Morgunblaðið - 28.07.1990, Page 16

Morgunblaðið - 28.07.1990, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990 Austur-Þýskaland: Jafiiaðarmenn verða áfrani í ríkisstjóminni Austur-Berlín. Reuter, dpa. Jafhaðarmenn í Austur-Þýskalandi féllust í gær á að vera áfram í stjórn Lothars de Maizieres, forsætisráðherra landsins, eftir að ■ samkomulag hafði náðst við vestur-þýsk sljórnvöld um einar kosning- ar í þýsku ríkjunum í desember. Þingflokkur jafnaðarmanna tók þessa ákvörðun á fundi, sem boðað var til í skyndi, og virðist því stjórn- arkreppu hafa verið afstýrt, en hún hafði vofað yfir í tíu daga. Jafnaðarmenn unnu mikinn sigur á fundi þingnefnda beggja þýsku ríkjanna í Bonn í fyrradag, þar sem Síðasti Citroenbragg- inn framleiddur Lissabon. Reuter. CITROÉN-verksmiðjurnar framleiddu í gær síðasta 2CV-bílinn sem fengið hefur viðurnelhið bragginn hér á landi. Hefur þessi tegund Citroen-bifreiða verið framleidd í rúmlega hálfa öld og þótt bíllinn sé almennt talinn til ljótustu farartækja hefur hann notið fádæma vinsælda. Það voru Citroen-verksmiðjurnar í Mangualde í Portúgal sem nutu þess heiðurs að framleiða síðasta braggann. Verður hann sendur á Citroen-safnið í Frakklandi og varð- veittur þar. Framleiðsla braggans hófst árið 1935 og var hann í upphafi hugsað- ur til að leysa hestakerrur kartöflu- bænda af hólmi. Þess vegna fékk hann tegundarheitið „Deux Chev- aux“ eða Tveir hestar. Við hönnun bifreiðarinnar var við það miðað að hún gæti flutt fjóra menn og 50 kílóa kartöflusekk á 50 km hraða. Einnig varð að vera hægt að aka henni yfir plægðan akur án þess að eitt einasta egg í körfu í aftur- sætinu brotnaði. Loks varð bifreiðin að vera ódýr og þurfa lítið viðhald. Hlé varð á framleiðslu bifreiðar- innar á stríðsárunum en hún hófst að nýju 1948 og hafa sex milljónir bragga verið smíðaðar á þeim tíma. Varð eftirspumin fljótt það mikil og pöntunarlistar það langir að allt að sex ára afgreiðslufrestur var á þeim. Framleiðslu braggans var hætt í Frakklandi í hitteðfyrra en var haldið áfram í Portúgal þar til í gær. hafnað var tillögum flokks de Maizi- eres, Kristilega demókrataflokks- ins, um aðskildar kosningar í Aust- ur- og Vestur-Þýskalandi. Þeir höfðu hótað að ganga úr austur- þýsku samsteypustjórninni eins og Fijálslyndi flokkurinn gerði á þriðjudag vegna deilunnar um tíma- setningu sameiningar ríkjanna og kosningareglur. Forystumenn Frjálslynda flokksins gáfu til kynna í gær að til greina kæmi að flokkur- inn gengi í stjórnina að nýju en þeir sögðu ekki hvenær eða með hvaða skilyrðum það gæti orðið. Komið hefur í ljós að efnahags- samruni þýsku ríkjanna kostar Vestur-Þjóðveija mun meira en gert hafði verið ráð fyrir. Vestur- þýska stjórnin hafði ráðgert að veija 115 milljörðum marka (rúm- lega 4.000 milljörðum ÍSK) í sér- stakan sjóð fyrir sameininguna en ljóst er að það dugar skammt þar sem efnahagur Austur-Þýskalands er mun verri en áætlað var. Til að mynda verða útgjöld austur-þýska ríkisins á seinni helmingi ársins 64 milljarðar marka en tekjurnar að- eins 29,4 milljarðar. Stríðið í Líberíu: Risakúlur Reuter Ungur kínverskur piltur kannar risastórar trefjaglerskúlur í Beihai- garðinum í Peking, höfuðborg Kína. Kúlurnar verða notaðar við hát- íðarhöld sem heijast senn í borginni í tiíefni þess að Asíuleikarnir í íþróttum verða haldnir þar í september nk. Doe forseta spáð falli innan örfárra daga Tekjur Norsk Hydrominnka Oslo. Reuter. TALSMENN Norsk Hydro, stærsta iðnfyrirtækis í Nor- egi, segja að hagnaður fyrir- tækisins hafi minnkað fyrri helming ársins 1990 vegna lágs verðs á framleiðslu þess, allt frá olíu til áls. Tekjur fyrirtækisins af land- búnaðar- og málmframleiðslu minnkuðu. Hins vegar hafa tekjur af olíu- og gasfram- leiðslu og efnum unnum úr olíu og gasi lítið breyst frá því sem var fyrri hluta síðasta árs. Talsmenn fyrirtækisins, sem er að 51 hundraðshluta í eigu norska ríkisins, segja að tekj- utapið sé aðallega vegna lágs söluverðs á framleiðslu þess. Hagnaður fyrirtækisins eftir skatta fyrri hluta þessa árs féll í 1,27 milljarða norskra króna (tæplega 12 milljarða ÍSK) úr 1,7 milljörðum norskra króna (tæplega 16 milljörðum ÍSK) á sama tíma á síðasta ári. Hagn- aður síðari hluta síðasta árs jókst í 459 milljón NKR (tæp- Iega 4,3 milljarða ÍSK) úr 451 milljón NKR (tæplega 4,2 mill- jörðum ISK) á sama tíma ársins 1988. Aukin framleiðsla á olíu og gasi í Norðursjó bætti upp verð- fall á olíu sem var að meðal- tali 928 ÍSK tunnan annan árs- fjórðung þessa árs á móti 1.102 ISK á sama tíma á síðasta ári. Lægra verð en gert var ráð fyrir á vörum eins og áli og plastefnum hefur einnig veikt grundvöll fyrirtækisins. Hundruð þúsunda manna flýja til nágrannar í kj anna Abidjan á Fílabeinsströndinni. Reuter. Uppreisnarmenn í Líberíu nálgast óðfluga forsetahöll Samuels Does í höfuðborg landsins, Monrovíu, og hafa náð á sitt vald helstu varðstöðinni við landamærin að Sierra Leone, að því er stjórnarerind- rekar á Fílabeinsströndinni sögðu í gær. Þeir telja að hersveitir forsetans gefist upp innan örfárra daga en óttast að til bardaga komi síðan á milli stríðandi fylkinga uppreisnarmanna. Á meðan Doe og menn hans heyja úrslitaorrustuna flýja dag hvern um 1.000 manns af ættbálki hans, Krahn, yfir landamærin til Fílabeinsstrandar- innar. Stjórnarerindrekar í Abidjan, höfuðborg Fflabeinsstrandarinnar, sögðu að uppreisnarmennirnir hefðu ráðist inn í Monrovíu frá þremur stöðum í úthverfum borgar- ipnar á miðviku- og fimmtudag. Óstaðfestar fregnir hermdu einnig að uppreisnarmennirnir hefðu náð á sitt vald flugvelli skamrnt frá miðborginni og þar með einangrað stjórnarherinn algjörlega frá um- heiminum. Áður höfðu þeir náð al- þjóðaflugvellinum um 50 km suð- vestur af höfuðborginni. Stjórnar- herinn er agalaus og hefur aðeins nokkurra ferkílómetra svæði í mið- borg Monrovíu á valdi sínu. Þá sögðu stjórnarerindrekamir að helsta varðstöðin við landamærin að Sierra Leone væri nú á valdi uppreisnarmanna. Líberíumönnum væri leyft að fara úr landi en engum væri hleypt inn í landið. Stjórnarhermennirnir eru einkum af Krahn-ættbálkinum og lífláta af handahófi fólk af Gio- og Mano- ættbálkunum, sem styðja uppreisn- armennina. Erlendir fréttamenn í Monrovíu skýrðu frá því að her- menn Does hefðu flutt hátt í þijátíu Sovétríkin: Armenar neita að afhenda vopn Moskvu. Reuter. ÆÐSTI foringi helstu hersveitar armenskra þjóðernissinna sagðist í gær ætla að virða að vettugi tilskipun Míkhaíls Gorbatsjovs Sovét- forseta frá því á þriðjudag um að hersveitin léti öll vopn sín af hendi innan fimmtán daga. Hann varaði við blóðbaði ef sovéski herinn reyndi að framfylgja tilskipuninni. „Það er betra að deyja en að svíkja þjóð sína,“ sagði Razík Vasíljan, æðsti foringi Armenska þjóðarhersins (ANA). „Ef þeir senda hermenn gegn okkur verða ægileg átök. Öll þjóðin rís upp. Blóðbað væri óhjákvæmilegt og kæmi hvorki okkur né stjórnvöldum í Moskvu til góða,“ bætti hann við í símasamtali frá Jerevan, höfuð- borg Armeníu. Hann sagði að her- inn væri nauðsynlegur til að vernda Armena vegna hatrammrar deilu þeirra við Azera um héraðið Nag- orno-Karabakh, sem er í Sovétlýð- veldinu Azerbajdzhan en byggt Armenum. Fréttastofan TASS greindi frá því að hermenn sovéska innanríkis- ráðuneytisins væru að undirbúa aðgerðir gegn armenskum hersveit- um ef þær neituðu að láta öll vopn sín af hendi. Stjórnvöld í Moskvu útilokuðu ekki að sett yrðu neyðar- lög í lýðveldinu, sem heimiluðu her- mönnunum að grípa til aðgerða gegn vilja armenskra yfirvalda. manns með valdi frá heimilum sínum og sjúkrahúsum og skotið þá eða höggvið til bana með sveðj- um. Stjórnarerindrekar ríkja Evr- ópubandalagsins fordæmdu þessi dráp harðlega í sameiginlegri yfir- lýsingu. Um 8.000 manns hafa leit- að hælis í bandaríska sendiráðinu í höfuðborginni. Doe einangraður Doe var hálflæs liðþjálfi áður en hann komst til valda fyrir tíu árum eftir mannskætt valdarán. Hann er nú innikróaður í höll sinni ásamt nokkrum hundruðum hermanna, sem hyggjast heyja þar úrslitaorr- ustuna. Forsetinn er sagður hafa drukkið ókjör af áfengi undanfarn- ar vikur og misst öll tengsl við veru- leikann. Einnig er talið að hann sé í raun fangi hermannanna, sem óttast að þeim verði refsað grimmi- lega flýi forsetinn land án þeirra. Uppreisnarmennirnir eru í tveim- ur heijum. Sá stærri er undir stjórn Charles Taylors, 42 ára hagfræð- ings sem nam í Bandaríkjunum, en fyrrum höfuðsmaður, Prince John- son, stjórnar þeim minni. Stjórnar- erindrekar óttast að bardagar kunni að bijótast út á milli þeirra þegar Doe fellur. Um 375.000 Líberíumenn hafa flúið til nágrannaríkjanna frá því borgarastyijöldin braust út í desem- ber sl. 240.000 þeirra eru í Guineu, 108.000 á Fílabeinsströndinni og 15.000 í Sierra Leone. Fyrstu flóttamennirnir á Fílabeinsströnd- inni voru af Mano og Gio-ættbálk- unum og flúðu ofsóknir stjórnarher- manna. Nú hefur hins vegar fólk af Krahn-ættbáikinum tekið að streyma til landsins vegna ótta við uppreisnarmennina, sem hafa ein- angrað heimkynni þeirra. Fimm af hundraði Líberíumanna, sem eru 2,3 milljónir, eru af Krahn-ættbálk- inum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.