Morgunblaðið - 04.08.1990, Síða 21

Morgunblaðið - 04.08.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990 21 INNRAS IRAKA I KUVÆT „Slátrarinn í Bagdad er að hræða úr þeim líftóruna“ —segir breskur olíusérfræðingur um Persaflóaríkin London, Tókíó. Reuter, Daily Telegraph. VESTRÆN stjórnvöld eiga úr vöndu að ráða vegna innrásar íraka í Kúvæt. Hernaðaríhlutun Bandaríkjamanna með einum eða öðrum hætti hefur ekki verið útilokuð en fyrstu skrefin hafa verið efnahags- legar refsiaðgerðir; öll viðskipti Bandaríkjanna við íraka hafa verið stöðvuð. Inneignir þeirra og Kúvæta á Vesturlöndum frystar, þ. á m. í Japan og Vestur-Þýskalandi. Ljóst er að margir nágrannar íraka eru felmtri slegnir vegna framferðis Saddams Husseins íraksforseta og telja sérfræðingar að önnur Persaflóaríki geri allt til að ögra ekki forsetanum. Verulegur hluti íraskrar olíu er fluttur með leiðsl- um frá Kirkuk-svæðinu til tyrknesku hafnarinnar Yumurtalik við Miðjarðarhaf. Tyrkland er aðili að Atiantshafsbandalaginu en þar- lendir embættismenn segja að ekki hafi verið farið fram á að þeir loki leiðslunum. Tyrkir og fleiri nágrannaþjóðir íraka hafa árum saman haft þung- ar áhyggjur af vaxandi herstyrk íraka en yrði leiðslunum lokað gætu afleiðingarnar orðið ófyrirsjá- anlegar, viðbrögð Husseins gætu hleypt öllu í bál og brand á svæðinu. Um 30% af olíu á heimsmarkaði kemur frá löndum við Persaflóa. Mögulegt er að framboð á olíu á heimsmarkaði geti minnkað um 10% vegna mögulegs viðskipta- banns gegn Hussein forseta. Vest- rænir sérfræðingar telja þó ekki verulega hættu á miklum umbrot- um í olíuviðskiptum. „Dæmin sýna að erfitt er að framfylgja viðskipta- banni,“ sagði breskur hagfræðing- ur. Er fréttin um innrásina barst út hækkaði Brent-olía, sem helst er miðað við, þegar um fimfntán af hundraði, í um 24 Bandaríkjadoll- ara fatið, en verð á dollara og gulli, sem einnig hækkaði fyrst í stað, lækkaði aftur í gær. Sumir heimildarmenn óttast þó að kaup- æði geti gripið um sig og benda á að 1979 hafi því verið spáð að verð- hækkanir Samtaka olíutflutningd- ríkja, OPEC, myndu ekki standast. Raunin varð önnur; Japanir hófu að safna olíubirgðum af slíku of- forsi að verðið tók stökk upp á við. Önnur ríki OPEC gætu e.t.v. reynt að mæta aukinni eftirspurn vegna viðskiptabanns með því að auka framleiðsluna. Einkum er rætt um Venezúela og Nígeríu en einnig gætu Norðmenn, sem ekki eru í OPEC fremur en mesta olíu- framleiðslulandið, Sovétríkin, séð sér leik á borði. En sérfræðingur í London telja fráleitt að önnur lönd við Persaflóa myndu reyna slíkt. yÞeir er allir smeykir við að styggja Iraka. Slátrarinn í Bagdad er nærri búinn að hræða úr þeim líftóruna," sagði einn þeirra. Saddam Hussein tókst fyrir skömmu að nota hernað- armátt sinn til að þvinga Saudi- Araba og Arabísku furstadæmin til að minnka framleiðslu sína og hækka lágmarksverð upp í 21 doll- ara fatið. Hann hrifsaði til sín for- ystuna í OPEC frá Saudi-Aröbum og olíumarkaðurinn, þar sem lög- mál framboðs og eftirspurnar hafa ráðið ríkjum í áratug, er nú aftur orðinn vígvöllur pólitískra átaka. Gífurlegar eignir Kúvæta: Tekjumar af íjárfestingum erlendis litlu minni en af olíu Lundúnum. Reutcr, Daily Telegraph. VESTUR-Þjóðverjar og Japanir gengu í gær til liðs við Banda- ríkjamenn í baráttu þeirra fyrir efnahagslegum refsiaðgerðum gegn Irökum vegna innrásar þeirra í Kúvæt og sögðust ætla að frysta eignir Kúvæta til að koma í veg fyrir að Irakar gætu sölsað þær undir sig. Eignir Kú- ÍRAKAR réðust inn í Kúvæt, hið ríka og smáa nágrannaríki sitt, aðeins tveimur árum eftir að endi var bundinn á átta ára stríð þeirra og írana. íbúar íraks eru rúmlega 17 milljónir, þar af eru Kúrdar, sem löngum hafa verið ofsóttir í landinu, rúmlega 2,5 milljónir. Landið er 434.924 ferkílómetrar að stærð. Það á landamæri í austri að íran, í suðri að Saudí-Arabíu og Kúvæt, vestri að Jórdaníu og Sýrlandi og í norðri að Tyrkl- andi. Strandlengja þess við Pers- aflóa er afar stutt. írakar eru háðir olíuútflutningi sínum því gjaldeyristekjur sínar fá þeir nær eingöngu af honum. Annar iðnaður er námugröftur, mann- virkjagerð, fiskiðnaður, skógrækt og landbúnaður. Erlendar skuldir íraka um mitt síðasta ár voru áætlaðar um 65 milljarðir Bandaríkjadala, fyrst og fremst vegna Persaflóa- stríðsins. írak var til forna þekkt sem Me- sópótamía. Síðar var það hluti ottó- mannaríkis Tyrkja ásamt fleiri lönd- um fram til heimsstyijaldarinnar fyrri þegar írak komst undir breska stjórn. Faisal ibn Hussein fursti varð konungur árið 1921 og landið hlaut fullt sjálfstæði árið 1932. Herinn gerði valdarán árið 1958 og hófst þá tímabil pólitísks óstöðug- leika. Abdul Karim Kassem, vinstri- sinnaður liðsforingi úr einræðis- stjórn þjóðernissinna, komst til valda og batt þar með enda á vinsamlegt samband við Vesturlönd. Aftur var gert vopnað valdarán árið 1963 og enn aftur árið 1968. Ofsóknir á hendur pólitískum andstæðingum væts utan arabaheimsins eru gífurlegar, metnar á um 50 millj- arða punda, 5.325 miHjarða ÍSK. Áætlað er að tekjurnar í ár af þessum fjárfestingum verði um 2,2 milljarðar punda, 234 miHj- arðar ÍSK, en tekjur ríkisins af olíuútflutningi eru litlu meiri, eða 3,64 miHjarðar punda, 389 valdhafa breiddust út. Saddam Hus- sein tók við forsetaembætti árið 1.979. írakar réðust inn i íran árið 1980 og gerðu kröfur til Shatt-al-Arab skipaskurðsins. Innrásin hratt Pers- aflóastríðinu af stað. Það stóð í átta ár og varð lengsta og blóðugasta deila síðari ára í Miðausturlöndum. írakar fengu vopn frá Sovétríkjun- um og fjármagn frá öðrum Persaf- lóaríkjum, sem hræddust yfirráð Ír- ana og ofstækisfulla bókstafstúlkun þeirra á lögmálum kóransins. milljarðar ÍSK. Það kæmi sér því vel fýrir Irak, er skuldar 80 millj- arða dollara, nær 4.800 miiijarða ÍSK, að klófesta slikar Ijárhæðir. Kúvæt á meðal annars 9,9% hlut í olíufyrirtækinu BP og 'er hann metinn á um 1,8 milljarða punda, 192 milljarða ÍSK. Ríkið á einnig fyrirtæki eins og Q8, sem rekur um 5.000 bensínstöðvar út um allan heim, einkum í Evrópu. Talið er að tekjurnar af þessum fjárfestingum ríkisins verði meiri en tekjurnar af olíuútflutninginum eftir nokkur ár. Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar ákváðu í fyrradag að frysta eignir Kúvæts og gær baettust Vestur-Þjóðveijar, Japanir, Italir, Belgar og Svisslendingar í þennan hóp. Utanríkisráðherrar Evrópu- bandalagsins (EB) koma saman í dag til að ræða hvort grípa eigi til efnahagslegra refsiaðgerða banda- lagsins gegn írökum. Eignir Kúvæta í þessum löndum eru miklar. Til að mynda sagði tals- maður japanska utanríkisráðuneyt- isins í gær að fjárfestingar þeirra í Japan næmu 20 milljörðum dala, 1.160 milljörðum ÍSK. Þá eiga þeir 14% hlut í stærsta fyrirtæki Vestur-Þýskalands, Daimler-Benz. Tjöld og svefnpoka þarf aö hreinsa reglulega - ekki síst fyrir haustiö þegar útilegu- búnaðurinn fer f geymslu. Auk þess sem viö hreinsum svefnpokann og tjaldið gerum viö tjaldiö vatnshelt. Þú rúllar upp svefnpokanum, tekur stögin úr tjaldinu og viö sjáum um restina. Viö skilum öllu hreinu, ilmandi og tilbúnu í næstu útilegu. Skeifunni 11, sími 82220 Persaflóastríðið varð Irökum dýrt Reuter. MANEX HÁRVÖKVINN Jóhannes S. Jóhannesson: „Ég hafði í gegnum árin reynt allt til að losna við flösuna en ekkert dugði. Ég hélt ég yrði bara að sætta mig við þetta. En nú veit ég betur. Vökvinn virkilega virkar". Elín Sigurbergsdóttir: „MANEX hárvökvinn hefur virkað með ólikindum vel fyrir mig. Ég var því sem næst að missa allt hárið. Það datt af i flygsum og ég var komin með hárkollu. Fljótlega eftir að ég þyrjaði að nota MANEX hætti hárlosið og í dag er ég laus við hárkolluna og komin með mikið og fallegt hár. Læknirinn minn og kunningjar minir eru hreint undrandi á þessum ár- angri". Sigríður Adólfsdóttir: „Fyrir 15 árum varð ég fyrir því óhappi i Bandarikjunum að lenda i gassprengingu og missti við það augabrúnirnar, sem uxu aldrei aftur. Ég fór að nota MANEX vökvann fyrir 4 mánuðum og í dag er ég komin með fullkomnar auga- brúnir. Hárgreiðslumeistarinn minn, Þórunh Jóhannesdóttir i Keflavík, segir þetta vera hreint kraftaverk". Jóna Björk Grétarsdóttir: Ég missti megnið af hárinu 1987 vegna veikinda. Árið 1989 byrjaði hárið fyrst að vaxa aftur, en það var mjög lélegt, svo þurrt og dautt og vildi detta af. Siðan kynntist ég MANEX. Eftir 3ja mánaða notkun á MANEX próteininu, vítamininu og sjampóinu er hár mitt orðið gott og enn í dag finn ég nýtt hár vera að vaxa “. Fæst í tlestum apotekum, öároreiðslu- og rakarastofum um land allt. Dreifing: anTíiwiía S. 680630.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.