Morgunblaðið - 28.07.1990, Síða 4

Morgunblaðið - 28.07.1990, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990 Húsvíkingar stofin- uðu útgerðarfélag Húsavík. ^ ° . Útgerðarfélag Húsavíkur hf. — nýtt félag — var stoínað fimmtu- daginn 26. júlí á fúndi, sem boðað var til í framhaldi af borgara- íúndi hinn 13. maí síðastliðinn, um atvinnumál á Húsavík. Onnur grein stofiisamnings hljóðar svo: „Tilgangur félagsins er að reka útgerð og annan skyldan atvinnurekstur og leigja eða kaupa skip, báta, aflaheimildir og fasteignir því tilheyrandi, svo og lánastarf- semi.“ Minnst skal hlutafé vera það upp í 50 milljónir króna. Á fundinum skrifuðu 78 stofn- aðilar sig fyrir 21 milljón króna og var nýkjörinni stjórn falið að hefja söfnun frekara hlutafjár. Húsvíkingar hafa haft áhyggjur af því, að segja má að stöðnun hafi verið í atvinnulífi staðarins nokkur undanfarin ár. Samdráttur hefur orðið í þeim greinum, sem afla og vinna úr sjávarafla og land- búnaðarafurðum, en fjölgun hefur orðið í þjónustustörfum, sem þó hefur vart nægt til að halda í horf- inu og atvinnuöryggi ekki verið eins mikið og Húsvíkingar hafa . átt við að búa undanfarinn áratug. Samdráttur hefur orðið í öflun þorskafla en landsettur þorskur 1981 samtals 11 þúsund tonn en 20 milljónir en heimdt að auka á síðasta ári um 7 þúsund tonn og ræður þar mestu kvótaskerð- ingin. Rækjuveiði hefur að nokkru mætt nefndri skerðingu en þó ekki fullkomlega. Á fundinum var rætt um að í fyrsta áfanga yrði um kvótakaup að ræða, því fýrst og fremst vant- ar hráefni til bæjarins og heimild- ir til að afla þeirra, fremur en tæki til þess, þau eru fyrir á staðn- um. Stjóm félagsins var kosin. Skipa hana þessir: Einar Njálsson, Þrá- inn Gunnarsson, Hermann Larsen, Haukur Hauksson og Óli Aust- fjörð. - Fréttaritari ' . ■ ... i > —, .— * : ffi kCÍ'IÍ *]■ J /T f 'T&am-. P M ■ ■ ffj 1 Morgunblaðið/BAR Dansað ígóða veðrinu íbúar að Vesturgötu 7 brugðu á leik í góða veðrinu í gær. Húsið var skreytt og íbúarnir stigu dans und- ir dunandi harmonikkutónlist. Þegar hvíla þurfti lúin bein var sest niður í sólinni með kaffibollann. VEÐUR Icelandic Freezing Plants og Brekkes í Bretlandi: VEÐURHORFUR í DAG, 28. JÚLÍ YFIRLIT í G/ER: Austur við Noreg er 1023ja mb hæð en hægfara 1002ja mb lægð um 600 km suövestur af Reykjanesi og 1003ja mb lægð um 500 km suður af ingólfshöföa þokast vestnorðvestur. SPÁ: Austan- og suöaustanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi og skýjað. Súid eða rigning við suður- og austurströndina en annars úrkomu- lítið og hlýtt. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Austlæg átt og hlýtt í veðri. Skýjað og dálítii súld á Suðaustur- og Austuriandi en þurrt og viða léttskýjað um vestanvert iandið. HORFUR Á MÁNUDAG: Austan- og norðaustanátt og heldur kóln- andi. Skýjað og víða þokuioft og súld við norður- og austurströnd- ina en þurrt og viða léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * ■|Q° Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir * V El = Þoka = Þokumóðs ’ , ’ Súld OO Mistur —J* Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VIÐA UM HEIM kl, 12:00 í gær að fsl. tíma htti veSur Akureyri 19 rigning 16 rigning Bergen 22 téttskýjað Holsinki 22 hálfskýjað Kaupmannahöfn 24 léttskýjað Narssarssuaq 11 skýjað Nuuk 6 rignmg Óstó 27 léttskýjaft Stokkhólmur 24 léttskýjaft Þórshöfn 12 alskýjaft Algarve 26 heiðskfrt Amsterdam 27 skýjað Barcetona 27 mistur Berlfn 24 téttskýjaö Chicago 22 skýjaft Feneyjar 28 heiðakírt Frankfurt 28 léttskýjafi Glasgow 19 mistur Hamborg 22 iéttskýjað taaPalmas vanter London 26 rigntng LosAngeles 19 léttskýjað Lúxemborg 27 hálfskýjað Madrid 29 mistur Malaga 33 heiftskírt Mallorca 30 léttskýjað Montreal 22 heiftskirt NewYork 23 alskýjeð Orlando 25 skýjað Parts vantar Róm 28 iéttskýjað Vin 26 léttskýjað Washington 24 þokumófta Winnipeg 20 alskýjað Selt fyrir 31,3% hærra heildarverð en í fyrra ICELANDIC Freezing Plants, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Grimsby í Bretlandi, og Brekkes, dótturfyr- irtæki IFPL í Grimsby, seldu fyrir samtals 23,3 milljónir Sterlings- punda fyrstu sex mánuðina i ár, sem er um 2,5 milljarðar króna á núvirði, eða 31,3% hærra heildar- verð í pundum en á sama tíma í fyrra. Sterlingspundið hefiir hækkað um 8% gagnvart íslensku krónunni síðastliðið ár en verð- bólga í Bretlandi hefúr verið um 10% á sama tíma. „Við höfum selt mun meira í sum- ar en búist var við og þessi mánuður lítur mjög vel út,“ sagði Agnar Frið- riksson forstjóri IFPL. IFPL seldi verksmiðjuvöru fyrir 8,6 milljónir Sterlingspunda fyrstu sex mánuðina í ár, eða 46,6% hærra verð í pundum en á sama tíma í fyrra, svo og aðra frysta vöru, það er að segja flök, síld, rækju og fleira, fyrir 7,8 milljónir punda, eða 15,5% hærra verð en fyrstu sex mánuðina á síðastliðnu ári. Brekkes, dótturfyr- irtæki IFPL, seldi fyrir 6,85 milljónir punda fyn-i helming þessa árs, eða 34,5% hærra verð en á sama tíma í fyrra. Agnar Friðriksson sagði að IFPL hefði hækkað verð á bæði land- og sjófrystum þorsk- og ýsuflökum í maí og júní síðastliðnum. „Það er fiskskortur í Evrópu en eftirspum eftir fiski er minni yfir sumarmánuð- ina en á öðrum árstfmum, þannig að erfitt er að meta hvort verðið heldur áfram að hækka fyrr en í haust þegar eftirspumin eykst á ný. Það er töluvert mikið af þorski hér á markaðinum frá Portúgal, Spáni og Kanada. Einnig var hér töluvert framboð af þorskblokk og þorskflök- um frá Danmörku fyrri hluta síðast- liðins mánaðar.“ Samtök breskra matvælaframleið- enda, British Frozen Food Federati- on, veittu IFPL nýlega fyrstu verð- laun fyrir tilbúinn fiskrétt. Rétturinn heitir Cod En Croute og er framleidd- ur undir vörumerkinu Marico. í rétt- inum er þorskur og rækjur í ostasósu. Borginni boðið að kaupa Aust- urstræti lOa EIGENDUR . húseignarinnar Austurstræti lOa hafa ritað borg- arráði bréf, þar sem Reykjavík- urborg er boðið húsið til kaups. Verslunarhæðir þess em nú auð- ar, en áður var verslun Pennans í húsinu, og enn fyrr verslunin Torg- ið. Húsið er fimm hæðir. Kjartan Blöndal, einn eigenda hússins, staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að enn hefði ekki borist svar við erind- inu. Bankakort með mynd eru ekki á döfínni BANKARNIR hafa ekki í hyggju að taka upp bankakort með mynd af korthafa að sögn Stefáns Pálssonar, bankastjóra Búnaðarbankans og fráfarandi formanns Félags viðskiptabanka. í frétt í Morgunblaðinu á fimmtu- dag var greint frá því að maður réðst á afgreiðslustúlku sem fór fram á að hann sýndi persónuskilríki er hann hugðist greiða með ávísun. Haft er eftir stúlkunni að erfitt reynist að fá fólk til að framvísa bankakortum. Lýsir hún hneykslun sinni á að bank- amir láti ekki alla þá sem fá ávísana- hefti hafa bankakort með mynd. Stefán sagðist halda að það hlyti að vera undantekning að fólk brygð- ist illa við þegar það væri beðið um bankakort og taldi að fólk notaði bankakort almennt. Hann sagði að rætt hefði verið um að hafa mynd af korthöfum á bankakortum, en ekkert hefði verið gert í því máli. Búnaðarbankinn hefur um nokk- urt skeið boðið fólki upp á að prenta mynd af því á ávísanaeyðublöðin. Stefán sagði að þetta væri töluvert notað og hefði reynst ákaflega vel. Samkvæmt upplýsingum af- greiðslustúlku í kaupfélagi úti á landi er algengt að viðskiptavinir þess taki það óstinnt upp þegar þeir eru beðn- ir um að sýna bankakort.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.