Morgunblaðið - 04.08.1990, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990
Kristján var í hópi fararstjóra
með landsliðinu á Friðarleik-
unum í Seattle og bar þann virðu-
lega titil tæknilegur ráðgjafi. Hann
ákvað á dögunum
að gefa kost á sér
í landsliðið áfram,
en Kristján hugðist
segja skilið við liðið
eins og fleiri eftir HM í vetur.
Ákvörðun Kristjáns er ánægjuleg
enda lykilmaður undanfarinna ára
á ferð — frábær bæði í sókn og
vörn. Hann er 29 ára; átti einmitt-
afmæli með liðið var úti, mánudag-
inn 23. júlí, daginn sem ísland
tapaði naumlega fyrir Spáni.
Meiðslin
Kristján meiddist illa í vetur;
sinar í öxl slitnuðu og hann lék
meira og minna deyfður síðasta
hluta keppnistímabilsins. Kristján
-teiur meiðslin eiga rætur að rekja
allt til heimsmeistarakeppninnar í
Sviss 1986. í leiknum gegn Dönum
var rifið aftan í hendina á honum,
og þá hafa sinar líklega byijað að
trosna eða slitna. „Eg spilaði næsta
leik á eftir, gegn Svíum, en hvíldi
í síðasta leiknum gegn Spánveij-
um. Eg fékk svo hvíld eftir keppn-
ina, þannig að þetta virtist hafa
gróið. Ég fann ekkert fyrir þessu
það sem eftir var keppnistímabils-
ins 1986, en það má ekki mikið
útaf bera til að þetta taki sig upp
aftur. Þetta eru mjög þrálát
'"rneiðsli og í vetur fór að ég finna
meira og meira fyrir þessu og að
lokum gaf þetta sig alveg í vor —
sinarnar slitnuðu. Eg var slæmur
tvisvar fyrir HM í Tékkósló-
vakíu, en fann ekkert fyrir þessu
þar,“ sagði Kristján við Morgun-
blaðið í Seattle. Kristján harkaði
■» af sér og lék úrslitaleikina tvo í
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
bikarleik, sem við töpuðum. Það var
auðvitað ekki gott að tapa,_en samt
var ég hvíldinni feginn. Ég hefði
varla getað spilað meira.
Læknir liðsins hélt að ekkert
væri slitið í öxlinni heldur að þetta
væri mjög slæm tognun, en svo kom
í ljós að þetta var heldur betur
slitið.“
Og nú er bara að bíða...
„Já, við Stefán (Carlsson, læknir
sem skar Kristján upp og var með
landsliðinu í Seattle) höfum talað
við bandarískan sjúkraþjálfara og
ég komst í meðferð hjá honum.
Það á að reyna flýta batanum, en
auðvitað getur maður aldrei vitað
hvernig útkoman verður eftir svona
skurðaðgerð.“
Fjögurra mán-
aða bið?
Kristján sagðist hafa stefnt að
því að ná fyrsta leik í spænsku
deildinni, um miðjan september en
bandaríski sjúkraþjálfarinn var
aldeilis ekki sammála því. Spáði
að Kristján gæti ekki farið að spila
af krafti fyrr en eftir um fjóra
manuði — seinni hluta nóvember.
„Ég tek enga áhættu, því mótið
á Spáni er tvípkipt — fimm efstu
liðin komast áfram í úrslit, og það
ætti að vera öruggt að við verðum
þar á meðal. Ég get því gefið
mér ttma til að jafna mig fullkomn-
lega; vil það frekar heldur en að
þetta taki sig upp aftur og aftur,
eins og hefur gerst ansi oft.“
Evrópukeppni bikarhafa með fé-
lagi sínu, Teka frá Santander á
norðurströnd Spánar. „Ég spilaði
sókn í seinni leiknum, en ekki í
þeim fyrri. Þá var ég alveg far-
lama! Fyrir seinni leikinn heppnað-
ist deyfingin betur og ég gat sko-
tið á markið með ákveðnu lagi —
boltinn fleytti kellingar í markið!
Notaði bara undirskot því ég gat
ekki lyft handleggnum - skaut því
alltal' undir markmanninn og það
heppnaðist mjög vel. Ég stökk einu
sinni upp til að skjóta, en gerði það
ekki aftur. Ég var fimm mínútur
að jafna mig. Það má segja að ég
hafi bara farið áfram á viljanum
og deyfingunni. Ég vildi fyrir alla
muni ekki missa af þessum leik —
var settur í geisla- og sprautumeð-
ferð, og svo deyfður fyrir leikinn.
Geislameðferðin gerði náttúrulega
ekkeit gagn því sinarnar voru slitn-
ar, en ég ákvað að fórna mér.
Maður vinnur ekki Evrópumeist-
aratitil á hveiju ári.“
Kristján hefur ekkert æft síðan
hann meiddist í vor, í lok apríl.
„Eftir það spilaði ég bara. Éftir
Evrópuleikinn var ég með í einum
Morgunblaöið/Skapti Hallgrímsson
Með Wilt Chamberlain
Wilt Chamberlain, einn frægasti körfuknattleiksmaður allra tíma, heilsar upp á Kristján og Jón Hjaltalín, eftir leik
íslendinga og Tékka á Friðarleikunum. Chambarlain, sem lék með Los Angeles Lakers á sínum tíma og er eini
leiþmaðurinn sem skorað hefur 100 stig í leik í NBA-deildinni, lýsti því yfir eftir leikinn að handknattleikur væri
skemmtilegri en körfuknattleikur. „Hefði ég séð handbolta fyrir 20 árum hefði þetta orðið mín íþrótt," sagði kappinn
— og forráðamenn bandaríska handboltasambandsins urðu himinlifandi; vonast til að ummæli Chamberlains verði
íþróttinni til framdráttar þar vestra.
KRISTJAN ARASON
Komst
áframá
viljanum
-ogdeyf-
ingunni
Vinstri hönd Kristjáns Arasonar er ein sú frægasta í
handboltaheiminum. Enginn hefur sennilega tölu á því
oft henni hefur verið sveiflað með þeim árangri að
knötturinn fari rétta boðleið; í mark, en þó má minna
á að Kristján varð fyrsti íslendingurinn til að skora
1.000 mörk með landsliðinu. Höndin sú arna er þó
ekki mjög ógnandi um þessar mundir. Kristján var
skorinn upp á dögunum vegna meiðsla í öxl, sem hafa
valdið honum erfiðleikum í langan tíma. Hann er að
jafna sig, og segist verða kominn á fulla ferð aftur
strax í haust.