Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 16

Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990 Sjónvarpstœki Sjónvarps- myndavélar Hljómtœkja- samstœður Ferðaviðtœki Útvarpsvekjarar Gœðatœki fyrir þig og þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 Brenglun verdbólg'u og hugarfars Svar til Gunnars Tómassonar eftirBjarna Braga Jónsson Gera þarf fleira en gott þykir, einnig að svara Gunnari Tómas- syni, þá hann afflytur ærlega unnin verk hérlendra hagfræðinga. Ella teldu menn, að fallist væri á skoðan- ir hans. í greininni „Fjórar ábend- ingar til Þjóðhagsstofnunar" í Mbl. 4. október les hann okkur Þórði Friðjónssyni pistilinn, þó með þeim eina árangri að afhjúpa vanþekk- ingu síná og skilningsskort. Grein hans er í fjórum töluliðum. Tökum þá hvem fyrir sig. Um 1. lið. Gunnar segir ekki rétt að nota eigi raunvexti við mat á vaxtakostnaði og skýrir það þann- ig: „Hlutfall nafnvaxta af lands- framleiðslu á verðlagi hvers árs er nákvæmlega hið sama og hlutfall raunvaxta af landsframleiðslu á föstu verði.“ Hér gín við afgrunn skilnings- leysis. Taktu nú vel eftir Gunnar. Efnahagsfyrirbærin greinast . í stofna á tímapunkti (eignir, birgir) og strauma yfír tímabil (fram- leiðslu, tekjur). Stundum er endur- mat stofns (verðbætur) í dulargervi og blandi við straum (raunvexti). Utreikningur raunvaxta er gerður til þess að hreinsa út endurmats- þátt óbreyttrar rauneignar svo að niðurstaðan, raunvextimir, séu sama eðlis og aðrir straumar í hag- kerfinu. Til þessa er notuð verð- breyting milli áramóta, en ekki leit- að út yfir árið til grunnárs. Raun- vextir em því á verðlagi ársins, ekki „föstu verðlagi" annars grann- árs, svo sem landsframleiðsla o.fl. Misskilningur Gunnars felst í því, að hann lætur sem nafnvextir séu einvíð stærð, nafnvirði raun- vaxtaflæðisins á verðlagi ársins. Svo er alls ekki, svo sem ég hef skýrt, heldur er stofngildi vísi- tölunnar dregið inn í útreikninginn. Þannig geta raunvextir orðið nei- kvæðir, þ.e. stofninn rýmar. Væri fróðlegt að sjá Gunnar skýra, hvemig hlutfall jákvæðrar stærðar helst óbreytt þótt hún verði nei- kvæð. Raunvexti á verðlagi hvers árs má vitaskuld færa til fasts verð- lags, en í því tilviki helst það hlut- fallssamræmi, sem Gunnar hefur í huga. Um 2. lið. Það er hárrétt hjá Þórði Friðjónssyni, að launa- og þjóðartekjur era hvorar tveggja reiknaðar sem einvíðar straum- stærðir, svo að ekkert annað raskar hlutfalli þeirra. Raunvextir fylla í bilið þeirra á milli, og á kostnað annarra liða en launa. Það bjargar ekki málstað Gunnars, þótt vaxta- berandi aðilar séu fleiri en atvinnu- reksturinn. Raunar meðhöndla þjóðhagsreikningar húsnæðisrekst- urinn sem ígildi atvinnurekstrar og mikill hluti opinberra skulda er til orðinn vegna rekstrarkerfa, svo að hér ber ekki mikið á milli. Um 3. lið. Þjóðhagsstofnun hefur sem réttasta mynd af efnahagsþró- uninni að leiðarljósi, enda þótt sú mynd geti ekki orðið svo tæmandi sem vera skyldi, meðan ekki er fþam komin fullnægjandi meðferð vaxta og hagnaðar. Milli stofnunarinnar og hagfræðideildar Seðlabankans er fullur skilningur á því, að hag- fræðideild beri að bijóta ísinn varð- andi meðferð vaxta á grundvelli skýrsluefnis síns, enda þótt Þjóð- hagsstofnun ákveði, hvort og hve- nær sú mynd komi fram í formleg- um þjóðreikningum. Það er fijálslega tekið til orða, að alþjóðlegir þjóðhagsreiknings- staðlar. séu endurskoðaðir þegar þurfa þykir. Fyrsti staðallinn kom út 1953 og meiri háttar endurskoð- un 1968. Þá þegar var reifað í for- mála fjölmargt, sem betur mátti fara, en ekki vora tök á að útfæra og samræma, enda riáði sumt í þeim staðli ekki því stigi, sem við náðum í framgerð þjóðhagsreikn- inga íslands í kringum 1960. Nú loks er unnið að endurskoðun stað- alsins með stefnu á 1993, þ.e. eftir 25 ár. í millitíðinni hafa komið fram faglegar tilraunir fræðimanna til verðbólguleiðréttinga í svipuðum dúr og við höfum gert, bæði á þjóð- legum og samþjóðlegum vettvangi. Merkasta dæmi þessa er útgáfa vinnuhóps á vegum Efnahags- Bjarni Bragi Jónsson „Verður að telja, að tíðrædd „þjóðarsátt“ feli það ekki síst í sér, að launþegasamtökin hafi viðurkennt tekju- hlutdeild raunvaxta við hlið launa og að þessir þættir til samans megi ekki þrengja um of að rekstrarafkomunni.“ bandalagsins á ritgerðum um verð- bólgubrenglun þjóðhagsreikninga í stærstu Evrópulöndunum (Monet- ary Assets and Inflation-Induced Distortions of the National Ac- counts). Ritgerðimar birtust í tveimur bindum sem fylgirit Journ- al of Money, Credit and Banking 1985. Hæð verðbólgu í hveiju landi Nýja bensínafgreiðslustöðin Morgunbiaðið/Aibert Fáskrúðsfjörður: Nýbensínaf- greiðsla opnuð Lífskjör á ís- landi árið 1990 Fáskrúðsfirði. NÝ bensínafgreiðslustöð hefur verið tekin í notkun á Fáskrúðs- firði. Eignaraðilar að stöðinni eru olíufélögin þrjú, en Olíufé- lagið Skeljungur er rekstraraðili að stöðinni. Húsið er 109 fermetrar á einni hæð og í því er góð aðstaða fyrir ferðamenn til að setjast niður og fá sér hressingu. Á boðstólum era allar almennar ferðavörar og gert er ráð fyrir að hægt verði að fá sér heita smárétti, kaffí og ís úr vél. Frágangur utanhúss er allur til fyrirmyndar, góð aðstaða á bíla- stæðum og rúmgott þvottaplan. Stöðin var boðin út í vor og bárast nokkur tilboð en verkið hlaut Sævar Sigurðsson, trésmíðameistari á Fá- skrúðsfírði, og sá hann um alla byggingu stöðvarinnar en starfs- menn Skeljungs gengu frá innrétt- ingum. Allmargir sóttu um að fá að reka stöðina en fyrir valinu varð Stefán Jónsson á Fáskrúðsfirði. Albert eftirÁsgeir Valdimarsson . Hinn þriðja október síðastliðinn kom út bók sem_ nefnist „Lífskjör og lífshættir á íslandi", gefin út af Félagsvísindastofnun Háskóla íslands og Hagstofu íslands. Bókin er merk heimild um lífskjör hér á landi vorið 1988 þegar könnunin sem hún byggir á var gerð. Meðal annars er fullyrt í fréttum um út- gáfu bókarinnar að skattar séu lægri hér á landi en á hinum Norð- urlöndunum, en jafnframt getið þess að tekjur séu einnig lægri þannig að ráðstöfunartekjur al- mennra launþega séu svipaðar. Þetta kann að hafa verið rétt vorið 1988 en síðan þá hafa beinir skatt- ar á launþega verið auknir stórlega og launatekjur hafa minnkað vegna samdráttar í atvinnu. Afleiðing þessa er að ráðstöfunartekjur ís- lendinga eru nú — haustið 1990 — miklu minni en þær vora vorið 1988. í Staksteinum Morgunblaðsins þann 5. október er vakin athygli á stórhækkun beinna skatta á síðustu tveimur áram. Það er tímabært að vekja máls á þessu því fáir virðast hafa tekið eftir hversu mikið skatt- byrði meðaltekjufólks jókst með hækkun jaðarskatts úr 35,8% í 39,8%. Þetta er aðeins 4% hækkun segja ef til vill einhveijir. Það er rétt ef miðað er við heildartekjur. En í raun er þama um að ræða 11% hækkun jaðarskatts og hún leiðir til 20-40% hækkunar á skattbyrði þeirra sem hafa laun á bilinu 60-140 þúsund krónur á mánuði þegar tek- ið hefur verið tillit til persónuaf- sláttar. Ráðstöfuriartekjur al- mennra launþega hafa því lækkað síðastliðin tvö ár um mun meira en nemur samdrætti í atvinnu. En tökum dæmi sem er reiknað á meðalverðlagi ársins 1990. Árið „Sú ráðstöfun að hafa aðeins eitt skattþrep í staðgreiðslukerfinu hefur aukið verulega skattbyrði fólks með meðaltekjur. Væri jað- artekjuskattur hafður stighækkandi, til dæmis 20,30 og 40% svipað og var fyrir 1988 yrði skattbyrði meðaltekju- fólks mun sanngjarn- 1988 hafði Iaunþegi 100 þúsund krónur í tekjur á mánuði og hefur sömu laun árið 1990. Hann greiddi 15 þúsund á mánuði í skatta árið 1988 og hélt eftir 85 þúsund krón- um. Árið 1990 era skattar hans 19 þúsund krónur á mánuði og hann heldur eftir 81 þúsundi króna. Skattbyrði hans hefur aukist um 27% og ráðstöfunartekjur lækkað um tæp 5%. Ef atvinnutekjur hefðu minnkað í 90 þúsund milli 1988 og 1990 hefðu ráðstöfunartekjur hans lækkað meira heldur en atvinnu- tekjumar vegna meiri skattheimtu, en ættu vitanlega að lækka minna ef skattheimta væri sanngjöm og eðlileg. Hér hefur verið fjallað um hækk- un skattbyrðar á tekjur milli áranna 1988 og 1990. En hækkun skatt- byrðarinnar milli áranna 1987 og 1990 er enn óhagstæðari launþeg- um með meðaltekjur. Skattbyrði fólks með tekjur á bilinu 70-150 þúsund krónur í mánaðarlaun (á verðlagi 1990) hefur aukist um 39-46% á þessum þremur árum. Sú ráðstöfun að hafa aðeins eitt Hjartans þakkir til ykkar allra, sem meö heim- sóknum, gjöfum, blómum og kveðjum. glöddu mig á 70 ára afmœlinu mínu 21. september. Magnús Sveinjónsson, Reykjavíkurvegi 20. Þakka innilega öllum þeim, sem sýndu mér vinarhug meÖ kveðjum, gjöfum, blómum og samfagnaði á sjötugsafmceli mínu, 27. septem- ber síÖastliÖinn. LifiÖ heil. Sigurður Sörensson, Stykkishólmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.