Morgunblaðið - 28.07.1990, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990
■ FÝLDIR áhorfendur í Seattle
bauluðu á Carl Lewis þegar hann
lét ekki sjá sig við verðlaunaaf-
hendingu í langstökki, þar sem
hann vann gull. Lewis hafði þurft
að bregða sér bæjarleið vegna
kynningar á sjálfsævisögu sinni.
■ KVENNABLAKLIÐ Sov-
étríkjanna sigraði stelpurnar frá
Kína 3:1 í úrslitaleiknum í fyrri-
nótt. Með sigrinum (15-8, 13-15,
15-4, 15-10) endurtóku þær so-
vésku árangur sinn frá Friðarleik-
unum í Moskvu. Brasilísku stúlk-
urnar urðu í þriðja sæti, með 3:2
sigrqyfir Perú.
■ ÍGOR Astapkovitsj, frá Sov-
étríkjunum, kastaði sleggjunni
lengst allra, 84,12 metra, sem er
næstbesti árangur sem náðst hefur
á árinu.
■ KVENNARÁÐ komu Kenny
Harrison að góðum notum í
þrístökkskeppninni. Hann átti
næstbesta stökkið þar til kom að
síðustu umferðinni. Þá ræddi hann
málin við kærustuna -sína, Sheilu
Hudson, sem er bandarískur meist-
ari í þrístökki kvenna. Ekki að sök-
um að spyrja, Harrison stökk 17,72
metra í síðasta stökki sínu og vann
þar með gullverðlaunin.
■ SOVESKA stelpnasveitin sigr-
aði í 4x400 metra boðhlaupi á 3
mínútum, 23,70 sekúndum. Banda-
rísku strákarnir báru sigurorð af
keppinautum sínum í karlaflokki
greinarinnar, hlupu á 2 mínútum
og 59,54 sekúndum.
■ WANDA Panfíl, frá Pólandi,
sigraði í 10 þúsund metra hlaupi á-
32 mínútum, 01,17 sekúndum. Cat-
hy O’Brien (óljóst með skyldleika
við Dan O’Brien), varð í öðru sæti
á 32.05,40.
■ MEIRA um kvennahlaup. Þær
bandarísku sigruðu í 4x100 metra
boðhlaupi á 42,46 sekúndum. Og í
400 metra grindahlaupi sigraði hin
bandaríska Sandra Farmer
Patrick á 55,16 sekúndum.
■ JÚGÓSLA VAR sigruðu
Bandaríkjamenn í undanúrslitum
handknattleikskeppninnar, með 21
marki gegn 18. Sovétmenn sigruðu
Spánverja í hinum sömu undanúr-
slitum með 29 mörkum gegn 20.
■ ANDR ÚMSLOFTIÐ milli
skipuleggjenda Friðarleikanna og
starfsmanna þeirra kólnaði um
svipað leyti og veðrið. Ástæðan:
peningar. Um það bil fimmtíu
starfsmenn mótsins hafa hætt
störfum vegna óánægju með launa-
mál.
BREIOABLIK -
SJÁLFBODALIDAR
Um helgina og á kvöldin
í næstu viku vantar sjálf-
boðaliða á félagssvæði
Breiðabliks. Vinsamlegast
mætið á Kópavogsvöll
eða aflið nánari upplýs-
inga í síma 40394 (Jón
Ingi) og 41270 (Logi).
FJÖLMEHHUM OG TÖKUM í!
BREIDABLIK
HANDKNATTLEIKUR / FRIÐARLEIKARNIR I SEATTLE
Mikil
barátta
tryggði
fimmta
sætið
Óskar Ármannsson sýndi sinn besta leik á mótinu í gærkvöldi.
ÍSLAND lenti í 5. sæti á Friðar-
leikunum, sigraði Tékkósló-
vakíu 24:23 í gær í f immta og
síðasta leik sínum á mótinu.
Þetta var fráleitt besti leikur
íslands en með mikilli baráttu
tryggðu strákarnir sem sigur.
Fyrri hálfleikur var slakur af
Islands hálfu. Liðið komst aldr-
ei í gang, strákunum tókst ekki að
ná tökum á því sem þeir voru að
gera. Vörnin, sem
hefur verið besti
hluti liðsins, náði sér
ekki á strik. Miðjan
opnaðist oft illilega,
menn virkuðu þungir og kraftlaus-
ir. Allt of mörg mistök voru einnig
gerð í sókninni. Sérstaklega voru
Júlíusi mislagðar hendur, en hann
náði að rífa sig upp eftir hlé og
fiskaði þa ' m.a. þijár vítaspyrnur.
„Tékkarnir drógu úr hraðanum
í leiknum, sem var alls ekki það sem
við vildum — það var erfitt að keyra
upp hraðann á ný og hrista þá af
sér,“ sagði Þorbergur landsliðs-
þjálfari í leikslok.
Jakob fyrirliði Sigurðsson var að
vonum heldur ekki ánægður með
fyrri hálfleikinn en sagði: „Við náð-
um upp baráttunni í seinni hálfleik.
Ég er mjög ánægður með hann.
Við lögðum dæmið upp þannig að
ef við næðum að vinna þennan leik
værum við mjög ánægðir með
frammistöðuna á mótinu, sem við
erum. En það er svekkjandi nú að
horfa til baka, á tvö eins marks
töp, og sjá hve stutt er í raun í að
við gætum verið að spila um verð-
launasæti — þó enginn hafi reiknað
með því fyrirfram," sagði Jakob.
Allt annað var að sjá til íslenska
liðsins eftir hlé. Vörnin styrktist,
hraðinn í leiknum jókst, viljinn var
greinilega mikill til að gera vel en
andstæðingarnir voru erfiðir. Það
var ekki fyrr en á síðustu fimm
mínútunum sem íslendingar náðu
að hrista þá af sér; komust tvívegis
þremur mörkum yfir en Tékkar
gerðu svo tvö síðustu mörkin en
sigurinn var ekki í hættu úr því sem
komið var. Tékkar virkuðu frekar
þungir og brutu oft mjög klaufalega
af sér, enda voru þeir reknir út af
10 sinnum — í alls 20 mínútur af 60!
Oskar Ármannsson var öflugur
í leiknum. Tók oft af skarið og var
öruggur í vítaköstunum. „Ég er
ánægður með þetta. Við vorum
ákveðnir i að sigra og með mikilli
baráttu í seinni hálfleik tókst það,“
sagði hann.
„Ég er mjög ánægður með mótið.
Strákarnir hafa bætt sig með hveij-
um leik, vörnin hefur verið mjög
góð — þeir hafa leikið agað, og
sjálfstraust þeirra hefur vaxið
gífurlega," sagði Þorbergur Aðal-
steinsson. Guðmundur Hrafnkels-
son stóð sig frábærlega á mótinu
og vill Þorbergur þakka Einari Þor-
varðarsyni, aðstoðarþjálfara sínum,
það að miklu leyti. „Einar hefur
breytt stílnum hjá Guðmundi, lætur
hann standa aftar. Og Einar gefur
mér líka frábær ráð — samstarf
okkar er eins og það gerist best.
Ég hlakka mikið til að vinna með
Einari í framtíðinni," sagði þjálfar-
inn.
Og íslenskir handboltaunnendur
ættu líka að geta hlakkað til. Það
er alveg ljóst að þeir Einar eru að
gera mjög góða hluti með liðið.
ísland - Tékkóslóvakía 24:23
Landsleikur í handknattleik, Friðarleikarnir í Seattle. Leikur um 5. sætið föstu-
daginn 27. júlí 1990.
Gangur Ieiksins 0:1, 1:1, 2:1, 2:3, 3:4, 6:4, 6:6, 8:8, 8:10, 9:11, 10:11, 10:12,
12:12, 14:13, 15:14, 16:16, 17:18, 19:18, 20:20, 23:20, 24:21, 24:23.
ísland: Óskar Ármannsson 9/5, Bjarki Sigurðsson 5, Héðinn Gilsson 3, Birg-
ir Sigurðsson 3, Jakob Sigurðsson 2, Guðjón Árnason 1, Júlíus Jónasson 1/1.
Geir Sveinsson, Konráð Olavson, Magnús Sigurðsson, Valdimar Grímsson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 10 (þar af 4 er knötturinn fór aftur
til mótheija). Hrafn Margeirsson, Páll Guðnason.
Utan vallar: 6 mínútur.
Tékkóslóvakía: Libor Sovadina 6, Csaba Szucs 5, Jan Sedlacek 4, Martin
Setlik 3, Martin Liptak 3/2, Roman Becvar 1, Zdenek Vanek 1.
Varin skot: Rudolf Osicka 6/1 (þar af 1 er knötturinn fór aftur til mót-
heija), Lubomir Svajlen 1.
Utan vallar: 20 mínútur!
Áhorfendur: Um 1.000.
Dómarar: Rúmenskir og stóðu sig nokkuð vel.
Skapti
Hallgrímssori
skrífarfrá
Seattie
REYKJAVIKURMARAÞON
Fartleikur getur verið
skemmtileg tilbreytni
Ísíðustu viku verða tiltölulega
litlar breytingar frá þriðju viku.
í áætluninni er gefinn kostur á
að lengja aðeins lengstu æfinguna
og settur inn fartleikur fyrir þá
sem vilja hálfmaraþon. Eg hef
ekki trú á að fólk með lítinn grunn
hafi nokkurt gagn af því að
hlaupa 20 km og lengra á æfing-
um. Hins vegar má auka áiag
með því að auka hraðann og legg
ég því til að lengsta vegalengdin
í vikunni verði hlaupin aðeins
hraðar en í síðustu viku.
4. vika
Skemmtiskokk
1. d. 8-10kmjafnt
2. d, Hvfld
3. d. 4 km rólega
4. d. Hvíld
5. d. 5kmjafnt
Hálfmaraþon
15-18 kmjafnt
6 km rólega
Hvfld
10 km rólega
8 km jafnt/fartleikur
6. d. Hvíld Hvíld
7. d. 4 km rólega 8 km rólega
Fartleikur
Fartleikur er sambland af lang-
hlaupi og sprettæfingum. Lengd
spretta, sem eiga aldrei að vera
á fullum hraða, á að vera breyti-
leg. Sama gildir um lengd hvíldar.
Þetta fýrirkomuiag er kjörið fyrir
hópa og getur verið mjög
skemmtilegt. Hægt er að útfæra
fartleik á marga vegu. Venjan er
sú að byrja á því að hlaupa rólega
í 5-10 mín. sem upphitun, síðan
stendur hinn eiginlegi fartleikur
yfir í 20-40 mín. allt eftir því
hvað menn treysta sér til og að
lokum er skokkað niður í 5-10
mín. Ákveða má fyrirfram að
sprettirnir skuli t.d. vera á bilinu
‘/2-3 mín. og síðan skiptist menn
á að leiða og segja til um lengd.
Sumir hópar hafa enn meira
fijálsræði og þá ijúka menn allt
í einu af stað og veit þá enginn
hversu lengi spretturinn varir.
Þeir sem æfa einir hafa fartleikinn
gjarnan kerfisbundinn, s.s. hlaupa
sömu ieiðina þar sem fyrirfram
er ákveðið hvar sprettirnir eiga
að vera.
Gaman væri að heyra frá fólki
hvernig því hefur gengið í undir-
búningnum og hvaða vandamál
hafa helst komið upp. (S.P.S.
pósthólf 198, 602 Akureyri). Ég
gæti þá tekið fyrir nokkur atriði,
sem komið hafa upp, í næstu þátt-
um.
Með kveðju,
Sigurður P. Sigmundsson
Wilt
Chamberiain
hrífst af
handbolta
Wilt Chamberlain, einn fræg-
asti körfuboltamaður allra
tíma í Bandaríkjunum, hefur komið
þrisvar og fylgst með handbolta-
leikjum hér á Friðar-
Skapti leikunum og segist
Hallgrímsson hrífast af íþróttinni.
skrífarfrá „Hefði ég séð hand-
bolta fyrir 20 árum
hefði þetta orðið mín íþrótt!" sagði
hann eftir að hann kom í fyrsta
skipti. „Mér finnst þetta skemmti-
legri íþrótt en körfubolti, hraðinn
er meiri og leiktíminn ekki stoppað-
ur, þó brotið sé á mönnum.“ Hann
er að nálgast sextugt og um tveir
áratugir síðan hann hætti í körfu-
boltanum. Hann hefur þó ekki setið
auðum höndum síðan — hann fór
að spila blak á ströndinni í Los
Angeles, þar sem hann býr, og það
var hann sem kom af stað alvöru
strandkeppni í blaki, en atvinnu-
mennska er nú orðin að veruleika
í þeirri grein.
Chamberlain kom aftur á
fimmtudaginn og fylgdist með leikj-
um Islands og Japans annars vegar
og Suður-Kóreu og Tékkóslóvakíu
hins vegar. Eftir seinni leikinn, sem
var hreint ótrúlegur, tvíframlengd-
ur, fór Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ, til Chamberlains,
fékk hann til að koma út á gólfið
og sýndi honum hvernig ætti að
skjóta. Hrafn Margeirsson var drif-
inn í markið og Wilt skaut frá
vítalínunni. Hrafn varði, og aftur í
næstu tilraun, en körfuboltahetjan
gamla skoraði síðan í þriðju tilraun
og fékk dynjandi lófatak að launum
frá hallargestum sem fylgdust með
þessari þjóðsagnapersónu spreyta
sig í íþrótt, sem þykir nýstárleg hér
um slóðir.
FRJALSAR
Bikarkeppnin:
Gert ráð
ffyrir
spennandi
keppni
BIKARKEPPNI FRÍferfram
dagana 28.-29. júlí. Flestir
bestu íþróttamenn landsins
verða meðal þátttakenda. Þar
verða einnig gamlir afreks-
menn, eins og t.d. Erlendur
Valdimarsson, Jón Diðriksson
og Óskar Jakobsson, sem allir
keppa með liði ÍR.
Keppnin hefur undanfarin ár
_ einkum staðið á milli FH, HSK
og ÍR. Lið HSK virðist mjög sterkt
og sigraði það til að mynda í fijáls-
íþróttakeppninni á landsmóti UMFÍ
fyrir skömmu. Lið FH hefur mörg-
um landsliðmönnum á að skipa og
hefur komist í fremstu röð á síðustu
árum. Lið ÍR er einnig til alls líklegt.
Margt spennandi greina verður
í keppni 1. deildar sem fer fram á
Varmárvelli í Mosfellsbæ og hefst
kl. 14 báða dagana. Má þar nefna
100 m hlaup karla, kringlukast þar
sem Vésteinn Hafsteinsson og
Eggert Bogason munu etja kappi,
og 400 m hlaup karla.
Keppni' í 2. deild fer fram í Aðal-
dal í S-Þingeyjarsýslu og keppni í
3. deild í Borgarnesi og má búast
við jafnri og spennandi keppni í
öllum deildum.
Við mótssetningu að Varmárvelli
verða Brusselfararnir árið 1950
sérstaklega heiðraðir.