Morgunblaðið - 11.08.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990
5
Garðar Cortes óperustjóri íslensku óperunnar:
Stefnir í að starfsemi
óperunnar leggist niður
GARÐAR Cortes, óperustjóri íslensku óperunnar, segir að ef fram
haldi scm horfir muni starfsemi íslensku óperunnar leggjast niður á
næstunni. Sá styrkur sem óperan fái frá ríkisinu nægi einungis fyrir
húsnæðiskostnaði og launum fastráðinna starfsmanna. Lang stærsti
kostnaðarliðurinn í rekstri íslensku óperunnar væri hins vegar uppsetn-
ing sýninga og fengist enginn styrkur til þess frá ríkinu yrði ekki
hægt, að lialda starfseminni áfram lengur. Rúmlega 140 manna hópur
frá íslensku óperunni fer í næsta mánuði til Svíþjóðar þar sem óper-
unni hefur verið boðið að fiytja síðustu sýningu sína, verkin Pagliacci
og Carmina Burana, á stórri hátíð þar sem Silvía Svíadrottning og
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, verða meðal gesta. Segir Garð-
ar að þetta gæti því miður orðið síðasta verkefni íslensku óperunnar
þó auðvitað vonuðu menn að málið myndi taka aðra stefnu.
íslenska óperan hefur alls sett upp
nítján sýningar frá því hún hóf starf-
semi sína og flutt á þeim samanlagt
21 verk. Hafa um 150.000 gestir
sótt sýningar óperunnar frá upphafi
og á síðasta vetri voru óperugestir
um 15.000. „Vinsælustu" sýningar
íslensku óperunnar voru uppsetning-
arnar á verkunum „Sígaunabarón-
inn“, sem flutt var 49 sinnum, og
„Töfraflautunni", sem flutt var í 41
skipti. Fallegustu sýningu íslensku
óperunnar segir Garðar Cortes aftur
á móti hafa verið „La Traviata" árið
1983.
Hann telur hins vegar nú vera
hættu á því að ekki verði settar upp
fleiri sýningar hjá íslensku óper-
unni. Skuldir óperunnar nemi um 35
milljónum króna og séu þær þannig
til komnar að tekjur íslensku ópe-
runnar og styrkir til hennar nægi
ekki til að standa undir kostnaði við
sýningarnar. Reikna megi með að
uppsetning á sýningu kosti um 10
milljónir og síðan hvert sýningar-
kvöld um 950 þúsund krónur. Ekki
sé hægt að láta aðgangseyri standa
undir kostnaði þar sem þá hefði fólk
einfaldlega ekki efni á að kaupa
miðana. Á síðasta leikári kostuðu
miðar á sýningar óperunnar um
2.400 krónur en hefðu þurft að kosta
hátt í átta þúsund krónur, að sögn
Garðars, til að standa undir kostnaði
að fullu.
„Ríkið hefur á margan hátt stutt
við íslensku óperuna," sagði Garðar
Cortes. „Við fáum til dæmis um 13
milljón króna styrk á ári fyrir launum
starfsfólks og húsnæðiskostnaði og
einnig hefur ríkið oft fellt niður
skuldir okkar við það. Það sem ís-
lensku óperuna vantar er hins vegar
beinharður peningastyrkur sem hægt
er að nota til að greiða þá aðkeyptu
þjónustu sem við þurfum og eins til
að geta leyft söngvurum okkar að
lifa á sinni list líkt og aðrir lista-
menn, svo sem hljóðfæraleikarar,-
dansarar og leikarar gera. Allt okkar
fólk hefur lifibrauð sitt af öðru starfi
en óperunni og mest allt starf hefur
verið unnið endurgjaldslaust. Söngv-
arar okkar og kór hafa, svo dæmi
sé tekið, í gegnum árin gefið ómælt
af vinnu sinni án endurgreiðslu,
eflaust sem nemur tugum ef ekki
hundruðum milljóna króna. Þá má
einnig nefna að starf mitt sem óperu-
stjóri er með öllu ólaunað og hefur
verið frá upphafi."
Hann sagði söngvarana vera á það
lágum launum að varla væri hægt
að kalla þau þjórfé. Þjórfé væri þó
að minnsta kosti oftast um 15-20%
af kostnaði. Dæmi íslensku óperunn-
ar liti þannig út að innan við 10%
af kostnaðinum vegna sýninga rynni
til söngvara, 28% til hljómsveitarinn-
ar og 6% til kórsins. Erlendis væri
þetta oftast þannig að um 30% færi
til söngvaranna, 12-14% til kórsins
og 15-21% til hljómsveitarinnar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Garðar Cortes.
Garðar sagði marga söngvara hafa
flúið út vegna þess að þeir gætu
ekki lifað af söng sínum hér og einn-
ig væri algengt að fólk kæmi einfald-
lega ekki heim er söngnámi þess
erlendis lyki.
„Óbreytt ástand í fjármálum frá
því sem nú er þýðir að við getum
ekkert gert enda eru engin áform
uppi um óperustarf á næsta leikári.
Við getum einfaldlega ekki staðið í
þessu lengur. Það sem þetta fyrir-
tæki þarf er að losna út úr skuldafen-
inu og vissu um að hægt verði að
setja upp tvær til þrjár sýningar á
ári næstu þrjú til fimm árin. Einung-
is þannig getum við samið við lista-
mennina um áframhald. Það þyrfti
því að koma til fjárveiting fyrir skuld-
unum og síðan fast fimmtíu milljón
króna framlag til að setja upp sýn-
ingar," sagði Garðar.
Hann sagði ljóst að margir stjórn-
málamenn bæru hlýjan hug til starf-
semi óperunnar og kæmu á sýningar
til að njóta þess sem hún hefði fram
að færa. Aftur á móti væri takmark-
að hvað þeir vildu og gætu gert.
Núverandi menntamálaráðherra og
fjármálaráðherra sagði hann bápa
hafa tjáð sér að þeir vildu veita ís-
lensku óperunni aðstoð en þeir segð-
ust hins vegar einnig standa frammi
fyrir þeim vanda að ekki væru til
neinir peningar í þjóðarbúinu. „í
mínum huga er ekkert til sem ekki
er hægt. Þetta er bara spurning um
að hafa vilja til að gera hlutina og
að finna leiðina sem farin er að
markinu. Ráðherrarnir segjast hafa
viljann og ég vona að þeir finni líka
leiðina. Annars erum við í miklum
vanda og allt uppbygingarstarf hér
væri unnið fyrir gýg. Það yrði mjög
sorglegur endir.“
Hann sagði starfsfólk íslensku
óperunnar hafa verið svo lengi að
gera hið ómögulega að kraftarnir
væru á þrotum. Eina vonin sem
menn eygðu væri að menntamálaráð-
herra og fjármálaráðherra hefðu sett
á laggirnar tveggja manna nefnd,
skipaða einum manni frá hvoru ráðu-
neyti, sem væri að athuga málefni
íslensku óperunnar. Nefndin hefði
sent bréf þar sem óskað hefði verið
eftir ýmsum upplýsingum og hefði
því bréfi verið svarað af hálfu ís-
lensku óperunnar í gær, föstudag.
„Það hefur sest í mann mjög mikil
þreyta og þegar svo er komið þarf
maður annað hvort hvíld eða vítamín-
sprautu. Vítamínsprautan væri í
þessu tilviki styrkur frá ríkinu að
maður tali nú ekki um frá Reykjavík-
urborg,“ sagði Garðar Cortes að lok-
um.
FUJGSÝMNG
f DAG KL. 14.00
í tilefni 20 ára afmælis flugmódelfélagsins Þyts verður haldin
stór flugsýning á flugvelli félagsins við Hamranes sunnan við Hafnarfjörð
Margt verður til skemmtunar, meðal annars:
MÓDELFLUG + EALLHLÍFARSTÖKK 4 LISTFLUG + ÞYRLUFLUG + ÚISÝNISFLUG í ÞYRLU
HÓPFLUG + AUK MARGRA ANNARRA SKEMMTILEGRA FLUGATRIÐA
Akið sem leið liggur
f átt til Krísuvíkur
og fylgið skiltunum.
AÐGANGSEYRIR:
FULLORÐNIR 300 kr.
BÖRN 150 kr.
41 HAMRANES - FLUGSÝNING
TIL KEFLAVÍKUR -----------► TTL KEFLAVÍKUR
7 /
mona
[h1 TðmSTUflDfiHÚÍIÐ HF
1—1 Laugauegi KFReqlqaut »21901
HEKLA
-f-f<-f<-f<-f<-f<-f<-f<-f<-f,-f<-f<-f<-f<-f<-f<-f<-f<-f,-f<-f<-f<-f<-f<-f<'f<-f<-f<-f<-f<-f<-f