Morgunblaðið - 11.08.1990, Page 25

Morgunblaðið - 11.08.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 11. ÁGÚST 1990 25 Jón Fnðriksson á Hömrum — Minning Fæddur 25. nóvember 1898 Dáinn 30. júlí 1990 Það eru sextán ár liðin frá því að ég hitti Jón bónda Friðriksson á Hömrum í Reykjavík í fyrsta sinn. Það var að vori austur á Fáskrúðs- firði og hann var þá 75 ára. Það sem einkum vakti athygli mína var kímni- gáfa hans og frásagnarlist. Eg hafði ekki komið í Þingeyjarsýslur og hann tók að sér að leiða mig í allan sanleik- ann um þetta merkilega byggðarlag. Aldrei hafði ég heyrt sagt frá jafn fríðu landi og gjöfulu fyrir menn og sauðkindur. Og aldrei heyrt getið um jafn frækna íþróttagarpa, mikla söngmenn, leikara og hagyrðinga er byggðu þetta iand. Né heldur hlust- anda með annarri eins andakt á ná- kvæmar lýsingar á byggingu glæsi- legra skólahúsa, sláturhúsa og vega og ég gerði þennan dag. En hugsaði reyndar: Hvílíkur sögumaður. Sá kann aldeilis að hagræða sannleikan- um öðrum til skemmtunar. Það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar að ég fiuttist sjálf í Þing- eyjarsýslur og kynntist Jóni. betur og þingeyskum veruleika að ég skildi að hann hafði ekki verið að skemmta mér, heldur dregið upp aldeilis sanna mynd af lífinu þar. Ekki svo að skilja að ég upplifði veruleikann eins og hann hafði lýst honum heldur hitt, að í hans augum var lífið aldrei hversdagslegt og hann horfði á dal- inn sinn, héraðið, heiminn allan og mennina með — af sjaldgæfum kær- leika sem gerði flest einhvers virði, stækkaði það og fegraði. - Eins og áður segir kynntist ég Jóni þegar allnokkuð var liðið á ævi hana,. Að baki var æska hans í Reykjadalnum, en þar fæddist hann 25. nóvember árið 1898, þegar þin- geysk bændamenning stóð í hvað mestum blóma; að baki þroska og menntunarárin í Bændaskólanum á Hvanneyri og íþróttakennaraskólan- um í Ollerup á Sjálandi; að baki brautryðjendastarfi hans á kotbýlinu Hömrum í Reykjadal sem hann af bjartsýni og elju gerði að stórbýli; að baki hamingjurík búskaparár hans með Friðriku Sigfúsdóttur frá Hall- dórsstöðum og uppeldi-barna þeirra sex, þeirra Sigrúnar, Jóns Aðal- steins, Sigríðar, Valgerðar, Unnar og Þórdísar. Og að baki þau ár er hann reið um héiuð á rauðum gæð- ingi og hélt uppi söng og gleði. En enn átti Jón Friðriksson mikið að gefa og miðla. Áhugi hans á stjórn- málum, íþróttum og landbúnaðar- málum var óslökkvandi fram til síðasta dags. Og aldrei glataði hann hæfileikanum að hrífa mann á vit frásagnar, lyfta áheyrandanum upp úr gráum hversdagsleikanum og fylla hann trú á lífið og landið. Minni hans var ótrúlegt og hann var sjóður af sögum og söngvum. Mikilvægast fyrir okkur vini hans var þó sá kær- leikur sem áður er nefndur og ein- hvern veginn fékk allt til að lifna og hlæja í návist hans. Fyrir það vil égþakka Jóni áþessari kveðjustund. Tilviljun réð því, að þegar ég ýfir- gaf heimabyggð mína og mikinn ættmannaskara til að setjast að á fjarlægum slóðum, þá bjó hvar sem ég kom, I næsta húsi við mig, ein- hver dóttir Jóns, eða dótturdóttir. Og þar hef ég alla jafna geta leitað þess skjóls og fundið þá gleði er ættmenni manns einatt ein gefa. Þessa gæfu hefur mér ætíð fundist ég geta rakið aftur til Jóns Friðriks- sonar. Fyrir það vil ég einnig þakka. Og nú þegar sá maður kveður sem ég veit að hefur hvað best lifað, óska ég þess, að hans trú sé rétt: að ein- hvers staðar í eilífðinni bíði hans á hlaði reisulegs býlis allir ástvinir hans sem hann hefur svo lengi treg- að. Og þangað stefni hann nú á mjúku tölti á sínum rauða gæðingi. Þar veit ég að í kvöld verður mikið sungið, hlegið og kysst. María Kristjánsdóttir Þegar ég kvaddi hann afa minn fyrir mánuði síðan fann ég að það gæti allt eins orðið í síðasta sinn. Valgerður Guðmunds dóttir, Hvammi Fædd 2. mai 1906 Dáin 6. ágúst 1990 „Ekkert líf án dauða, enginn.dauði án lífs“ Með fráfalli Valgerðar Guðmunds- dóttur, bónda, Hvammi í Kjós, hverf- ur af sjónarsviðinu verðugur fulltrúi hinnar svonefndu aldamótakynslóð- ar, og Valgerður lét ekki sitt eftir liggja í baráttu fyrir þeim framförum sem orðið hafa frá aldamótum. Ferðamönnum sem um Hvalfjörð fara er augnayndi að líta heim að Hvammi, einkum á góðviðrisdögum, það er eins og bærinn dormi þarna umflotinn sjó og fjöllin spegla sig í haffletinum. Þarna bjó Valgerður lengst af ævi sinnar og var svo ná- tengd staðnum að þeir sem til þekkja gátu vart hugsað sér Hvamm án Valgerðar eða Valgerði án Hvamms. Dugnaður Valgerðar var mikill og hún lét ekki deigan síga þó á móti blési, sem dæmi má nefna að þegar Bretar hertóku land hennar á stríðsárunum og reistu þar mikil hernaðarmannvirki lét hún ekki breska heimsveldið breyta þeirra ætlan sinni að búa á jörðinni. Þegar styijöld lauk og braggar ásamt öðru sem herinn hafði komið fyrir þarna var fjarlægt hóf Valgerð- ur búskap af krafti. Ein var sú bygg- ing er herinn byggði sem eftir stóð og var það radarstöð hersins á toppi bæjarhólsins en þar er víðsýni mikið til allra átta. Árið 1963 keyptum við hjónin af Valgerði það sem eftir stóð af þess- ari radarstöð og var það upphaf vin- skap okkar og bama okkar við Val- gerði og náin kynni allt fram á andl- átsdag hennar, því að hún dvaldi einmitt hjá okkur á Hólnum síðdeig- is þann 5. ágúst. Það kom okkur því nokkuð á óvart morguninn eftir að heyra um andlát hennar þá um nótt- ina. Valgerður lét sér ekki nægja sinn hefðbundna búskap auk æðarvarps, hún var einnig ljósmóðir í sinni sveit og hjálparhella á'!mörgum sviðum. Þó Valgerði yrði ekki sjálfri barna auðið átti hún einn kjörson og auk þess tvö fósturbörn, einnig tók hún í mörg ár börn til sumardvalar, þar á meðai syni okkar. Valgerður hafði gott lag á börnum og mörg þeirra sem hjá henni dvöldu héldu vinfengi við hana alla tíð síðan. Valgerður ólst upp í stórum hópi systkina, þessi systkinahópur er gjarnan kenndur við Miðdal, sam- gangur og gagnkvæm hjálpsemi er þessum hópi eðlislægur og nábýli við Miðdal og Eileifsdal kom sér vel þeg- ar heilsu Valgerðar hrakaði. Hrakandi heilsu tók Valgerður með æðruleysi og hún naut sérstakr- ar umönnunar skyldmenna og venslafólks, í því sambandi vil ég sérstaklega minnast á Erlu fóstur- dóttir hennar og mann hennar. Kynni og samskipti okkar hjóna við Valgerði voru allnáin og breyttist fljótt í gagnkvæma vináttu, það var ávallt sjálfsagt að heilsa upp á Völu þegar við vorum á ferð og nú síðast um verslunarmannhelgina. Hún sat í stól sínum við suðurgluggann og horfði til ijalls og á eril dagsins fyr- ir utan, veiðimenn að dorga í lóninu, menn á hestum, golfleikara og fólk í tjaldbúðum en Laxalón keypti Hvamminn fyrir nokkrum ánim og rekur þar margháttaða starfsemi. Það var svo umsamið að svo lengi Valgerður lifði og vildi dveldi hún áfram í Hvammi, enda undi hún sér best þar og þar var hugur hennar allur og víst er að þar vildi hún lifa og deyja. Það er því vel að sú ósk hennar rættist, en hún lagðist til svefns í rúmi sínu aðfaranótt .6. ágúst við suðurgluggann og vaknaði ekki aftur til þessa lífs. Um leið og við hjónin þökkum henni góð og löng kynni óskum við henni velfarnaðar og guðsblessunar á þeim leiðum sem hún gengur nú. Öllum aðstandendum sendum við samúðarkveðjur. Unnur og Bergsteinn t Móðir okkar og fósturmóðir, ALDÍS HUGBJÖRT KRISTJÁNSDÓTTIR, Bergþórugötu 16a, lést í Landspítalanum 9. ágúst. Þórdis Kareisdóttir, Matthías Karelsson, Aldís Matthíasdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN HALLDÓR ÞORSTEINSSON fulltrúi, Hólabraut 5, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkrikju, mánudaginn 13. ágúst kl. 13.30. Kristfn Sigurbjörnsdóttir, Sigrún Þorsteinsdóttir, Viggó Þorsteinsson, Hjördís Þorsteinsdóttir, Sigurbjörn Þorsteinsson, Þorsteinn Þorsteinsson, og barnabörn. Sigurður Halldórsson, Margrét Bjarnadóttir, Gísli Sigurgeirsson, Margrét Hafsteinsdóttir Sú kveðja þýddi að stór hluti af lífi mínu var horfinn. Frá því að ég man eftir mér hefur afi verið einn af föstu punktunum í tilverunni. Óumbreyt- anlegur eins og lífið sjá'.ft. Hann virt- ist ekkert eldast þótt líkaminn hörn- aði. Hugurinn var síungur og hann fylgdist vel með öllu sem var að gerast. Enda fyrirleit hann ellina. Dáði æsku, hreysti og karlmennsku, íþróttamennsku bæði líkama og sál- ar. Allt framundir það síðasta var hann fastagestur á öllum íþróttavið- burðum og hvatti afkomendur sína til dáða. Roluskapur og linka voru eitur í hans beinum og sennilega er „vertu hörð“ sú setning sem ég minn- ist oftast af hans vörum í uppvextin- um. Það veganesti sem hann lagði mér til í lífsbaráttuna var að standa sig og láta hvörki meðlæti né mót- læti bijóta sig niður. Halda sínu striki og reyna að raða tilverunni þannig saman að hún yrði ánægjuleg sjálfum rnanni og öðrum. Lífið er það sem maður sjálfur gerir úr því. Það var hans lífsspeki. Þess vegna er hann afi ekki dáinn fyrir mér. Hann lifir áfram í minningunni og I öllu því sem hann kenndi mér. Lífssaga Jóns Friðrikssonar er mér ekki kunn í smáatriðum, en stærstu punktana þekki ég þó. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum, Friðrik Jóns- syni landpósti og Guðrúnu Þorgríms- dóttur á Helgastöðum í Reykjadal. Systkinahópurinn var stór og þar réðu gleðin og íþróttamennskan ríkjum. Ungur stundaði hann nám við bændaskólann á Hvanneyri og við íþróttaskóla í Hollerup í Dan- mörku. Hann kvæntist Friðriku Sigf- úsdóttur þann tuttugasta og fjórða júní 1923 og þau hófu búskap í föður- garði hennar, Halldórsstöðum í Reykjadal. Seinna fluttu þau að Hömrum í sömu sveit þar sem þau í sameiningu byggðu upp sitt bú. Þau eignuðust sex börn: Sigrúnu, sem nú er nýlátin, Jón Aðalstein, Sigríði, Valgerði, Unni og Þórdísi, sem lést 1971. Barnabörnin eru tuttugu og þijú og barnabarnabörnin fjölmörg auk nokkurra barnabarnabarna- bama. Allur þessi skari var alltaf vélkominn að Hömrum og oft líf í tuskunum þegar hamast var í fót- bolta eða fijálsíþróttum heilu dag- ana, afa til óblandinnar ánægju. Hann vildi hafa ungt líf í kringum sig og taldi ekki eftir sér að hafa okkur systkinin með sér við verkin, þótt eflaust höfum við til að byija méð frekar verið til trafala en gagns. Honum þótti gaman að syngja og mér er í fersku minni rnargt vetrar- kvöldið er við gengum í rólegheitum á eftir ánum niðpr heiðina og sungum „Svífur að haustið" eða „Nú blika -*l. við sólarleg", milli þess sem afi fræddi okkur á einhveiju í sambandi við lífið og búskapinn. Gleðin var ríkjandi tilfínning á þessum ánim og þannig vildi afi líka hafa það. Hann bar höfuðið hátt og horfi frekar til þess bjarta en hins dökka. Árið 1971 rnissti hann bæði Friðriku ömmu og yngstu dóttur sína, Þórdísi. Það varð honum erfið raun. Ammii hafði verið honurn sönn stoð í öllum þeirra bú- skap og yngsta barnið er oft auga- steinninn. Eftir þetta dró hann sig að mestu út úr búskapnum, enda farinn að lýjast, en aldrei missti hann þó áhugann á lífinu. Ekkert var hon- um óviðkomandi og hann fylgdist með hringekju lífsins fram á síðasta dag. Hann varð fyrir þungu áfalli nú v í sumar er Sigrún dóttir hans lést, en bar sig karlmannlega að vanda. Og nú er hann farinn á vit ástkærr- ar eiginkonu og dætra. Við sem sitj- •um eftir minnumst hans með þakk- læti og gleði og óskum honum góðr- ar ferðar. Friðrika Benónýs + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför FRIÐRIKKU GUÐMUNDSDÓTTUR. Færum starfsfólki á deild 11-A, Landspítalanum, alúðarþakkir fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Haukur Einarsson frá Miðdal. Hafsteinn Austmann, Guðrún Þ. Stephensen. Rúnar Hauksson, Brynja Guttormsdóttir, Erla Hauksdóttir, Kjell Gustavsson, Aðalheiður Ólaf sdóttir. + Innilegt þakklæti til allra, er sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, mágs, sambýlismanns og frænda, JÓNS JÓNSSONAR frá Þjórsárholti. Sérstakar þakkir fyrir góða hjúkrun á Landspítalanum. Halldóra Jónsdóttir, Haukur Kristófersson, Elísabet Jónsdóttir, Guðmundur Árnason, Bergþóra Jónsdóttir og systrabörn. + Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför sonar míns, föður okkar og bróður, ÞORFINNS VILHJÁLMS KARLSSONAR. Sigríður Margrét Vilhjálmsdóttir, Ingvi Páll Þorfinnsson, Sigríður Margrét Þorfinnsdóttir, Aron Njáll Þorfinnsson, Kristinn Máni Þorfinnsson, Gunnlaugur Karlsson. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, RAGNARSÓLASONAR fyrrverandi verksmiðjustjóra, Byggðavegi 89, Akureyri. Sérstakar þakkir sendum við Sambandi íslenskra samvinnufélaga. Ragnheiður Valdemarsdóttir, Valdemar Ragnarsson, Ásgerður Ragnarsdóttir, Óli Þór Ragnarsson, Árni Ragnarsson, Guörún Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Sirkka Ragnarsson, Gunnar Eydal, Ingibjörg Marinósdóttir, Edda Ásrún Guðmundsdóttir, Valdimar Einisson,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.