Morgunblaðið - 04.08.1990, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.08.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu . . . Rækta meira af lífrænu grænmeti Grænmetisneytandi hringdi: „Mig langar til að hvetja fólk til að rækta meira af lífrænu grænmeti. Sólheimar hafa selt líf- rænt ræktað grænmeti í versl- unum, en það er það lítið sem kemur frá þeim að það er setið um það, þrátt fyrir að það sé dýrara. Það væri tilvalið fyrir bændur að nota sér þessa miklu eftirspurn og hefja ræktun líkt og þeir gera í Sólheimum. Þá vil ég geta þess að það hafa farið hópar fólks héðan á heilsuhæli í Danmörku þar sem fæðan er líf- rænt ræktað grænmeti. Það ætti að vera umhugsunarefni.“ Vill fá Stjörnuna eða Eff Emm á Akureyri Ungur útvarpshlustandi á Akureyri hringdi: „Mig langar að spyrjast fyrir um það hvort útvarpsstöðvamar Stjaman eða Eff Emm geti ekki hafið útsendingar hér á Akureyri. Ég er orðinn þreyttur á Bylgjunni sem er með alltof róleg lög eða kántrí og Rás 2 finnst mér ekki nógu skemmtileg. En ég hef heyrt að Stjaman og Eff Emm séu með hressileg lög fyrir ungt fólk.“ Tapaði úri Þórunn hringdi: „Sonur minn 9 ára týndi Casio- tölvuúri fyrir utan Fálkann á Suð- urlandsbraut rétt fyrir kl. 6 þriðju- daginn 31. júlí. Ef einhver hefur fundið úrið bið ég hann að hringja í síma 666663.“ Drengjalyól hvarf Svart og skærbleikt 24 tommu 10 gíra drengjahjól hvarf frá Heiðargerði 118. Þeir sem vita um hjólið hringi í síma 685958. Hlýtt viðmót í Bláa lóninu Sveina hringdi: „Við fórum hjónin með íslensk- an gest frá Kanada í Bláa lónið fyrir stuttu. Þar mætti okkur svo mikil umhyggja og hlýja frá manninum sem rekur staðinn við Bláa lónið að mér finnst ég megi til með að nefna það. Hann fylgd- ist vel með okkur og uppfræddi okkur um staðinn. Síðan fórum við á veitingastaðinn sem er þama og þar mætti okkur sama hlýjan og elskulegheitin. Kvöldið varð mjög ánægjulegt vegna þessarar góðu móttöku sem við fengum þarna. Ég vil þakka fyrir þetta." Ekki stuðningur við Ríkisútvarpið að borga afnotagjöldin Sigríður hringdi: „Eg er sammála þeim Víkveija sem skrifar að það sé furðulegt af útvarpsstjóra að taka það sem sérstakan stuðning við Rfkisút- varpið þegar afnotagjöldin eru greidd á réttum tíma. Þegar slíkir reikningar sem ekki er nokkur vegur að komast hjá að greiða berast, sem sumir nefna nauðung- arskatt, borgar maður auðvitað á réttum tíma án þess að vera um leið að gefa sérstakt samþykki sitt fyrir þessum gjöldum. Nú og svo eru margir sem greiða afnota- gjöldin með greiðslukorti þannig að þær greiðslur berast ætíð á réttum tíma.“ Tapaði þráðlausum síma Þráðlaus sími tapaðist í Garða- bænum fimmtudaginn 12. júlí. Síminn var lagður á bíl en síðan var keyrt í burtu og síminn varð eftir á götunni. Finnandi vinsam- lega hringi í síma 656350. Tapaði nýjum heimasaumuðum jakka Nýr heimasaumaður drengja- jakki var skilinn eftir á Borg- arspítalanum á 5. hæð. Jakkinn er úr skræpóttu efni með bláu stroffi og hvítu vattfóðri. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 54164. Týndur köttur Hvítur og svartur köttur týnd- ist úr Kópavogi. Hann er eyrna- merktur 5003 og með græna ól. Þeir sem vita um köttinn eru beðn- ir að hringja í síma 41443. Týndur köttur Svartur ómerktur köttur týnd- ist frá Breiðvangi í Hafnarfirði. Þeir sem hafa séð köttinn hringi í síma 51163. Týndur köttur Svartur og hvít'ur köttur týndist frá Stigahlíð í Reykjavík. Köttur- inn er ómerktur. Þeir sem vita um köttinn hringi í síma 686875. Útvarpshlustendur fái að heyra ævisögu Galínu Til Velvakanda. Hér á dögunum var rifjuð upp sagan af því þegar íslenskir stúd- entar í Stokkhólmi réðust á íslenska sendiráðið þar til að krefjast bættra kjara. í viðtalinu kom fram að förin var ekki síður gjörð til að mótmæla stjórnvöldum hér. Þeir vildu sem sé öreigastjóm. Þetta skeði ekki mörgum árum eftir að skýrt hafði verið frá stjórn Stalíns og sannleik- urinn kom í ljós og þar með vitnað- ist að aldrei fýrr í sögunni hafði nokkur þjóð þurft að líða meiri hörmungar. Valdhafarnir í lýðræð- isríkjunum fögnuðu Khrútsjov og héldu í einlægni sinni að nú myndi allt lagast í Rússlandi og sjálfsagt væri að veita efnahagsaðstoð. Hvernig það fór sér maður nú í dag. Hungrið og kúgunin var sú sama því efnahagskerfi marxims- mans sá um það. Og til að styrkja völd sín enn betur vom sett á stofn geðveikrahæli fyrir andófsmenn. Menntamenn í öllum löndum studdu marxismann og sést það best í Afr- íku, þegar nýlendumar komust í hendur innfæddra tók marxisminn við með sama árangri og í Rússl- andi og hungur og kúgun jókst. Þess vegna getur maður með sanni kallað þá menningarvita í háði. Ég er búin að lesa bók sem heit- ir Blóðugur blekkingarleikur eftir Iomihaí Pacepa sem lengi var yfír- maður leyniþjónustunnar hjá Ce- aucescu. Þar gefur nú á að líta, en lærdómsríkast er að sjá hvernig þessi mannhundur hefur getað dregið vestræna valdhafa á asna- eyrunum og hveiju blaðamennirnir hafa getað trakterað mannskapinn á. Þeir menn sem enn vaða í vinstri villu hafa gott af því að lesa þessa bók. Nú er þannig komið að nú er komin út hér önnur bók sem mér fínnst að útvarpshlustendur eigi heimtingu á að lesin sé í útvarpinu. Það er ævisaga mikillar rússneskrar söngkonu, Galínu Vishnevskayju. Þar segir frá lífi almennings í Rúss- landi og ekki síður ástandinu í menningarmálum. Mér finnst að kvennabaráttukonur hér eigi að taka undir með mér svo alþjóð geti kynnst sannri kvenhétju. Húsmóðir Góður þáttur um akst- ur á hálendi Islands Þakka vinarhug, heimsóknir, gjafir, kveðjur og heillaóskir á áttatíu ára afmœli mínu. GuÖ blessi ykkur öll. Jórt Björnsson. Hjartanlegar þakkir sendi ég œttingjum og vin- um sem glöddu mig meÖ samveru sinni, gjöf- um, símskeytum og blómum á áttatíu ogfimm ára afmœlisdegi mínum 27. júlí. GuÖ blessi ykkur öll. Helgi H. Zoega. Heí opnað læknastofu í Læknastöðinn, Álfheimum 74. Tímapantanir í síma 686311. Þórður Óskarsson, sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. LIEBHERR jarðvinnsluvélar FAXI HF.f Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 76633. TiP'Velvakanda. Löngum hefur verið sagt að lofa beri það sem vel er gert og núna finnst mér ástæða til að þakka fyr- ir. Þeir sem eiga þakkirnar skilið eru sparisjóðirnir, fyrir sjónvarps- þátt sem þeir létu framleiða, og sýndur var á Stöð 2 miðvikudags- kvöldið 1. ágúst. í þættinum var sýnt á greinar- góðan hátt hvernig ferðalangar eiga að bera sig að við akstur á hálendi íslands, sérstaklega með tilliti til straumvatna. Auk þess var mikið af fallegum myndum af stórbrotinni náttúru Þórsmerkur. Á hverju sumri undanfarin ár hafa orðið slys, stundum mann- skæð, við svipaðar aðstæður og fram komu í þættinum. Fréttir af slíkum atburðum hafa fengið mikla umQöllun í ijölmiðlum og mikla athygli áhorfenda og lesenda. Þrátt fyrir þetta hefur verið alltof lítið um fyrirbyggjandi aðgerðir í þessu efni fyrr en nú. Þáttur sparisjóð- anna eru sannarlega aðvörunarorð í tíma töluð. Ég vil enn og aftur þakka spari- sjóðunum fyrir skemmtilegan og fræðandi sjónvarpsþátt og um leið skora ég á Stöð 2 að endursýna hann sem fyrst. UTSALAN hefst þriðjudaginn 7. ágúst. Theódóra, Laugavegi 45. Ferðalangur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.