Morgunblaðið - 10.10.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 10.10.1990, Blaðsíða 47
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1.990 47 ; „Baráttan er ' okkarvopn“ - segirArnórGuðjohnsen um leikinn í kvöld „ÞETTA verður gífurlega erfiður leikur. Ég held að Spánverjar séu með sterkasta liðið í riðlinum. Þeir eru ákveðnir í að sýna getu sína eftirfrekar slakt gengi liðsins á Heimsmeistaramótinu á Ítalíu í sumar. Við vitum að hverju við göngum og seljum okk- ur dýrt. Baráttan er okkar vopn,“ sagði Arnór Guðjohnsen. Það sem hefur vantað hjá okkur í fyrri leikjum er að losna við tauga- spénnuna í upphafi leiks. Þegar vantar öryggið bakka menn ósjálf- rátt og þá kemur pressa í stað þess að taka þá framar á vellinum. Það hefur vantað sjálfstraust þegar komið er út í alvöruleiki, menn þurfa að taka meiri ábyrgð og þor. Mönnum hættir til að losa sig við boltann of . fljótt og eru hræddir við að gera mistök. Það er eins og við þurfum að lenda undir til að fá sjálfstraustið," sagði Amór. Arnór sagði að þessi tími á Spáni fram að leik væri mjög góður. „Það . er mikill metnaður í hópnum og við erum staðráðnir í að selja okkur dýrt.“ Þjátfar Ormarr liðKA? KA-menn eiga í viðræðum við Ormarr Örlygs- son um að hann taki að sér þjálfun 1. deiidar- liðs félagsins í knattspyrnú. Ormarr leikur sem kunnugt er með liðinu; var einn besti maður liðsins í sumar og hefur verið { landsliðshópi íslands. Onnarr á að baki 131 leik í 1. deildinni, þar af 64 með Fram, sem hann lék með 1985-1988 en síðan snéri hann aftur á heimasióðir og lék með KA á ný í fyrra er liðið varð íslandsmeistari í fyrsta skipti. Það ætti að skýrast á næstu dögum hvort Orm- arr verður þjálfari KA næsta sumar. Undankeppni EM U 21 og ÓL: Krislján kom í veg fyrir stórt tap Kristjðn Finnbogason ÍSLENSKA ólympíulandsliðið ( skipað leikmönnum 21 árs og yngri tapaði 2:0 fyrir jafnöldr- um sínum frá Spáni. Saman- ( lögð markatala íslendinga eftir fjóra fyrstu leikina í riðlinum er því0:10. Leikurinnfórfram á Jose del Cuvillo vellinum í Santa Maria í gærkvöldi og er einnig liður í undankeppni Evr- ópumóts U-21 árs landsliða. Valur Jónatansson skrífar frá Spáni Spánverjar gerðu mörkin með tveggja mínútna millibili í fyrri hálfleik. Kristján Finnbogason, markvörður úr KR, sem tók stöðu Ólafs Péturssonar, er var meiddur, átti stórleik og bjargaði liðinu frá enn stærra tapi. Islensku strákarnir voru mjög taugaspenntir í fyrri hálfleik og engu líkara en að tapið gegn Tékk- um sæti enn í hugum þeirra. Send- ingar voru slæmar og oftast beint á andstæðinginn. Spánverjarnir voru mjög fljótir og alltaf skrefi á undan. Það mátti því telja vel slopp- ið að íslenska liðið fór ekki með nema tvö mörk á bakinu, er gengið var til leikhlés. Fyrra mark Spánveija kom á 21. mínútu og var sérlega glæsilegt. Aguila Lalana skoraði með þrumu- skoti af 30 metra færi efst í horn- ið. Síðara markið kom eftir varn- armistök; sending í gegnum vömina og þar kom Tinila Mirana eins og elding og vippaði yfir Kristján í markinu. Síðari hálfleikurinn var tíðinda- li'till og var eins og Spánveijar sættu sig við mörkin tvö. Þeir pressuðu ekki eins stíft heldur létu boltann ganga milli manna. íslenska liðið lék mun betur í síðari hálfleik, barð- ist vel til að vinna boltann, en þeg- ar átti að byggja upp sóknir var eins og allt færi í handaskolum. Maður hafði það á tilfinningunni að knötturinn væri heitur. Leikmenn voru hræddir við að taka áhættu og gerðu allt til að losa sig við boltann eins fljótt og auðið var. Besti leikmaður íslenska liðsins var Kristján, sem varði oft á tíðum á ótrúlegan hátt. Steinar Adolfsson og nafni hans Guðgeirsson léku vel og Helgi Bjarnason og Þormóður Egilsson voru sterkir í vörninni. Bjarni Benediktsson fór útaf meidd- ur í byijun síðari hálfleiks eftir að hafá fengið högg á hné. Spánn-ísland 2:0 Santa Maria, Jose del Cuvillo, undan- keppni ÓL og EM U-21, þriðjud. 9. okt. 1990. MSrkin: Mirana (21.), Lalana (23.). Gultspjald: Steinar Guðgeirsson (84.). Dómari: Tinto Corero frá Portúgal. Slakur heimadómari. Áhorfendur: 5.000. Lið Spánar: Carrasco, Lgopis, Larraza- bol, Femandez, Escurza, Villabona, Mir- ana, Martinez, Lalana, Lasa, Manjarin. Lið íslands: Kristján Finnbogason, Helgi Björgvinsson, Bjarni Benediktsson (Jóhann Lapas 49.), Þormóður Egilsson, Kristján Halldórsson, Ríkharður Daða- son, Valdimar Kristófersson (Gunnlaug- ur Einarsson 85.), Steinar Adolfsson, Anton Bjöm Markússon, Steinar Guð- geirsson, Haraldur Ingóifsson. Líklegt lið í kvöld Byijunarlið íslands verður ekki tilkynnt fyrr en á hádegi í dag en búast má við að það verði þannig skipað: i Bjami Sigurðsson í markinu, Guðni Bergsson aftastur í vöm og Atli Eðvaldsson fyrir framan hann. Kristján Jónsson (eða Þorgrímur Þráinson) hægri bakvörður og Sævar Jónsson vinstri. Á miðjunni verða líklega frá hægri: Ólafur Þórðarson, Sigurður Jónsson, Rúnar Kristinsson (eða Pétur Ormslev) og Sigurður Grétarsson. Arnór Guðjohnsen fremsti maður á miðjunni og Ragnar Margeirsson fremst- ur. Steinar Adolfsson, fyrirliði íslenska liðsins, lék vel í gærkvöldi. Hvað sögðu þeir? ítfom „Ég er alltaf óhress með að tapa en get þó sætt mig við leikinn í heild. Kristján stóð sig mjög vél í markinu," sagði Marteinn Geirsson, þjálfari íslenska liðsins. „Þetta er einfaldlega munurinn á atvinnu- og áhugamönnum og þeir hafa tækn- ina og snerpuna framyfir okkur. Þessi leikur var mun betri en gegn Tékkum. Strákarnir voru að vísu hræddir fyrir leikinn og það sást í fýrri hálfleik. Leikmenn flýttu sér of mikið að losa sig við boltann í stað þess að reyna að spila. Það er ekkert hægt að segja við þessum mörkum, sem við fengum á okkur. Þau vom bæði glæsileg." Steinar Adolfsson, fyrirliði: „Ég get verið sáttur við seinni háífleikinn en það tók okkur allan fyrri hálfleikinn að komast inní leik- inn. Þetta er mun skárra en skellur- inn í Tékkóslóvakíu. Spánverjar eru með gott lið en ég held að Tékkarn- ir séu enn betri. Tveggja marka tap er raunhæft gegn þessum atvinnu- mönnum." Kristján Finnbogason: „ÉG var mjög taugaóstykur í byijun en fékk fljótlega nóg að gera í markinu og það kom mér í stuð. Síðari hálfleikurinn var ró- legri enda pressuðu Spánveijar ekki jafn stíft.“ Steinar Gudgeirsson: „Það var mjög erfitt að spila þennan leik. Þeir eru gífurlega fljót- ir og erfítt að komast framhjá þeim. Við vomm þó ragir í þessum leik og það gekk illa að koma boltanum milli manna. Fyrra markið kom uppúr enga og ekkert við því að gera en í síðari markinu voru varn- armenn of seinir að átta sig á hraða Spánverja." FOLK ■ PÉTUR Pétursson er kominn í þrýstiumbúðir um ökkla og hann gengur með hækjur. Pétur verður að vera í þrýstiumbúðum í tvær til þijár vikur. Hann meiddist á æfingu í fyrrakvöld eins og gi-eint var frá í blaðinu í gær. Tognaði illa á ökkla. ■ AÐEINS sjö leikmenn í sextán manna landsliðshópi Spánverja voru í HM-hópi Spánar á Ítalíu. - H SIGURÐUR Jónsson segir að það sé erfitt að leika í Sevilla. „Síðast þegar við lékum hér, 1985, köstuðu áhorfendum eplum og öðr- um ávöxtum að okkur." ■ ATLI Eðvaldsson, fyrirliði landsliðsins, segir að bæði liðin byiji leikinn með eitt stig. „Við reynum hvað sem við getum til að' halda okkar stigi. Fyrstu þijátíu mínúturnar verða erfiðar."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.