Morgunblaðið - 11.08.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990
15
Skálholtskirkja:
Fimmtán ára afmælis
hátíð Sumartónleika
Hundasýning í Laugardalshöll:
190 hundar af
12 tegundum
Flugmódel-
félagið Þyt-
ur 20 ára
Á ÞESSU ári eru 20 ár liðin
frá stofnun flug'módelfé-
lagsins Þyts. í tilefni afmæl-
isins mun félagið efna til
veglegrar flugsýningar á
athafnasvæði sínu, Hamra-
nesflugvelli, en hann er í
hrauninu sunnan Hafnar-
íjarðar. Ekið er upp
Krísuvíkurveg u.þ.b. 2 km
og beygt þar til vinstri.
Síðastliðin 3 ár hafa félagar
í Þyt unnið hörðum höndum
að því að koma sér upp flug-
velli fyrir módelflug og má
segja að sú aðstaða sem nú
er fyrir hendi sé með því besta
sem þekkist.
Vel verður vandað til sýn-
ingaratriða og auk fjölmargra
módelflugatriða fá Þytsfélagar
heimsóknir stærri véla s.s.
Piper Cub-véla, Þyrlu, og far-
þegavéla af ýmsum gerðum,
að ógleymdu listflugi Björns
Thoroddsens og Magnúsar
Norðdahl.
Ráðgert er að flugsýningin
hefy'ist kl. 14 laugardaginn U.
ágúst en sunnudagurinn 12.
hafður til vara.
Flugmódelflug.
Fjórða tónleikahelgi Sumartón-
leika hefst kl. 15 á laugardaginn í
Skálholtskirkju með því að flutt
verður dagskrá með verkum Hafliða
Hallgrímssonar tónskálds. M.a.
verða þijú verk frumflutt, „Strönd“,
einleiksverk fyrir sembal, tileinkað
Helgu Ingólfsdóttur, „Flug Ikarus-
ar“, þriggja þátta einleiksverk fyrir
flautu, tileinkað Kolbeini Bjarna-
syni og „Triptych“, þriggja þátta
verk fyrir blandaðan kór, byggt á
ljóði ítalska ljóðskáldsins Salvatore
Quasimodo. Einnig verða flutt fjög-
ur íslensk þjóðlög í útsetningu Haf-
liða; Nú vil ég enn í nafni þínu,
Hættu að gráta hringaná, Sof þú
blíðust barnkind mín og Veröld fláa
sýnir sig. Síðast en ekki síst verður
verkið „Verse 1“ flutt, en það verk
vann fyrstu verðlaun í alþjóðlegu
tónskáldakeppninni sem kennd er
við Viotti i Vercelli á ítaliu 1975.
Flytjendur verða: Sönghópurinn
Hljómeyki og einleikararnir; Helga
Ingólfsdóttir á sembal, Kolbeinn
Bjarnason á flautu og Hafliði
Hallgrímsson á selló.
Kl. 17.00 sama dag leikur Einar
Kristján Einarsson einleik á gítar.
Einar stundaði framhaldsnám í
Manchester í Englandi en aðalkenn-
arar hans voru; George Hadjinikos,
Gordon Crosskey og David Russell.
Einnig lauk hann einleikara- og
kennaraprófi frá Guildhall School
of Music 1987.
Efnisskráin er samsett af íslensk-
um og eriendum verkum. Einar mun
m.a. flytja verkið „Nocturnal after
John Dowland" eftir Benjamin
Britten og frumflytja „Hvaðan
kemur lognið?“ eftir Karólínu
Eiríksdóttur.
Kl. 15 á sunnudaginn verður flutt
tónverk eftir Hafliða Hallgrímsson,
þau sömu og frá laugardeginum.
Kl. 17 á sunnudaginn er messa.
í messunni verða flutt atriði úr efn-
isskrá helgárinnar.
Aðgangur er ókeypis.
HUNDASÝNING verður hald-
in í Laugardalshöll á vegum
Hundaræktarfélags íslands
sunnudaginn 12. ágúst. Sam-
kvæmt upplýsingum félagsins
verða þar sýndir 190 hundar
af 12 tegundum og munu þar
væntanlega koma fram allir
beztu hundar landsins.
Sýningin hefst með ræktunar-
dómum, en þar verða hundarnir
sýndir og þeim gefnar einkunnir
með tilliti til rækt.unarmarkmiða.
Að dómum loknum verða valdir
beztu hundar hverrar tegundar.
Til sýningarinnar hafa verið
fengnir tveir erlendir gestadóm-
arar, þau Carl-Johan Adler Cre-
utz frá Svíþjóð og Jean Lanning
frá Englandi. Bæði hafa þau al-
þjóðaréttindi til þess að dæma
öll hundakyn.
Sýningin hefst klukkan 09 og
er stefnt að því ræktunardómum
og vali beztu hunda verði lokið
klukkan 17, en þá taka við ýms-
ar „hundakúnstir". Meðal sýn-
ingaratriða eru hlýðniæfingar og
hundafimi, þar sem hundarnir
eru í aðalhlutverkum. Að lokum
sýningar sýna trúðurinn Raggi
og Júlíus Fífill (írskur Seti) listir
sýnar.
í fyrsta dómhring verður dóm-
ari Carl-Johan Adler Creutz.
Hann hefst klukkan 09 og verður
fyrst dæmdur Enskur Cocker
Spaniel, þá Enskur Springer
Spaniel, þá Labrador Retriever,
Golden Retriever og loks Schafer.
í dómhring tvö verður dómari
Jean Lanning. Sá hringur hefst
einnig klukkan 09 og verða þá
dæmdir hundar í þessari röð:
Sankti Bernhard, írskur Setter,
Poodle, Dachshundur, Maltese,
Papillon og íslenzkur fjárhundur.
Tónleikaferð um
alla landsQórðunga
SÍÐARI hluta ágústmánaðar
munu Sigurður Halldórsson
sellóleikari og Daníel Þorsteins- "
son píanóleikari ferðast um Is-
land og halda tónleika í öllum
landsfjórðungum.
Tónleikaferð þeirra félaga hefst
14. ágúst á Akranesi. Þann 15.
verða þeir í Borgarnesi, 18. í Bol-
ungarvík, 19. á ísafirði, 23. á Akur-
eyri, 25. í Skjólbrekku í Mývatns-
sveit, 26. á Húsavík, 28. í Neskaup-
stað, 29. á Egilsstöðum og að lokum
31. ágúst í Garðabæ.
Daníel lærir nú við Sweelinck-
tónlistarháskólann í Amsterdam,
undir leiðsögn Willems Brons, en
Sigurður lauk námi fyrir nokkru frá
Guildhall School of Music and
Sigurður Halldórsson og Daníel
Þorsteinsson.
Drama í London og-sækir enn tíma
hjá aðalkennara sínum þar, Raph-
ael Sommer.
Sölusýn-
ing FIM
SÖLUSÝNING fé-
lagsmanna í Félagi
íslenskra myndlist-
armanna hefst á
mánudag, 13. ágúst
klukkan 14 og
stendur til ágúst-
loka.
Sýningin verður í
sal FÍM að Garða-
stræti 6. Hún verður
opin virka daga frá
klukkan 14 til 18, en
lokað verður um helg-
ar.