Morgunblaðið - 11.08.1990, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990
11
LISTKYNNING
að íslenzk sendiráð erlendis
tækju upp þennan sið svona end-
rum og eins.
Ekki þekki ég til listakonunnar
Ginger Hale Crowell, en vinnu-
brögð hennar leiddu hugann að
ýmsu í amerískri listhefð, sem
er mjög ijarlægt og frábrugðið
því sem við eigum að venjast hér
og þá einkum húsamyndirnar.
Minntu þær mig sumar eilítið á
Leland Bell. En hvað hugarflugs-
myndirnar snerti, sem eru málað-
ar í Bandaríkjunum eftir minni
af íslenzku landslagi, þá komst
maður í mun nær þeim. Fannst
sem listakonan næði öllu betra
sambandi við blæbrigði landsins
en í húsamyndunum, sem voru
málaðar á staðnum og virkuðu
nokkuð harðar og eintóna.
En það er alveg víst að þetta
er ein hlið á amerískri myndlist-
arhefð, sem ber ekki að vanmeta
og máður þakkar með virktum
fyrir sig.
KLÁRFORM
Ýmsar hræringar eru í list-
heiminum eins og margur veit,
og listamenn leita með logandi
ljósi að einhverri haldfestu. Allt
er opið þannig að engin ein stefna
er á oddinum í augnablikinu,
þótt ekki.skorti á viðleitni í þá
áttina og eru hér hin áhrifameiri
listhús helst í sviðsljósinu ásamt
þeim er reka erindi þeirra á rit-
vellinum.
Þó vill það hæglega gleymast
þegar horft er á hlutina úr ijar-
lægð, sem ér mjög áberandi á
Norðurlöndum, og þá einna
greinilegast hér á útskerinu, að
menn eru jafnan í kafi í margt
fleiru en því sem listhúsin og
listtímaritin auglýsa hvað
grimmast.
Engum listamanni í París eða
öðrum möndlum heimslistarinnar
dettur í hug að gerbreyta um
stíl á einni nóttu þótt hann kunni
að verða fyrir mikilli hugljómun
af kynnum við list annarra þjóða.
Og eins og ég hefi þráfaldlega
vísað til í skrifum mínum þá
halda flestir hinna stóru bóga
myndlistarinnar áfram að yrkja
sinn garð sallarólegir hvað sem
öllum hræringum líður í kringum
þá. Ef svo væri ekki þá væri
harla kostulegt að líta yfir sviðið
og ættu menn slundum að
staldra við og hugsa til þess.
Ein af þeim stefnum, sem
skotið hafa upp kollinum á und-
anförnum árum, er eins konar
afbrigði af strangflatalistinni
svonefndu, er átti miklu fylgi að
fagna á sjötta áratugnum, en þó
iðulega í mýkri og einfaldari bún-
ingi. Nefnist stefnan „Neu-Geo“
á þýsku og er- það orðið að sér-
heiti. Þessi vinnubrögð eru þó
engin nýjung enda rata slíkar
myndheildir allt eins ósjálfrátt
úr pentskrúf málara, án þess að
um hnitmiðaðan ásetning sé _að
ræða.
Fegurð rökréttrar fiataskipun-
ar er ótvíræð og því er ekki að
undra þótt alltaf séu til einstakl-
ingar sem laðast að strangri og
nitmiðaðri uppbyggingu forma
Þórunn Hjartardóttir
og lita á myndfleti. Og hér sem
annars staðar má segja, að sér-
hvert form sem fæðist af innri
hvöt sé sigur og hátturinn hvern-
ig formin fléttast saman afhjúpar
í hve miklum mæli gerandinn og
verk hans eru gædd andlegum
sveigjanleika.
Þessar línur eru settar á blað
eftir innlit á sýningu Þórunnar
Hjartardóttur í Listhúsinu éinn
einn á Skólavörðustíg. Þórunn
útskrifaðist úr Nýlistadeild MHÍ
vorið .1987 og er þetta fyrsta
einkasýning hennar. Það eru ein-
ungis sjö myndir á sýningunni
og er ekki að 'vænta að svo fá
verk segi mikið um gerandann,
en þó má greina að hún hefur
orðið fyrir nokkrum áhrifum af
nýgeometríunni svonefndu og er
hér að þreifa fyrir sér.
Eitt verk vakti öðrum fremur
athygli og nefnist sú mynd „End-
urgerð" og er nr. 7 á skrá. Hér
kemur fram sterkasta og ótv-
íræðasta samspiiið á milii lita og
forma og gefur myndin ótvírætt
til kynna að Þórunn mætti voga
meiru í listsköpun sinni og að
átök við viðfangsefnin liggi betur
fyrir henni en yfirdrifin hógværð.
Myndlist
BragiÁsgeirsson
Fimmtudaginn 2. ágúst var
dálítið óvenjuleg listkynning í
sendiráði Bandaríkjanna við
Laufásveg.
Óvenjuleg fyrir það að hér
gafst ýmsum boðsgestum tæki-
færi til að kynnast verkum lista-
konunnar Ginger Hale Crowell
og henni sjálfri í mörg svo vist-
leguin húsakynnum sendiráðsins.
Varla er slík kynning tilefni
til alvarlegrar umfjöllunar enda
dálítið erfitt að átta sig á mynd-
unum þar sem þær hengu á hin-
um ýmsu stöðum á veggjunum
og þetta er ekki opinber sýning,
en yfir þessari kynningu allri var
einstaklega menningarlegur og
virðulegur blær sem athygli
vakti. Menn eru enda ekki vanir
því að listamenn séu kynntir á
þennan hátt hérlendis, en mikið
væri það nú annars gaman ef
Utflutning'sverðmæti þorsks
um 30 milljarðar króna 1991
Tillögur Hafrannsóknastofnunar:
Þar af 5 milljarðar fyrir Grænlandsþorsk
Hafrannsóknastofnun leggur til að veidd verði 300 þúsund tonn
af þorski á næsta ári, eða 50 þúsund tonnum meira en stofnunin
hefði að öllum likindum lagt til ef hún reiknaði ekki með þorski frá
Grænlandi til hrygningar á íslandsmiðum árin 1991 og 1992, að
sögn Jakobs Magnússonar aðstoðarforstjóra Hafrannsóknastofnun-
ar. Miðað við þessar tillögur, svo og verð og útflutningshlutfall á
frystum, söltuðum og ísuðum þorski nú verður útflutningsverðmæti
þorsks uin 30 milljarðar króna á næsta ári, þar af um 5 milljarðar
króna fyrir Grænlandsþorsk.
Heildarútflutningsverðmæti
sjávarafurða var 56,8 milljarðar
króna árið 1989 og útflutningsverð-
mæti 50 þúsund tonna af þorski
er um 9% af þeirri upphæð. Útflutn-
ingsverðmæti sjávarafurða var hins
vegar um 25% hærra fyrstu fimm
mánuðina í ár en á sama tíma í
fyrra en þorskaflinn verður að öllum
líkindum um 46 þúsund tonnum
minni í ár en í fyrra og mjög litlar
birgðir eru nú til í landinu.
Hafrannsóknastofnun reiknar nú
með"90 þúsund tonnum af þorski
til hrygningar á íslandsmiðum árið
1991 og öðrum 90 þúsund tonnum
árið 1992 en stofnunin leggur til
að veidd verði 50 þúsund tonn af
þessum þorski á næsta ári.
Þessi spá verður hins vegar end-
urskoðuð í byijun næsta árs en
þeirri tillögu Hafrannsóknastofnun-
ar um að veidd verði 240 þúsund
tonn af þorski frá 1. janúar til 31.
ágúst á næsta ári verður hins vegar
ekki breytt, að sögn Jakobs Magn-
ússonar. Næsta kvótatímabil á eftir
verður frá 1. september 1991 tii
31. ágúst 1992. Jakob segist vera
viss um að þorskur gangi hingað
frá Grænlandi á næsta ári en eitt-
hvað af þorskinum verði hins vegar
eftir við Grænland og hrygni þar.
Hafrannsóknastofnun lagði til í
fyrra að veidd yrðu allt ,að 250
þúsund tonn af þorski á þessu ári
en sjávarútvegsráðherra leyfði hins
vegar veiðar á allt að 310 þúsund
tonnum af þorski í ár. Þá lagði
stofnunin til að í ár yrðu veidd allt
að 60 þúsund tonn af ýsu, 90 þús-
und tonn af ufsa, 80 þúsund tonn
af karfa, 45 þúsund tonn af grálúðu
og 90 þúsund tonn af síld. Sjávarút-
vegsráðherra fór eftir þessum til-
lögum að öðru leyti en því að leyfð-
ar voru veiðar á allt að 65 þúsund
tonnum af ýsu og 90 þúsund tonn-
um af karfa.
Fiskifræðingar leggja til að á
næsta ári verði veidd allt að 50
þúsund tonn af ýsu, 90 þúsund tonn
af ufsa, 80 þúsund tonn af karfa,
30 þúsund tonn af grálúðu og 90
þúsund tonn af síld. Lagt er til að
veidd verði 38 þúsund tonn af ýsu
frá 1. janúar til 31. ágúst á næsta
ári, 65 þúsund tonn af ufsa, 55
þúsund tonn af karfa og 27 þúsund
tonn af grálúðu.
Þá er mælt með allt að 2.100
tonna humarafla árið 1991, eða
sama afla og í ár, en 12.500 tonna
hörpudiskafla, sem er eitt þúsund
tonnum minni afli en í ár. Hafrann-
sóknastofnun leggur einnig til að
veidd verði 3.400 tonn af rækju á
grunnslóð á næstu vertíð, eða 100
tonnum minna en á síðustu vertíð.
Jasstónlcik-
ar í Heita
pottinum
JASSTÓNLEIKAR verða haldnir
í Heita pottinum í Duushúsi við
Fischersund sunnudagskvöldið
12. ágúst.
Fram koma gítarleikarinn Ari
Einarsson, kontrabassaleikarinn
Tómas R. Einarsson og trymbillinn
Pétur Grétarsson. Sérstákur gestur
kvöldsins verður harmoníku- og
píanóleikarinn Ólafur Stephensen.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30.
ganga allirvinningar út!
UPPLVSINGAR: SÍMSVARI 681511 • LUKKULÍNA 991002
... r V I. ■: r-T-., ■ "i. 1———: T— rrT","TT" " """T"