Morgunblaðið - 04.08.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.08.1990, Blaðsíða 43
43 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990 Bogdan lagði of mikla áherslu á sóknarieikinn „Ég tel að Bogdan hafi unnið frábært starf á íslandi og fáum við honum fullseint þakkað hvernig hann breytti hugsunarhættinum hjá þeim sem tengjast handboltanum í landinu," sagði Kristján um Bogan Kowalczyk, fyrrum landsliðsþjálfara íslands. Kristján sagði: „Ef ég ætti að taka fram helsta galla Bogdans þá var hann sá að hann lagði ekki nógu mikla áherslu á varnarleikinn. Við æfðum sóknar- leik 80% af tímanum en svo til aldrei var farið virkilega nógu djúpt í varnarleikinn. Kristján sagði að auðvitað hefði verið um þrekæfingar að ræða „þar sem æft var maður á móti manni, en skipulagslega var vörnin ekki æfð nægjanlega. Bogd- an er miklu betri sóknarþjálfari en varnarþjálfari.“ Kristján vill meina að í handboltanum sé vörnin númer eitt. „Við hjá Teka unnum Evrópukeppnina aðallega á varnarleik og hraðaupphlaupum. Og þegar lið eins og Svíar eru að skora allt upp í tíu mörk úr hraðaupphlaupum þá er það einungis hægt ef vörn og markvarsla eru góð. Þetta er það sem gefur.“ Þú ætlaðir að hætta með lands- liðinu... „Ég var fyrst og fremst ákveð- inn í að hætta með landsliðinu ef ég kæmi heim og færi að vinna. Það var alltaf möguleiki á að halda áfram ef ég yrði erlendis - og eft- ir mikla umhugsun í sumar ákveð ég að verða með. Þorbergur talaði við mig; það vantar örvhenta skyttu og reynslu í liðið. En ég lofaði honum bara að verða eitt ár; vildi ekki vera að lofa upp í ermina á mér. Tek eitt ár fyrir í einu, en það eru auðvitað meiri líkur á að ég verði með í B-keppninni 1992 fyrst ég verð með í vetur... Ég lofa þó engu.“ Kristján var á heimleið en Teka gerði honum gott tilboð og hann sló til um að vera eitt ár enn ytra. Hann hefur alltaf samið til eins árs við félagsliðin sem hann hefur leik- ið með undanfarin ár. Ekki vildi hann fastsetja heimkomuna að ári, „ég er alltaf að segjast vera að koma heim og er búinn að gera marga svo svekkta að það borgar sig ekki að segja neitt. Það verður bara að koma í ljós næsta sumar." Kristján segist aðeins eiga eftir eitt markmið með erlendu félagsliði — að verða spænskur meistari. „Það er draumurinn; það eina sem eftir er.“ Kristján byijaði hjá Hameln í Vestur-Þýskalandi og liðið sigr- aði í 2. deildinni. Síðan fór hann til Gummersbach; fyrra árið varð liðið í 3. sæti deildarinnar og síðan meistari árið eftir. Fýrra ár Kristj- áns hjá Teka á Spáni varð liðið bikarmeistari þar í landi og síðan Evrópumeistari bikarhafa í vor. „Liðum mínum hefur því gengið mjög vel, og hefur það auðveldað lífíð í atvinnumennskunni." Rætist draumur- inn? Lið Teka verður skipað sömu leikmönnum næsta vetur nema hvað ein hægri handar skytta bæt- ist við, gamall landsliðsmaður. Ut- litið er því bjart, að mati Kristj: ans, að draumur hans rætist. „Leik- menn liðsins búa yfir mikilli reynslu; ég held að sameiginlegur landsleikjafjöldi okkar sé um 1.200. Liðið getur náð langt aftur í Evr- ópukeppni bikarhafa. Deildin er alltaf að verða betri á Spáni en ég tel okkur eiga góða möguleika þar líka — við stefnum á titilinn. Það kemur ekkert annað til greina, enda var ekki samið um bónus fyrir neitt annað en titla!" Kristján segir v-þýsku deildina hafa verið betri en þá spænsku undanfarin ár en handboltinn í Þýskalandi hafi dalað. „Það er meiri breidd í Þýskalandi. Átta bestu liðin á Spáni eru þó að mínu mati betri en þau bestu í Þýska- landi, en önnur slakari". Bannað að vinna Er algjör atvinnumennska ríkjandi í spænska handboltan- um? „Já, hjá langflestum liðunum. Ég spurðist fyrir um það hvort ég mætti fá einhveija létta vinnu með þessu; ég var vanur því frá Þýskalandi, en var þá sagt að leik- menn handboltaliðsins ættu ekki að hugsa um armað en spila. Marg- ir leikmenn eru reyndar að þjálfa yngri flokka í borginni en ég hef ekki verið í því vegna þess að ég hef verið svo mikið fjarverandi með landsliðinu.“ Kristán og félagar æfa tvisvar á dag og tekur það í allt um fímm til sex tíma, með ferðum. „Þetta er fímm tíma vinnudagur að meðal- tali. Maður verður því að fínna sér eitthvað til dundurs.“ Kristján sagði það undir hveijum og einum komið hvort mönnum leiddist eða ekki. „Santander er mjög falleg og skemmtileg borg, ég er heppinn hvað það varðar. Það eru fallegar strendur þama! En svolítið kalt á vetuma reyndar, þetta er á norður- ströndinni." Ef þú lítur á árangur landsliðs- ins undanfarin ár, ertu ánægður? Hefði liðið jafnvel átt að geta náð enn lengra? „Ég tel okkur varla hafa getað náð betri árangri nema helst í Tékkóslóvakíu — ef við hefðum spilað betur þar hefðum við getað náð 5.-6. sæti. En einnig verða menn að athuga að þó við höfum spilað illa eram við enn 10. besta þjóð í heimi í handbolta. Við dutt- um ekki alveg á rassinn; náðum að spila góða leiki eins og gegn Austur-Þjóðveijum og Kúbumönn- um. Sjðan áttum við ekki mögu- leika gegn Sovétmönnum en „klikkuðum" í leikjunum við Frakka og Pólveija. Við eram með betra lið en Pólveijar og því var mjög svekkjandi að tapa fyrir þeim.“ Hvað brást í þessum leikjum, eftir á að hyggja? Hefurðu velt því fyrir þér? „Ég reyndi bara að gleyma þessu sem fyrst þegar ég fór til Spánar. En það virtist vanta yfir- vegun. Leikmenn ætluðu að bjarga hlutunum sjálfír, með einstaklings- framtaki. Misstu þolinmæðina. Af hveiju það gerist er stór spurning og erfítt fyrir mig að svara henni. Undanfarin ár hefur verið mikill stöðugleiki í liðinu og þess vegna höfum við náð að vera í hópi bestu þjóða. En í Tékkóslóvakíu vant- aði þennan stöðugleika. En að vera tala um eitthvað meira en 5.-6. sæti í A-keppni og Ólympíuleikum era bara draumórar." Getum við lært af Svíum í sam- bandi við liugsunarháttinn? Já, en málið er að þeir vinna ekki leiki á sóknarleik, þeir spila ekki betri sókn en við. En þeir spila frábæran varnarleik, eiga frábæra markmenn og spila hrað- aupphlaup sem okkur vantar mjög mikið. Að gefíð sé beint fram — notaðar tvær sendingar. Þeir út- færa hraðaupphlaupin miklu betur en við og það er einmitt það sem bæði Svíar og Rússar era oft að vinna leiki á.“ Þegar Kristján lét hugann reika sagði hann að besta handboltann, síðan hann kom inn í landsliðið, hefði liðið leikið á HM í Sviss 1986. „Miðað við að það var A-keppni. Nánast allir leikir okkar voru mjög góðir, bæði þeir sem við sigruðum í og töpuðum," sagði hann og bætti við: „nema Svíaleikurinn," en honum töpuðu Islendingar stórt. „Síðan var B-keppnin í Frakklandi náttúrlega B-keppni, en þar spiluðum við mjög góða leiki.“ Hvernig lýst þér á framtíð landsliðsins? „Leikmenn eins og Alfreð Gísla- son, Þorgils Óttar og Sigurður Gunnarsson skilja náttúrlega stór skörð eftir sig. En við eram með hægri handar skyttur, Héðinn og Júlíus, sem eru mjög góðar, hornamennirnir era mjög góðir og línumennirnir Birgir og Geir. Þann- ig að stærsta málið í dag er, að mínu mati, að finna nýjan leik- stjómanda. Það er gífurlega mikil ábyrgð sem hvílir á honum; að segja réttu kerfín og stjórna spil- inu. Það verður gaman að fylgjast með hvernig Guðjóni [Árnasyni], Óskari [Ármannssyni] og Gunnari [Gunnarssyni] gengur að taka við því hlutverki. Svo er mjög mikil- vægt að geta spilað aðrar varnir en 3-2 1 og 5-1. Að geta spilað 6-0 [flata] vöm. Það er verið að prófa það nú en tekur langan tíma að verða gott. En við eram með há- vaxna leikmenn, menn sem eru vanir að spila 6-0 vörn.“ Kristján segist eiga von á því að leika með félagsliði eftir að hann flytur heim til Islands á ný, það fari að vísu eftir atvinnunni. Hann kláraði viðskiptafræði í Há- skóla íslands áður en hann hélt til Þýskalands. Þar sótti Kristján tíma í háskólanum í Köln meðan hann lék með Gummersbaeh og var síðan í 70% vinnu í tvö ár. „Ég reyndi að halda því við sem ég hafði lært. Það get ég ekki á Spáni, en hef lært tungumálið í staðinn. Var á spænskunám- skeiði." Einhveiju sagðist hann ef til vill vera búinn að gleyma úr viðskiptafræðinni, „en ég held að það komi fljótt aftur þegar maður byijar að vinna við þetta." Evtútsjenkó þjálfari Sovétríkjanna og Cuesta þjálfari Spánar: Báðir hlynntir Evrópukeppni landsliða „ÉG er mjög hlynntur þvi að Evrópukeppni landsliða verði komið á,“ sagði lands- liðsþjálfari Spánverja, Javier Cuesta, við Morgunblaðið í Seattle. Cuesta sagði einnig að end- urskoða þyrfti allt keppnis- fyrirkomulagið. „Deildar- keppni í löndum Evrópu eins og á Spáni er allt að verða sterkari, og menn verða að gera sér grein fyrir því að það gengur ekki lengur að halda heimsmeistarakeppni í miðri deildarkeppni. Það þarf að hugsa þetta allt upp á nýtt.“ Anatolij Evtútsjenkó, þjálfari Sovétmanna, sagð- ist einnig hlynntur þv< að komið yrði á Evrópukeppni landsliða. „Við yrðum án- ægðir að fá tækifæri til að taka þátt i slíkri keppni," sagði Evtútsjenkó við Morg- unblaðið. MofgunbteðiiySlcapIi Anatolij Evtútsjenkó. þjálfari Sovétmanna (til vinstri) og Garcia Cuesta, þjálfari Spánveija, í Seattle. Kristján Arason: Breyta verður fyrirkomulaginu KRISTJÁN er, eins og fleiri, ósáttur við það keppnisfyr- irkomulag sem notast er við í alþjóðlegum handbolta. Hann vill koma á Evrópu- keppni landsliða, þar sem leikið yrði heima og að heiman — vill fækka þeim landsleikjum sem aðeins eru æfingaleikir; eins og all- ir landsleikir sem fram fara á íslandi eru til dæmis. Kristján segir. „Mér finnst fáránleg stefna að menn séu að spila 25-30 æfíngaleiki á ári. Það þarf að breyta þessu þannig að leikirnir skipti meira máli. Koma á Evrópukeppni, eins og 1 fótboltanum, þar sem leikið verður heima og heiman. Jafnvel mætti spila tvo leiki í hverri ferð, þannig að leiknar yrðu fjórar umferðir, og Evrópukeppnin gæti verið undankeppni heimsmeistara- keppninnar. Ég held að allir ieik- menn yrðu ánægðir með svona breytingar — það hefur enginn gaman af því að spíla eins marga æfingaleiki og nú tfðkast. Við þurfum að fá aðra leiki en þá sem eru bara upphitunarleikir fyrir stórmót. Ég vona svo sannarlega að þessar breytingar verði að veru- leika því það yrði stórt skref fram á við. Þá yrði alltaf leikið á sömu dögum, þannig að allir yrðu lausir frá félagsliðum sínum. Kristján er einnig á þeirri skoð- un, eins og fleiri, að fáránlegt sé að heimsmeistarakeppnin fari 'fram um miðjan vetur, i miðri deildarkeppni: „Það þarf að breyta þessu, keppnin mætti byija í ma- ilok. Og eins finnst mér út í hött að þegar komið er í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins sé verið að keppa um saeti í næstu keppni! Við urðum í tíunda sætí í Tékkó- slóvakíu og allir urðu óánægðir. Allir hefðu hins vegar orðið án- ægðir ef við hefðuin náð níunda sæti, og þar með haldið sæti okkar í A-keppni. Menn mega vera miklu óhræddari að breyta ýmsu í sam- bandi við handboltann. Mér fmnst mikil stöðnun í ýmsu sem snertir þessa íþrótt og get nefnt keppnis- fyrirkomulagið sem dæmi. Það hefur tekist að markaðssetja körfuboltann mjög vel í Evrópu; úrslitakeppni Evrópukeppninnar í körfubolta er þannig að fjögur efstu liðin koma saman og leika í túrneringu yfir eina helgi, og miklu meira er gert úr keppninni. Það er dæmigert að hugmyndir um Evrópukeppni sem fram hafa komið eru frá handboitasambönd- um nokkurra landa, ekki frá al- þjóða handknattieikssambandinu, ÍHF. Forystunienn þess koma ekki með neitt nýtt, þeir eru bara þama. Mér fmnst Jón Hjaltalín [Magnússon, formaður HSÍ, sem hefur barist fyrir að Evrópukeppni landsliða verðí komið á] vera að gera góða hluti; hann er að hrista upp í mönnum hjá IHF, sem eru virkílega rykfallnir."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.