Morgunblaðið - 04.08.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1990
25
ATVIN N tf A UGL YSINGAR
Háskólinn á Akureyri
Laus er til umsóknar staða
tölvunarfræðings/kerfisfræðings við Háskól-
ann á Akureyri.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
< starfsmanna.
Umsóknarfrestur er til 10. september og
skal umsóknum skilað á skrifstofu skólans
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf.
Upplýsingar um starfið gefur skrifstofustjóri
í síma 96-27855.
Háskólirm á Akureyri.
Skólastjóri
- organisti
Skólastjóra og kennara vantar við Tónskóla
Patreksfjarðar. Jafnframt þarf viðkomandi að
geta tekið að sér starf organista og kór-
stjórn við Patreksfjarðarkirkju. í kirkjunni er
nýuppgert Bradda Walcker pípuorgel.
Umsóknum skal skilað fyrir 10. ágúst nk. til
neðanritaðra sem gefa nánari upplýsingar:
Sigurður Jónsson, sóknarprestur, Aðalstræti
57, í síma 94-1324 og Sigurður Viggósson,
formaður skólanefndar, Sigtúni 5, í síma
94-1389 á Patreksfirði.
LANDSPÍTALINN
Sérfræðingur
Staða sérfræðings við bæklunarskurðdeild
er laus til umsóknar. Um er að ræða 100%
stöðu. Til greina kemur að ráða í hlutastarf,
ráðningartími fer eftir samkomulagi. Skilyrði
er að umsækjandi sé viðurkenndur sérfræð-
ingur í bæklunarskurðlækningum á íslandi.
Umsóknarfrestur er til 21. september 1990.
Upplýsingar gefur Stefán Haraldsson, yfir-
læknir bæklunarskurðdeilda, í síma 601000.
Umsóknir á umsóknareyðublaði lækna ásamt
prófskírteini, upplýsingum um starfsferil og
meðmælum sendist Stjórnarnefnd Ríkisspít-
ala, Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík.
Hjúkrunarfræðingar
- dagvinna
í kjölfar skipulagsbreytinga á skurðdeild
Landspítala vantar okkur hjúkrunarfræðinga
til starfa á hausti komandi. Æskilegt er að
viðkomandi hafi lokið sérnámi í skurðhjúkr-
un. Að öðrum kosti er eins árs starfsreynsla
skilyrði. Skipulögð aðlögun og starfsþjálfun
er í boði í a.m.k. þrjá mánuði og tekið mið
af þörfum hvers og eins. Þeir, sem vilja kynna
sér þetta starf frekar hafi samband við
Bergdísi Kristjánsdóttur eða Ástu B. Þor-
steinsdóttur, hjúkrunarframkvæmdarstjóra,
í símum 601300 eða 601000.
Umsóknum fylgi upplýsingar um nám og fyrri
störf og berist skrifstofu hjúkrunarforstjóra.
Sjúkraliðar
Laus er staða sjúkraliða á handlækingadeild
4 (13d). Um er að ræða 80% stöðu og
þrískiptar vaktir. Deildin er 25 sjúkrarúma
almenn- og þvagfæraskurðdeild. í boði er
aðlögun.
Upplýsingar um þessa stöðu veitir Anna
Stefánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
símum 601366 eða 601300.
Umsóknir, er greini nám og fyrri störf berist
skrifstofu hjúkrunarforstjóra.
Reykjavík, 3. ágúst 1990.
Skipstjóri
Útgerðarfyrirtæki vill ráða skipstjóra á lítinn
skuttogara. Byrjunartími er samningsatriði.
Einhver skipstjórnarreynsla er skilyrði.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu
okkar.
Gtjðni Tónsson
RÁÐCJÓF & RÁÐNI NCARNÓN LISTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Hjúkrunarfræðingar
Á FSA eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga
um lengri eða skemmri tíma á eftirtöldum
deildum:
Skurðdeild,
svæfingadeild,
lyfjadeild,
bamadeild,
kvensjúkdómadeild,
geðdeild.
Hjúkrun á FSA er veitt í formi hóphjúkrunar
og byggir á markvissri upplýsingasöfnun,
áætlanagerð, framkvæmd og mati.
Lausar eru K1 og K2 stöður á deildunum til
kennslu og verkefnavinnslu.
Boðið er upp á skipulagða aðlögun á öllum
deildum.
Upplýsingar gefa Svava Aradóttir og Sonja
Sveinsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjórar í
síma 96-22100.
LANDSPITALINN
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingar athugið!
Laus er staða á næturvöktum á bæklunarlækn-
ingadeild í (12G). Um er að ræða 60% starf.
Ekki er nauðsynlegt að vinna nema 4. hverja
helgi. Aðlögun með vönum hjúkrunarfræðingi
eftir þörfum.
Upplýsingar veitir Anna Stefánsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 601366 eða
601300.
Umsóknir, er greini nám og fyrri störf, berist
til skrifstofu hjúkrunarforstjóra.
Reykjavík, 3. ágúst 1990.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Dagvistarheimili
Landakots
óskar eftir fóstrum eða uppeldismenntuðu
starfsfólki í eftirtalin störf:
Dagheimilið Brekkukot, 50-100% stöður,
sími 604357.
Dagheimilið Öldukot, 80% afleysingastaða,
sími 604365.
Skóladagheimilið Brekkukot, 50% staða
vegna stuðnings, sími 604357.
Dagheimilið Litlakot, 80-100% stöður, og
einnig staða forstöðumanns nú í hagst, sími
604364.
Nánari upplýsingar veita forstöðumenn dag-
vistarheimilanna og dagvistarfulltrúi , í síma
604364 fyrir hádegi.
rS ríkisspítalar
Fóstra eða
starfsmaður
Fóstra eða starfsmaður óskast til starfa á
skóladagheimilið Litluhlíð við Eiríksgötu frá
15. ágúst nk. Um er að ræða 50% starf,
vinnutími frá 13.00-17.00.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Þorvalds-
dóttir, forstöðumaður, í síma 601591 eða
38815 utan vinnutíma.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast nú þegar til starfa til fram-
búðar og afleysinga við hjúkrunardeild
Vífilsstaðaspítala. Starfshlutfall er sam-
komulagsatriði, vaktavinna. Góð aðlögun í
boði.
Nánari upplýsingar veitir Bjarney Tryggva-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
602800.
Reykjavík, 3. ágúst 1990.
Raftækjaverslun
- framtíðarstarf
Óskum eftir að ráða, nú þegar eða eftir nán-
ara samkomulagi, starfskraft með rafvirkja-
menntun eða sambærilega menntun til
starfa í raftækjaverslun okkar. Starfið er
aðallega fólgið í sölu heimilistækja, hita-
tækja og varahlutum til þessara tækja. Enn-
fremur ráðgjöf um rafmagnstæknileg við-
fangsefni.
Við leitum að úrræðagóðum manni með hald-
góða þekkingu á þessu sviði og nokkra
reynslu í sölu raftækja. Málakunnátta er
æskileg.
Boðið er uppá gott vinnuumhverfi í verslun
okkar í Hafnarfirði og hæfilega langan vinnu-
tíma með nokkrum sveigjanleika.
Hafir þú áhuga á ofangreindu starfi, biðjum
við þig að rita nokkrar línur um þig og fyrri
störf, ásamt meðmælanda, og leggja inná
auglýsingadeild Mbl., merktar: „L - 9257“,
fyrir 20. ágúst nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum bréfum verður svarað.
Laus störf við
Háskóla íslands
1. Tannlæknadeild. 100% staða sérhæfðs
aðstoðarmanns. Starfið felst í aðstoð á
klíník, sótthreinsun o.fl. Starfið er veitt frá
1. sept. 1990 til 31. maí 1991.
2. Starfsmannasvið. Fulltrúa vantar til starfa
frá 1. sept. nk. Óskað er eftir liprum starfs-
manni, sem hefur góða íslenskukunnáttu og
reynslu af tölvuinnslætti. Starfið getur verið
eitt 100% starf eða tvö 50% störf.
Laun eru skv. kjarasamningi BSRB og fjár-
málaráðherra.
Umsóknir er greini frá menntun, aldri og fyrri
störfum sendist til:
Háskóli íslands, starfsmannasvið,
v/Suðurgötu, fyrir 15. ágúst nk.
3. Endurmenntunarnefnd. í haust verður
ráðið í fullt starf deildarstjóra hjá endur-
menntunarnefnd Háskóla íslands. Krafist er
góðrar, almennrar menntunar, reynslu af
skrifstofustörfum, auk skipulags- og stjórn-
' unarhæfileika.
Starfið verður nánar auglýst 12. ágúst nk.