Morgunblaðið - 28.07.1990, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
félk í
fréttum
Farrah Fawcett segist
ánægð í einkalífinu.
Díane Downs slapp úr gæslu-
varðhaldi skömmu eftir að
dæmt hafði verið í máli hennar.
Þremur árum seinna, 17. júlí
1987, komst hún aftur í hendur
laganna varða.
FARRAH FAWCETT
Tekur að sér hlut-
verk glæpakvendis
Bandaríska leikkonan Farrah
Fawcett vinnur nú að því
hörð um höndum að afla sér vin-
sælda sem alvarleg leikkona en
því hefur verið fleygt að athygli
kvikmyndahúsgesta hafi hingað
til fremur beinst að lögulegum
vexti leikkonunnar en leikrænum
tilburðum hennar. í samræmi við
takmark Förruh hefur hún tekið
að sér að fara með hlutverk í
mynd sem breska sjónvai'psstöðin
BBC ætlar að gera um Díönu
Downs-málið svokallaða. Farrah
fer með hlutverk Díönu en sú ’
kona er fræg fyrir að hafa banað
börnum sínum þremur, átta, sjö
og þriggja ára árið 1983, í þeim
tilgangi að öðlast meiri hylli elsk-
huga síns sem ekki vildi verða
faðir. Farrah hefur þegar sökkt
sér ofan í undirbúningsvinnu fyrir
hlutverkið. Hún segist vera í óða
önn að að kanna skýrslur um
málið, hlusta á vitnaleiðslur af
bandi og lesa dagbækur Díönu.
„Hún er ótrúleg," segir Farrah
um Díönu, „svo flókin, svo marg-
ar konur.“
Farrah, sem búið hefur með
leikaranum Ryan O’Neal í tíu ár,
segist vera mjög ánægð í einkalíf-
inu. „Samband okkar Ryans hefur
aldrei verið betra,“ segir Farrah.
„An efa er það að einhveiju leyti
að þakka syni okkar, Redmond,
sem er fjögurra ára. Áður áttum
við það til að rífast. Stundum með
þeim afleiðingum að Ryan æddi
út og gisti í strandhúsinu. Nú er
eins og ekkert geti komið á milli
okkar,“ segir Farrah. „Ryan hefur
líka alltaf kunnað að meta sjálf-
stæði mitt og stutt mig í því sem
ég hef verið að gera. Hann keyrir
mig í upptökur þegar ég þarf að
vinna og á kvöldin förum við sam-
an yfir textann minn,“ bætir hún
við, „og hann ætlast ekki til að
ég sé heima öll kvöld og eldi fyr-
ir hann. Þrátt fyrir skyldur hjóna-
bandsins finnst mér ég vera fijáls
og ég nýt frelsisins," segir Farrah
að lokum.
Morgunblaðið/pþ
Þarna voru stelpurnar að æfa sig í að fara í limbó, og þar með að sækjást eftir því að verða limbómeistari
í flokknum.
TJASKIPTI
Islendingnr í alþjóða-
sljórn ITC-samtakanna
Dagana 14.-18. júlí sl. var al-
þjóðlegt þing ITC-samtak-
anna í Auckland á Nýja Sjálandi.
Á þinginu var kosið í embætti
fyrir næsta starfsár alþjóðasamtak-
anna. í framboði til varaforseta
fimmta svæðis var fulltrúi frá ís-
landi, Kristjana Milla Thorsteins-
son, er hlaut kosningu. Kristjana
Milla hefur starfað ötullega í ITC-
samtökunum frá árinu 1979.
ITC-samtökin eru starfandi víða
um heim, en í Bandaríkjunum er
félagafjöldinn hvað mestur þar sem
þau eru starfandi í einum fimmtíu
ríkjum. Fyrir utan Bandaríkin eru
samtökin starfandi í 22 þjóðlöndum.
ITC-samtökin eru þjálfunarsamtök
er gera félaga sína hæfari til tjá-
skipta og gera þá færari til að þjóna
samfélaginu.
Starfsemi ITC-samtakanna er
svæðisskipt eftir lengdarbaug jarð-
ar. Tilheyra landssamtök ITC á ís-
landi fimmta svæði ásamt lands-
samtökum ITC í Bretlandi og
Landssamtökum í Suður-Afríku.
Deildir án landssamtaka eru einnig
í Hollandi, Austurríki, Luxembourg
og Grikklandi. Varaforsetinn hefur
yfirumsjón með starfi samtakanna
í þessum löndum. Varaforsetinn á
jafnframt sæti í alþjóðastjórn ÍTC-
samtakanna, en höfuðstöðvar sam-
takanna eru í Anaheim í Kaliforníu.
VINDASHLIÐ
í Heimsmetabókina vegna óþekktar
*
Isumarbúðum KFUK í Vindáshlíð
eru 9 stúlknaflokkar á aldrinum
9-12 ára og einn unglingaflokkur
13-16 ára. Hefur allt verið fullt í
sumar og langir biðlistar. Dagskrá
er nokkuð hefðbundin, m.a. farið í
brennó á hveijum degi og að lokum
verður eitt herbergi brennómeist-
ari. íþróttahúsið er mikið notað,
sérstaklega ef eitthvað er að veðri.
Nokkrar hressar stelpur voru
teknar tali og þær spurðar, hvað
það væri helzt sem þeim þætti
skemmtilegt við dvölina í sumar-
búðunum.
„Gott að mega sulla í Laxánni,
fara í aparóluna og apabrúna.
íþróttakeppnin og ratleikurinn eru
líka skemmtileg. Maturinn er rosa-
lega góður. Gijónagrautur með
rúsínum sérstaklega. Allt í lagi að
borða mikið af honum, því við
Kristjana Milla Thorsteinsson.
Kristjana Milla tekur við emb-
ætti sínu 1. ágúst nk. og heldur
því til 31. júlí 1991.
hlaupum svo mikið og ærslumst,
að við verðum ekki fitubollur af því
að fá okkur nokkra diska af hon-
um.“
Rétt hjá Vindáshlíð er rétt og
stundum er réttarleikur. Þá gerast
foringjarnir bændur en stelpurnar
rollur. Draga foringjarnir síðan
stelpurnar í dilka í réttinni eftir
herbergjum eða háralit og þá eru
stundum mikil ærsl — líkt og í
venjulegum réttum.
Hvað lærið þið helzt hér í sumar-
búðunum?
„Við lærum margt um Jesú, sem
er frelsari mannanna og ljós heims-
ins. Hér lærum'við að vera tillits-
samar hver við aðra.“
Eruð þið þá alltaf voðalega góð-
ar?
„Nei, ekki neitt sérstaklega. Eitt
kvöldið, þá kom bænakonan 22 inn
til okkar til þess að sussa á okkur,
af því við vorum með svo mikil
ólæti. Við komumst örugglega í
Heimsmetabókina vegna óþekkt-
ar.“
Ætlið þið að koma aftur næsta
sumar ?
„Jahá,“ svöruðu þær allar. Og
ein bætti við: „Veiztu hvað ég ætla
að gera strax og ég kem heim? Þá
ætla ég að fara að grenja og ekki
að hætta að grenja fyrr en ég fæ
að fara aftur í sumarbúðir — helzt
strax aftur nú í sumar. Svo vel líkar
mér að vera hér í Vindáshlíð.“
- pþ
Fí 1 690,- 1>
GðMSÆT 0G GIRNiLEG
Kjarcibótaveisla Veitingahallarinnar heldur áfram meó enn
fjölbreyttari og girnilegri matseóli alla föstudaga, laugardaga og
sunnudaga. Fjölskyldan fær úrvalsmat á frábæru verói.
,kr. 1.290
kr. 1.090
FISKRFITIR KJÖTRFUIR
Fiskgralín hússins...............kr. 790 Gratíneraðar lambalundir
Djúpsteikt ysuflök Orly m/bakaðri kortöflu...........kr. 1.29
m/tortoreósu..................kr 690 Kálfasnitzel m/papriku,
Ponnusteikt silungsflök louk °9 svePPum...............k' 11 09
mrtínbeijumoganonM ..........k>. 840 |wnu||||1
BI3;;œ.:.euraso"T. oso «*» <
Smjbiilaikt heilogliski m/smjoisoðiom mqis...........ki. 1.24
m/rækjusósa.....................kr. 860
Rjómusöðinn siembífur
m/kryddgrjónunt..................kr. 810
fjölbreyttir barnaréttir ó vægu verði. Súpa, brauð og kaffi innifalið i öltum réttum.
KVtiLDVERBARRETTUR
Grillað lambalæri
m/smjörsoðnum maís
,.kr. 1.290
KafFihlaðborðið á sunnudögum er girnilegra og fjölbreyttara en
nokkru sinni fyrr með hnallþórum og brauðtertum.
KafFihlaðborð sem seint gleymist.
Veitingahallarveisla fyrir alla
iölskýlduna er Ijúf og
Húsi verslunarinnor - simar: 33272-30400
VlutcincL
Heílsuvörur
nútímafólks