Morgunblaðið - 10.10.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTOBER 1990
fclk í
fréttum
MONAKO
Mikið
fjölmenni
við útför
Casiraghis
Útför Stefanos Casiraghis, eigin-
manns Karólínu, prinsessu af Món-
akó, fór fram frá Rómversk-
kaþólsku dómkirkjunni í Mónakó á
laugardag að viðstöddu miklu fjöl-
menni. A myndinni, sem tekin er
þegar kista Casiraghis var borin
út úr kirkjunni að athöfninni lok-
inni, leiðast þau feðginin, Rainer
fursti og Karólína dóttir hans. Að-
eins nánustu ættingjar furstafjöl-
skyldunnar og Casiraghi-fjölskyld-
unnar voru viðlátnir er jarðneskar
leifar Stefanos Casiraghis voru
lagðar til hinstu hvílu í lítilli frið-
arkapellu í nágrenni furstahallar-
innar.
MALVERK
Pétur Friðrik sýnir í Lúx-
emborg og Þýskalandi
í þessari viku lýkur í málverkasýn-
ingu Péturs Friðriks í ráðhúsinu í
Köln-Porz í Þýskalandi. Sýnir Pétur
Friðrik þar í boði borgarstjórnarinn-
ar og þegar sýningin var opnuð
hinn 25. september síðastliðinn
fluttu Hans-Gerd Erwens, borgar-
stjóri í Porz, og Hjálmar W. Hann-
esson, sendiherra íslands í Þýska-
landi, ávörp.
Pétur Frikrik sýndi þarna 20
myndir, sem hann hefur málað á
síðustu þremur til fjórum árum,
mest landslags- og blómamyndir.
í september hélt Pétur Friðrik
einkasýningu á 24 myndum í Lúx-
emborg og voru þar meðal annars
sumar sem hann málaði þar í landi.
Fram til 31. október verða myndir
eftir hann á sýningu á íslenskri
myndlist í Stuttgart, senr+ialdin er
í tengslum við íslenska bókakynn-
ingu þar. Á þeirri kynningu lesa
Sigurður A. Magnússon, Guðbergur
Bergsson, Þorgeir Þorgeirsson og
Thor Vilhjálmsson úr verkum sínum
auk þess sem Jón Laxdal leikari les
úr verkum Halldórs Laxness.
Hans-Gerd Erwens, borgarstjóri í Porz afhendir Pétri Friðrik viður-
kenningu frá ráðhúsinu í Köln. Með þeim fremst á myndinni er
Hjálmar W. Hannesson sendiherra.
©DEXION
IMPEX
hillukerfi
án
boltunar
LANDSSMIÐJAN HF
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680
Morgunblaðið/Svanur
Þóra Sif Svansdóttir kafar í sundlauginni og faðir hennar smellir
af henni mynd með vatnsheldu inyndavélinni.
KÖFUN
Myndað í sjó og vatni
Vatnsheld einnota myndavél er fyr-
ir nokkru komin á markaðinn frá
Kodak; Fuji bætir um betur og býð-
ur samskonar vél með innbyggðu
leifturljósi. En hvernig skyldu þær
reynast?
Svanur Steinarsson, sem rekur
Framköllunarþjónustuna í Borgar-
nesi er jafnframt áhugamaður um
köfun. Hann kvaðst hafa prófað
Kodakvélina bæði í sundlaug og
einnig í sjónum undan Straumfirði
á Mýrum. Kvaðst Svanur hafa ver-
ið undrandi á því hvað hann hefði
náð skýrum myndum með þessum
einnota vélum. Þá væru vélarnar
gefnar upp fyrir hámarks dýpi 2,5
m, en hann hefði myndað botngróð-
ur á um 7 metra dýpi og vélin hefði
staðist það.
- TKÞ
Krossfiskar og skeljar á 7 metra dýpi út af Straumfirði á Mýrum.
00 ,kr. leikurmn
östudaga kl. 12.00
Keilusálurinn
JIABAH
ISLAHDS
oiv|Uhlíð,
C‘l 3551 530 I