Morgunblaðið - 10.10.1990, Síða 4

Morgunblaðið - 10.10.1990, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990 Starfsmenn Reykjavíkurborgar, sem unnið hafa við að stækka bflastæði á mótum Skólastígs og Amt- mannsstígs, komu sl. mánudag niður á brunn er kenndur hefur verið við Einar nokkum Jónsson snikkara sem hlóð branninn árið 1882. Brunnurinn, sem var í notkun til ársins 1930, er að sögn Mar- grétar Hallgrímsdóttur, borgarminjavarðar, afar reglulega hlaðinn. Margrét sagði að Skipulagsnefnd hefði á fundi sínum á mánudag tekið jákvætt í að varðveita branninn þar sem hann fannst. Á mynd- inni, sem tekin er í gær, er Margrét við branninn. Komið niður á Einarsbrunn Morgun biaöið/kmma VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG 10 OKTÓBER wirei/viii iv/ni víi f i/nvijf YFIRLIT í GÆR: Austur við Lófót er 158 mb lægð á hreyfíngu noroaustur en Tra nenm nggur lægoarar vestur á Græntandshaf. Á vestanverðt j Græniandshafi er dálítil SPÁ: Norðaustlæg átt um mestallt lan kaldi, en austlægari á morgun. í kvöid dálítii rigning sunnanlands en snjókom, lands. A morgun má búast við rignins lands og suðvestanlands fer líklega að daginn. dið í nótt, víðast gola eða og fram eftir nóttu verður i eða slydda víða norðan- u öðru hverju suðaustan- rigna aftur þegar líður á VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAQ: Norðaustanstrekkingur og él á Vestfjörð- um, en fremur haag austlæg átt og skúrir eða slydcJuél t öðrum Iand8hlutum. Fremur svalt og víða næturfrost inn tli landsins. HORFUR Á FÖSTUDAG. Noröaustan strekkingur og kólnandi veö- ur um ailt land. éljagangur um norðanvert landið, en þurrt og vfða bjart veður. TÁKN: Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörín sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / y* / * / * / * Slydda / * / * # * * * * * Snjókoma * * * 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld CO Mistur —[* Skafrenningur ["<[ Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM Akureyri hW veður t slydduél Bergen 11 skúrésið.klst Helsinki 9 rigning Kaupmannahöfn 11 rigning Narssarssuaq 4-1 _ skýjað Nuuk +1 úrkomaígrennd Ostó 14 skýjað Stokkhölmur 11 alskýjað Þörshöfn 13 skúrásfð.klst. Algarve 21 helðskírt Amsterdam 13 skýjað Bareelona 17 skýjað Berlfn 13 skýjað Chlcago 11 rlgnlng Feneyjar 17 helðskfrt frankfurt 12 skýjað Glasgow 12 rigning og súld Hamborg 12 tóttskýjað UsPaimas 26 skýjað London 14 Skýjað Los Angeies 31 heiðskírt Lúxemborg 10 skýjað Madríd 18 helðakírt Malaga 22 téttakýjað Mallorca 22 skýjað Montreal 9 súld NewYork 27 skýjað Orlando vantar Parfs 14 hálfskýjað Róm 26 skýjað Vfn 11 skýjað Washington 28 léttskýjað Wfnnipeg +1 tóttskýjað „Svarti listinn“: Lögregluvörður viö Reiknistofuna vegna spr engj uhótunar LÖGREGLAN í Hafnarfirði vaktaði dyr Reíknistofunnar hf. í Hafnar- firði vegna sprengjuhótunar sem starfsmönnum hafði borist. Reiknistof- unni hefur verið lokað tekið verður á móti fyrirspurnum símleiðis. Fjölmargir hafa haft samband við Tölvunefnd vegna svonefnds „svarts lista“, þ.e. upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga, sem Reiknistofan hf. safnar og gefur út í sérstöku upplýsingariti, að sögn Jóns Thors lyá Tölvunefnd. Nefndin, sem dómsmálaráðherra skipar, kemur saman til fundar á fimmtudag en ekki er ljóst hvort þar verður fjallað um starfsleyfi Reikni- stofunnar hf. Reiknistofan hf. hefur samkvæmt lögum um skráningu og meðferð persónuupplýsinga heimild til að safna og skrá eftirfarandi upplýsing- ar og gefa þær út í upplýsingariti en jafnframt eru þær færðar í upplýs- ingaskrár Reiknistofu bankanna sem miðlar þeim til banka og sparisjóða. • Upplýsingar um uppkveðna dóma í skriflega fluttum málum, það er dóma í þeim málum, þar sem stefndi hefur ekki mætt við þingfestingu máls eða þingsókn hefur síðar fallið niður af hans hálfu. • Upplýsingar um áritanir í áskor- unarmálum. Þar er um að ræða fjárkröfur samkvæmt víxlum, tékk- um, skuldabréfum og öðrum einhliða óskilyrtum skuldaviðurkenningum, svo og mál til heimtu peningaskulda, sem stafa af lausafjárkaupum. Enn- fremur fjárkröfur þegar um er að ræða endurgjald fyrir veru, viður- gerning, flutning á mönnum eða munum, tryggingar, auglýsingar og leigu lausafjár. • Upplýsingar um nauðungarupp- boð sem auglýst eru í dagblöðum og landsmálablöðum. • Upplýsirigar um töku búa til gjaldþrotaskipta og skiptalok sem auglýst eru í Lögbirtingarblaðinu. • Upplýsingar um árangurslaus fjárnám hjá Borgarfógetaembættinu í Reykjavík. Að sögn Gylfa Sveinssonar, fram- kvæmdastjóra Reiknistofunnar, voru um 15.300 einstaklingum send bréf þar sem þeim var tilkynnt að þeir væru á fyrrgreindum lista. Hann sagðist enga skýringu hafa á heiftar- legum viðbrögðum fólks en benti á að slíkur listi hefði verið gefínn út tvisvar á ári undanfarin ár án viðlíkr- ar reiðiöldu. Hann sagði að ákveðið hefði verið að loka skrifstofunni fyr- ir almenningi vegna mikils álags á starfsmennina. Tekið væri á móti fyrirspurnum á milíi kl. 9-12 og 13-16 daglega og fyrirspurnirnar afgreiddar bréfleiðis. Tölvunefnd kemur saman næst- komandi fimmtudag en hana skipa Þorgeir Örlygsson formaður, sem er í starfsleyfi í vetur, en í hans stað gegnir Jón Ólafsson hæstaréttarlög- maður formennsku. Aðrir nefndar- menn eru Bjarni K. Bjamason hæsta- réttardómari, Bjarni P. Jónasson til- nefndur af Skýrslutæknifélagi ís- lands, Hilmar Þór Hafsteinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir sakadóm- ari, sem situr í nefndinni í stað Þor- geirs. Morgunblaðið/Þorkell Lögreglan í Hafnarfirði vaktaði skrifstofu Reiknistofunnar hf. eftir sprengjuhótun. Tvö slys á sömu gatnamót- um með sama aðdraganda TVEIR menn slösuðust í hörðum árekstri á mótum Bústaðavegar og Suðurhlíðar laust eftir hádegi í gær. Annar var fluttur í sjúkrabíl á sjúkrahús, hinn meiddist minna. Kalla þurfti til tækjabíl slökkviliðs að losa hinn slasaða úr bílflakinu. Að sögn lögreglu voru mcnnirnir í bíl sem var í líkfylgd á leið að Fossvogskirkju. Þetta er annað umferðar- slysið sem verður með þeim hætti á þessum gatnamótum í sumar; eft- ir hið fyrra beið 79 ára gamall maður bana af völdum áverka sem hann hlaut. Bæði urðu slysin með þeim hætti að líkfylgdir vora á leið vestur Bú- staðaveg og beygt til vinstri móts við Veðurstofuna, í átt að Fossvogs- kapellu við Suðurhlíð. Umferðarljós eru á gatnamótunum en þó ekki sér- stakt Ijós fyrir þá sem taka vinstrí beygju. Bílarnir í líkfylgdinni hafa því fylgt líkbílnum eftir og hefur ökumönnum á leið austur Bústaða- veg ekki tekist að hemla í tæka tíð til að koma í veg fyrir árekstur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.