Morgunblaðið - 04.08.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.08.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990 7 Morgunblaðið/BAR Unglingunum var boðið upp á pylsur og kók fyrir utan Laugardalshöllina, Lokahátíð Vinnuskóla Reykjavíkur í Laugardal VINNUSKÓLI Reykjavíkur efndi til hátíðar í Laugardalnum í gær vegna vinnuloka hjá skólanum. Var nemendum skólans gefínn kostur á að nýta sér aðstöðuna, sem fyrir hendi er í dalnum, auk þess sem efnt var til mikillar grillveislu. Að sögn Arnfinns Jónssonar, skólastjóra Vinnuskólans, fengu nemendur skólans tækifæri til að nýta sér þá aðstöðu, sem boðið er upp á í Laugardalnum, til dæmis að fara í sund í sundlaugunum, nota gervigrasvöllinn, auk þess sem þeim var gefinn kostur á að skoða Grasagarðinn og Húsdýragarðinn. Keppt hafi verið í knattspyrnu og fijálsum íþróttum, farið í leiki og að því loknu hafi verið efnt til grill- veislu fyrjr utan Laugardalshöllina. Hátíðin hafi svo endað á því að Vinnuskólanum hafi verið slitið í höllinni. Arnfinnur segir að um 1.650 unglingar hafi að jafnaði unnið hjá Limbódanskeppni var einn liður í Lokahátið Vinnuskólans. Vinnuskólanum í sumar. Þeir hafi starfað í um 80 vinnuhópum víðs vegar um borgina og sinnt umhirðu umhverfis skóla og íþróttasvæði, hjálpað ellilífeyrisþegum við snyrt- ingu í görðum þeirra og unnið að gróðursetningu í Heiðmörk og að Nesjavöllum. Þjóðræknisfélag íslendinga: Stefan J. Stefanson heiðraður STEFAN J. Stefanson, fyrrver- andi formaður Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi, og Olla kona hans hafa verið heiðruð sérstaklega af stjórn Þjóðræknis- félags íslendinga í Reykjavík. Á hátíðarfundi stjórnar Þjóð- ræknisfélagsins, sem haldinn var í Reykjavík á þriðjudag, var Stefani afhent heiðursskjal ásamt minnis- peningi, sem sleginn hefur verið í tilefni af tvöföldu afmæli Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, og félagið Þroskahjálp hefur nú fengið til dreifingar og sölu til ágóða fyrir starfsemi sína. Stefan og Olla hafa tekið virkan þátt í starfsemi Þjóðræknisfélagsins vestan hafs um áratuga skeið. Þau hafa komið til íslands um tuttugu sinnum og ávallt lagt mikla rækt við uppruna sinn, eiga hér marga ættingja og vini víða um land. Á undanförnum árum hafa þau átt mikinn þátt í að byggja upp íslenskt minjasafn á Gimli. Olla hefur verið í hlutverki Fjail- konunnar á íslendingadeginum á Gimli, dóttir þeirra hefur verið for- maður íslendingadagsnefndarinn- ar, einnig sonur þeirra og tengda- sonur. Þau tala íslensku mjög vel og stutt er síðan barnabarn þeirra kom til íslands til þess að kynnast landi og þjóð og fór héðan talandi, skrif- andi og lesandi á íslenska tungu. Þau hjón hafa um árabil tekið á móti hópum íslendinga sem lagt hafa leið sína til íslendingabyggða í Kanada og greitt götu einstaklinga á margvíslegan hátt. Stefan hefur tekið þátt í að skipuleggja heim- sóknir þjóðhöfðingja Islendinga, hann hafði umsjón með öryggis- gæslu þegar Kristján Eldjárn þáver- andi forseti kom í heimsókn til Manitoba fyrir röskum áratug og eins þegar Vigdís Finnbogadóttir forseti var þar á ferð á síðasta ári. Þau halda nú vestur um haf til þess m.a. að taka á móti um tvö hundruð manna hópi héðan. (Fréttatilkynning■) Guð læknar Heilun með hjálp Guðs anda án lyfja eða lækningajurta. Bókaverð 7,80 DM. Upplýsingar: Universal Life, Postfach 5643, D-8700 Wiirzburg, W-Germany. Olla og Stefan J. Stefanson ásamt formanni Þjóðræknisfélags íslend- inga í Reykjavík, Jóni Ásgeirssyni. FRÁBÆRT FERÐATILBOÐ 21.-25.SEPT. I Sviss finnurðu allt: náttúrufegurð, rómantík, stórborgir, matarveislur og menningu. Kjörin ferð fyrir hópa- smáa sem stóra. Beint leiguflug. v\l/ f ) ■ 't\s L ) </|\ STÓRFÍNAR FERÐIR TIL 11. -18. SEPT. -VIKUFERÐ- BEINT LEIGUFLUG 18. SEPT. TVÆR VIKUR Á MALLORKA OG HEIM UM LONDON 23. - 30. OKT. -VIKUFERÐ- BEINT LEIGUFLUG Sumarauki af bestu gerð, veisla í veitingum og verslun. Heimsþekktar vetrarvörur á góðu verði. Frábær ferð fyrir hópa aföllum gerðum. FERÐASKRIFSTOFAN <rrc<wn«< HALLVEICARSTÍG 1, SÍMI 28388 OG 28580

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.