Morgunblaðið - 14.11.1990, Síða 20

Morgunblaðið - 14.11.1990, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990 Er spuming um lífs- björg þjóðarinnar - sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra í viðræðum við spænska ráðherra JÓN Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra hitti Felipe Gonz- ález forsætisráðherra Spánar og Francisco Fernández Ordonez utanríkisráðherra Spánar að máli í Madríd á laugardag og gerði þeim í óformlegum viðræðum grein fyrir því hvers vegna íslending- ar geta alls ekki opnað fiskveiðilögsögu sína fyrir fiskveiðiflotum Evrópubandalagsríkjanna. Mynd 1 Fylgi flokkanna meðal karla og kvenna. Mynd 3 Fylgi flokkanna cftir starfsvettvangi. „Ég taldi það dýrmætt tækifæri að fá að gera spænskum ráða- mönnum grein fyrir sjónarmiðum okkar íslendinga. Við eigum mikið undir Spánveijum í þessum samn- ingum, einfaldlega vegna þess að það er spænskur sjávarútvegur sem sækir einna fastast fram í því að fá veiðiréttindi innan lögsögu EFTA-ríkjanna,“ sagði Jón í sam- tali við Morgurjblaðið. Viðskiptaráðherra sagðist í máli sínu hafa bent þeim González og Ordonez á að hjá okkur væri ekki um vanda að ræða, sem bundinn væri við einstakar greinar eða landshluta, heldur væri þetta spurning um lífsbjörg þjóðarinnar allrar. „Við getum ekki skert okk- ar auðlindagrundvöll á þennan hátt. Við sem strandríki berum auk þess ábyrgð á varðveislu lifandi auðlinda sjávar í kringum landið og það að opna þetta svæði fyrir stórum flotum Evrópuríkja myndi eyðileggja þessa mikilvægu auð-. lind Norður-Atlantshafsins,“ sagði Jón. Loks kvaðst ráðherrann hafa bent spænskum ráðamönnum á að hér væri um réttindi að ræða, sem íslendingar hefðu barist fyrir ára- tugum saman og náð fram sínum rétti að lokum, með miklu harð- fylgi. Því væri málum þannig hátt- að, að þótt tölurnar töluðu sínu Alþýðuflokkur: • • Ossur er reiðubúinn að íhuga framboð „ÉG HEF veríð jafnaðarmaður lengi og þegar ég sagði mig úr Alþýðubandalaginu fór ég ekki leynt með að Alþýðuflokkurinn lægi næst mínum skoðunum. Síðan hef ég glöggvað mig betur á stefnu flokksins og eigin skoð- unum og þar fer flést saman í mörgum stórum málum,“ sagði Össur Skarphéðinsson, aðstoð- arforsljóri og fyrrum ritstjóri Þjóðviljans, sem nú hefur geng- ið til liðs við Alþýðuflokkinn. Össur sagði að þar sem hann hefði verið staðráðinn í að vera virkur á hinum pólitíska velli, teldi hann rétt að ganga til liðs við Al- þýðuflokkinn nú, meðal annars til þess að leggja flokknum lið í kosn- ingum. „Eg geng þarna eins og hver annar húskarl til verka og þó ýmsir innan flokksins hafi orðað mig við framboð þá byggist ákvörðun mín ekki á því,“ sagði Össur. „Ég er vanur áð starfa í stjómmálaflokki og langar til þess. Um hugsanlegt framboð mitt er allt of snemmt að segja nú. Ef það reynist breiður vilji fyrir framboði mínu innan flokksins þá er ég reiðubúinn að íhuga það.“ Össur kvaðst vera þeirrar skoð- unar, að afar lítill munur væri á almennum félögum í Alþýðu- flokknum og Alþýðubandalaginu. „Rót beggja flokkanna er jafnaðar- stefna," sagði hann. máli, um mikilvægi sjávarútvegs- ins, þá væru tilfinningamar ennþá sterkari. „Ég tel að í þessum samtölum, einkum við Ordonez, sem er ut- anríkisráðherra Spánar hafi komið fram mikill skilningur á okkar sjónarmiðum, en ég tek það fram að þetta voru ekki samningavið- ræður, heldur viðræður milli flokksbræðra í óformlegum sam- tölum,“ sagði viðskiptaráðherra. Mynd 2 Fylgi flokkanna í einstökum aldurshópum. Mynd 4 Fylgi flokkanna meðal launþega og sjálfstætt starfandi fólks. 18-29 ára 0 30-54 ára 55-75 ára lí-lv. Ksa Launþegi □ Sjálfst. starfandi Ife?1 Könnun Félagsvísindastofnunar: Sjáifstæðisflokkur höfðar meira til yngri kjósenda Félagsvísindastofnun hefur unnið meiri upplýsingar úr könn- un á fylgi stjórnmálaflokkanna sem framkvæmd var fyrir Morg- unblaðið dagana 2. til 8. nóvem- ber sl. Hér á eftir fer greinargerð stofnunarinnar um það. í eftirfarandi töflu og línuritum er fylgið sýnt eftir iandshlutum, fyr- ir karla og konur, aldurshópa, meðal opinberra starfsmanna og fólks í einkageira atvinnulífsins, hjá laun- þegum og sjálfstætt starfandi fólki, eftir starfsstéttum og hjúskapar- stöðu. Slíkar upplýsingar er athygli- svert að skoða til að meta stöðu flokkanna í einstökum þjóðfélags- hópum. I töflunni má sjá hvemig fylgið mælist í Reykjavík, í Reykjaneskjör- dæmi og á landsbyggðinni þar fyrir utan. Ekki er ráðlegt að greina fylg- ið í einstökum kjördæmum á lands- byggðinni ítarlegar, því þá verða svarendur í einstökum tilvikum of fáir til að niðurstöður séu ábyggileg- ar. Fylgi stjórnmálaflokkanna er svipað í Reykjavík og var í síðustu könnun- stofnunarinnar, þ.e. í sept- ember sl. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur um 55% og Kvennalisti er í öðru sæti með um 15%. Alþýðubandalag hefur hins vegar áberandi minnst fylgi í höfuðborginni af fimm stærstu stjómmálaflokkunum. Á Reykjanesi hefur orðið allmikil breyting á fylginu frá síðustu könn- un. Sjálfstæðisflokkur hefur lækkað úr rúmlega 60% í tæp 50%, en fylgi Alþýðuflokks hefur aukist umtal- svert, eða úr nærri 18% í tæp 27%. Fylgi Framsóknarflokks hefur einn- ig aukist lítillega þar, en Alþýðu- bandalag hefur áfram lítið fylgi á Reykjanesi. í öðrum kjördæmum er niðurstaðan svipuð og var í síðustu Mynd 5 Fylgi flokkanna eftir hjúskaparstöðu. könnun. Sjálfstæðisflokkur hefur minna fylgi þar en á höfuðborgar- svæðinu og á Reykjanesi, eða tæp 39%, Framsóknarflokkur sækir sitt fylgi ennþá í meira mæli á lands- byggðina og hefur þar um 29%, en á landinu öllu hefur flokkurinn um 18% fylgi. Á mynd 1 má sjá að Kvennalistinn hefur nærri fjórum sinnum meira fylgi meðal kvenna en karla, og Sjálfstæðisflokkur hefur nokkru meira fylgi meðal karla en meðal kvenna. Hjá öðram flokkum er fylg- ið svipað meðal karla og kvenna. Á mynd 2 er fylgið greint eftir aldri. Sjálfstæðisflokkur höfðar heldur meira til yngri kjósenda en þeirra sem eldri eru. Alþýðuflokkur hefur hins vegar minna fylgi í yngstu aldurshópunum (18-29 ára), en Framsóknarflokkur hefur áberandi meira fylgi meðal eldri kjósenda, þ.e. þeirra sem eru 55 ára og eldri. Kvennalisti virðist höfða síður til eldri kjósenda en þeirra sem era miðaldra. Á mynd 3 má sjá stuðning við flokkana meðal opinberra starfs- manna og meðal starfsmanna í einkageira. Sjálfstæðisflokkur höfð- ar áberandi meira til fólks sem star- far í einkageira, en þó hefur hann ríflega helmingi meira fylgi en nokk- ur hinna flokkanna meðal opinberra starfsmanna. Alþýðubandalag og Kvennalisti höfða meira til opinberra starfsmanna en hinna sem starfa í einkageira atvinnulífsins. Lítill mun- ur er á þessu meðal stuðningsmanna Fra.msóknarflokks og Alþýðuflokks. Á mynd 4 er fylgið sýnt meðal launþega og þeirra sem eru sjálf- stætt starfandi. Niðurstöður þar era með svipuðu sniði og á mynd 3, þó ekki sé jafnmikill munur á þessum hjópum hjá Sjálfstæðisflokki, og Fylgi stjórnmálaflokka greint eftir landshlutum Reykjavík Reykjanes Önnur kjördæmi Alþýðuflokkur 11,5 26,6 10,2 Framsóknarflokkur 10,9 12,6 28,8 Sjálfstæðisflokkur 54,4 49,7 38,7 Alþýðubandalag 6,1 4,5 12,5 Kvennalisti 14,7 6,0 9,3 Aðrir flokkar/listar 2,2 0,5 0,6 Samtals 100% 100% 100% Fjöidi 321 199 313 Framsóknarflokkurinn höfðar áber- andi meira til sjálfstætt starfandi fólks en launþega. Á mynd 5 má sjá fýlgið meðal fólks sem býr við ólíka hjúskapar- stöðu: Greint er fyrir gifta/kvænta, þá sem búa í óvígðri sambúð og loks fyrir einhleypa. Ekkjur og ekklar eru undanskilin í þessari greiningu. Þarna kemur fram að Sjálfstæðis- flokkur hefur meira fylgi meðal ein- hleypra og giftra/kvæntra, en meðal sambúðarfólks. Alþýðuflokkur virð- ist höfða síður til einhleypra, og er það samsvarandi við fylgið meðal yngsta aldurshópsins, eins og fram kom á mynd 2, enda er stærstur hluti einhleypra úr yngri aldurshóp- um. Hið sama á við um Framsóknar- flokkinn, en hjá Alþýðubandalagi og Kvennalista er ekki umtalsverður munur á þessu. Loks er fylgið sýnt eftir starfs- stéttum á mynd 6. Miðað er við fimm Mynd 6 Fylgi flokkanna í einstökum starfsstéttum. ;■ ■ - -■ - - ■ Verkafólk □ IÖnaÖarm./verkstj. E2 SkrifstVþjónustuf. ■ Sérfr./atv.rek. 0 Sjómenn/bændur X !; | , ■ j I I 1 -4- 1 OITI mm Z, - megin starfsstéttir: almennt verka- fólk, iðnaðarmenn og verkstjóra, skrifstofu- og þjónustufólk, sérfræð- inga/stjórnendur og atvinnurekend- ur, og loks eru sjómenn og bændur settir i sömu stétt. Á myndinni má sjá að Alþýðuflokkur hefur nú meiri stuðning meðal verkafólks en hjá fólki í öðrum starfsstéttum. Fram- sóknarflokkur hefur áberandi mest- an stuðning meðal bænda og sjó- manna (einkum bænda), en einnig meiri stuðning meðal verkafólks en í stéttum iðnaðannanna, skrifstofu- fólks, sérfræðinga og atvinnurek- enda. Sérfræðingar, stjórnendur og atvinnurekendur styðja oftast Sjálf- stæðisflokk, en hann hefur einnig áberandi mikinn stuðning meðal iðn- aðarmanna og verkstjóra. Hins veg- ar hefur Sjálfstæðisflokkur minna fylgi meðal bænda og sjómanna, og almenns verkafólks. Þó er rétt að vekja athygli á því, að Sjálfstæðis- flokkurinn hefur meiri stuðning meðal verkafólks en nokkur einn hinna flokkanna, eða rúmlega 40%. Alþýðubandalag hefur minna fylgi meðal verkafólks, sérfræðinga og atvinnurekenda en í öðram stéttum. Þannig er staða flokksins sterkari meðal iðnaðarmanna og bænda og sjómanna en meðal verkafólks, þó ekki fái hann stóran hluta af kjós- endum úr stéttum þessum. Kvenna- listi er áberandi sterkastur meðal starfsfólks í skrifstofu- og þjónustu- störfum, sem mörg hver eru í opin- bera geiranum. í öðrum stéttum er fylgið svipað, utan sjómanna og bænda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.