Morgunblaðið - 28.07.1990, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
Hraðfrystihús
Ólaisfjarðar:
Talin þörf á
meiri kvóta
Nýr framkvæmda-
stjóri ráðinn
NYR framkvæmdastjóri hefur
verið ráðinn að Hraðfrystihúsi
Olafsfjarðar, Jóhann Guðmunds-
son. Hann tekur við rekstri þess
í lok ágúst. Hraðfrystihúsið verð-
ur lokað fram yfir verslunar-
mannahelgi, en Ólafur Bekkur er
kominn á veiðar eftir viðgerð. Að
sögn Gunnars Þórs Magnússonar
stjórnarformanns er fyrirséð að
rekstur fyrirtækisins verði erfið-
leikum háður ef ekki fæst aukning
á veiðiheimildum þess. Til um-
ræðu hefur komið að sameina
Sædísi hf., sem gerir út togarann
Sigurfara og Hraðfrystihúsið en
ekki hefur náðst samstaða um þá
lausn.
Jóhann Guðmundsson er 36 ára
gamall Flateyringur og menntaður
í vélaverkfræði. Hann starfaði um
skeið sem vélstjóri um borð í togar-
'anum Gylli, en hélt svo til náms í
sjávarútvegsfræðum í Danmörku.
Jóhann er kvæntur og á eitt barn.
Kvóti Ólafs Bekks verður skorinn
umtalsvert niður á næsta ári. Skipið
hefur verið á sóknarmarki og veitt
um 3.000 tonn á ári. Á næsta ári
verður sóknarmarkið lagt niður og
bendir allt til þess að aflamark skips-
ins verði innan við 2.000 tonn.
Að sögn Gunnars þyrfti skipið að
veiða hátt á fjórða þúsund lesta á
ári ef vel ætti að vera, en frystihús-
ið þarf að vinna úr um 3.000 lestum
af hráefni.
Sædís hf. er dótturfyrirtæki fisk-
vinnslunnar Stíganda. I landi vinna
um 14 manns, en allt að 15 manns
eru í áhöfn skipsins. Sigurfari, tog-
ari fyrirtækisins, hefur um 1.000
þorskígilda kvóta á þessu ári.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sólin hefur baðað gesti og gangandi á Akureyri undanfarna daga og þeir sækja í sundlaugina til
þess að kæla sig eða skola burt vegrykið.
Annir í Sund-
laug Akureyrar
STARFSFÓLK Sundlaugar Ak-
ureyrar fer ekki varhluta af
þeim ferðamannastraumi sem
verið hefur til bæjarins undan-
farnar vikur. Lætur nærri að í
sundlauginni baði sig hátt í 1.500
manns á dag þegar aðsóknin er
mest. Það jafngildir fimmfaldri
íbúatölu Grenivíkur.
Að sögn Helgu Alfreðsdóttur
starfsstúlku vinna fjórir við af-
greiðslu og sundvörslu að jafnaði.
Á sumrin er stór hluti viðskiptavin-
anna gestir af tjaldstæðunum við
Þórunnarstræti, en þar eru engar
sturtur. Þá koma daglega rútur úr
langferðum með tugi farþega sem
allir hyggjast nýta sér baðaðstöð-
una.
Aðspurð segir Helga að það sé
visst óhagræði fyrir ferðamenn að
ekki sé boðið upp á betri aðstöðu
á tjaldstæðunum, einkanlega þar
sem sundlaugin er lokuð eftir
klukkan 19 á virkum dögum, 18 á
iaugardögum og 16 á sunnudögum.
Álafoss:
Brúður, hunang, haglabyss-
ur og píanó fyrir lopapeysur
Kemur gnll fyrir ull?
VÖRUSKIPTI Álafoss við Sov-
étríkin gerast æ fjölbreyttari.
Álafoss mun á þessu ári skipta
við Sovétmenn á lopapeysum og
olíuvörum, eplaþykkni, hunangi,
stígvélum, haglabyssum, slag-
hörpum og trébrúðum að sögn
Glæsile^
sumarlftiis
ftil sölu
Verðlækkun
Margar gerðir
Sýnd á Seltjarnarnesi v/Bygggarða.
Sýningarhús okkar til sölu og afhendingar ílok
júlí Fullbúið hús á mjög góðu verði. Allar upplýs-
ingar í símum 91-612400 og 96-26449.
Söluaðilar:
Lundi hf., BYNOR,
Bygggörðum 7,.Seltj.
Sími 612400.
Akureyri.
Sími 96-26449.
Opið sunnudaginn 29. júlí
frá kl. i4.00-17.00
Kolbeins Sigurbjörnssonar
markaðsfulltrúa. Til greina kem-
ur einnig að greitt verði fyrir
sendingu af lopapeysum til
Síberíu með gulli. I byrjun mán-
aðarins kom til landsins fyrsta
sending af handmáluðum tré-
brúðum sem seldar verða ferða-
mönnum á Islandi sem minjagrip-
ir. Gripirnir eru eftirlíkingar af
rússneskum „matrjoshkum", tré-
brúðum sem eru holar að innan
og geyma aðrar brúður. Munur-
inn er sá að íslensku brúðurnar
eru málaðar í mynd víkinga í
stað digurra kvenna.
Fyrirtækið hefur nú tekið við
fyrsta farmi af nefras, sem er hrá-
efni unnið úr olíu. Salnningur Ála-
foss við Rosvneshtorg hljóðar upp
á peysur fyrir 60 milljónir króna
gegn 10.000 lestum af nefras, sem
selt verður til iðnaðar í Svíþjóð.
Álafoss hefur um nokkurt skeið
átt vöruskipti við Sovétmenn á ull-
arvörum og öðrum varningi. Við-
skipti fyrirtækisins við aðila eystra
eru að hluta gegn greiðslu í dollur-
um, en Sovétmenn eru tilbúnir að
taka við meiri ullarvöru gegn
greiðslu í fríðu.
Nú er svo komið að tveir þriðju
hlutar af viðskiptum Álafoss við
Sovétmenn eru hrein vöruskipti. Á
þessu ári verður heildarverðmæti
ullarvöru sem Álafoss selur til Sov-
étríkjanna um 450 milljónir króna,
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kolbeinn Sigurbjörnsson með víkingabrúðurnar sem Álafoss hefur
látið mála í Sovétríkjunum og greiðir með lopapeysum. Hann sagði
að nafn væri ekki fundið á trékarlana og væru allar uppástungur
vel þegnar.
en skipt verður á vörum fyrir 300
milljónir króna.
Vöruskipti eru elsti háttur við-
skipta og síður en svo á undan-
haldi. Samkvæmt upplýsingum frá
Hagfræðistofnun Oxford-háskóla
er um þriðjungur viðskipta í heimin-
um í þessu líki. Á síðasta ári nam
verðmæti vöruskipta í heiminum
um 42.000 milljörðum íslenskra
króna.
Fyrirtæki sem vinnur að gull-
greftri norðan við Kamtsjatka-
skaga, í grennd við Beringssund
hefur lýst áhuga á því að skipta á
lopapeysum og gulli. Að sögn Kol-
beins verður nánar rætt um þennan
Meira en 200 skráðir
án atvinnu í júlí
MEIRA atvinnuleysi var í júlímánuði en í sama mánuði fyrir ári
samkvæmt upplýsingum frá Vinnumiðlunarskrifstofú Akureyrar.
I lok síðustu viku voru 195 skráðir atvinnulausir, 81 kona og 114
karlar. Skráðir í mánuðinum voru 209.
Atvinnuleysi meðai kvenna er
einna mest á sjötugsaldri, en
fimmtugsaldri meðal karla. Að
undanförnu hafa unglingar sem
störfuðu hjá Utgerðarfélagi Akur-
eyringa verið að bætast á atvinnu-
leysisskrána, en vinna liggur niðri
hjá fyrirtækinu næstu Vikur. At-
vinnuleysi meðal sjómanna er
einnig áberandi.
Fyrir réttu ári voru 186 á at-
vinnuleysisskrá, 116 konur og 70
kariar. Atvinnuleysi meðal karla
hefur aukist þeim mun meira ef
tekið er tillit til þess að hátt í 30
konur sem starfa við ræstingu í
skólum bæjarins eru alltaf skráðar
atvinnulausar á sumrin.
samning í haust^ en líkur virðast
góðar á því að Álafoss hljóti guil
fyrir uil áður en árið er úti.
í byrjun júlí fékk Álafoss fyrstu
sendinguna af víkingabrúðunum.
Þær eru handmáiaðar af verkafólki
í Zagorsk, sem er forn höfuðstaður
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.
í fyrstu lotu komu 600 brúður, sem
dreift var í minjagripaverslanir um
allt land. Megnið af brúðunum mun
vera selt að sögn Konráðs.
Álafoss hefur tiyggt sér einka-
leyfi á brúðunum á Norðurlöndum.
Þær hafa þegar vakið áhuga í
Skandinavíu og býðst danskt fyrir-
tæki til að kaupa 400 brúður til
reynslu.
Á næstunni tekur Álafoss við um
17 tonnum af eplaþykkni frá Sov-
étríkjunum, sem sélt verður þriðja
aðila í Danmörku. Fyrir aðra send-
ingu af peysum austur verður vænt-
anlega greitt með 500 lestum af
hunangi, sem dreift verður í Skand-
inavíu. I haust er svo von á 5.000
pörum af stígvélum, framleiddum í
Litháen og nokkru magni af hagla-
byssum. Byssurnar eru framleiddar
í verksmiðju sem Pétur mikli keis-
ari kom á fót og steypti áður kirkju-
klukkur í byssuhólka.
Þá veitir Áiafoss senn viðtöku
fyrstu tíu slaghörpunum frá Sov-
étríkjunum sem greitt er fyrir með
lopa. Loks nefnir Kolbeinn viðskipti
með sovéskt naglaefni, sem Vírnet
í Borgarfirði hyggst nota í sína
framleiðslu.