daga í
rústunum
Manila. Reuter.
KARLl og konu var í gær bjarg-
að lífs úr rústum liótels í Baguio
á Filippseyjum 11 dögum eftir
jarðskjálftann mikla sem reið
yfir landið. Bæði unnu á hótelinu.
Arnel Calavia, 27, ára gamall,
sagðist hafa leitað skjols undir borði
þegar skjálftinn varð. „Fyrstu fjóra
dagana fann ég hvorki til hungurs
né þorsta en síðustu dagana dró
ég fram lífið á regnvatni,“ sagði
hann við fréttamenn í gær. Luisa
Malorca, 23 ára gömul, var verr á
sig komin. Að sögn lækna hélt hún
í sér lífi með því að drekka þvag sitt.
Kastró á degi byltingarinnar:
Skorar á Kúbumenn
að herða sultarólina
Havana. Reuter.
í RÆÐU í tileíhi af byltingarafmæli á Kúbu sagði Fídel Kastró
forseti landsins að öllum sem það vildu væri heimilt að llytja úr
landi og skoraði hann á Bandaríkin og ríki Vestur-Evrópu að
taka við fólkinu. Hann hélt ótrauður fram kjörorði sínu „sósíal-
isma eða dauðann" og sagði að Kúbverjar yrðu nú að herða
sultarólina því erfiðir tímar væru framundan.
Ræðuna sem var þriggja tíma
löng flutti Kastró á fimmtudags-
kvöld. Hann gerði vaxandi ein-
angrun landsins að umtalsefni og
sagði að vegna breytinganna í
Austur-Evrópu hefðu viðskipti við
nokkur lönd þar svo að segja lagst
af. í gær tilkynntu þróunarraála-
ráðuneyti þýsku ríkjanna beggja
að Kúba fengi enga þróunarað-
stoð framar fyrr en vart yrði pólit-
ískra umbóta. Austur-Þýskaland
hefur fram til þessa veitt Kúbu
mikla fjárhagsaðstoð.
Kastró hefur áður boðið Kúbu-
mönnum að flytjast úr landi. Árið
1980 fluttu 125.000 Kúbveijartil
Bandaríkjanna en grunur lék á
Reuter
Fídel Kastró
að Kastró hefði tæmt fangelsi
landsins í leiðinni. Kastró sagði í
ræðu sinni í gær að tilboðið næði
þó-ekki til þeirra 22 manna sem
leitað hafa hælis í erlendum sendi-
ráðum í Havana. Deilan um af-
drif þessa hóps hefur spillt sam-
bandi Kastrós við stjórnvöld á
Spáni sem löngum hafa verið
dyggustu stuðningsmenn hans á
Vesturlöndum.
Boris Jeltsín