Morgunblaðið - 11.08.1990, Blaðsíða 1
40 SIÐUR B
179. tbl. 78. árg.
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Forsetakosningar í Póllandi:
Líklegt að Mazowiecki
fari fram gegri Walesa
Ber vott um alvarlegan ágreining innan Samstöðu
Varsjá. Reuter.
MJOG líklegt má telja að Tadeusz Mazowiecki, forsætisráðherra
Póllands, bjóði sig fram gegn Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu, í
væntanlegum forsetakosningum. Aðstoðarmenn forsætisráðherr-
ans og aðrir traustir heimildarmenn skýrðu blaðamönnum frá
þessu í Varsjá í gær.
Heimildarmenn Reuters-frétta-
stofunnar sögðu Mazowiecki sæta
sívaxandi þrýstingi af hálfu stuðn-
ingsmanna sinna og kváðu nær
fullvíst að hann færi fram gegn
Walesa.
Alvarlegur ágreiningur er kom-
inn upp í röðum Samstöðumanna
vegna umbótaáætlanar ríkis-
stjórnar Mazowiecki. Walesa vill
að þegar í stað verði gripið til enn
róttækari aðgerða til að tryggja
innreið lýðræðis í Póllandi. Þá vill
Walesa knýja fram afsögn Jaruz-
elskis, fyrrum hershöfðingja, sem
tók við embætti forseta Póllands
eftir hrun kommúnismans þar
eystra. Talið er fullvíst að Jaruz-
elski fallist á að segja af sér. Ekki
er vitað hvenær það gæti orðið en
í ráði er að hann haldi í heimsókn
vesturtil Bandaríkjanna í október.
Walesa, sem var kunnasti and-
ófsmaður Póllands er kommúnist-
ar voru þar einráðir, tilnefndi vin
sinn Mazowiecki í embætti forsæt--
isráðherra er Samstaða komst til
valda í fyrrasumar. Walesa hefur
Mazowiecki
Wales.T
háð óopinbera kosningabaráttu frá
því í aprílmánuði og þráfaldlega
ítrekað nauðsyn þess að Jaruzelski
og öðrum kommúnistum verði
komið frá völdum. Vill hann að
öldungis lýðræðislegar þingkosn-
ingar fari fram hið fyrsta samhliða
forsetakjörinu. Fylgismenn for-
sætisráðherrans væna Walesa um
ofríkistilhneigingar og hviklyndi
og telja hann af þeim sökum óhæf-
an. Walesa nýtur mikillar hylli
meðal alþýðu manna í Póllandi en
skoðanakannir, sem gerðar voru í
aprílmánuði, leiddu í ljós að
Mazowiecki nýtur enn meiri vin-
sælda og virðingar.
Reuter
Hótanir Saddams Husseins íraksforseta um að beita efnavopnum
gegn ísrael hafa vakið óhug þar í landi. Ungur maður, Ran Cohen
að nafni, sést hér máta gasgrímu með aðstoð starfsstúlku í verslun
i Tel Aviv. Cohen sagðist aðspurður ætla að grípa til eigin varúðar-
ráðstafana fyrst yfirvöld hefðu ekki útbýtt grímum af þessu tagi.
Ljósi varpað
á Odessa-
hring nasista
Rio de Janeiro. The Daily Telegraph.
ERFÐAMÁL vegna milljóna
punda er einn ríkasti þýski inn-
flytjandinn til Brasilíu, Albert
Louis Willi Blume, skildi eftir sig
hefur leitt til ásakana um að hann
hafi verið gjaldkeri Odessa-
hringsins. Hringurinn er dularfull
samtök, sem talið er að hafi að-
stoðað nasista við að komast und-
an í lok síðari heimsstyrjaldarinn-
ar.
Ben Abraham rithöfundur, sem
er pólskur gyðingur búsettur í Bras-
ilíu, lét þessa skoðun um Odessa-
tengslin í Ijós eftir áralangar rann-
sóknir, en Blume lést 1983. Abrah-
am, sem sat sex ár í Auschwitz-
fangabúðunum, segir að Blume hafi
verið sonur Alberts Blume, hershöfð-
ingja, sem var lífvörður Hitlers.
Samkvæmt skjölum, sem lögð
hafa verið fram í hæstarétti Sao
Paulo, lét Blume eftir sig 39 milljón-
irpunda (3.900 milljónir ISK) í Banco
do Brasil, m.a. 200 kíló af gulli, gim-
steinum, verðmætri mynt og reiðufé.
Þar er einnig að finna skjöl, sem
sögð eru sýna tengsl hans við aðgerð-
ir í þágu nasista.
Meirihluti arabaríkja tek-
ur afstöðu gegn Irökum
Samþykkja að senda herlið til varnar Saudi-Arabíu
Nikósíu. Kaíró. Reuter.
NEYÐARFUNDUR Arababandalagsins samþykkti í gær að senda sam-
eiginlegt herlið til Saudi-Arabíu til að verja landið fyrir hugsanlegri
árás íraká. Saddam Hussein, forseti íraks, skoraði í gær á alla araba
að efna til heilags stríðs gegn Bandaríkjunum og leppum þeirra. Mátti
skilja af orðum hans að hann hvetti til þess að leiðtogum ríkja eins
og Saudi-Arabíu yrði steypt af stóli. Einnig mæltist hann til þess að
arabar lokuðu Súez-skurðinum og Hormuz-sundi fyrir umferð erlendra
herskipa.
Einungis fulltrúar íraka, Líbýu og
Frelsissamtaka Palestínu gi-eiddu
atkvæði gegn ályktun leiðtogafundar
Arababandalagsins. Alsír og Yemen
sátu hjá en 12 ríki voru hlynnt álykt-
uninni en hún er einungis bindandi
fyrir þau ríki sem hana samþykkja.
Fundurinn, sem haldinn var í Kaíró,
var sögulegur og kom til snarpra
orðaskipta milli utanríkisráðherra
íraks og Saudi-Arabíu. Furstinn af
Kúvæt strunsaði út af fundinum og
utanríkisráðherra landsins missti
meðvitund um stund þegar hann
tókst á við fulltrúa íraks. íraska sjón-
varpið sagði að fulltrúar landsins
hefðu hent matardiskum í Kúvæta.
Geimrannsóknir:
Magellan á braut
umhverfis Venus
Pasadena, Kaliforníu. Reuter.
BANDARÍSKI gervihnötturinn Magellan á að fara á braut umhverf-
is reikistjörnuna Venus síðdegis í dag, ef allt gengur að óskum.
Hnettinum var skotið á loft fyrir 14 inánuðum og með öfiugum
, ratsjám um borð í honum telja vísindamenn að kynnast megi Ven-
,usi mun nánar en nokkru sinni fyrr.
Venus er oft kölluð dularfulla
■ plánetan vegna þess að - hún er
umlukin skýjahúpi og ekki er unnt
að taka af hénni myndir eins og
4öðrum reikistjörnum. Með ratsján-
)urh um borð í Magellan ætla
’vísindamenn hins vegar að kanna
'yfirborð hennar. Sovéskt gervi-
tungl náði upplýsingum um 30%
af Venusi 1982. Frá Magellan eiga
hins vegar að koma tíu sinnum
skarpari myndir og 100 sinnum
betri en náðust úr baridarískum
gervihnetti 1978.
Af upplýsingum frá Magellán
fæst ef til vili úr því skorið, hvort
nokkru sinni hefur verið vatn á
Venusi. Sovéski hnötturinn sendi
upplýsingar um víðáttumiklar slétt-
ur, risavaxin fjöll og eldfjöll. Mag-
ellan á að geta numið hraunstraum,
ef um hann er að ræða.
Klukkan 16.45 í dag verður eld-
flaug hnattarins ræst en á 83 sek-
úndum á hún að hægja á ferð
hnattarins úr 39.600 km á klukk-
Reuter
Svona sér ónefndur listamaður fyrir sér gervihnöttinn Magellan
á braut umhverfis Venus.
stund í 30.000 km en á þeim hraða
fer hann á sporbaug um Venus.
1. september verður hafist handa
við að safna upplýsingum með rat-
sjánum. Þegar Magellan kemst
næst Venusi verður fjarlægðin 275
km en mest verður hún 8.100 km.
Bob MacMillan, hjá Jet Propulsion
Labaratory í Pasadena í Kalforníu,
segir, að það taki aðeins einn Ven-
usdag að ná ratsjármyndum af 90%
af yfirborði plánetunnar en sá tími
svari til 243 Jarðdaga.
Mörg vestræn ríki neituðu í_ gær
að hlýðnast þeirri fyrirskipun Iraka
að erlendum sendiráðum í Kúvæt
yrði lokað fyrir 24. ágúst. Oryggisráð
Sameinuðu þjóðanna hefur neitað að
viðurkenna innlimun landsins.
Bandaríska utanríkisráðuneytið seg-
ir að írakar hafi gefið til kynna að
svo til engir vestrænir útlendingar
fái að yfirgefa landið að undanskild-
um stjórnarerindrekum. George
Bush Bandaríkjaforseti lýsti í gær
yfir áhyggjum sínum vegna örlaga
útlendihga sem nú eru innlyksa í
írak og Kúvæt. Það vakti athygli að
Bush ákvað að fara i sumarfrí þrátt
fyrir ástandið við Persaflóa. í flugvél-
inni á leiðinni til strandar Maine-
ríkis sagði forsetinn að ræða Huss-
eins væri „geðveikislegt kænsku-
bragð“.
Þúsundir heittrúaðra múslíma
efndu til mótmælafunda Hussein til
stuðnings í höfuðborgum Jórdaníu
og Yemens.
Bandarísk stjórnvöld hafa varað
sendiráð sín erlendis við því að hætta
kunni að vera á hryðjuverkum gegn
bandarískum borgurum. Er talið að
þessa viðvörun megi rekja til þess
að hinn alræmdi hryðjuverkaforingi
Abu Nidal er sagður vera i írak.
Um sextíu útlendingar flýðu írak
í gær yfir til Tyrklands. Þar var
m.a. um að ræða fimmtíu Pakistani
og fjóra Japani. Enn berast fréttir
um að Kúvætar reyni að flýja land
yfir til Saudi-Arabíu. Til átaka kom
á fimmtudag í Kúvætborg milli
heimamanna og íraskra hermanna.
Hermenn skutu á mótmælendur og
felldu þtjá. Einnig herma fréttir að
hermenn fari ránshendi um heimili
Kúvæta og nauðgi útlendum konum.
Útvarpið í Bagdad skipaði Kúvætum
að mæta til vinnu ella yrðu þeir rekn-
**'• Sjá fréttir á bls. 16.-17.