Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990
Niðurskurður fjárlagahallans
í Bandaríkjunum:
Rekstur ríkissjóðs
tryggður í tíu daga
Þingnefndum falið að ákvarða skatta-
hækkanir og sparnað í ríkiskerfinu
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti undirritaði í gær bráðabirgðafjár-
Iög sem tryggja munu rekstur ríkissjóðs fram til 19. þessa
mánaðar. Fyrr um daginn hafði öldungadeild Bandaríkjaþings sam-
þykkt frumvarp sem miðar að því að skera fjárlagahallann í Banda-
ríkjunum niður um 500 milljarða Bandaríkjadala á næstu árum.
Bush sagði í yfirlýsingu sem birt
var eftir að hann hafði staðfest lög-
in að nú væri það undir þingmönn-
um komið að ákvarða nánar skatta-
hækkanir og niðurskurð ríkisút-
gjalda til að unnt yrðj að vinna bug
á fjárlagahallanum á næstu fimm
árum. Þingnefndir þurfa nú að
koma sér saman um hvernig útfæra
beri samþykktir beggja deilda
þingsins og forsetans. Er búist við
að hart verði deilt er þingmenn taka
að ræða nákvæmlega hvernig út-
færa beri niðurskurðinn og boðaðar
skattahækkanir og að þeir muni
sæta umtaisverðum þrýstingi af
hálfu hagsmunahópa ýmissa í
Bandaríkjunum.
Bush forseti staðfesti lögin í
morgunsárið áður en opinberir
starfsmenn héldu til vinnu sinnar
en hefði undirskrift forsetans ekki
iegið fyrir hefðu þeir í raun verið
atvinnulausir þar eð heimildir
skorti til að greiða laun þeirra.
Rekstur ríkissjóðs stöðvaðist því
sem næst á laugardag eftir að Ge-
orge Bush hafði neitað að staðfesta
aukafjárlög sem þingið hafði sam-
þykkt en afleiðingar rekstrarstöðv-
unarinnar voru minni en ella þar
sem mánudagurinn var almennur
frídagur í Bandaríkjunum.
í yfirlýsingu sinni hvatti Bush
forseti þingmenn til að fara eftir
tillögum þeim er hann hafði áður
kynnt um hvemig sigrast bæri á
fjárlagahallanum. Lýsti forsetinn
yfir því að hann myndi neita að
staðfesta lög er ekki væru í sam-
ræmi við meginatriði tillagna hans.
í gær staðfesti öldungadeild
Bandaríkjaþings samkomulagið um
niðskurð fjárlagahallans í meginat-
riðum en það kveður á um 40 millj-
arða dala tekjuauka og sparnað á
þessu fjárlagaári sem hófst þann
fyrsta þessa mánaðar. Áður höfðu
þingmenn í fulltrúadeildinni stað-
fest fjárlagafrumvarpið, sem líkist
því sem upphaflega var lagt fyrir
þingheim og hann hafnaði á
fimmtudag í síðustu viku. Nýja
frumvarpið kveður þó á um minni
niðurskurð en upphaflega var áætl-
aður á sviði heilbrigðismála auk
þess sem þingnefndir fá meira
svigrúm en áður til að ákvarða
skattahækkanir.
Keuter
RósturíLyon
Unglingar efndu til uppþota í gærkvöldi í borginni Lyon í Frakklandi þriðja daginn í röð. Veltu þeir og kveiktu
í bifreiðum og réðust á lögreglumenn. Óeirðirnar hafa takmarkast við hverfið Vaulx-a-Velin þar sem inn-
flytjendur frá ríkjum norðanverðrar Afríku eru í miklum meirihluta. Kveikjan að óeirðunum var andlát
unglings sem beið bana í árekstri mótorhjóls og lögreglubifreiðar sl. laugardag.
Varað við upplausn sovéska ríkjasambandsins:
Gorbatsjov segir ástandið
geta orðið eins og í Líbanon
Rússneska þingið samþykkir að róttæk áætlun um markaðsbúskap taki gildi 1. nóvember
Moskvu. Reuter og Daily Teiegraph.
MÍKHAÍL S. Gorbatsjov Sovét-
leiðtogi varar landa sína við því
að upplausn á borð við ástandið
í Líbanon geti orðið hlutskipti
íbúanna ef látið verði undan
kröfum einstakra lýðvelda um
aðskilnað. Á fundi í miðstjórn
kommúnistaflokksins á mánu-
dag hvatti hann flokksmenn til
að standa fast gegn slíkum kröf-
um og sagði „aðskilnaðarsinna
og æsingaseggi" blekkja al-
menning og skapa „andrúmsloft
haturs og hermdarverka. “ For-
sætisráðherra Rússlands , ívan
Sílaev, sagði í gær að sam-
þykkti Æðsta ráð Sovétríkjanna
ekki 500-daga áætlunina svo-
nefndu um róttækar breytingar
í átt til markaðsbúskapar, er
rússneska þingið samþykkti í
gær að tæki gildi 1. nóvember,
myndu Rússar verja sig og grípa
til ,jafnvel öfgafullra ráða.“
Ráðherrann útskýrði ekki nánar
orð sín.
Sílaev gagnrýndi tvær forsetatil-
skipanir Gorbatsjovs þar sem þess
var krafist að staðið yrði við gerða
viðskiptasamninga og heildsölu-
verð á nokkrum vörutegundum
gefið fijálst. Sílaev sagði enga
þörf á slíkum tilskipunum fyrr en
búið væri að samþykkja heildará-
ætlun í efnahagsmálum. Nokkrir
þingmenn á rússneska þinginu
hvöttu í gær til þess að boðað yrði
allsherjarverkfall til að knýja á um
róttækar breytingar í markaðsátt
Forseti Litháens um fundarstað mögulegra viðræðna við Sovétmenn:
-----------------------------^------------
Gleymum ekki tilboði Islendinga
Við munum ekki gleyma tilboði íslendinga um að verða gestgjafar
slíks fundar," sagði Vytautas Landsbergis, forseti Litháens, á frétta-
mannafundi á Hótel Sögu í gær er rætt var um mögulegan fundar-
stað ef hafnar yrður samningaviðræður við Sovétstjórnina um fullt
sjálfstæði Litháens. Forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson,
og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra voru einnig á fundin-
um og sagði Steingrímur að þeir hefðu átt viðræður við forsetann
um samskipti landanna og stöðuna í sjálfstæðismálum Litháa.
Steingrímur ítrekaði þá afstöðu
íslenskra stjórnvalda að íslending-
ar hefðu aldrei viðurkennt innlimun
Eystrasaltsríkjanna í Sovétríkin og
þyrftu því ekki að viðurkenna sjálf-
stæði Litháens, það hefðu þeir gert
þegar á þriðja áratugnum.
Landsbergis sagði að Litháar
hefðu ekki gert sér neinar sérstak-
ar vonir um stuðning íslendinga
umfram annarra þjóða. „Hjarta
mitt er fullt.af þakklæti,“ sagði
hann. Mikilvægt væri að smáar
þjóðir stæðu saman í heimi þar sem
stórþjóðir teldu sig einar eiga allan
rétt. Hann var m.a. spurður hvern-
ig íslendingar gætu veitt Litháum
aukinn stuðning í sjálfstæðisbar-
áttunni. „Um er að ræða marg-
vísleg pólitísk skref en ég vil ekki
segja íslensku ríkisstjórninni fyrir
verkum í þessum efnum. Við höfum
rætt um möguleikann á því að Lit-
háen taki þátt í leiðtogaráðstefnu
35 aðildarríkja RÖSE-viðræðnanna
um öryggi og samvinnu í Evrópu
síðar á árinu. Einnig kemur til
greina að taka upp þráðinn á ný
varðandi samninga sem Litháar
gerðu meðan þeir voru sjálfstæðir
og huga að samvinnu á sviði menn-
ingar og viðskipta. Við teljum okk-
ur Norður-Evrópumenn og það
gleður okkur að Norðurlandabúar
skuli veraþví sjónarmiði sammála."
Landsbergis sagði ljóst að nokk-
ur munur væri á afstöðu Norður-
landanna; Danir, Norðmenn og ís-
lendingar hefðu verið eindregnari
í afstöðu sinni en Finnar og Svíar
en við því væri ekkert að gera,
þetta væri mál hverrar þjóðar fyrir
sig. Jón Baldvin sagði Dani og
Norðmenn þegar hafa tekið undir
með íslendingum og stutt beiðni
Eystrasaltsríkjanna um aðild eða
áheymaraðild að RÖSE-viðræðun-
um.
Er spurt var hvort Litháar gætu
sætt sig við samning þar sem kveð-
ið væri á um nokkra bið eftir fullu
sjálfstæði, eins og íslendingar
gerðu 1918, svaraði Landsbergis
að Litháar hefðu þegar beðið í 50
ár, það hlyti að nægja. Hann benti
á að Kúvætar, er einnig hefðu ver-
ið innlimaðir með hervaldi, myndu
vart sætta sig við slíkt sáttaboð
af hálfu Saddams Husseins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vytautas Landsbergis, forseti Litháens, ásamt Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra og Jóni
Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra á blaðamannafundi '----------------
gær.
og báðu stjórnir búgarða og ann-
arra ríkisfyrirtækja að hundsa mið-
stýringarvaldið. Tillögur þeirra
voru felldar á þinginu.
Gorbatsjov og varaformaður
flokksins, Vladímír ívashko, gagn-
rýndu flokksmenn á miðstjórnar-
fundinum á mánudag fyrir andóf
gegn 500 daga áætluninni sem
Gorbatsjov segist vera að mestu
samþykkur en Sovétleiðtoginn vill
bræða hugmyndina saman við til-
lögur Níkolajs Ryzhkovs forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna; síðar-
nefndu tillögurnar ganga mun
skemur. „Sótthitinn í þjóðfélagi
okkar, sem lengi hefur verið fár-
sjúkt, er orðinn hættulega hár,“
sagði ívashko. „Skortur er á öllum
sköpuðum hlutum, brask og verð-
hækkanir á neytendamarkaði eitra
líf milljóna Sovétborgara á degi
hverjum." ívashko sagði að þjóðar-
framleiðsla hefði minrikað um 0,9%
á þessu ári miðað við sama tíma
í fyrra og aukning peningamagns
í umferð væri orðin tvisvar meiri
en gert hefði verið ráð fyrir. ívas-
hko sagði að ekki væri verið að
varpa fyrir róða hugsjónum sósíal-
ismans með 500-daga tillögunum
en sósíalisminn merkti ekki að all-
ir ættu að búa við neyð. Gorbatsjov
sagði andstöðu sumra flokks-
manna á markaðskerfi eiga sér
rætur í „gamalli tregðuhugsun"
og hún ógnaði framtíð flokksins.
„Fyrir þá er það sem nú er að
gerast afleiðing mistaka eða jafn-
vel illgirni einhverra manna. Þetta,
félagar, er að sjálfsögðu ímyndun.“
Um átján milljónir manna eru
félagar í flokknum en skoðana-
kannanir sýna hratt þverrandi
traust almennings á honum. Gorb-
atsjov á að leggja málamiðlunar-
hugmynd sína um markaðsbúskap
í Sovétríkjunum fyrir Æðsta ráðið
í síðasta lagi 15. þ. m. en aðalhöf-
undur róttækari tillagnanna, hag-
fræðingurinn Staníslav Sjatalín,
segir að engin leið sé að finna
málamiðlun milli hugmynda Ryz-
hkovs og sinna.