Morgunblaðið - 11.08.1990, Page 24

Morgunblaðið - 11.08.1990, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990 Torfhildur Sigurð- ardóttir - Minning Fædd 31. maí 1912 Dáin 30. júlí 1990 Sumarið sem nú er að líða verður lengi í minnum haft hér sunanlands fyrir einstök hlýindi og mikinn jarð- argróða. Stráin falla fyrir stórvirk- um vélum bændanna og verða þátt- takendur í hringrás lífsins, viðhaldi þjóðarinnar og bústofnsins sem hún nærist á. Dauðinn slær árið um kring með ljá sínum og skeytir engu hvernig árar hjá mannfólkinu. Högg hans eru þung. Sumir falla við fyrsta högg en á aðra bítur eggjárn hans seint. Hann gerir þá hveija atrenn- una á fætur annarri uns yfir lýkur og maðurinn fellur fyrir hendi hans eins og stráin fyrir vélknúnum ljá bóndans. Að kvöldi 30. júlí síðastliðins lést á Landakotsspítala Torfhildur Sig- urðardóttir, sem lengst af kenndi sig við Hallormsstað í Vestmanna- eyjum. Barátta hennar við dauðann var ströng og hún bugaðist ekki fyrr en þjáningar hennar voru orðn- ar svo óbærilegar að ekkert fékk linað þær. Þá bað hún skapara sinn að liðsinna sér og hann gerði það. Torfhildur fæddist á Bryggjum í Austur-Landeyjum og voru foreldr- ar hennar Sigurður Sæmundsson og Guðbjörg Björnsdóttir. Hún var skírð í höfuðið á móðurbræðrum sínum, þeim Tyrfingi, bónda á Bryggjum, og Stefáni, útvegsbónda í Skuld í Vestmannaeyjum. Torf- hildur var elst fjögurra systkina. Hún ólst upp í Landeyjunum, fluttist með foreldrum sínum að Tjörnum árið 1918 og_ aftur að Bryggjum árið 1922. Árið 1923 fluttist íjölskyldan til Vestmanna- eyja og stofnaði heimili að Hall- ormsstað þar í bæ og kenndi Tolla, eins og hún var kölluð, sig jafnan við það hús. Heimili þeirra Guðbjargar og Sigurðar var rómað fyrir gestrisni og þangað komu margir. Húsfreyj- an var einkar ræðin og skemmtileg og hafði ákveðnar skoðanir á mönn- um og málefnum. Sigurður var mildur maður í skapi og bæði voru þau hjón ákaflega barngóð. Laðað- ist enda að þeim ungt fólk. Þau voru bæði vel máli farin og höfðu gaman af að segja frá enda voru þau margfróð og langminnug á margt. Tolla erfði þessa eðlisþætti foreldra sinna. Snemma fór hún að taka til hendinni og hún var ekki há í lofti þegar hún vildi fara að gera gagn. „Munar ekki mikið um mig?“ spurði hún þegar hún var á 6. ári. Þegar til Vestmannaeyja kom varð Tola fljótlega vinsæl af öllum. Hún var lífsglöð og félagslynd. Hún hafði mikið yndi af söng og gekk til liðs við kór Landakirkju þrettán ára að aldri, en honum stjórnaði þá Brynjólfur Sigfússon, mikill tón- listarmaður og góður kórstjóri. Tolla söng með kirkjukórnum og Vestmannakór í um tvo áratugi. Þá' söng hún oft á skemmtunum tvísöng ásamt vinkonum sínum og má geta þess að hún frumflutti meðal annars hið landskunna lag Oddgeirs Kristjánssonar Ágústnótt árið 1940. Árið 1940, hinn 26. október, gift- ist Tolla Óskari Friðbjörnssyni, lög- regluþjóni í Vestmannaeyjum og stofnuðu þau heimili á Brekastíg 33. Upp frá þessu voru þ_au kennd hvort við annað, Tolla og Óskar eða Óskar hennar Tollu. Árið 1946 fluttust þau hjónin til Reykjavíkur og starfaði Óskar þar í lögreglunni rúma þijá áratugi. Þau bjuggu á nokkrum stöðum þar syðra uns þau reistu myndarlegt íbúðarhús árið 1959, Akurgerði við Nesveg ásamt hjónunum Elínborgu Guðjónsdóttur og Gunnbirni Gunn- arssyni, en þær Tolla og Elínborg voru nátengdar. Varð sambýli þeirra hið farsælasta uns þau Gunn- björn og Elínborg seldu efri hæð- ina. En vinátta hélst með þeim eft- ir sem áður. Óskar og Torfhildur eignuðust tvö börn: Birnu, sem fædd er 12. maí 1942, og Sigþór, fæddan 9. febrúar 1949. Birna er gift Paul Richard Fawc- ett og búa þau hjón í Bandaríkjun- t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GEIRFRÍÐUR JÓELSDÓTTIR, Breiðumýri, Reykjadal, áðurtil heimilis á Siglufirði, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 13. ágúst kl. 14.00. Björg Arnþórsdóttir, Sigtryggur Jósepsson, Hörður Arnþórsson, Gréta Guðmundsdóttir, Örn Arnþórsson, Svanborg Dahlmann, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín og fósturmóðir okkar, VALGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Ijósmóðir, HvammiíKjós, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfjarðarströnd, í dag, laugardaginn 11. ágúst, kl. 14.00. F.h. systkina hennar og annarra ættingja, Karl Karlsson, Erla Jónsdóttir, Guðbjörn Jónsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS GUÐMUIMDSSON frá Odda, Reyðarfirðí, lést á heimili sínu, Miðvangi 11, Egilsstöðum, fimmtudaginn 9. ágúst. Unnur Gunnlaugsdóttir, Þórunn A. Magnúsdóttir, Yngvi G. Magnússon, Helgi Þ. Magnússon, Harpa Jónsdóttir og fjölskyldur. •.« ,t -;* .n*s -iíí .1 ;t .1 * 1 m t * , .... um þar sem Birna starfar sem sjúkraliði. Eiga þau þijú börn, Þór- unni Anette, Torfhildi Ósk og Pál Ríkharð. Sigþór er kvæntur Halldóru Ás- geirsdóttur. Hann hefur verið flug- stjóri hjá CargoLux um árabil og búa þau hjónin í Lúxemborg. Þau eiga einnig þijábörn, Óskar Braga, Ásgeir og Ástu Björk. Þá eru barnabarnabörnin orðin þijú og fæddist hið þriðja fimm dögum áður en Tolla lést. Hún gladdist yfir fæðingu þess einsog hún hafði áður fagnað fæðingu af- komenda sinna, sem voru líf hennar og yndi. Fyrstu búskaparár þeirra Tollu og Öskars í Reykjavík bjó hjá þeim föðursystir Tollu, Þórunn Sæ- mundsdóttir, og ætíð var mann- margt á heimili þeirra. Stundum bjuggu þar ættingjar um lengri eða skemmri tíma. Skólapiltar áttu þar aðsetur og þegar jarðeldur kom upp í Heimaey árið 1973 tóku þau á móti öldruðum foreldrum Tollu ásamt frænkum hennar, mæðgun- um Eygló og Margréti frá Skuld. Hér að framan var þess getið að Tolla hafði unun af söng. Hún hafði ekki verið búsett í Reykjavík lengi þegar hún gekk til liðs við kór kvennadeildar Slysavarnafélags Is- lands og söng með honum um ára- bil. Einnig söng hún með kór Nes- kirkju nokkuð fram á 8. áratuginn. Tolla vann jafnan utan heimilis. Meðal annars starfaði hún í Efna- lauginni Hjálp, Prjónastofunni Ið- unni og á Hótel Sögu vann hún við fatagæslu svo árum skipti. Það sem einkenndi lyndiseinkunn Tollu var skapfesta, trygglyndi og hjálpsemi. Heimili þeirra Tollu og Óskars varð brátt eins konar gisti- hús. Fjölmargir Vestmanneyingar leituðu þangað og ættingjar austan úr sveitum. Jafnan voru þau hjónin reiðubúin að veita aðstoð sína þegar á þurfti að halda. Reyndust þau ávallt vinir í raun og studdu við bakið á ættingjum sínum og vinum, hvort sem þeir leituðu suður til mannfagnaðar eða til lækninga. Guðrún Stefánsdóttir, frænka Tollu og vinkona, gefur henni þann vitnis- burð að hún hafi verið svo sterk að hún hafi alls staðar getið orðið að liði og komið fram til góðs. „Þeg- ar veikindi sóttu að var alltaf hægt að treysta á Tollu og Óskar,“ sagði Guðrún. Tolla var fram úr hófi verklagin kona. Hún heklaði mikið og saum- aði út og féll raunar aldrei verk úr hendi. Hún var sífellt að gefa fólki listrænar hannyrðir sínar eða Ijúf- fengan, íslenskan mat. Ekki mátti gesti bera að garði án þess að þiggja veitingar. Henni sárnaði við menn færu þeir hjá án þess að þiggja vott eða þurrt. Þau hjónin voru samhent í því að búa heimili sitt vel úr garði og var Tolla annál- ' uð fyrir snyrtimennsku. Frænkur hennar og vinkonur gerðu stundum góðlátlegt gys að henni fyrir snyrti- ínennskuna og sögðu sín á milli: „Það er eins gott að hún Tolla sér ekki draslið hjá mér núna.“ En svona var allt sem hún kom nærri. Það varð að vera slétt og fellt og ekki mátti sjást misfella á neinu. Tolla var reyndar sjálf hrein og bein og sagði umbúðalaust það sem henni bjó í bijósti. Hvers vegna skyldi þá vera einhver misfella á útljti heimilisins? ■! 'm m J* ■»4» m a 1* a ?* ■.1 a 5* * m m a ;# ** m m m m # 1 s a u 'm m ar 3 Sá, sem þessa grein ritar, var ekki hár í lofti þegar hann fór að hugsa um gjafmildi Tollu og rausn- arskap þeirra hjóna. Hann hafði reyndar hrifist af heimili þeirra í Akurgerði og þóttist aldrei hafa séð jafn vel búið heimili. Hann fékk því fljótlega á tilfinninguna að þau hjónin hlytu að vera stórefnuð. Ein- hverntíma þegar hann var á 11. ári og þóttist vera farinn að hafa vit á tölum tók hann Tollu frænku sína tali og spurði um laun þeirra hjóna. Eftir það samtal komst hann að því að ríkidæmi skiptir engu þegar gjaf- mildi og hjálpsemi eru annars veg- ar, heldur hugprýði og hjarta- gæska. Þessi uppgötvun festi rætur í barnssálinni og hefur geymst í huga hans síðan. Árið 1985 fluttust þau hjónin í íbúðir aldraðra við Skólabraut á Seltjarnarnesi. Þar varð Tolla brátt hrókur alls fagnaðar og liðsinnti nágrönnum sínum á meðan stætt var. Á Skólabrautinni héldu þau hjónin áfram þeirri reisn sem ein- kennt hafði búskap þeirra í Akur- gerði og hver heimsókn til þeirra varð stórveisla. Börn þeirra, Birna og Sigþór, aðstoðuðu þau dyggilega við flutningana og í hvívetna reynd- ust þau foreldrum sínum miklar hjálparhellur. Árið 1984 kenndi Tolla þess meins sem ágerðist og dró hana að lokum til dauða. Hún gekkst undir nokkra mjög erfiða uppskurði en alltaf stóð hún upp aftur og hélt lífsglöð áfram að njóta þess sem að höndum bar. Þegar veikindi hennar ágerðust fyrir rúmum mán- uði var ákveðið að kalla börn henn- ar hingað til lands. Þau komu bæði og voru við dánarbeð móður sinnar ásamt Óskari. Guðrún Margeirs- dóttir, hjúkrunarkona, studdi Tollu í veikindum hennar og reyndist ijöl- skyldunni einstök hjálparhella í hvívetna. Raunar trúðum við í fjölskyld- unni því að hún næði sér eftir þessi veikindi. Guðrúnu frænku hennar dreymdi hana í nýrri kápu, blárri, en blátt boðar jafnan gæfu í draumi. Ef til vill hefur draumur Guðrúnar boðað lausn hennar frá óbærilegum þrautum veikindanna. Torfhildur var um margt sígild, íslensk alþýðukona. Hún var marg- fróð um fyrri tíð og kunni glögg skil á ætt sinni og uppruna. Hún var reyndar svo ættfróð að væri minnst á einhvern sem hún þekkti lítil eða engin deili á gat hún oftast rakið ættir hans ef’ hún fékk að vita hverra manna hann var. Nú er ævi þessarar góðu konu á enda. Hún kannaðist svo vel við uppruna sinn að hún óskaði þess eindregið að verða jarðsett austur í Þykkvabæ, þar sem foreldrar hennar hvíla ásamt nánum ætt- mennum, og verður utför hennar gerð frá Hábæjarkirkju þar í sveit laugardaginn 11. ágúst kl. 17. Tolla var að vissu leyti foringi ákveðinnar stórljölskyldu sem ættir átti að rekja austur í Rangárvalla- sýslu og efldist með búsetu í Vest- mannaeyjum og víðar. Þessi stór- fjölskylda verður aldrei söm eftir að Tolla er farin héðan. Tilvera ættingjanna verður reyndar aldrei söm eftir brottför hennar. En Guði almáttugum bætist góð bústýra í Himnaríki enda hlýtur hún að taka til hendinni við að taka á móti þeim sem þar ber að garði, Iiðsinna þeim og veita þeim beina. Eiginmanni Torfhildar, börnum og afkomendum þeirra eru fluttar einlægar samúðarkveðjur. Þau hafa misst mikið. Maður hennar, afkom- endur og heimili voru henni allt og þeim vann hún til hinstu stundar. En minningin um hana lifir og arf- ur hennar geymist í óbornum kyn- slóðum. Arnþór Helgason Þriðjudaginn 30. júlí lést á Landa- kotsspítala góð vinkona mín og fjöl- skyldunnar allrar. Hún var búin að fara margoft á sjúkrahús og heyja lángt veikindastríð við krabbamein. Þrátt fyrir veikindin lét hún aldrei bugast og má með sanni segja að hún stóð á meðan stætt var. Mynd- arlegt og þrifalegt heimilið skyldi ekki bera þess vitni að neitt væri AÆmiKii:S4&*• »*'» 13 &s itm s s 3 a * .1 $ a 11 að. Hún fór ekki svo á sjúkrahús að ekki væri eitthvað tekið í gegn áður. Ég á þessari konu margt að þakka, allt frá barnæsku. Ég man fyrst eftir hlýlegu viðmóti hennar, er ég lítið stúlkubarn sóttist eftir að koma á heimili hennar og manns hennar Óskars Friðbjörnssonar. Við bjuggum í sama húsi á Tómasar- haga og heimili þeirra var rólegt og mér fannst gott að komast úr skarkala stóru fjölskyldunnar í ris- inu. Vinskapur okkar Sigþórs, sonar þeirra, varð til að festa samgang okkar enn frekar. Við tókum lífinu með ró og lékum okkur saman þrátt fyrir stríðni leikfélaganna á þann veg að stelpa og strákur ættu ekki að leika sér saman. Þegar þau fluttu burtu, í nýja húsið, Akurgerði á Seltjarnarnesi, héldum við áfram að hittast og fengum þá oft Tótu (Þórunni Sæmundsdóttur) til þess að spila við okkur. Hún var ein af ijölskyldunni, föðursystir Tollu, og átti sinn þátt í þessu notalega heim- ilislífi ijölskyldunnar. Svo komu unglingsárin og þá var maður að keppast við að verða full- orðinn — tíminn leið hratt, og ferð- unum fór fækkandi í Akurgerði. Ég þurfti þó að sýna Tollu minni nýja kærastann, þegar þar að kom, og fór með hann í heimsókn. Það stóð ekki á hreinskilnum viðbrögð- um hennar og minnumst við oft athugasemda hennar um hann. Hún talaði altaf tæpitungulaust og eng- inn þurfti að fara í grafgötur um hvað hún var að meina. Hreinskilni var hennar aðalsmerki, sögð á ein- lægan hátt og særði engan. Þannig mun ég alltaf minnast hennar.' Á fullorðinsárum mínum höfum við hist af og til en þó aldrei eins oft og ég hefði óskað. Hraði nú- tímans gerir ekki ráð fyrir að fólk heimsæki hvert annað. Þó fannst mér alltaf tilheyra að Tolla og Óskac tækju þátt í sem flestum ijölskyldu- hátíðum okkar. Það er undarlegt að leiða hugann að því að aldrei fann ég fyrir því að einhver aldursmunur væri á okk- ur þegar við ræddum saman þó hann væri rúm 30 ár. Svo full af lífi var hún vinkona mín, létt í lund og spaugsöm. í heimsóknum mínum til hennar á sjúkrahúsið gat hún fengið mig til að gleyrfta að hún væri veik, með léttu spjalli og gam- anyrðum. Hún þekkti urmul af fólki og lét sér annt um alla og mátti ekkert aumt sjá. Hún var alltaf að greiða götu annarra með ýmsu móti. Hún hafði gott minni og skemmtilega frásagnargáfu og auðvelt var að gleyma tímanum með henni. Ég mun ávallt minnast hennar sem góðrar og heilsteyptrar manneskju. Ég vil þakka henni samfylgdina. Ég og fjölskylda mín vottum að- standendum hennar innilega sam- úð. Eva Örnólfsdóttir Tengdamóðir mín er dáin. Sú stund er upprunnin er ég hélt í óra- fjarska. Svó lifandi lífsglöð og svo stórt hlutverk fór hún með í okkar lífi, að við héldum hana eilífa. Sá tími er við áttum saman Tolla, Óskar og fjölskyldan í Lúxemborg um síðustu jól og áramót lifir sterkt í minningu okkar. Tolla var alltaf tilbúin að ferðast eða flakka eins og hún kallaði það jafnan sjálf og fannst ekkert mikið um þó hún skryppi til Austurlanda fjær eða Afríku með syni sínum. í haust var ferðinni heitið til Flórida í heimsókn til dóttur og íjölskyldu hennar, nýtt barnabarnabarn hafði bæst í fjöl- skylduna, og var hún búin að búa til gjöfina handa því. Gjafmildi Tollu var hennar einkenni hvort sem var handa íjölskyldunni, vinum eða ókunnugum, hún var alltaf gefandi. Ferðina til Flórída fer hún örugg- lega þó ferðalagið verði farið á annan hátt en upphaflega var áætl- að. Ferðalaginu á þessari jörð er lok- ið og vil ég þakka henni samfylgd- ina, sem var alltof stutt, en þess betri og ógleymanleg. • Tengdaföður mínum bið ég Guðs- blessunar. Tengdadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.