Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990
Hver er meiningin?
eftir Grétar
Haraldsson
Undanfarna daga hefur verið í
dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi
hver vitringurinn á fætur öðrum
sem bölsótast yfir einokunarað-
stöðu Flugleiða og telja að með
falli Arnarflugs sé búið að færa
félaginu á silfurbakka flugleiðirnar,
Amsterdam og Hamborg.
Ætla íslendingar aldrei að kom-
ast yfir þá erfiðleika að muna svona
a.m.k. örfá ár aftur í tímann og
gera sér grein fyrir staðreyndum?
Flugfélag íslands og Loftleiðir
voru sameinuð fyrir tilstilii ríkis-
vaidsins með Hannibal Valdjmars-
son við stjórnvöl í því máli. A þeim
tíma skrifuðu blöð um nauðsyn
þessarar sameiningar vegna smæð-
ar okkar og að með því móti værum
við eitthvað miðað við hin stóru
félög sem væru allt í kringum okk-
ur. A þessum árum skrifuðu marg-
ir þekktir sem óþekktir og lofuðu
Hannibal fyrir að standa að þessu
þjóðþrifamáli. Sameiningin varð að
veruleika og allir önduðu léttara
nema starfsfólk félaganna sem sáu
fram á erfiða tíma þar sem óhjá-
kvæmilegt væri að einhveijum yrði
sagt upp. Ég ætla ekki .að riija það
mál upp því þeir stjórna ekki einu
sinni fyrirtækinu sem stýrðu því
„Sú framsýni sem ráða-
menn Flugleiða hafa
sýnt með kaupum á
þeim vélum sem þeir
eru með í dag sýnir svo
ekki er um villst að
þarna eru menn á réttri
braut og vandanum
vaxnir.“
máli á þeim tíma nema kannski
stjórnarformaðurinn, sem í dag
stjórnar ekki daglegum rekstri
Flugleiða.
Grétar Haraldsson
HENNAPLUS
VÍTAMÍN HÁR-
SNYRTIVÖRUR
ERU KRAFTAVERK
FYRIR HÁRIÐ ...
NÁTTÚRULEGA
Hennaplus eru mjög mildar hársnyrtivörur
eingöngu unnar úr náttúrulegum efnum og
lausar við öll skaðleg efni.
Innihald:
1. ALOE VERA hreint plöntuefni sem gefur
þurru og upplituðu hári nýtt líf, lyftingu og
glans.
2. PRO-VITAMIN B5 D-PANTHENOL
endurnýjar skemmt hár.
3. HENNÁ styrkir, litar og nærir.
Gefur „Hennaglans".
4. JOJOBA nærir hársvörðinn og verndar
hárið gegn hættulegum U.V. geislum.
Hennaplus vörur:
• fyrir Ijóst hár
• fyrir brúnt hár
• fyrir svart hár
• fyrir rautt hár
• fyrir grátt hár
• einnig til:
flösu shampoo,
silki- og jurta-shampoo.
shampoo fyrir feitt og þurrt hár.
HENNA
ALOE VERA,
J0J0BA
Hennaplus Vitamin hársnyrtivörur
fyrir rautt hár.
1. Glans shampoo rautt hár
2. Vítamín hárnæring rautt hár
3. Vítamín djúpnæring
4. Litaduft rautt
5. Kraftaverkanæring (ekki skoluð úr)
6. Kraftaverkahársprey
7. Spréy fyrir þurrt-fínt hár
8. Stíft gel
PRO-VITAMIN B5
D-PANTHENOL
Bætir skemmt hár ef notað reglulega.
Ph sýrustig 4,5-6.
Fæst í
stórmörkuðum,
snyrtivöruverslunum
og apótekum.
HEILDVERSLUN
SlMAR: 21020-25101
Nú voru allir ánægðir og bros-
andi því allt í einu vorum við flugfé-
lag sem taldi. En Adam var ekki
lengi í Paradís. Það leið ekki á löngu
þar til raddir hófu að syngja einok-
un, einokun, þrátt fyrir að á þeim
tíma væru fargjöld mun lægrii en
þegar samkeppni var á milli félag-
anna. Árið 1967 kostaði 8.800
krónur að fljúga frá Reykjavík til
Kaupmannahafnar og til baka aft-
ur. Þá voru sko ekki við líði nein
afsláttarfargjöld eins og nú tíðkast
né tíðkaðist skömmu eftir samein-
ingu flugfélaganna. Þá voru mánað-
arlaun verkamanns þau sömu eða
jafnvel heldur lægri en fargjaldið
fyrrnefnda. Var ekki samkeppni þá?
Ég bara spyr ...
Nei, gleymska okkar íslendinga
er alveg ótrúleg. Þá koma þeir
kænsku til skjalanna og segja dig-
urbarkalega: Sjáið hvernig er farið
með okkur á meðan Ameríkaninn
og aðrir Evrópubúar borga miklu
lægra gjald. Já, það er erfitt að búa
norður í Dumbshafi en hvernig hefði
ferðatíðninni verið háttað ef við
hefðum ekki þann möguleika að ná
í þennan stóra markað? Sannleikur-
inn er sá, að fæstir sem um þessi
mál ræða, hafa minnstu þekkingu
á málinu.
Flugferðir til og frá landinu eru
á mjög lágu verði því möguleikarn-
ir á ódýrum fargjöldum eru svo
margir að varla þekkist annað eins
hjá öðrum.félögum og alls ekki hjá
áætlunarfélögum í kringum okkur.
í dag eigum við að hætta þessu
dægurþrasi og reyna að hlú að
þessu eggi okkar á sem bestan
hátt, og ég treysti fullkomlega þeim
sem stjórna félaginu núna til að
geta veitt SAS og öðrum þeim er-
lendu félögum sem hug hafa á að
ijölga ferðum sínum hingað eða
hefja ferðir til landsins þá sam-
keppni sem framundan er.
Arnarflug er liðin tíð. Önnur
islensk millilanda flugfélög ættu
ekki að vera til umræðu. Látum
ekki pólitíska aðila komast upp með
vangaveltur um annað flugfélag,
því við höfum ekki efni á því. Veit-
um þeim aðilum makleg málagjöld
sem það reyna.
Sú framsýni sem ráðamenn Flug-
leiða hafa sýnt með kaupum á þeim
vélum sem þeir eru með í dag sýn-
ir svo ekki er um villst að þarna
eru menn á réttri braut og vandan-
um vaxnir.
Höfundur er forstöðumaður
þjónustusviðs Eurocard,en hann
starfaði áður í nærfelld 25 árlijá
Flugleiðum.
• •
OgTiiimdur Jónasson,
formaður BSRB:
Hækkun vísi-
tölunnar
verður færð
inn í launin
ÖGMUNDUR Jónasson, formað-
ur BSRB, segir það liggja í aug-
um uppi að hækkun vísitölu
framfærslukostnaðar verði færð
inn í launin. Vísitalan hefur
hækkað um 0,7% frá því í byrjun
október og reyndist vera komin
í 148,2 stig í nóvember, en í
kjarasamningum er gert ráð fyr-
ir að nóvembervísitalan verði
ekki hærri en 147 stig
Ögmundur sagði að í ráði væri
að endurskoða kjarasamninginn og
þetta yrði að skoða í því samhengi.
„Þar þarf bæði að skoða kaup-
gjaldsliðina og hugsanlega ýmislegt
fleira. Þetta verður allt tekið í einum
pakka,“ sagði hann.
Undanfarið hefur iaunanefnd
BSRB unnið að upplýsingaöflun
fyrir endurskoðun kjarasamninga-
og auk þess hafa málin verið rædd
innan samtakanna, að sögn Ög-
mundar. „Framhaldið veltur á nið-
urstöðu þeirrar umræðu. Það er
ekki komið að neinni ákvarðana-
töku og ekki tímabært að tjá sig
um endurskoðun samningsins,"
sagði hann.
I