Morgunblaðið - 28.07.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
17
32. heimsþing drengjaskáta:
Tékkar og Ung-
verjar fá aðild
Á 32. heimsþingi drengjaskáta sem lauk í gær í París var sam-
þykkt að veita skátahreyfíngum í Tékkóslóvakíu og Ungverjalandi
aðild. Að sögn Gunnars Eyjólfssonar, skátahöfðingja á Islandi, var
einnig lesið skeyti á þinginu frá Míkhaíl Gorbatsjov, forseta Sov-
étríkjanna, þar sem hann bauð skátahreyfinguna velkomna til
starfa í Sovétríkjunum en hún hefur verið bönnuð þar frá árinu 1917.
„Ungveijar og Tékkar eru nú
komnir á ný í samtökin eftir fjöru-
tíu ára fjarvist,“ sagði Gunnar
Eyjólfsson í samtali við Morgun-
blaðið. „Það var ákaflega áhrifam-
ikið þegar þau vora tekin inn.
Fulltrúarnir frá þessum löndum
eru núna gamalt fólk en þau komu
í gömlu skátabúningunum sínum.
Einn þeirra hafði setið í fangelsi í
þrettán ár fyrir að vera skáti. Það
barst sérstakt skeyti frá Vaclav
Havel, forseta Tékkóslóvakíu, þar
sem hann fagnaði því að Tékkar
skyldu aftur eiga aðild að samtök-
unum en sjálfur var hann skáti
þegar hann var lítill." Gunnar sagði
að Pólveijar hefðu einnig átt full-
trúa á þinginu en í Póllandi störf-
uðu skátar á vegum ríkisins og
uppfylltu því ekki inntökuskilyrði
heimsstakanna. Af öðrum störfum
þingsins nefndi Gunnar mikla at-
höfn sem haldin var af því tilefni
að skátar í Evrópu hafa boðið
1.200 sovéskum bömum sem urðu
fyrir geislun í Tsjernobyl-slysinu í
sumarbúðir.
Samtals eru 17 milljónir manna
félagar í þeim samtökum sem að-
ild eiga að heimssambandi
drengjaskáta. Um níu milljónir
eiga aðild að sambandi kvenskáta.
Kvenskátar héldu sitt heimsþing í
Singapore í júnimánuði og þar
fengu Tékkar fulla aðild en Ung-
veijar aukaaðild.
Um 800 fulltrúar sátu þingið í
París. Fyrir íslands hönd var þar
auk Gunnars Eyjólfssonar Anna
Gunnhildur Sverrisdóttir, alþjóða-
ritari íslensku skátahreyfingarinn-
ar.
V estur-Þýskaland:
Reuter
Bilreið Hans Neusels skemmdist mjög í sprengjutilræðinu en hann
ók henni samt áfram þann spöl sem hann átti ófarinn til vinnu. Á
innfelldu myndinni talar Neusel við blaðamenn.
Ráðuneytisstj óra
sýnt banatilræði
Arabi handtekinn vegna sprengingar í diskóteki
Bonn. Reuter.
HANS Neusel, ráðuneytisstjóri Bonn-sljórnarinnar í baráttunni
vestur-þýska innanríkisráðu- gegn hryðjuverkamönnum, var
neytinu og helsti sérfræðingur
Sovétlýðveldið Hvíta-
Rússland lýst fullvalda
Moskvu. Reuter.
ÞING Hvíta-Rússlands sam-
þykkti að lýsa yfir fúllveldi lýð-
veldisins í gær.
Talsmaður fréttastofunnar Belta í
Hvíta-Rússlandi sagði að atkvæða-
greiðsian. hefði verið samhljóða en
aðeins 230 af 350 þingmönnum
hefðu verið viðstaddir.
Á síðustu tveimur mánuðum hafa
Úkraína og Rússland lýst yfir fuli-
veldi og Moldavía og Úzbekistan
hafa lýst því yfir að lög lýðveldanna
séu sovéskúm lögum rétthærri þar
sem þau skarast.
íbúar Hvíta-Rússlands eru 10
milljónir en Sovétríkjanna allra um
280 milljónir.
sýnt banatilræði í gærmorgun.
Slapp hann með lítils háttar
skrámur en talið er að félagar
Rauðu herdeildarinnar (RAF)
hafi verið að verki.
Neusel var á leið til vinnu sinnar
er fjarstýrð sprengja sprakk í veg-
arkanti stutt frá vinnustað hans.
Skammt þar frá fannst bréf þar
sem „víkingasveit Jose Manuel
Sevillano“ lýsti ábyrgð á sprengj-
utilræðinu. Á bréfið var stimplað
stjörnumerki sem er auðkennandi
fyrir RAF. Sevillano var félagi í
spænsku hryðjuverkasamtökunum
Grapo en dó nýlega eftir hungur-
verkfall í spænsku fangelsi.
I gær var 32 ára arabi með
vestur-þýskt ríkisfang handtekinn
og gefið að sök að hafa skipulagt
og undirbúið sprengjutilræði í La
Belle-diskótekinu í Berlín í apríl
1986. Gefnar hafa verið út hand-
tökutilskipanir á hendur fimm öðr-
um aröbum og er þeirra nú ákaft
leitað. Bandarískir hermenn vora
tíðir gestir á diskótekinu og í
sprengingunni beið einn þeirra
bana ásamt tyrkneskri stúlku.
Bandarísk yfii-völd fengu fljótlega
óyggjandi upplýsingar um að til-
ræðið hefði verið undirbúið í
líbýska sendiráðinu í Austur-
Berlín og í framhaldi af því fyrir-
skipaði Ronald Reagan, þáverandi
forseti, loftárás á Líbýu í hefndar-
skyni.
Guð læknar
Heilun með hjálp
Guðs anda án lyfja
eða lækningajurta.
Bókaverð 7,80 DM.
Upplýsingar:
Universal Life,
Postfach 5643,
D-8700 Wiirzburg,
W-Germany.
CAMP-LET '90 TJALDVAGNARNIR RENNA ÚT!
Það er næsta fullvíst að Camp-let hefur fallið íslendingum best allra tjald-
vagna, enda er frágangur þeirra rómaður og telja eigendur þeirra þá best
fallna fyrir íslenskar aðstæður. Og til marks um það má nefna að óhöpp vegna
óveðurs eru næsta óþekkt hjá Camp-let eigendum. í ár er boðið upp á góð
greiðslukjör: kr. 100.000,- útborgun og afgangur lánaður til allt að 30
mánaða. Camp-let er einnig tii sýnis hjá BSA bílasölunni á
Akureyri og hjá Bílakringlunni í Keflavík.