Morgunblaðið - 04.08.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990
33
unga og fallega stúlku, Ragnheiði
Valdemarsdóttur. Foreldrar hennar
voru hjónin Valdemar Pálsson,
bóndi og hreppstjóri á Möðruvöllum
í Eyjafirði, og Guðrún Jónasdóttir.
Ragnar og Ragna, eins og við
kölluðum hana, voru alla tíð ein-
staklega samhent og hamingjusöm
hjón. Ragnar hefur ekki gengið
heill til skógar um árabil og Ragna
hefur verið vakin og sofin í um-
hyggju fyrir bónda sínum. Þau
byggðu sér fallegt heimili á
Byggðavegi 89 á Akureyri. Þangað
lögðum við hjónin oft leið okkar og
vorum umvafin hlýju og vináttu.
Það er leitun að jafn gestrisnum
hjónum enda hefur oft verið gest-
kvæmt hjá þeim.
Rögnu og Ragnari varð fimm
barna auðið. Þau eru: Valdemar,
efnafræðingur, búsettur í Kokkola
í Finnlandi, kvséntur Sirkka Mont-
er. Ásgerður, kennari í Reykjavík,
gift Gunnari Eydal, lögfræðingi og
skrifstofustjóra Reykjavíkurborgar.
Oli Þór, apótekari á Dalvík, kvænt-
ur Ingibjörgu Marinósdóttur. Árni,
verkfræðingur, kvæntur Eddu Ásr-
únu Guðmundsdóttur. Guðrún,
meinatæknir, gift Valdimar Einis-
syni, rafeindavirkja.
Fjölskyldan var mjög samhent
og íjölskylduböndin sterk. Sam-
skipti okkar Ragnars urðu mikil
eftir að hann tók við verksmiðju-
stjórn Iðunnar. Meðal annars ferð-
uðumst við mikið saman, oft með
eiginkonum okkar. Fljótlega mynd-
aðist mikill vinskapur okkar á milli
sem aldrei kom hnökri á. Af ferða-
lögum er sérstaklega minnisstætt
mánaðarferðalag um Kanada og
Bandaríkin, þar sem við ókum um
Islendingabyggðir N-Dakota og
Manitoba og yfir Klettafjöllin til
vesturstrandarinnar. Það var ekki
hægt að hugsa sér skemmtilegri
og þægilegri ferðafélaga. Það eru
mörg fleiri ferðalög ánægjuleg og
ævintýraleg sem geymd eru á
spjöldum minninga um Rögnu og
Ragnar. En nú er hann allur.
Sambandsstjórn þakkar Ragnari
mikil störf, en hann vann fyrir sam-
vinnuhreyfinguna af einstökum
heilindum og samviskusemi, alla
sína starfsævi og kom miklu í verk.
Ragnar sóttist ekki eftir vegtyllum.
Honum voru boðnar „hærri stöður“
hjá Samvinnuhreyfíngunni en hafn-
aði þeim.
Lífsförunautur hans, Ragna,
studdi við bak hans eins og klettur
og var honum ómetanlegur styrkur.
Við hjónin sendum Rögnu og fjöl-
skyldu hennar innilegar samúðar-
kveðjur og kveðjum með söknuði
góðan og tryggan vin.
Hjörtur Eiríksson
Ragnar Ólason fæddist 1. júní
1912 á Bakka í Kelduhverfi, N-
Þing. Foreldrar hans voru Óli Árna-
son, bóndi þar og Gunnþóra Þórar-
insdóttir, kona hans og voru þau
ættuð úr Kelduhverfi og Öxarfirði.
Ragnar var bræðrungur við Sigurð
Gunnarsson, skólastjóra og rithöf-
und og Rannveigu Gunnarsdóttir,
móður verkfræðinganna Guðmund-
ar og Gunnars Björnssona frá
Kópaskeri.
Ragnar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1933.
Árið 1939 lauk hann prófi í efna-
verkfræði frá Tækniháskólanum í
Dresden. Árin 1939-1969 var hann
forstjóri Efnaverksmiðjunnar
Sjafnar á Akureyri í eigu KEA og
árin 1979-1980 var hann forstjóri
Skinnaverksmiðjunnar Iðunnar á
Akureyri í eigu SÍS. Eftir það
gegndi hann skrifstofustörfum þar
í fáein ár.
Árið 1942 giftist Ragnar Ragn-
heiði Valdemarsdóttur Pálssonar,
bónda og hreppstjóra á Möðruvöll-
um í Eyjafirði og Guðrúnar konu
hans Jónasdóttur. Börn þeirra eru
Valdimar, búsettur í Finnlandi, gift-
ur Sirkka Monter, Ásgerður kenn-
ari, gift Gunnari Eydal lögfræð-
ingi, Óli Þór lyfsali á Dalvík, giftur
Ingibjörgu Marinósdóttur, dr. Árni
verkfræðingur, giftur Eddu Ásrúnu
Guðmundsdóttur og Guðrún, gift
Valdimar Einissyni rafeindavirkja í
Reykjavík.
Ragnar óx upp úr jarðvegi sam-
vinnuhreyfingarinnar hér á landi.
Hann var ekki ýkja pólitískur í eðli
sínu og flíkaði ekki skoðunum
sínum í stjórnmálum en var þó ekki
ósnortinn af hugsjónum samvinnu-
hreyfingarinnar og mun raunar alla
tíð hafa aðhyllst þær. Þeirri hreyf-
ingu helgaði hann krafta sína frá
upphafi til loka starfsferils síns.
Ragnar var mjög svo starfhæfur
og happadijúgur í öllu, sem hann
fékkst við um ævina. Fyrirtæki
þau, sem hann veitti forystu döfn-
uðu vel og farsællega. í höndum
hans. Efnaverksmiðjan Sjöfn færði
smám saman út kvíarnar undir
stjórn hans og Skinnaverksmiðjan
Iðunn tók stórt skref fram á við,
þegar honum var falin forsjá henn-
ar. í starfi sínu bjó Ragnar yfir
þeirri gætni og þeim hyggindum,
sem í hag komu fyrir fyrirtæki
hans. Hann gaf alltaf vandlega
gaum.að framleiðslu- og sölumálum
verksmiðjanna, hafði lifandi áhuga
á viðskipta- og efnahagsmálum í
víðu samhengi, fylgdist grannt með
ástandi og þróun í þeim hér heima
og í markaðslöndum okkar og leit-
aðist við að sjá fyrir framvinduna
í þeim efnum eftir því sem kostur
var á hverju sinni. Hagræðingu í
starfrækslu verksmiðjanna reyndi
hann að koma við eftir föngum.
Rekstrarkostnaði hélt hann í skefj-
um, mannahaldi í hófi og yfirbygg-
ingu í lágmarki. Hann lét sér mjög
annt um starfsfólk verksmiðjanna
og var að makleikum vel metinn
af því. Ástundun Ragnars í verki
bar árangur og kom fram í rekstri
og hag verksmiðjanna, sem ekki
urðu fyrir skakkaföllum í hans tíð
og kom ekki til, að starfsfólki þar
yrði sagt upp þá eða síðar. Raunar
voru tímar og aðstæður öðru vísi
þá en nú, en ekki er of mælt, að
gifta og heillastjarna fylgdu jafnan
Ragnari í starfi.
Ragnar var valmenni. Hann var
„vammlaus halur og vítalaus", heið-
virður inn að innstu rótum hjarta
síns. Séntilmaður var hann í enskri
merkingu þess orðs, meiddi ekki
aðra vitandi vits eða ótilneyddur í
orði eða verki. Hann hafði til að
bera kurteisi hjartans, „siðdekri öllu
æðri, af öðrum sem lærist", sýndi
jafnan öðrum virðingu á látlausan
og hófsaman hátt. Nærveru góða
hafði hann og lagði frá honum nota-
legan yl og skilningsríkt hugarþel.
Frá honum var ekki skeyta að
vænta.
Fjölskyldufaðir var Ragnar afar
góður, lét sér með afbrigðum um-
hugað um konu sína og börn, bar
þau á höndum sér og átti fáa sína
líka í þeim efnum. Hann var ekki
mjög mannblendinn, umgekkst yfir-
leitt ekki marga en var mikill vinur
vina sinna. Um hann mátti segja,
að hann hafi verið gæddur vinai'-
gáfu og hafði til að bera þá mildi
og þau heilindi, sem eru ríkur þátt-
ur í vináttu ásamt ræktarsemi og
trygglyndi, sem ekki brást.
Ragnar naut góðrar heilsu fram
til 1975 en veiktist þá af kransæða-
sjúkdómi, sem fór sér fremur hægt
framan af en ágerðist á síðari árum.
Árið 1984 fékk hann aðkenningu
að heilaslagi, náði þá nokkrum
kröftum á ný en á síðasta og þessu
ári hrakaði heilsu hans mjög. Hinn
17. júlí fékk hann heilaslag, sem
hann lést úr 27. júlf.
Nú þegar Ragnar Ólason er á
braut genginn og kvaddur hinstu
kveðju, er honum þökkuð dýrmæt
vinátta á liðnum áratugum. Eftirlif-
andi eiginkonu hans, börnum og
öðrum vandamönnum er vottuð
djúp samúð og hluttekning í harmi
þeirra.
Ólafur Sigurðsson, læknir.
Útför Ragnars fer fram nk.
þriðjudag frá Akureyrarkirkju.
t
Dóttir mín og móðir okkar,
SIGURLAUG KNUDSEN,
lést á Borgarspítalanum 25. júlí sl. Jarðarförin hefur farið fram.
Elinborg Pálsdóttir,
Eínar Bjarnason,
Magnús Hjaltested,
Markús ívar Hjaltested og
Sigríður Hjaltested.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SNORRI VIGFÚSSON,
Bergþórugötu 35,
andaðist ó Landakotspítala 30. júlí.
Bálför hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Gísli Snorrason,
Sólveig Snorradóttir, Bergur Ingimundarson,
Snorri Guðjón Bergsson, Ingimundur Jón Bergsson,
Kristin Bergsdóttir.
t
Útför móður- og tengdamóður okkar,
JENNÝAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
frá Skárastöðum,
fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 8. ágúst kl. 13.30.
Sveinn Jónsson,
Jóhanna Jónsdóttir,
Kristinn Jónsson,
Sigríður Jónsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Unnsteinn Jónsson.
Hallveig Eiríksdóttir,
Þorbjörg Georgsdóttir,
Jóhann Helgason,
Birna Benediktsdóttir,
Steindór Úlfarsson,
Gísli Einarsson,
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, sonar og afa,
KRISTINS JÓELS MAGNÚSSONAR
verktaka,
Álfaskeiði 14,
Hafnarfirði.
Margrét Egilsdóttir,
Magnús S. Kristinsson,
Viðar Kristinsson,
Ásta María Kristinsdóttir,
Þórður M. Kristinsson,
Sólrún Ósk Kristinsdóttir,
Marta Einarsdóttir,
og barnabörn.
Sigríður Baldursdóttir,
Guðbergur Garðarsson,
Magnhildur Pétursdóttir,
J
MagnúsSig. Kristinsson
Sveinbjörn S. Svein-
björnsson frá Ljóts-
stöðum -Minning
Fæddur 27. maí 1893
Dáinn 27. júlí 1990
í dag kveðjum við elskulegan og
sérstakan mann, hann Sveinbjörn
Sigurð Sveinbjörnsson tengdaföður
minn.
Sveinbjörn fæddist ' að Horn-
brekku á Höfðaströnd í Skagafirði
27. maí 1893. Foreldrar hans voru
hjónin Anna Sölvadóttir og Svein-
björn Sveinsson og eignuðust þau
sex börn. Sveinbjörn kvæntist konu
sinni, Jóhönnu Símonardóttur, árið
1921 en hún andaðist árið 1988,
þau eignuðust sjö börn.
Eg kynntist tengdaforeldrum
mínum fyrir 24 árum þegar ég kom
á heimili þeirra á Ljótsstöðum í
Skagafirði, það voru ánægjuleg
kynni og fann ég fljótt hvað ég var
velkomin. Það var bæði gaman og
fróðlegt að tala við þau og sérstak-
lega um gamla tíma, þau kunnu
vel að segja frá.
Alltaf voru börnin okkar velkom-
in í sveit til afa og ömmu og voru
þau óspör á að miðla þeim af gæsku
sinni. Gaman finnst mér að minn-
ast stundanna þegar ég var á Ljóts-
stöðum og systur Sveinbjörns voru
að koma í heimsókn, hvað það var
mikill systkinakærleikur á milli
þeirra. Sátu þau saman fram á
nótt og skemmtu sér við að riíja
upp sögur og atburði frá æskuárun-
um. Sveinbjörn var alltaf fullur af
orku og vinnusamur með eindæm-
um. Hann var mjög ern og stund-
aði sinn búskap fram á efri ár eða
þar til hann fór að missa sjónina.
Hann var alveg blindur síðustu
æviárin en fylgdist rnjög vel með
og var alveg einstaklega minnugur
svo að til þess var tekið, aldrei
kvartaði hann yfir sjónleysinu.
Árið 1978 brugðu þau búi og
fluttu með dóttur sinni á Austur-
götu 20 á Hofsósi. Með þessum
línum kveð ég Sveinbjörn og er
þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast honum.
Nú legg ég augun aftur.
Ó, guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson)
Guðrún Sigurðardóttir
+
Systir okkar,
ÞÓRA JÓNSDÓTTIR
frá Miðfelli 2B,
Hrunamannahreppi,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, 31. júlí sl., verður
jarðsungin frá Hrunakirkju, miðvikudaginn 8. ágúst kl. 14.00.
Systkinin.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÁRNI RAFN KRISTBJÖRNSSON,
járnsmiður,
Hamrahlíð 25,
lést hinn 27. júlí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Guðrún Sveinsdóttir,
Sveinn M. Árnason,
Maria Gréta Guðjónsdóttir
og barnabörn.
+
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR P. GUÐMUNDSSON
frá Stóra-Nýjabæ í Krísuvik,
til heimilis á Tjarnagötu 10,
Innri-Njarðvik,
verður jarðsunginn frá Innri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn
8. ágúst kl. 14.00.
Ester Finnbogadóttir,
Gylfi A. Pálsson,
Guðmundur Kr. Sigurðsson, Gróa Hreinsdóttir
og barnabörn.
+
Alúðarþakkir til allra, er sýndu okkur velvild og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ANDREU PÁLÍNU JÓNSDÓTTUR,
Leirhöfn.
Sérstakar þakkir til starfsfólks við sjúkarhúsið á Húsavík.
Jóhann Helgason,
Jón Helgason,
Hildur Helgadóttir,
Helga Helgadóttir,
Birna Helgadóttir,
Anna Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Dýrleif Andrésdóttir,
Valgerður Þorsteinsdóttir,
Sigurður Þórarinsson,
Pétur Einarsson,