Morgunblaðið - 11.08.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.08.1990, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990 SPJOTKAST Sigurður þriðji á mótií Svíþjóð Sigurður Matthíasson, spjót- kastari, varð þriðji á móti í Vaxjö í Svíþjóð í fyrrakvöld. Sterk- ir kastarar kepptu á mótinu, kö- stuðu reyndar ekki mjög langt mið- að við það sem þeir eiga að geta enþess má geta veður var ekki gott og vindur mjög óhagstæður fyrir spjótkastara. Það var Svíinn Patrik Boden sem sigraði á mótinu, kastaði 79,20, landi hans Peter Borglund — sem keppti hér á_ boðsmóti Visa á Lands- móti UMFÍ á dögunum — varð annar með 78,92 og Sigurður varð þriðji, kastaði 78,82. Þess má geta að hann hefði forystu eftir fjórar umferðir keppninnar af sex. Sigurð- AFLRAUNIR Sigurður Matthiasson. ur skaut nokkrum kunnum köstur- um ref fyrir rass á mótinu, þ,- á m. Sovétmanninum Kaleta. Jón Páll sigursæll Jón Páll Sigmarsson hefur sigrað á þremur aflraunamótum í Evr- ópu undanfarið, en þeir Hjalti Árna- son hafa verið á langri og strangri keppnisferð og Hjalti einnig staðið sig vel. Hæst ber frammistaða þeirra félaga í keppninni European Muscle power Championship, keppni um titilinn sterkasti maður Evrópu. Mótið fór fram í Englandi; Jón Páll sigraði en Hjalti varð í öðru sæti. Meðal keppnisgreina á mótinu voru steinakast, tijábolakast, trukkadráttur, hjólböruakstur þar sem farmurinn var 15 föngulegar konur, lóðakast, staurakast og tunnuhleðsla á bílpalls. Keppendur voru hvaðanæva úr. Evrópu, meðal annarra sterkasti maður Hollands og sterkasti maður Skotlands. Jón Páll sigraði einnig á hinu sterka móti Scottish power Chal- lange og Hjalti varð í öðru sæti. Meðal keppenda á þessu móti var núverandi handhafi titilsins Sterk- asti maður heims, Englendingurinn Jim Reeves. Þá sigraði Jón Páll einnig nýlega á sterku boðsmóti í Finnlandi og hefur hann þar með sigrað á öllum þeim mótum sem hann hefur tekið þátt í á þessu ári Innan skamms fer fram keppnin Sterkasti maður heims í Finnlandi. Takist Jóni Páli að sigra í henni að þessu sinni yrði það í fjórði meistaratitill hans í kepþninni, en enginn hefur náð að vinna það af- rek hingað til. Þess má og geta að íslendingar og Skotar háðu nýlega landskeppni í aflraunum og var sú keppni nefnd Víkingaleikarnir. íslendingar sigr- uðu Skota í keppninni. KORFUKNATTLEIKUR KR-búningur- inn bannaður! Viðamiklar breytingar eru í aðsigi á leikreglum í körfuknattleik. Þær verða teknar fyrir á heimsþinginu sem fer fram í Argentínu þessa dagana, samhliða heimsmeistarakeppninni. Eitt af því sem vitað er að breytist er að röndóttir búningar verða bannaðir! Það er því ljóst að KR-ingar verða að breyta búningi sínum — hinum þekktu langröndóttu svart/hvítu treyjum. REYKJAVIKURMARAÞON Lokaundirbúningur mr Iseinustu vikunni fyrir „stóra“ og ekkert gleymist á keppnisdegi. hlaupið er rétt að draga úr Þeir sem hlaupa hálfmaraþon og æfingum og safna kröftum. I maraþon ættu að gera áætlun um áætluninni er dregið úr fjölda millitíma á hveijum 5 km til að æfinga og vegalengd. Við það að hafa hliðsjón af. Munið að þið eig- hvíla ættu þeir sem skokkað hafa ið að hlaupa ykkar hlaup en ekki reglulega undanfarnar vikur að annarra. Híns vegar er mikil hjálp koma upp á keppnisdegi eins og í því að vera í hóp með öðrum. sagt er. Þó verður fólk að standa klárt á b. vika þvl- j,vernig hraðinn þróast, því Skemmtiskokk. Hálfmaraþon annars kann svo að fara að hópur- l.cl. 6-8kmrolega....10-12kmrolega . .» . r . 2.d. Rvíld „ Hvíld inn naicn Peim nieri’ sem &eta 3. d. 5 kmjafnt.....6-8kmjafnt betur. Eins er rétt að gera sér 4. d. Hvíld.....8 km rólega/Hvíld grein fyrir því á hvaða drykkju- 5. d. 4 km rólega....6kmrólega stöðvum fólk ætlar að drekka. *•* S.........Hvíld/Skmrólega Þetta fer eftir veðri og er reyndar 8Ák Keppni.....................*...*.*.".*.*Ki‘ppni mun minna atriði fyrir Þa Sem Lokaundirbúningur hlacu/f en maraþon. Þeir sem hafa metnað til þess S'ðafn er bara að vera jakvæður að taka á í hlauninu ættu að 0g hafa gaman að þeSSU‘ Eg , . ,, , , , ,, , , kannast við þá tilfinningu þegar leggja aherslu a að hvilast ve . mark er fomið að þ|ttaP |tli semustu tvo dagana. ^gg,a skal maður a](Jrei að fftur sm aherslu a lettan og kolvetmsnkan hverfur * m ^ er mat s.s. kartoflur, spaghetti, h inJ faring að beinast að hrísgqon, brauð og avextn Morg- hIau L unverður a keppmsdegi skal vera r léttur. Rétt er að fara vel yfir Gangi ykkur vel, útbúnað þannig að allt verði í lagi Sigurður P. Sigmundsson. Körfuboltaskóli Hauka Körfuknattleiksdeild Hauka verður með körfuknattleiksskóla fyrir drengi og stúlkur 7 til 15 ára, bæði fyrir byijendur og þá sem lengra eru komnir. Kennsla fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu 13.-18. ágúst ,og fer innritun frám í íþróttahúsinu í fyrstu tímum hvers aldursflokks. Þátttökugjald er tólf hundruð krónur og kennari verður Ingvar S. Jóns- son íþróttakennari og þjálfari. Krakkar á aldrinum'sjö til níu ára verða í skólanum frá kl. 10.00 til 12. 00, krakkar tíu til tólf ára verða frá kl. 13.00 til 15.00 og unglingar 13 til 15 ára verða frá kl. 15.00 til 17.00. KNATTSPYRNA Sviptingar í bandaríska knattSDvmuheiminum FYRIR hálfum mánuði var Al- an Rothenberg, ríkislögmað- ur í Kaliforníu, gersamlega óþekktur maður á sviði knatt- spyrnunnar í Bandaríkjunum. Á sunnudaginn var hann kjör- jnn formaður Knattspyrnu- sambands Bandaríkjanna. Hann hlaut 343,9 atkvæði á þingi sambandsins sem hald- ið var í Orlando. Werner Frieker, fyrrverandi Atii Steinarsson skrifartrá Bandaríkjunum formaður, hlaut 169,6(5 atkvæði og Paul Stiehl, sem verið hefur gjald- keri sambandsins og formaður þeirr- ar nefndar sem vann að því að úrslitakeppni HM í knattspyrnu 1994 yrði haldin í Bandaríkjunum, hlaut 69,2 atkvæði. Á herðum hins nýja formanns hvílir tvöföld ábyrgð; í fyrsta lagi að skipuleggja undirbúninginn að úrslitakeppni HM 1994 og í öðru lagi að byggja upp frambærilegt bandarískt landslið í knattspyrnu. Bandaríkjamenn taka alvarlega það hlutverk sitt að eiga að sjá um úrslitakeppni HM í knatt- spyrnu 1994. Þeir vita vel hvað er í húfi. Knattspyrnan er vinsæl- asta íþróttagrein heims og enginn viðburður nýtur meiri vinsælda. Það hefur því verið mikið bak- tjaldamakk um skipulagningu verkefnisins og framtíð knatt- spyrnu í Bandaríkjunum. Þar hafa valdamenn í alþjóða knattspyrnu- sambandinu FIFA verið í mikil- vægum hlutverkum því þeim er vel Ijóst hver ávinningur það yrði fyrir knattspyrnuíþróttina ef hún næði álíka vinsældum í Banda- ríkjunum og hún nýtur víðast annars staðar í heiminum. í Bandaríkjunum eru margir mik- ilsvlrtir menn komnír til leiks í þessu máli, m.a. Kissinger, fyrr- verandi utanríkisráðherra Banda- ríkjanna og enn mjög áhrifamikill. Kjör Rothenbergs í formanns- sætið er árangurinn af þessu bak- tjaldamakki. Að ná fram kjöri óþekkts manns á sviði knattspyrn- unnar er fyrstá merkið um það hveiju má áorka í Bandaríkjunum. Flestir bjuggust við því fram und- ir það síðasta, að Paul Stiehl hlyti kosningu. Hann hefur unnið kraftaverk fyrir bandaríska knatt- spymusambandið. En í lokin vildu „valdamiklir menn“ fela verkefnið öðrum. í því er hlutur alþjóðásambandsins FIFA talinn stór. Paul Stiehl skýrði ársþinginu frá því áður en stjórnarkjör fór fram, að alþjóða- sambandið hygðist ná tökum á bandaríska knattspyrnusamband- inu. Að sögn stórblaðsins USA Today kvaðst Rothenberg hafa fengið áhuga á kjöri eftir að FIFA lagði málin fyrir hann. Aðrir segja hann gæddan þeim hæfileika að fá fólk til að hlusta og taka mark á sér og yfirleitt gera það sem hann óskar. Nýi formaðurinn og þeir sem að baki honum standa munu áreiðanlega taka hlutverk sitt mjög alvarlega og það munu stór- ir hlutir gerast á sviði knaitspyrn- unnar í Bandaríkjunum á næst- unni. Góðar aðstæður eru fyrir hendi. Þegar eftirlitsmenn al- þjóðasambandsins skoðuðu að- stæður í þeim löndum sem sóttu um að halda úrslitakeppni HM 1994 kom í ljós að Band’aríkin voru eina „landið“ þar seni ekkert þurfti í rauninni að byggja nýtt til að halda keppnina. Urslitaleik- irnir munu fara fram í Miami og á ólympíuleikvanginum í Los Angeles. Ákjósanlega aðstöðu er að finna í mörgum öðrum borgum. En auðvitað mun hin nýja for- ystufylking knattspymunnar í Bandáríkjunum gera margt óvænt því henni er ljóst hvaða Ijoregg hún hefur í höndum. Þetta er því úrslitaorustan um að ryðja knatt- spyrnunni braut til vinsælda í Bandaríkjunum, Erfíðasti hjallinn verður e.t.v. að bijóta niður andúð og róg forystumanna bandarísku knattspyrnunnar (ruðnings) og hafnaboltans (baseball), en marg- ir þeirra hafa farið háðsorðum um knattspyrnuíþróttina. En Banda- ríkjamenn eru þannig gerðir, að ætli þeir sér eitthvað böðlast þeir að takmarkinu hvað sem það kost- ar. Og þegar hið alskyggna auga alþjóða knattspyrnusambandsins vakir yfir vötnunum þarf varla að kvíða framvindunni. Um helgina GOLF Islandsmót í sveitakeppni í golfi fer fram í Grafarholti. Keppt verður í 1. deild karla og kvenna. Keppni hefst kl. 8 f.h. í dag. Leikn- ar verða 36 holur í dag og aftur 36 á morgun. í 1. deild karla eru Golf- klúbbur Reykjavíkur, A og B sveit, Keilir, Golfklubbur Suðurnesja, Golfklúbbur Akureyrar og Golfklúb- bur Vestmannaeyja. Fjórir leikmenn eru í hverri sveit. Þrír telja í hverri umferð. I 1. deild kvenna eru fjögur lið, GR, GK, GS og GA. Sama fyrir- komulag er hjá konunum, nema hvað þijár konur eru í hverri sveit og árangur tveggja telur í hveijum hring. Landsmót öldunga í golfi fer fram á Strandarvelli um helgina, og er i umsjá Golfklúbbs Hellu. Keppni hófst í gærkvöldi, verður fram haldið í dag og lýkur á morg- un, sunnudag. KNATTSPYRNA 1. deild karla LAUGARDAGUR Kaplakriki kl. 14.....FH-ÍBV SUNNUDAGUR KR-völlur kl. 16......KR-Þór Akureyri kl. 19.......KA-Fram Akraneskl. 19.....ÍA-Víkingur Hlíðarendi kl. 19.Valur-Stjarnan 1. deild kvenna MÁNUDAGUR Akureyri kl. 19........KA-Þór 2. deild karla MÁNUDAGUR Selfoss kl. 19..Selfoss-Víðir Ólafsfj.v. kl. 19.Leiftur-UBK ÍR-völlurkl. 19....ÍR-Grindavík Keflavíkkl. 19...ÍBK-TindastólI Siglufj.v. kl. 19...KS-Fylkir 3. deild LAUGARDAGUR (AUir leikirnir hefjast kl. 14) Dalvík........Dalvík-Þróttur N Akureyri...............TBA-BÍ Vopnafj........Einheiji-Reynir Á 4. deild LAUGARDAGUR Stykkish.........Snæfell-Ármann Kópav......Augnabl.-Afturelding Gervigras.....Árvakur-Skallagr. Sauðárkr.v......Þrymur-Geislinn Blönduósv.......Hvöt-Kormákur Grenivík........Magni-Austri R. Hornafj.v.......Sindri-Stjarnan Staðarborgarv........KSH-Huginn Fásrúðsfj.v....Leiknir-Höttur Djúpavogsv......Neisti-Austri E. (Allir leikirnir hefjast kl. 14, nema viðureign Árvakurs og Skallaríms á gervigrasinu kl. 19) Hnokkamót Hnokkamót Stjörnunnar fer fram í 6. sinn um helgina. Mótið er ætlað yngstu knattspyrnuiðkendunum, drengjum í 7. flokki sem fæddir eru 1982 eða síðar. Stuðningsaðili mótsins er Laugarásbíó. Fimmtán lið hafa tilkynnt þátttöku í mótinu og er fjöldi þátttakenda áætlaður um 400, með fararstjórum og þjálf- urum. Keppt verður f flokki Á- og B-liða. HANDKNATTLEIKUR Aukakeppni um tvö sæti í 1. deild karla hófst í gærkvöldi. Um helgina . eru eftirtaldir leikir: LAUGARDAGUR Seltj.nes kl. 14.Grótta-Þór Ak. Hafnarfj. kl. 14...Haukar-HK SUNNUDAGUR Seltj.nes kl. 20....Grótta-HK SIGLINGAR íslandsmótið í siglingum hófst í gærkvöldi. Keppt er á Optimist, Europe og Laser kænum. Þijár umferðir verða sigldar í dag, sú fyrsta kl. 10 f.h. Fimmta og síðasta umferð fer fram kl. 10 í fyrramálið. Mótið fer fram á Fossvogi. TENNIS íslandsmótinu í tennis lýkur um helgina. Keppni hefst kl. 10 f.h. í dag með undanúrslitum í karla og kvennaflokki. Konurnar verða á Vikingsvöllunum í Fossvogi og karl- arnir^ Þróttarvöllum við Holtaveg. Úrslifaleikirnir verða svó á morgun. Öðlingar, 35 ára og eldri, ríða á vaðið kl. 10 f.h. á Þróttarvöllum, einliðaleikir hefjast á Víkingsvöllum kl. 13 og tvíliðaleikir á Þróttarvelli kl. 16. FRJÁLSÍÞRÓTTIR Meistaramót 12-14 ára verður hald- ið um helgina á Selfossvelli. Mótið hefst 11 f.h. í dag og kl. 10 í fyrra- málið. Á Valbjarnarvelli í Laugardal fer um helgina fram meistaramót Islands 15-18 ára. Keppni hefst kl. 14 i dag og kl. 11 í fyrramálið. SEGLBRETTI Seglbrettasamband íslands gengst fyrir seglbrettadegi á Rauðavatni í dag kl. 13-16. Fólki verður gefinn kostur á að spreyta sig á seglbretti og sýning verður á vatninu, ef veð- ur leyfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.