Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 44

Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990 /, £Íq sendí son mínn i sk&ia i!L Flórlda Manstu þegar við sátum Er þetta í lagi vinur minn, hér ung og ástfangin sitt er þetta ekta skipstjóri? á hvorum endanum ...? HÖGNI HREKKVÍSI Styðjum Guðmund Til Velvakanda. Það voru velkomnar fréttir þegar Guðmundur Hallvarðsson ákvað að bjóða fram krafta sína til prófkjörs sjálfstæðismanna fyrir alþingis- kosningarnar næsta vor. Þessi tíðindi voru merkileg fyrir þær sakir að þarna kom fram góð- ur málsvari þeirra er þurfa að vinna hörðum höndum fyrir lífsbrauði sínu. Þarna kom maður sem skilur lífs- baráttuna frá grunni og það sem Skrifið eða hringið til Yelvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til fdstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al efhis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfh, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efhi til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafn- leyndar. Ekki verða birt nafnlaus bréf sem eru gagnrýni, ádeilur eða árásir á nafhgreint fólk. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér i dálkunum. ekki er verra, hann talar mannamál og fólkið skilur hann. Þó að ég styðji þennan dreng heilshugar í komandi prófkjöri þá er það ekki tilefni þessara skrifa heldur skemmtilegt atvik sem átti sér stað í maí síðastliðnum. Á kosningaskrifstofu Sjálfstæð- isflokksins í Mjódd í Breiðholti var mikið unnið og eins og alltaf í kosn- ingabaráttunni komu upp ýmis ófyrirséð mál. Eitt var það að hjón nokkur í Breiðholti vildu fara saman á kjör- stað en sárvantaði pössun fyrir börnin sín sem voru 7 mánaða og 4 ára gömul. Nú voru góð ráð dýr því þó að einvalaliði því sem þarna starfaði væri margt til lista lagt þá var enginn sérfróður í annarra manna bömum sem þau þekktu alls ekki neitt, og gagnkvæmt. Að venju var hinn sístarfandi Guðmundur Hallvarðsson ásamt sinni konu á kosningaskrifstofu og fannst það ekki neitt tiltökumál að þau gerðust barnapíur á meðan foreldrarnir væru að kjósa og áður en nokkur hafði áttað sig þá voru þau hjónin farin. Þegar Guðmundur og Hólmfríður komu á staðinn var sjóðandi heitt kaffi á könnunni en foreldrarnir skunduðu á kjörstað. Á meðan yngra barnið naut sam- vista við Óla Lokbrá gerðist sá ijög- urra ára málglaður mjög og naut sín í hvívetna en gerðist argur þeg- ar foreldrarnir komu aftur og fannst kosningin hafa tekið alltof stuttan tíma. Þeim leið vel, hjónunum, sem héldu aftur út í milt vorkvöld kjör- dagsins og glöddust yfir vel unnu verki og ekki dró það úr ánægjunni að fá dynjandi lófaklapp allra á kosningaskrifstofunni um Ieið og þau birtust þar aftur. Þetta er eitt af þeim skemmtilegu atvikum sem verða manni minnis- stæð og sjálfsagt að leyfa öðrum að njóta líka. Helgi Steingrímsson Tannlækningar í Búlgaríu Til Velvakanda. Fyrir stuttu skrifaði Jóhanna Guðmundsdóttir í Velvakanda um hrakfarir sínar hjá tannlækni í Búlgaríu. Af því tilefni langar mig að leggja tvær spurningar fyrir Jóhönnu. 1) Hve langur tími leið frá því að hún fékk brúna sína þangað til hún fékk tannrótarbólgu? 2) Hvar í Búlgaríu fékk hún sína brú? Ég er mjög forvitin vegna þess að ég var í Búlgaríu í byrjun sept- ember, á stað sem heitir Eleníte, og fékk brýr á aðeins 19 þúsund krónur eða 33 dollara stykkið. Ég er sammála þér, Jóhanna, að tann- læknastofan var 10 til 20 árum á eftir því sem við erum vön í snyrti- mennsku og útliti. Minn tannlæknir var mjög hreinlegur, þ.e. þvoði hendurnar og notaði hrein áhöld. Við höfðum indælan túlk sem heitir Ægir. Hann aðstoðaði okkur öll eins og þörf var á. Þeir sem þurftu að láta taka úr sér tennur voru deyfðir en við hinir sem ætluðum að fá brýr fengum frekar ruddalega meðferð. Hjá okkur var jaxlinn hreinsaður, þ.e. allt silfur í burt, þar sem brúin átti að fara yfir. Þetta þýddi kul í 3 til 4 daga þar til brýrnar voru tilbúnar. Jóhanna, mér þykir leiðinlegt að heyra hvernig fór fyrir brúnni þinni. Er það örugglega tannlækninum í Búlgaríu að kenna? Við vitum báðar að tannlæknar á íslandi eru mis- jafnir og þannig er það einnig með tannlækna í öðrum löndum. Einn íslendingurinn hjá okkur var alltaf með verk í rótfylltri tönn (þ.e. tönn sem var rótfyllt á íslandi). Þegar okkar tannlæknir úti fór að athuga málið kom í ljós úldin bómull í tönn- inni. Læknirinn reyndi að bjarga tönninni en það tókst ekki. Verkur- inn vildi ekki fara svo að endalokin voru þau að tönnina varð að fjar- lægja. Okkar lækni fannst við öll hafa alltof gamlar fyllingar. Skýringin er auðvitað sú að tannviðgerðir eru alltof dýrar á íslandi. Eitt var ég ekki ánægð með í Búlgan'u. Tann- læknirinn tók engar röntgenmynd- ir. Tannskemmd getur leynst í tönn- inni, sem brúin ódýra er látin yfir, og fer hún þá fyrir lítið. Jóhanna, ég vona að þú sjáir þér fært að fræða mig og fleiri, sem völdum þessa leið. Steinunn Villyálmsdóttir Víkveiji skrifar Af umræðum í Bretlandi má ráða, að Margaret Thatcher forsætisráðherra hafi komið and- stæðingum sínum í opna skjöldu fyrir helgi, þegar tilkynnt var að framvegis yrði gengi pundsins skráð í samræmi við evrópska gengisviðmiðun. Með þessu sneri Thatcher við blaðinu og greip til úrræðis, sem Nigei Lawson, fjár- málaráðherra í ríkisstjórn hennar, vildi á sínum tíma en naut þá einsk- is stuðnings forsætisráðherrans. Fagnaði Lawson tilkynningu eftir- manns síns í embætti, Johns Maj- ors, með þeim orðum, að betra væri seint en aldrei. Ástæðurnar fyrir stefnubreyting- unni eru í senn þrýstingur frá breskum Evrópusinnum sem vilja ekki að land þeirra einangrist um of innan Evrópubandalagsins vegna einstrengingslegra viðhorfa og óhagstæð þróun í bresku efna- hagslífi, þar sem verðbólga og vext- ir hafa hækkað. Strax eftir að skýrt hafði verið frá hinni nýju stefnu stjórnarinnar lækkuðu vextir á fast- eignalánum, svo að dæmi sé tekið, íbúðakaupendum til mikillar gleði. Fyrir áhugamenn um stjórnmál er forvitnilegt að velta því fyr- ir sér hvers vegna Thatcher tók þessa ákvörðun einmitt á þessari stundu. Hún hefur lengi staðist þrýstinginn og sagt, að hann sé ekki óbærilegur fyrir sig. Hún er þekkt fyrir að fara sínar eigin leið- ir og beita áhrifum sínum og sann- færingakrafti til hins ýtrasta. Frægar eru yfirlýsingar hennar um, að hún sé ekki gefin fyrir kúvend- ingar. Thatcher og íhaldsflokkurinn hafa átt undir högg að sækja sam- kvæmt skoðanakönnunum undan- farið og hefur Verkamannaflokkur- inn undir forystu Neils Kinnocks náð verulegu forskoti, ef marka má þessar kannanir, þótt það hafi heidur minnkað undanfarið. Árs- þingi Verkamannaflokksins lauk einmitt á föstudag, þegar hin óvænta tilkynning um gengissam- starfið var birt. Brugðust ýmsir talsmenn hans þannig við, að með þessu væri forsætisráðherrann ein- vörðungu að reyna að draga athygl- ina frá lyktum flokksþings . and- stæðinga sinna auk þess sem hún væri að búa í haginn fyrir sjálfa sig á ársþingi íhaldsmanna, sem haldið er í þessari viku. xxx essi skýring á tímasetningu þessarar mikilvægu ákvörð- un- ar er vafalaust rétt. Ef stjóm- málamaður telur sig á annað borð nauðbeygðan til að taka ákvörðun, sem honum er ekki alfarið að skapi, hlýtur hann að velja þann kost, sé hann á annað borð fyrir hendi, að nýta sér gjörninginn sjálfan til fulinustu. Thatcher sýndi enn einu sinni í síðustu viku, hve mikla hæfi- leika hún hefur einnig að þessu leyti. George Bush Bandaríkjafor- seti hefur valið svipaðan kost í deil- um sínum um fjárlögin við Banda- ríkjaþing. Forsetinn hefur orðið að hvika frá þeirri stefnu að hækka ekki skatta á hinn bóginn heldur hann þannig á málum gagnvart Bandaríkjaþingi að öllum er ljóst, að það er þingið en ekki hann, sem þarf að samþykkja skattahækkun- ina og samdrátt í ríkisútgjöldum, svo að eitthvað verði úr fram- kvæmdum. ( I < i ( í J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.