Morgunblaðið - 28.07.1990, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JULI 1990
7
Forsala aðgöngumiða
Heitavatnsrör í sundur:
Hótel Selfoss:
Húsið andaði gufu
- segir leirlistakonan Kogga
Sýning Hans
Christiansen
„AÐKOMAN var lygileg, húsið bókstaflega andaði gufústrókum
eins og í hryllingsmynd," segir Kolbrún Björgólfsdóttir, Kogga,
leirlistakona en verkstæði hennar í Gijótaþorpi gjöreyðilagðist
þegar heitavatnsrör fór í sundur í húsinu sem verkstæðið er í.
Spýttist 90 gráðu heitt vatn inn í verkstæðið heila nótt og það sem
ekki fór á flot, eyðilagðist af gufú og hita.
Vígsla Blönduvirkjunar:
Ekki gefiiar
upplýsingar
um kostnað
Fyrirspurn birtist fyrir
skömmu í Velvakanda um kostn-
að vegna vígslu Blönduvirkjunar
á dögunum. Morgunblaðið leitaði
upplýsinga um kostnað hjá
Landsvirkjun.
Hvorki Halldór Jónatansson, for-
stjóri, né Orn Marinósson, skrif-
stofustjóri Landsvirkjunar, vildu
gefa upplýsingar um hvað veislan
eða flutningur veislugesta norður
kostaði.
HANS Christiansen, myndlist-
arinaður, opnar myndlistarsýn-
ingu á Hótel Selfossi í dag
klukkan 14.
Tjónið hefur ekki verið metið
til fulls en nemur nokkrum milljón-
um. Fór rörið í sundur fyrir slysni
starfsmanna Hitaveitu Reykjavík-
ur og mun tryggingafélag Hitavei-
tunnar bæta tjónið að fullu.
Atvikið varð að kvöldlagi 3. júlí.
Starfsmenn Hitaveitunnar voru að
vinna í Gijótaþorpinu og grófu upp
rör sem lá inn í húsið sem stendur
við Vesturgötu 5. Við það fór rör
inni í húsinu í sundur en þar sem
húsið var læst komust þeir ekki
inn til að athuga hvort eitthvað
hefði farið úrskeiðis. Spýttist svo
90 gráðu heitt vatn inn í verkstaéð-
ið alla nóttina. Að sögn Koggu
eyðilagðist allt sem inni var, utan
einstaka tilbúnir munir. 011 vara
sem beið brennslu, verkfæri, bæk-
ur, hráefni, milliveggir og vélar
eyðilögðust. „Þegar við komum
að verkstæðinu um morguninn
stóð gufa út um gluggana og vatn
lak niður veggi. Allt timbur var
svo þrútið að það var ekki hægt
að opna og þegar tókst að taka
úr glugga, varð að fá „gufukaf-
ara“ til að fara inn á verkstæðið
sem var bókstaflega soðið. Einnig
hafði gufan náð inn á efri hæðir
hússins og eyðilagðist m.a. telex-
tæki.“
Kogga segir alla hafa verið
boðna og búna til að aðstoða sig
en vissulega hafi eyðilagst tölu-
Þetta er 22. sýning listamanns-
ins og gefur þar að líta um það
bil 25 vatnslita- og pastelmyndir,
gerðar á þessu og sl. ári.
Sýningunni lýkur að kvöldi
sunnudags 5. ágúst.
A myndinni er Hans Christians-
en á vinnustofu sinni.
vert af óbætanlegum persónuleg-
um munum. Þá hefur hún ekki enn
getað hafið störf þar sem öll verk-
færi og hráefni þarf að panta frá
útlöndum. „Tjónið hefur ekki verið
að fullu metið en Hitaveitan mun
bæta mér það, bæði eignatjón og
vinnutap.“
ÞÚ?
höfuðstaðar þungarokkaranna
á Monsters Of Rock hátíðina 1990?
Kauptu strax miðann þinn á Whitesnake og Quireboys
og freistaðu gæfunnar. Hún gæti verið með þér!
DAVID COVERDALE
- Whitesnake
Málið gegn
Halli í saka-
dóm að nýju
RÍKISSAKSÓKNARI hefúr
sent mál ákæruvaldsins
gegn Halli Magnússyni í
sakadóm Reykjavíkur til
dómsmeðferðar og -álagn-
ingar að nýju samkvæmt
fyrirliggjandi ákæru.
Málinu, sem höfðað var
vegna meintra ærumeiðinga
í blaðagrein sem Hallur skrif-
aði í Tímann gagnvart opin-
berum starfsmanni, séra Þóri
Stephensen, staðarhaldara í
Viðey og þáverandi dóm-
kirkjupresti, var vísað frá
sakadómi með dómi Hæsta-
réttar þar sem ákæruvaldið
hefði ekki sótt þing í saka-
dómi. Að sögn Braga Stein-
arssonar, vararíkissaksókn-
ara, er eldri ákæra óbreytt
að kalla og í samræmi við
dóm Hæstarétar verður þing
nú sótt í sakadómi af hálfu
ákæruvaldsins.
Aðalvinningur:
Ferð fyrir tvo á DONNINGTON
rokkhátíðina í Englandi 18. ágúst.
Whitesnake verða þar aðalnúmerið.
Quireboys leika þar einnig svo og
Poison og Aerosmith.
Fjöldi aukavinninga
10O aukaverðlaun verða veitt
í risarokkleiknum.
Hljómplötur og geisladiskar
með Whitesnake og
Quireboys og bolir frá báðum
hljómsveitunum.
FERD ÞU
TIL DONNINGTON
Ert þu að hugsa um að fara
á Whitesnake og Quireboys tónleikana 7. sept.?
Því ekki að kaupa miða á 2950, “ í staðinn fyrir 3500,-? Það getur þú með því
að kaupa miða fyrir 1. ágúst. Þá ferð þú líka í hattinn okkar þegar dregið verður um
ferð fyrir tvo á Monsters of Rock hátíðina 1990
'.00s í Donnington, Englandi
og 100 aukaverðlaun.
MUNIÐ: Flugleiðir veita 35%
afslátt af verði flugferða gegn
framvísun aðgöngumiða að
risarokktónleikunum.
Reykjavík: Skífan, Kringlunni og Laugavegi 33, Hljóðfærahús Reykjavíkur,
Laugavegi 96, Steinar, Austurstræti, Álfabakka 14, Glæsibæ,
Rauðarárstíg 16 og Eiðistorgi. Hafnarfjörður: Steinar, Strandgötu 37.
Akranes: Bókaskemman. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga.
ísafjörður: Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga. Akur-
eyri: KEA. Neskaupstaður: Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar:
Adam og Eva. Selfoss: Ösp. Keflavík: Hljómval.
Einnig er hægt að panta aðgöngumiða í síma 91 - 667556.