Morgunblaðið - 11.08.1990, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.08.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990 17 Vígvæðingarstefna Saddams Hussein Iraksforseta: Vopnin einkum keypt frá Sovétríkjunum, Frakklandi og Kína VOPNABUNAÐ sinn hafa írakar einkum keypt af Sovétmönnum, Kínverjum og Frökkum en fleiri ríki hafa verið reiðubúin að selja Saddam Hussein, hinum herskáa forseta íraks, háþróuð drápstól. í forystugrein málgagns ungliðahreyfingar kínverskra kommúnista var í gær fullyrt að 80% vopnabúnaðar hins öfluga hers íraka hefðu verið framleiddur í Sovétríkjunum. I nýjasta hefti vikuritsins Der Spiegel segir að vestur-þýsk fyrirtæki hafi jafnan verið reiðubúin að njóta góðs af vígvæðingarstefnu Saddams og tengst með einum eða öðrum hætti framleiðslu vopna og eiturefna. Upplýsingar um samsetningu herafla íraka eru af augljósum ástæðum af skornum skammti. Vit- að er að herinn telur eina milljón manna og vikuritið Newsweek seg- ir 850.000 manns í varaliðssveitum hersins. Þetta er ótrúlega há tala ekki síst í ljósi þess að 17 milljónir manna búa í írak. Ekkert ná- grannaríkjanna ræður yfir svo flöl- mennum liðsafla ogtil samanburðar má geta þess að rúmlega 140.000 manns eru í ísraelsher þótt varaliðs- sveitir landsins telji rúma hálfa milljón manna og um 750.000 manns í her Bandaríkjanna. Sovéskar eldflaugar írakar eiga að því er talið er 5.500 skriðdreka og á það hefur verið bent að færri skriðdrekum hafi verið beitt í bardögum í Norður-Afríku á árum síðari heims- styijaldarinnar. Drekarnir munu vera kínverskir og sovéskir og vitað er að svokallaðar Lífvarðasveitir forsetans hafa til reiðu fullkomn- asta skriðdreka Sovétmanna, T-72. Landherinn ræður einnig yfir sovéskum loftvarnarflugskeytum sem vestrænir sérfræðingar nefna SAM-13 og SAM-14. Þá eiga írak- ar sovéskar Scud-B eldflaugar, sem draga um 300 kílómetra og voru upphaflega hannaðar til að bera kjarnorkuhleðshr. Þessum eld- flaugum hafa írakar breytt til að auka drægni þeirra og var þeim óspart beitt undir lok Persaflóa- stríðins. Ekki liggur fyrir hversu margar slíkar eldflaugar er að finna í vopnabúrum íraka en þær geta borið eiturefnahleðslur. í vikuritinu Newsweek segir að Saddam Hus- sein ráði einnig yfir a.m.k. 66 með- aldrægum eldflaugum og miðast sú skilgreining að líkindum við meira en 500 kílómetra drægni. Þessum eldflaugum hefur verið komið fyrir nærri höfuðborginni, Bagdað, og þar eru sovésk loftvarnarkerfi til reiðu. Franskar og sovéskar orustuþotur írakar eru sagðir eiga 513 or- ustuþotur en ekki liggur nákvæm- lega fyrir hvernig samsetningu flughersins er háttað. Fullkomnustu þoturnar koma frá Sovétríkjunum og Frakklandi. Frá síðarnefnda landinu hafa þeir keypt 64 þotur af gerðinni Mirage F-1 og fengu flugmennirnir þjálfun í Frakklandi. írakar eiga einnig 18 sovéskar þot- ur af gerðinni Mig-29 sem er talin fullkomnasta orustuþota Sovét- manna og um 70 eldri þotur af gerðinni Mig-23. Flugmennirnir voru allir þjálfaðir í Sovétríkjunum. Flugskeytin sem þessar þotur bera eru einnig smíðuð í Sovétríkjunum. Sérfræðingar telja hins vegar að þotur Bandaríkjamanna og Breta séu tæknilega fullkomnari sem og vopnabúnaður þeirra og talið er að stjórnun og skipulagningu loftvarna í Irak sé nokkuð ábótavant. írakar munu einnig eiga skammdræg kínversk flugskeyti. Herinn ræður einnig yfir miklum fjölda léttra bryndreka og liðsflutn- ingavagna auk öflugs stórskotaliðs. Vestrænir vígtólasérfræðingar segja írakar eiga a.m.k. 100 fall- byssur af gerðinni G-5 sem smíðað- ar eru í Suður-Afríku. Hlaupvíddin er 155 millimetrar og drægnin rúm- ir 40 kílómetrar. Talið er líklegt að fallbyssum þessum hafi verið komið fyrir í Kúvæt en þær og nýjasta gerð þeirra, G-6, eru taldar hinar fullkomnustu í Jieimi hér. Þá er hugsanlegt að írakar hafi einnig fengið háþróaðar sprengjuvörpur frá Suður-Afríku. Talið er fullvíst að Suður-Afríka virði vopnasölu- bann Sameinuðu þjóðanna, líkt og m.a. Sovétmenn og Kínverjar hafa skuldbundið sig til að gera. I forystugrein málgagns kín- verskra ungkommúnista sagði í gær að 80% þeirra vopna sem írakar réðu yfir hefðu verið smíðuð í Sov- étríkjunum. Næst í röðinni kæmu vopn frá Frökkum og síðan kín- verskar vígvélar. I greininni var heimilda ekki getið en hún vakti athygli ekki síst í ljósi þess að frétt- ir af vopnasölu kínverskra komm- únista hafa verið bannaðar í ú'öl- miðlum þar eystra. í nýjasta hefti tímaritsins Der Spiegel er fullyrt að þýsk fyrirtæki hafi með ýmsum hætti komið nærri hamslausri vígvæðingu íraka. Hafi Þjóðveijar m.a. aðstoðað íraka við að reisa skotfærá- og vopnaverk- smiðjur þar sem smíðaðar séu eld- flaugar og byssur. Þýskir sérfræð- ingar hafi lagt hönd á plóginn á sviði eiturefnaframleiðslu (sams konar upplýsingar hafa komið fram varðandi Líbýu) og einnig komið nærri kjarnorkuáætlunum Iraka en bandarískir sérfræðingar telja að Saddam Hussein ráði enn ekki yfir gjöreyðingai’vopnum. Heimildir: Reuter, The Daily Telegraph, Newsweek, Time, Der Spiegel. 4 IMt "m, -v SÍS, Keuter Utifundir til stuðnings Saddam Hussein Útifundur sjö þúsund stuðningsmanna Saddams Husseins íraksforseta í Jórdaníu lýsti í gær yfir heilögu stríði gegn Bandaríkjamönnum og hvatti Jórdaníustjórn til að senda sjálfboðaliða til aðstoðar írökum. Talsmenn nefndar til stuðnings Hussein sögðu að 40.000 Jórdanir hefðu boðist til að beijast með írökum ef Bandaríkjamenn réðust á Irak. Á myndinni brenna múslimskir bókstafstrúarmenn fána Bandaríkjanna og ísraels að lokinn bænastund í Amman í gær. Olíuframleiðsla OPEC-ríkia* í iúlí Olíuútflutningur íraka hefur stöðvast vegna efnahagslegra refsiað- gerða Sameinuðu þjóðanna en ekkert benti til þess í gær að önnur olíuframleiðsluríki við Persaflóa myndu mæta minnkandi olíufram- boði með því að auka framleiðslu sína. írak og Kúvæt framleiddu samanlagt um 4,2 milljónir fata á dag og svo virtist sem stjórnvöldum í Saudi-Arabíu, mesta olíuútflutningsríki heims, íran og Sameinuðu arabísku furstadæmunum lægi ekki á að auka framleiðslu sína. Talið er að þau vilji að olíuforði Vesturlanda minnki verulega fram til október en þá eykst eftirspurnin til muna er vetur gengur í garð. Olíubirgðirnar hafa ekki verið jafn miklar í átta ár og ættu að duga í um hundrað daga. Friðargæslusveitir á leið til Líberíu: Ætla að koma á friði fyrir lok næstu viku Monróvíu. Reuter. STRÍÐANDI fylkingar uppreisnarmanna í Líberíu héldu áfram árásum sínum á stjórnarherinn, sem hefur búið sig til varnar við forsetahöllina í höfuðborginni, Monróvíu. Friðargæslusveitir Vestur-Afríkuríkja koma til landsins í næstu viku þótt leiðtogi stærri fylkingarinnar, Charles Taylor, sé andvígur þeim áformum. Sveitirnar verða skipaðar 2.400 mönnum, fara yfir landamærin frá nágrannaríkinu Sierra Leone og stefna að því að tryggja vopnahlé fyrir lok næstu viku. Stjórnarerindrekar V estur-Afríku- ríkja lögðu áherslu á að hersveitirnar hygðust binda enda á stríðið hvort sem Charles Taylor samþykkti íhlut- unina eða ekki. Hreyfing Taylors, NPFL, hefur ítrekað lagst gegn áformum um íhlutun erlendra ríkja til að binda enda á stríðið, sem hefur staðið í átta mánuði og valdið ringul- reið í höfuðborginni. Samuel Doe, forseti landsins, og Prince Johnson, foringi uppreisnar- manna sem klufu sig úr NPFL, hafa þegar fallist á að friðargæslusveitirn- ar gæti laga og reglu í landinu til að bráðabrigðastjórn geti skipulagt fijálsar kosningar. Efnahagsbanda- lag Vestur-Afríkuríkja (ECOWAS) stofnaði sveitirnar, sem verða skipað- ar 2.400 hermönnum frá Nígeríu, Ghana, Gíneu, Sierra Leone og líklega Gambíu. Uppreisnarmenn undir stjórn Charles Taylors hófu í fyrradag stór- sókn í Monróvíu úr austri og voru aðeins tveimur kílómetrum frá for- setahölí Does er þeirri mættu fyrst verulegri mótstöðu. Þeir skutu einnig viðvörunarskotum að sendiráði Nígeríu í borginni til að hrekja burtu 1.800 flóttamenn, sem höfðu leitað þar hælis. Stríðið hefur kostað þúsundir manna lífið og einn fimmti hluti landsmanna, sem eru 2,5 milljónir, hefur flúið heimkynni sín. Lík liggja á víð og dreif í miðborg Monróvíu og rotna þar í hitabeltisloftinu því enginn áræðir að snerta þau. Óeirðir vegna efna- hagsaðgerða Fujimoris Lima. Reuter. ÓEIRÐIR brutust út í Perú á fimmtudagskvöld vegna sparn- aðaraðgerða hins nýkjörna for- seta landsins, Albertos Fujimor- is, sem hækkaði verð á ýmsum matvælum og bensíni. Hermenn urðu þremur mótmælendum að bana í bæ skammt frá Lima. Bensín hækkaði um 3.100 af hundraði, verð á brauði þrefaldaðist og gasi í eldavélar tuttugu og fimm- faldaðist. Bálreiðir íbúar fátækrahverfa Lima létu greipar sópa um fjóra stórmarkaði og um 500 manns réð- ust inn í nokkra banka. Hermenn hófu skothríð á mót- mælendur, sem höfðu kveikt í hjól- börðum og reist vegatálma, með þeim afleiðingum að þrír biðu bana. Flestir beindu reiði sinni að Fuji- mori, seni_ tók við embætti fyrir Alberto Fujimori þrettán dögum og hafði lofað því að grípa ekki til harðra aðgerða til að draga úr óðaverðbólgunni í landinu, sem varð 63% í júlí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.