Morgunblaðið - 04.08.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990
Eftirspurn á laxi vex hraðar en framboð:
Búist er við að verð á laxi
hækki verulega á næsta ári
VONIR standa til að verð á laxi
muni hækka verulega á næsta
ári. Eftirspum vex um þessar
mundir mun hraðar en framboð
og er búist við framhaldi á þeirri
þróun. í haust er von á töluverðu
magni af laxi á markaðinn en
þá verður slátrað nýrri kynslóð
í löndum á borð við Noreg, Skot-
land og Kanada þar sem kvíaeldi
er stundað. Viðbrögðum markað-
arins við þeirri framboðsaukn-
ingu er beðið með eftirvæntingu
enda munu þau gefa vísbendingu
um hversu stöðugt verð á laxi er.
Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Islandslax, sagði að
gjaldþrot laxeldisstöðva í Noregi,
Skotlandi og íslandi væri ein af
ástæðunum fyrir þvf að framboðið
af laxi yxi ekki eins hratt og áður.
Á árunum 1987-1990 hefði orðið
að meðaltali 70% framleiðsluaukn-
ing, nú væri þessi framleiðsluaukn-
ing um 15% árlega og árið 1992
væri reiknað með að hún yrði kom-
Akranes:
Banaslys við
Sements-
verksmiðjuna
58 ÁRA gamall maður beið bana
er hann varð fyrir flutningabil á
athafnasvæði Sementsverksmiðj-
unnar á Akranesi í gærmorgun.
Maðurinn gekk yfir Faxabraut,
milli athafnasvæðis verksmiðjunnar
og hafnarinnar og varð fyrir bílnum
sem verið var að leggja að sements-
afgreiðslu.
Taiið er að maðurinn, sem var
starfsmaður Sementsverksmiðjunn-
ar, hafí látist samstundis.
in niður í 5-7%. Á sama tíma væri
neysla á laxi að aukast um að með-
altali 20% á ári. Það myndi því ein-
hvem tímann koma að því að neysl-
an ykist meira en framboðið sem
myndi óhjákvæmilega leiða til verð-
hækkunar.
„Við töldum til skamms tíma
ekki vera tímabært að gera ráð
fyrir miklum hækkunum fyrr en á
næsta ári. Það varð 25-30% verð-
lækkun á síðasta ári en á þessu ári
hefur verð hækkað það mikið á ný
að búið er að vinna lækkunina upp.
Við trúum því að verð muni áfram
fara hækkandi. Það er að minnsta
kosti ekkert sem bendir til að verð-
hækkun geti ekki orðið.“
Friðrik sagði að nú væri erfítt
tímabil að ganga yfír en reikna
mætti með að þeir sem lifðu þetta
ár af mættu eiga von á betri tíð
þegar fram í sækir. „Ég held hins
vegar að menn verði að taka upp
meira samstarf sín á milli hvort sem
að það samstarf felist í samruna
eða einhveiju öðru.“
Ólína geng-
ur í Alþýðu-
flokkinn
ÓLÍNA Þorvarðardóttir, borg-
arfulltrúi Nýs vettvangs, hefur
gengið í Alþýðuflokkinn.
Ólína segist hafa tekið ákvörðun
um þetta vegna þess að hún hefði
mikið álit á Alþýðuflokknum. Hann
hafi stigið það skref í síðustu kosn-
ingum, með aðild að Nýjum vett-
vangi, að hún treysti sér til að
ganga til liðs við hann.
Hún segir, að þessi ákvörðun sín
hafi engin áhrif á tilvist Nýs vett-
vangs, enda eigi Alþýðuflokkurinn
aðild að honum. Hins vegar sjái
hún ekki betur, en Alþýðuflokkur-
inn uppskeri nú árangur þátttöku
sinnar í Nýjum vettvangi, enda
streymi fólk nú til hans,
5 milljarða
fjárfesting' í
sjávarútvegi
árið 1989
FJÁRFESTING í íslenskum
sjávarútvegi var 4,9 milljarðar
króna árið 1989, eða 8,9% af
heildarfjárfestingu íslendinga
árið 1989. Þetta hlutfall var hins
vegar 15,2% árið 1988. Fjár-
munaeign í fískiskipum var
rúmlega 49 milljarðar króna í
árslok 1989 en rúmlega 24 millj-
arðar króna í byggingum og
tækjum til fiskvinnslu, sam-
kvæmt upplýsingum frá Fiskifé-
lagi íslands.
Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir
að fjárfesting í fiskveiðum verði
minni í ár en í fyrra og líkur benda
til að fjárfestingin verði minni í ár
en hún hefur verið síðastliðin 15 ár.
Fjárfesting í fiskveiðum var 3,4
milljarðar króna árið 1989, eða
tæpum 2,5 milljörðum króna minni
en árið áður, en íslendingar áttu
19. stærsta fiskveiðiflota í heimin-
um í fyrra, miðað við brúttórúm-
lestatölu skipa, sem eru stærri en
100 brúttórúmlestir. Fjárfesting í
fískvinnslu var hins vegar um 1,5
milljarðar króna árið 1989, sem er
svipuð fjárfesting og árið áður í
krónum talið.
Árið 1989 flölgaði skipum í
íslenska fiskiskipaflotanum þriðja
árið í röð og þau voru 965 talsins
í lok ársins, þar af voru 112 togar-
ar í notkun. Smábátum, 10 lestum
og minni, fjölgaði um 19 í fyrra
en stærri skipum fækkaði um 10
og fískiskipastóllinn var um 121
þúsund brúttórúmlestir í árslok.
Alls höfðu 12,7% af heildarfjölda
starfandi manna á íslandi árið 1987
atvinnu sína af veiðum og vinnslu,
eða 1,3% færri en 1983.
Reykhólasveit:
Velþroskuð
aðalbláber
farin að sjást
„ Miðhúsum, Reykhólasveit.
UTLIT er fyrir mjög góða
beijauppskeru í sumar. Þegar
eru farin að sjást vel þroskuð
aðalbláber hér í íjallinu.
Blómgun lyngsins tókst sérstak-
lega vel í vor. Bendir margt til
þess að óhemjugóð berjaspretta
verði í sumar á öllum þeim stöðum
á Vestfjörðum sem fréttaritari hef-
ur heyrt af. Ætti að vera hægt að
fara að tína eftir hálfan mánuð,
þó nokkru fyrr en undanfarin sum-
ur.
Sveinn.
Landsmótið í golfí:
Úlfar og Ragn-
hildur eru efst
SPENNA ríkir á Landsmótinu í golfí á Akureyri
fyrir síðasta dag mótsins í dag. Úlfar Jonsson
heldur forystunni í meistaraflokki karla, með
tveggja högga forskot á Ragnar Ólafsson og Sig-
uijón Arnarsson. Úlfar lék á 74 höggum en Ragn-
ar á 73. Sigurður Sigurðsson náði besta árangri
dagsins, lék á 72 höggum, einu yfír pari, og komst
í 4. sætið. Ragnhildur Sigurðardóttir vann upp
sex högga forskot Karenar Sævarsdóttur og hef-
ur þriggja högga forskot.
Morgunblaðið/KGA
Ragnhildur Sigurðardóttir fagnar glæsilegu
pútti á 17. holu. Hún er efst i kvennaflokki eft-
ir þriðja daginn.
Keppni efstu manna í meistara-
flokki karla var mjög jöfn. Úlfar,
Ragnar og Siguijón léku saman í
hópi og skiptust á forystunni, en
Úlfar náði góðum leik á síðustu
holunum. „Þetta gekk vel og ég
vona að ég nái að halda mínu
striki á morgun," sagði Úlfar. „Ég
á von á harðri keppni, en vona að
veðrið verði betra," sagði Úlfar.
Ragnhildur lék mjög vel, á 79
höggum, en Karen var langt frá
sínu besta, notaði 88 högg. „Ég
fann mig betur í dag og sló mjög
vel. Það er gott að hafa þijú högg
í nesti en það getur allt gerst,“
sagði Ragnhildur. „A morgun
stefni ég að því að gera mitt besta
og halda taugunum í lagi.“
Keppni í dag hefst kl. 7 í 1.
flokki kvenna. Keppni í meistara-
flokki kvenna hefst kl. 12.30 og
kl. 13.10 í meistaraflokki karla en
kl. 15.10 fer síðasti hópurinn út.
Staðan fyrir síðasta dag Lands-
mótsins:
Meistaraflokkur karla:
216 Úlfar Jónsson, GK.........70-72-74
218 Ragnar Ólafsson, GR.......75-70-73
Siguijón Amarsson, GR....73-70-73
224 Sigurður Sigurðsson, GS...77-75-72
Guðmundur Sveinbjömsson, GK
226
227
............................76-74-74
Tryggvi Traustason, GK.....77-75-74
Amar Már Ólafsson, GK......73-75-79
Björgvin Sigurbergsson, GK.77-75-75
Meistaraflokkur kvenna:
238 Ragnhildur Sigurðardóttir, GR
..................................80-79-79
241 Karen Sævarsdóttir, GS......77-76-88
253 Kristín Pétursdóttir, GK....87-83-83
Þórdís Geirsdóttir, GK.....86-80-87
1. flokkur karla:
228 Ólafur A. Gylfason, GA.....76-78-74
232 Þorleifur Karlsson, GA......78-80-74
233 Helgi A. Eiríksson, GR......80-78-75
1. flokkur kvenna:
264 Rakel Þorsteinsdóttir, GS..88-87-89
270 Jónína Pálsdóttir, GA......86-92-92
274 Áslaug Stefánsdóttir, G A..91 -92-92