Morgunblaðið - 14.11.1990, Síða 24

Morgunblaðið - 14.11.1990, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 100 kr. eintakið. Friðartímar og spennan við Persaflóa Bandaríkjastjórn , ákvað í síðustu viku að senda 100.000 fleiri hermenn til Persaflóa og breska stjórnin veltir því einnig fyrir sér að fjölga í liði sínu á þessum slóð- um. George Bush Bandaríkja- forseti hefur hvað eftir annað sagt, að hann sætti sig ekki við neitt annað en írakar hverfi með herafla sinn á brott frá Kúvæt. í ræðu í fyrrakvöld kvað Margaret Thatcher, for- sætisráðherra Breta, jafn fast að orði og Bush. Hún hét því að Kúvæt yrði leyst undan íraska hernáminu. í síðustu viku var samstaða Bandaríkja- manna og Sovétmanna í and- stöðunni við Saddam Hussein, einræðisherra í írak, enn stað- fest á fundi utanríkisráðherra landanna í Moskvu. Allar tilraunir til að koma á samningum við Saddam Huss- ein hafa runnið út í sandinn. Hugmyndum um að leiðtogar arabaríkja hittist til að ræða málið hefur verið hafnað. Á þeim 100 dögum sem liðnir eru síðan íraski herinn réðst inn í Kúvæt hafa þeir látið meira á sér bera á Vesturlöndum sem efast um réttmæti valdbeiting- ar til að frelsa landið. Fyrrum stjórnmálaleiðtogar frá Vest- urlöndum hafa farið til fundar við Hussein í Bagdad til að fá gíslum sleppt úr haldi. Aðrir segja að ekki sé réttlætanlegt að fórna mannslífum til að tryggja völd furstaættarinnar í Kúvæt og áhugi annarra þjóða á því sem þar sé að gerast stafi einkum af hagsmunum vegna olíuvinnslunnar þar. Kannanir sýna að í þeim löndum sem hafa sent mestan herafla á vettvang til að veita Hussein andspýrnu er meiri- hluti manna fylgjandi því að beitt verði valdi til að hrekja her hans frá írak. Flest bendir til þess að til valdbeitingarinnar kunni að koma innan skamms, jafnvel á næstu dögum, ef Hussein kúvendir ekki og kallar herlið sitt frá Kúvæt. Hér skal engu spáð um fram- vindu hernaðarátaka við Persa- flóa, ef þau hæfust. Það er hins vegar til marks um þverstæðu samtímans, að um það leyti sem menn biða þess í ofvæni, er kann að gerast við helstu orkulindir nútímamannsins, skuli umræðum um öryggi ís- lands beint inn á þær brautir, að nú hafi runnið upp „frið- artímarnir“, sem rætt var um þegar íslendingar gerðust aðil- ar að Atlantshafsbandalaginu 1949. Þetta hugtak bar hátt í umræðunum um varnar- og öryggismálin um miðjan sjötta áratuginn, þegar „andirin frá Genf“ var talinn boða þáttaskil í samskiptum austurs og vest- urs. Yinstri stjórn sem var mynduð hér sumarið 1956 hafði einmitt á stefnuskrá sinni að varnarliðið færi úr landi og vísaði meðal annars til „andans frá Genf“. Stjórnin hvarf frá þessum áformum sínum haust- ið 1956 og vísaði meðal annars til uppreisnar í Ungverjalandi og hernaðarátakanna vegna Súez-deilunnar. Ástæðan fyrir því, að menn tala nú um friðartíma hér á landi, er auðvitað hrun komm- únismans í Austur-Evrópu. All- ir sjá hina gífurlegu breytingu sem orðin er á árinu sem liðið er síðan Berlínarmúrinn hrundi. Nú er sagt að það muni jafnvel taka Sovétmenn nokkur ár að skipa herafla sínum þannig, að hann geti ógnað öryggi ríkjanna í Atl- antshafsbandalaginu í Mið- Evrópu. Þessi mikla breyting leiðir til endurmats á öryggis- málum og á því til hvaða ráð- stafana skuli gripið í því skyni að verja þjóðir og ríki. Með öllu er ástæðulaust að gera þvi skóna, að átök við Persaflóa myndu leiða stríðshættu yfir okkur hér á norðurhveli jarðar. Þau hefðu hins vegar mikil áhrif til dæm- is á afkomu okkar vegna hækk- unar á olíuverði. Sú hætta er ekki lengur fyrir hendi sem sumir töluðu um fyrir hinar miklu breytingar í samskiptum austurs og vesturs, að Sovét- menn myndu auka umsvif her- afla síns á norðurslóðum vegna átaka við Persaflóa. Á hinn bóginn hefur ekki verið dregið úr sovéskum herafla á Kóla- skaga við landamæri Noregs undanfarið. Hann hefur þvert á móti verið aukinn og vilja Norðmenn að Sovétmenn breyti skipan liðsafla síns þar. Undir þá kröfu eiga íslendingar að taka um leið og hugað er að framtíðarskipan íslenskra varnar- og öryggismála. Unnið við uppsetningu nýja orgelsins í Bústaðakirkju í gær. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bústaðakirkja: Vígja 31 raddar pípu- orgel við upphaf orgelárs íslenska hljómsveitin: 10. starfsár hljóm- sveitarinnar að hefjast ÍSLENSKA hljómsveitin er nú að hefja 10. starfsár sitt með átta hljóm- sveitar-, kammer- og söngtónleikum, auk eins tónvísindalegs fyrirlest- urs, og verða fyrstu tónleikarnir haldnir 18. nóvember. Þessi níu atburð- ir bera ýmsar yfirskriftir; sem gefa til kynna inntak þeirra, svo sem Söngur og hörpusláttur, Ur heimi tónvísindanna, Frá Handel til Bern- stein, Jólastemming eða París - Vín - París. Aðrir titlar eru e.t.v. torræð- ari svo sem Nýir tónalitir, Aufúsugestir úr austri, Takemitsu II eða Námur V. í BÚSTAÐAKIRKJU er þessa dagana unnið að uppsetningu þrjátíu og einnar raddar pípu- orgels. Orgelið verður vígt 2. desember næstkomandi en þann dag hefst svokallað orgelár í Bústaðasókn. I samtali við Ragn- ar Guðmundsson, formann orgel- nefndar Bústaðakirkju, kemur fram að stefnt verði að því að halda fjölbreytta tónleika í kirkj- unni á orgelárinu sem Iýkur fyrsta sunnudagi í aðventu árið 1991. í tengslum við orgelárið verður efnt til söfnunar vegna orgelkaupanna meðal sóknar- barna og annarra velunnara Bú- staðakirkju. Ragnar Guðmundsson sagði, í samtali við Morgunblaðið, að orgel- ið hefði verið pantað frá Frobenius og sonner í Danmörku fyrir tveimur árum. Orgelið átti þá áð kosta 13 milljónir og var sú upphæð til í sjóð- um kirkjunnar. „Á þeim tveimur árum sem smíðin tók hækkaði orgelið veru- lega,“ sagði Ragnar Guðmundsson. „Gengissig varð og ofan á upphæð- ina lagðist 4,5 milljóna virðisauka- skattur sem ekki fæst niðurfelldur. Endanlegt verð er því 25 milljónir króna eða 90% hækkun frá upphaf- legu verði. Þessar hækkanir færa allar fjárhagsáætlanir úr skorðum og því höfum við brugðið á það ráð að efna til fjársöfnunar innan sókn- arinnar sem felst í því að við send- um öllum sóknarbörn beiðni um aðstoð. Við ætlum líka að efna til svokallaðs orgelárs sem notað verð- ur til að kynna ýmis konar tónlist í kirkjunni, kirkjulega tónlist og létta tónlist allt niður í popp. Þá viljum opna kirkjuna fyrir fólki og nota orgelið til að efla starfið. A orgelárinu verða auk tónleika ann- ars konar uppákomur og má þar meðal annars nefna myndlistarsýn- ingu.“ Rætt um opnun erlendra verð- bréfamarkaða FÉLAG viðskipta- og hagfræð- inga efnir I dag, miðvikudag, kl. 8.00-9.30 til morgunverðarfundar um opnun erlendra verðbréfa- markaða en þeir munu opnast 15. desember nk. Fundurinn er hald- inn á Hótel Holiday Inn. Erindi á fundinum flytja þeir Gunnar Helgi Hálfdánarson, forstjóri Landsbréfa hf., og Svanbjörn Thor- oddsen, deildarstjóri verðbréfadeild- ar VÍB. Pípuorgelið, sem verður vígt í upphafi orgelárs 2. desember næst- komandi, er 31 raddar með 4.000 pípum og leysir það af hólmi 11 Málið hefur verið lagt fyrir Jafn- réttisráð til kynningar og leitar ráðið nú eftir lögfræðilegum umsögnum sem það telur nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar þegar fjallað verður um málið í næstu viku. Samkvæmt lögum um fæðingaror- „Ég hafði auðvitað, eins og flest- ar telpur, mjög gaman af alls kyns dúkkum þegar ég var lítil,“ segir listakonan þegar spurst var fyrir um áhuga hennar á brúðum. „ Við bjuggum til dúkkulísur og „býttuð- um“ okkar á milli stelpurnar," bæt- ir hún við og segir að síðan hafi liðið mörg ár þangað til hún tók upp þráðinn að nýju. Datt í hug að nota vírinn „Ég átti fimm stráka, sem léku sér mikið í nýbyggingum í hverftnu og komu heim með vasana fulla af nöglum skrúfum og vír. Dag einn, I radda orgel með 1.300 pípum sem keypt var til notkunar við messu- hald í Réttarholtsskóla og flutt í I kirkjuna þégar hún var fullbyggð. lof geta foreldrar skipt því á milli sín en fyrsta mánuðinn getur þó ein- ungis móðirin verið í orlofi. I lögum um réttindi opinberra starfsmanna er kveðið á um að mæður einar haldi fullum launum í fæðingarorlofi en hvergi er minnst á rétt feðra. þegar ég var að handleika einn af þessum vírum, datt mér í hug að hægt væri að nota vírinn í jóla- sveina sem ég gerði stundum fyrir jólin. Ég fikraði mig áfram og komst upp á lagið að móta karla úr vímum og vefja utan um þá tusku og klæða þá í föt. Mér þótti þessi aðferð gefast ágætlega enda var hægt að leika sér með karlana, láta þá standa eða sitja á sleða, eftir því sem maður vildi. Hjá Ásmundi Nokkrum árum seinna byrjaði ég á myndlistarnámskeiði hjá Asmundj í Námum V verður haldið áfram að kynna nýsamið tónverk við nýtt Ijóð og nýtt myndlistarverk um tiltek- in atburð eða atriði íslandssögunnar. Alls verða 12 slík þríþætt Námuverk og fjögur þeirra hafa þegar séð dags- ins ljós á tónleikum Islensku hljóm- sveitarinnar í apríl í vor, en alls verða frumflutt 5 íslensk verk á komandi starfsári, Ljóðskáldið og tónskáldið Toru Takemitsu verður, ásamt 11 japönsk- um flytjendum, gestur ísiensku hljómsveitarinnar á tvennum tónleik- um í marsbyijun. Allir tónleikarnir verða í Langholtskirkju og munu nemendur fá helmingsafslátt af miðaverði. Á fyrstu tónleikunum sunnudag- inn 18. nóvember verður frumfluttur á Islandi hörpukonsert Strengdans eftir Mist Þorkelsdóttur. Einleikari á hörpu er Elísabet Waage, en hún frumflutti verkið fyrir skömmu með Avanti kammersveitinni í Helsinki. Bandaríska sópransöngkonan Lynn Helding syngur Sumarnætur eftir Hector Berlioz á þessum sömu tón- leikum. Önnur verk eru Svíta eftir Poulenc og Divertissement eftir Ibert. Stjórnandi verður Örn Óskars- son. „Eg reiknaði með að fá mitt kaup eins og venjulega en síðan kom það í ljós að svo var ekki vegna þess að ég er karlmaður. Mér var vísað á aimenna tryggingakerfið þar sem ég þarf að sækja um dagpeninga en ég hef ekki sótt það eftir. Ég sendi Jafn- réttisráði ábendingu um að hér væri verið að bijóta gegn 4. grein jafn- réttislaganna," sagði Rögnvaldur. Sú grein kveður meðal annars á um að karlar og konur skuli greidd jöfn laun og njóta sambærilegra kjara fyrir sambærileg störf. í skil- greiningu laganna á kjörum er talað um lífeyris-, orlofs- og veikindarétt- indi. Sveinssyni en sá fljótt að ég hafði ekki tíma til að sinna því og hætti eftir hálft ár. 25 árum seinna kom ég aftur til Ásmundar en þá var hann orðinn svo aldraður að hann var hættur að kenna. Því benti Örn hefur nýlokið námi vestan hafs. Hann stjórnaði m.a. röð tón- leika í Mexíkó í fyrra. Viku síðar, sunnudaginn 25. nóvember, munu þær Lynn Helding og Anna Guðný Guðmundsdóttir halda tónleika undir heitinu Frá Hándel til Bernstein. í vetur munu hátt á annan tug íslepskra einleikara og einsöngvara koma fram á tónleikum íslensku hljómsveitarinnar. Fyrir tveimur árum voru stofnuð Samtök um íslensku hljómsveitina, sem nú skipa um 70 hljóðfæraleikar- ar, söngvarar, tónskáld og þrír ungir stjórnendur, sem nýlega bættust í hópinn, auk Guðmundar Emilssonar, sem hefur verið aðalstjórnandi Is- lensku hljómsveitarinnarfrá upphafi. Hver stjórnandi verður ábyrgur fyrir einum tónleikum í vetur. Fyrst Örn, síðan Guðmundur Óli Gunnars- son í janúar, þá Hákon Leifsson í febrúar og loks Guðmundur Emilsson í apríl. (Fréttatilkynning) Jólakorttil styrktar Rauða- krosshúsinu Rauðakrosshúsið, neyðarat- hvarf fyrir börn og unglinga, hefur gefið út jólakort með mynd eftir Hring Jóhannesson til styrktar starfsemi sinni. Rauðakrosshúsið er rekið á veg- um Rauða kross íslands og veitir það þrenns konar þjónustu án end- urgjalds. í fyrsta lagi er neyðarat- hvarfið opuð allan sólarhringinn, í öðru lagi ei' símaþjónusta, sem gengur undir nafninu Barna- og unglingasíminn og í þriðja lagi leita börn, unglingar og foreldrar í aukn- um mæli eftir viðtölum og ráðgjöf að degi til. Hægt er að fá jólakortin með hefðbundnum jóla- og nýarskveðj- um á eftjrtöldum tungumálum: Ensku, frönsku, þýsku og spænsku, auk íslensku. Einnig eru kortin fá- anleg án texta. Kortin kosta 80 krónur. Þá geta fyrirtæki fegnið nafn sitt áprentað fyrir neðan texta að viðbættu aukagjaldi, sem fer eftir eintakafjölda. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu RKI. hann mér á annan kennara og einn af uppáhalds nemendum sínum, Sigrúnu Guðmundsdóttir mynd- höggvara. Til hennar fót' ég. Einhvertíma þegar ég var að skoða nokkur leirhöfuð, sem ég Opinberir starfsmenn: Engin ákvæði um rétt feðra til fæðingar orlofs Faðir hefur kært til Jafnréttisráðs JAFNRÉTTISRÁÐ fjallar í næstu viku um kæru vegna fæðingarorlofs sem ráðinu hefur borist frá Rögnvaldi Símonarsyni iðjuþjálfa á Sauðár- króki. Rögnvaldur, sem er opinber starfsmaður, hefur kært það að fá ekki full laun í fæðingarorlofi, en samkvæmt kjarasamningum opin- berra starfsmanna naut hann greiðslna úr hinu almenna trygginga- kerfi sem nema um 52.000 kr. á mánuði. Engin ákvæði eru um rétt feðra til fæðingarorlofs í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfs- Islenskar þjóðlífsmyndir: Saumaði brúðarbún- ing eftir ljósmynd Á Þjóðminjasafninu stendur þessa dagana yfir sýning sem ber yfir- skriftina íslenskar þjóðlífsmyndir. Á sýningunni gefur að líta hand- gerðar brúður klæddar að sið 18. og 19. aldar fólks eftir Sigríði Kjaran listamann. Fyrirmyndirnar að brúðunum, sem sinna hinum ýmsu störfum, hefur Sigríður fengið úr ýmsum gömlum heimildum. Morgunblaðið/Sverrir Sigríður Kjaran og þrjár af brúðunum á sýningunni. Ferjuflugmaður í vandræðum Feijuflugmaður á eins hreyfils flugvél af gerðinni Cessna 182 sem skráð er í Bandaríkjunum lenti í erfiðleikum á leiðinni til íslands frá Grænlandi á mánudaginn. Um kl. 19 tilkynnti hann flugturninum í Reykjavík að gangtruflanir væru í hreyfli vélarinnar, þegar vélin var um 200 mílur út af Reykjanesi. Talið er að ísing hafi komist í blönd- ung vélarinnar. Landhelgisgæslan var í viðbragðsstöðu en engin vél gæslunnar fór þó á loft. Feijuflug- maðurinn lenti á heilu og höldnu á Reykjavíkurflugvelli um kl. 21.17 og fór því betur en á horfðist í fyrstu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tímarit Stúdentaráðs Háskóla íslands: Kjör ungs fólks nú mun lakari en fyrir 20 árum Greiðslubyrði námslána og íbúðalána margfalt meiri SAMANBURÐUR á kjörum ungs fólks í dag og fyrir 20 árum hvað varðar húsnæðismál og lánamál sýnir að greiðslubyrði ungs fólks i dag vegna þessara útgjaldaþátta er margföld miðað við það sem var á áttunda ára- tugnum. Þetta kemur fram í hafði gert, datt mér í hug hvort ekki væri hægt að gera úr þeim brúður við þjóðleg störf. Eftir að hafa fengið hugmyndina hófst ég handa og notaði aðferðina sem ég hafið áður notað við jólasveinana, náði mér í vír og tuskur og útbjó föt, verkfæri og annað sem mér þótti tilheyra. Skylt er þó að geta þess að ég gerði ekki alla hlutina hérna á sýningunni sjálf, Dóra Jóns- dóttir, gullsmiðui', smíðaði kvensil- frið á búningana og Andrés B. Helgason, bóndi og smiður, smíðaði innanstokksmuni og amboð að und- anteknum hrífum sem Kristján Sig- urðsson módelsmiður smíðaði. Vin- kona mín, Soffía Þórarinsdóttir, kenndi mér að sauma blómsturs- sauminn á brúðarbúningnum sem hér er á sýningunni. Hann gerði ég eftir mynd sem við hjónin tókum af búningnum í safni Viktoríu og Alberts í London. Búninginn keypti enskur grasafræðingur William Jackson Hooker að nafni á íslandi árið 1809. Sýning Sigríðar stendur yfir í Þjóðminjasafninu fram í fébrúar. Safnið er opið sunnudaga, þriðju- daga, fimmtudaga og laugardaga milli klukkan 11.00 og 16.00. Að- gangur er ókeypis. grein í Háskólanum/Stúdenta- fréttum, _ tímariti Stúdentaráðs Háskóla Islands um niðurstöður skýrslu, sem unnin var fyrir stjórn Stúdentaráðs uin þetta efni. í skýrslunni, sem greinin byggir á, segir að borin hafi verið saman íbúðakaup og endurgreiðsla náms- lána tveggja dæmigerðra nýútskrif- aðra háskólamanna. Annar ræðst í íbúðakaup á miðju ári 1972 og hinn á miðju ári 1990.'Gert var ráð fyr- ir að þeir hefðu um það bil tveggja ára starfsreynslu og valdir voru verkfræðingar, þar sem upplýsing- ar um þá stétt manna reyndust vera handhægastar, segir I skýrsl- unni. í greininni segir um niðurstöður, að námslán sem tekin voru á árun- um 1967 til 1975 hafi borið 5% vexti og verið óverðtryggð. Endur- greiðslur hófust fimm árum eftir námslok og stóðu í 15 ár. „Verð- bólga á síðasta áratug var lengst af á bilinu 30-50% en verðlag hefur á árunum 1970 til 1990 350-fald- ast. Námslánin voru því hrein gjöf hér áður fyrr, þar sem þau brunnu hreinlega upp í óðaverðbólgu," seg- ir í greininni. Til samanburðar er sagt að í dag séu námslán að fullu verðtryggð, endurgreiðslur hefjist þremur árum eftir námslok og standi í 40 ár, áætlað sé að um 90% af veittum lánum endurgreiðist og flestir greiði 5-6% af launum sínum eftir skatta í afborganir, eða 3,75% af útsvars- stofni. Tekið ér dæmi af íbúðakaupum og er reiknað með að um samsvar- andi íbúðir sé að ræða, að verð- mæti sex milljónir króna á núvirði. Tekið er tillit til allra þátta sem hafa áhrif á greiðslubyrði eins og vaxtabóta og launa. 1 Báðum tilvik- um leggja íbúðakaupendur fram 20% eigið fé við kaupin. Fram kem- ur að ári eftir fyrri kaupin, það er 1973, er nettó eign orðin 36,1% og greiðslubyrðin 18%. Sjö árum eftir kaupin er nettó eign orðin 95,2% oggreiðslubyrðin 2,9% af launum. I síðara dæminu er nettó eign 24,2% ári eftir kaup, það er 1991, og greiðslubyrðin er 23,8% af laun- um. Sjö árum eftir kaup er nettó eignin 45,2% og greiðslubyrðin 12,9% af launum. „Ljóst er að ungi maðurinn sem keypti sér íbúð 1972 hefur eignast sína sex milljón króna íbúð nánast alla að sjö árum liðnum og greiðslubyrðin er orðin nánast engin. Greiðslubyrðin er reyndar ekki svo erfið allan tímann þar sem verðbólgan sér um að éta upp lán- ið,“ segir í greininni. Stúdentafréttir hafa eftir Sigur- jóni Þ. Árnasyni formanni Stúd- entaráðs að námsmenn séu oft gagnrýndir fyrir að vera heimtu- frekir og vilja fá allt upp í hendurn- ar. „Það er ekki óeðlilegt að gagn- rýnisraddir heyrist, en í flestum til- fellum byggja þær á misskilningi enda er það svo að þeir sem gagn- rýna ungt fólk hvað mest voru sjálf- ir ungir á árunum 1965-1980. Sú kynslóð er einmitt talin hafa fengið allt rétt upp í hendurnar, eytt eigin fjármunum og sparifé kynslóðanna á undan og skilið eftir tóma og skulduga sjóði handa komandi kyn- slóð, það er að segja okkur,“ segir Sigurjón.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.