Morgunblaðið - 04.08.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990
15
Sendir vörur um allt land
Þóroddur Kristjánsson afgreiðir viðskiptavin í Sportbæ á Selfossi.
Selfoss:
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Selfossi.
„ÞAÐ er engin spurning um það
að fólk verslar meira hér heima
en áður var og svo hefur það
farið vaxandi hjá okkur að við
sendum vörur út um land í póst-
kröfu,“ segir Þóroddur Krist-
jánsson, kaupmaður í versluninni
Sportbæ við Austurveg á Sei-
fossi.
óroddur rekur Sportbæ
ásamt Skóbúð Selfoss og er
eigandi þeirra ásamt konu
sinni, Elínu Tómasdóttur, syni
þeirra, Tómasi Þóroddssyni, og
hjónunum Þórdísi Kristjánsdóttur
og Ingvari Jónssyni. Alls vinna sex
manns í þessum verslunum.
„Mér líkar mjög vel að versla
með sportvörur. Við höfum jafnt
og þétt aukið við sportvörurnar og
minnkað umfang leikfanganna sem
við höfum verið með. Verslun með
þessar vörur hefur gengið vel. Fólk
kaupir þessar vörur í vaxandi mæli
hér heima. Svo eru dæmi um póst-
sendingar út um land, til dæmis í
Dalasýsluna og til Reykjavíkur.
Ennfremur er mikið um að aðkomu-
fólk komi inn til okkar,“ sagði Þór-
oddur.
Nauðsynlegt að
vinna með skólanum
I Blómahöllinni vinnur Þórhildur Þöll Pétursdóttir. Hún segist
vinna frá klukkan eitt til sjö virka daga og eitt til tíu um helgar.
„Það er auðvitað dálítið langur tími, en maður lætur sig hafa það.
Kaupið er heldur ekki svo slæmt, að minnsta kosti ef ég miða við
það sem aðrir skólakrakkar fá. Ég hef áður unnið í banka, glerverk-
smiðju og bakaríi og fengið miklu lægra kaup,“ segir Þórhildur en
bætir við að hún hafi einungis um sjálfa sig að hugsa og launin
dygðu áreiðanlega ekki jafn vel ef hún hefði fyrir öðrum að sjá.
g hef unnið þijú sumur hér
og þijá vetur með skólanum
aðra hveija helgi en líka um
jól og páska. Mér fannst nauðsyn-
legt að vinna með skólanum til að
hafa einhveija peninga milli hand-
anna þannig að ég sé fjárhagslega
sjálfstæð. Eg býst við að svo sé
farið um marga, að minnsta kosti
kom það í ljós í könnun, sem gerð
var í Verslunarskólanum í fyrravet-
ur, að 42% krakkanna vann með
skólanum,“ segir Þórhildur og bæt-
ir við að henni finnist ágætt að
afgreiða í búðinni. „Maður þekkir
líka orðið marga viðskiptavini sem
koma aftur og aftur,“ bætir hún við.
Þórhildur er þeirrar skoðunar að
frídagur verslunarmanna eigi hik-
laust rétt á sér. „Auðvitað verða
alltaf einhveijir að vinna, til dæmis
þeir sem vinna í sjoppu, en þeir fá
náttúrulega betra kaup þennan
dag,“ segir hún og í ljós kemur að
hún verður að vinna bæði laugardag
og sunnudag. „Ætli ég noti ekki
bara frídaginn til að slappa af,“
segir hún.
Morgunblaðið/Börkur
Þórhildur Þöll Pétursdóttir
Sportbær fékk nýlega umboð
fyrir Rucanor-vörur, sem er íþrótta-
fatnaður. Þessum vörum er dreift
um allt land frá Selfossi. „Það er
ekkert mál að framkvæma þetta
héðan frá Selfossi," sagði Þórodd-
ur. Hann kvaðst hafa fengið jákvæð
viðbrögð aðila úti á landsbyggðinni'
þegar Rucanor-vörurnar væru
boðnar. „Það er eins og þeim finn-
ist þeir eiga eitthvað í manni af því
við erum ekki í Reykjavík," sagði
Þóroddur ennfremur.
- Sig. Jóns
SMIÐJUVEGI 5, 20OKÓPAVOGUR. SÍMI 43211
20% VERÐLÆKKIIN
í NOKKRA DAGA!
MARGVERÐLAUNAÐUR
TILBOÐ Á KÍLÓPAKKMNGIJM:
kr. 612,00
Aðijrkr. 765,00
U .ISALA í 3 claga heíst brihjndaginn 7. ágúst
Louis Féraiid mnnsfield. ESCADA, FlVmfí. ll.Ákín C.'jdi \
TIZKAN
Laugavegi 71 II hæð Simi 10770
Fyrst og fremst
einstök gæöi
í mnHiii
111 n- * * f f í S Ví s f