Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990 27 Ketti misþyrmt og sálgað ÓKUNNUR maður misþyrmdi og dagsins. Kötturinn, sem var þriggja ára gömul læða, heimilisköttur, var utan við heimiji sitt, fjölbýlishúsið Austur- berg 6. Á laugardagsmorgun fundu eigendur kattarins hann dauðan við austurgafl hússins, þar sem skammt frá liggur göngustígur milli Austur- bergs og Keilufells. Virðist kötturinn hafa verið króaður af, tekinn upp og höfði hans slegið ítrekað utan í drap í Breiðholti aðfaranótt laugar- vegg á austurgafli hússins. Síðast sást til -kattarins laust fyr- ir klukkan þijú aðfranótt laugar- dagsins og amaði þá ekkert að hon- um. Skorað er á þá sem búa yfir upplýsingum um misþyrmingarnar á dýrinu að hafa samband við rann- sóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 13. nóvember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 104,00 73,00 92,48 21,075 1.949,168 Þorskur(óst) 98,00 72,00 87,10 7,639 . 665.342 Ýsa 99,00 72,00 96,07 17,591 1.690.031 Ýsa (ósl.) 88,00 50,00 82,83 3,474 287.752 Þorskurst. 117,00 117,00 117,00 0,085 9.945 Bland sv. 49,00 49,00 49,00 0,061 2.989 Ufsi/ósl. 20,00 20,00 20,00 0,319 6.390 Þorskurst. 114,00 97,00 108,78 1,209 131.519 Ufsi 45,00 20,00 43,23 1,458 63.053 Langa 50,00 50,00 50,00 1,313 65.677 Keila 37,00 37,00 37,00 0,102 3.797 Karfi 47,00 47,00 47,00 5,716 268.652 Lýsa ósl. 22,00 22,00 22,00 0,125 2.750 Langaósl. 43,00 43,00 43,00 0,202 8.708 Smáþorsk. ósl. 30,00 30,00 30,00 0,416 12.480 Smáþorskur 77,00 39,00 55,74 3,474 193.626 Steinþítur 65,00 59,00 59,27 0,587 34.841 Koli 65,00 50,00 50,86 1,031 52.442 Steinb. ósl. 60,00 49,00 50,11 0,129 6.464 Lúða 455,00 240,00 286,78 0,874 250.645 Keila ósl. 22,00 19,00 19,77 529 10,456 Samtals 84,80 67,413 5.716,727 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur Þorskur (ósl.) 110,00 72,00 91,96 2,614 240.395 Ýsa 106,00 68,00 95,12 15,536 1.477.897 Ýsa (ósl.) 91,00 68.00 75,65 3,527 266.822 Blandað 50,00 10,00 20,78 0,972 20.200 Grálúða 54,00 54,00 58,17 14,906 887.121 Hnýsa 20,00 20,00 20,00 0,049 980 Karfi 48,00 48,00 47,05 0,852 40.088 Keila 32,00 28,00 29,05 2,233 64.879 Langa 73,00 28,00 52,50 7,400 392.992 Lúða 410,00 185,00 225,81 1,605 383.325 Lýsa 14,00 10,00 13,19 1,217 16.047 Skata 100,00 100,00 100,00 0,09 0 9.000 Skarkoli 54,00 20,00 49,91 4,765 237.810,00 Skötuselur 140,00 140,00 140,00 10 1.400 Steinbítur 60,00 57,00 57,24 6,147 351.883 Tindabikkja 10,00 10,00 10,00 0,055 550 Ufsi 57,00 48,00 48,00 11,883 575.131 Undirm.fiskur 47,00 20,00 33,94 7,761 263.445,00 Samtals 75,19 131,619 9.896.712 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 126,00 50,00 88,28 16,981 1.499,251 Ýsa 111,00 59,00 100,60 1,815 182.595 Karfi 50,00 43,00 44,74 1,345 60,180 Ufsi 55,00 20,00 39,14 4,116 181,117 Steinbitur 48,00 40,00 45,70 0,167 7.632 Hlýri 48,00 48,00 48,00 0,034 1.632 Langa 56,00 15,00 41,14 1,871 76.982 Lúða 455,00 255,00 357,64 0,334 119.452 Koli 75,00 75,00 75,00 0,292 21.900 Skötuselur 157,00 157,00 157,00 0,025 3.925 Undirm.fiskur 51,00 51,00 51,00 0,022 1.122 Lax 114,00 110,00 111,64 0,073 8.150 Bleikja 104,00 104,00 104,00 0,049 5.096 Blandað 20,00 20,00 20,00 0,153 3.060 Lýsa 20,00 10,00 12,89 0,045 580 Keila 26,00 14,00 21,10 0,463 9.770 Gellur 270,00 270,00 270,00 0,011 2.970 Samtals 77,90 27,796 2.165.414 Selt var úr Búrfelli og dagróðrabátum í dag verða meðal annars selt úr | Skarfi og dagróðrabátum. Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síöustu tíu vikur, 3. sept. -12. nóv., dollarar hvert tonn GASOLÍA 425" 350" 325 1 lÁHf' “ J 5 U þZ__302/ V 299 200- 175“ 150“ I I 1—I----1—I---1—I----1—I---H- 7.S 14. 21. 28. 5.0 12. 19. 26. 2.N 9. Morgunblaðið/Steinunn Bastian bæjarfógeti, Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, ásamt nokkr- um af ieikurum í Kardemommubænum. Hvolsvöllur: Leikfélag Rangæinga frum- sýnir Kardemommubæinn Hvolsvelli. LEIKFÉLAG Rangæinga mun frumsýna þann 17. nóvember næst- komandi hið víðfræga leikrit Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Að sögn Gróu Sigurbjörnsdóttur formanns félagsins er hér um mjög viðamikla sýningu að ræða. Alls vinna 45 manns við að setja hana upp. Leikararnir eru alls 35, þar af eru 18 börn. Blaðberi týndi rukkunarhefti BLAÐBERI Morgunblaðsins tapaði rukkunarhefti í Mosfells- bæ á laugardagskvöld. Blaðberinn telur sig hafa glatað heftinu í námunda við lögreglustöð- ina í Þverholti í Mosfeilsbæ. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að snúa sér til skrifstofu Morg- unblaðsins, Aðalstræti 6 í Reykjavík. ■ RÁÐSTEFNA verður haldin á fimmtudag og föstuöag í þessari viku í Borgartúni 6 í Reykjavík um fráveitur og sorp. Ráðstefnan er haldin af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Lagnafélagi Is- lands og Hollustuvernd ríkisins í samvinnu við Samtök tæknimanna sveitarfélaga og umhverfisráðu- neytið. Hátt á annað hundrað þátt- takendur liafa látið skrá sig á ráð- stefnuna. Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður sorp- og endur- vinnslunefndar umhverfisráðuneyt- isins og gerð grein fyrir ástandi í sorp- og fráveitumálum hjá sveitar- félögum um land allt, sérstaklega á liöfuðborgarsvæðinu. I framsöguer- indum og í umræðuhópum verða síðan ræddar leiðir til að koma þess- um málum í viðhlítandi horf. Selfoss: Um leikstjórn sjá þau Elfar Bjarnason og Ingunn Egilsdóttir. Þau eru menntaðir leiklistarfræð- ingar frá Rocford College í Illino- is. Elfar sér einnig um lýsingu og leikmyndina og hafa þau unn- ið í sameiningu. Stefán P. Þor- bergsson frá Reykjavík sér um tóniistina. Flestir leikaranna erti frá Hellu og Hvolsvelli en einn leikarinn kemur alla leið úr Árnes- sýslu, sjálfur Bastían bæjarfógeti en hann er í hversdagslífinu skóla- stjóri á Þingborg og heitir Sigur- geir Hilmar Friðþjófsson. Hann tekur auk þess þátt í tveimur öðrum—eýningum á Selfossi um þessar mundir. Húsnæðið sem leikfélagið sýnir í var áður saumastofa í eigu Kaup- félags Rangæinga. Leikfélagið fær það að láni endurgjaldslaust og er það að sögn Gróu ómetan- legt fyrir félagið. Nemendur grunnskólanna á Hellu og Hvolsvelli erm nú að teikna myndir sem prýða munu anddyri leikhússins. Þeir félagar, Kasper, Jesper og Jónatan, hafa heimsótt yngstu borgarana á leik- skólum þorpanna. Vöktu þeir að vonum mikla hrifningu enda komu þeir færandi hendi. Sýningar á leikritinu eru fyrir- hugaðar fram í miðjan desember og síðan eftir áramót verði aðsókn næg. - S.O.K. Lenti fyrir bíl og lærbrotnaði ÁTTA ára gamalt barn varð fyrir bíl á mánudagskvöld með þeim afleiðingum að það Iær- brotnaði. Barnið var flutt á Landspítalann í Reykjavík. Slysið varð að Láengi inni í miðju íbúðahverfi. Barnið tók skyndilega á rás út á götuna og lenti á bílnum. Slysið várð um kl. 20, en að sögn lögreglunnar á Selfossi er mikið um að börn séu að leik við götuna. Formenn framsóknarfélaganna í Reykjavík:. Fullkomlega löglega stað- ið að skoðanakönnuninni FORMENN framsóknarfélaganna í Reykjavík eru sammála um að löglega hafi verið staðið að skoð- anakönnun félaganna um val á frambjóðendum Framsóknar- flokksins í Reykjavík, en Guð- mundur G. Þórarinsson, sem lenti þar í 2. sæti hefur lýst því yfir að skoðanakönnunin hafi verið aðför að sér og hann muni freista þess að fá hana ógilta. „Ég veit ekki annað en þetta hafi allt farið fram með eðlilegum hætti, en að öðru leyti finnst mér verið komið nóg af yfirlýsingum og ætla ekki að bæta neinu þar við,“ sagði Alfreð Þorsteinsson, formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur. Anna Margrét Valgeirsdóttir, formaður Félags ungra framsóknar- manna, sagði að hjá FUF hefði ver- ið staðið að tilnefningu fólks í full- trúaráðið á fullkomlega löglegan ■ FÉLAG áhugamanna um bók- menntir og Grikklandsvinafélagið gangast fyrir bókmenntadagskrá í Norræna húsinu í kvöld, miðviku- dagskvöld, kl. 20.30. Þar mun Helgi Hálfdanarson lesa upp úr nýút- komnum þýðingum sínum á grískum harmleikjum en erindi um harmleik- ina halda Kristján Árnason, Sig- urður A. Magnússon og Jón Proppé. Inga Bjarnason leikstjóri segir frá uppfærslu Alþýðuleik- hússins á Medeu auk þess sem sýnt verður atriði úr henni. hátt. Listi yfir það hefði legið frammi í tvær vikur fyrir aðalfund félagsins þar sem hann var samþykktur, og liver sem er hefði getað kynnt sér hann. „Guðmundur segist ekki hafa séð þetta fólk á fundum og ég er ekki hissa á því, þar sem ég hef heldur ekki séð Guðmund G. Þórar- insson á fundum hjá okkur. Hann er ekki sá maður sem hefur stutt okkur í okkar starfi, því miður. Kannski er það að koma í Ijós núna að við höfum ekki notið hans stuðn- ings við, og þar af leiðandi nýtur hann auðvitað ekki okkar stuðnings á móti.“ Alls tóku 130 flokksmenn þátt í forvalinu, og hlutu Margrét og Ragnar á milli 80-90% tilnefning- anna. Aðrir voru mun neðar og dreif- ingin á menn ekki marktæk, að sögn Hilmars Gunnarssonar, formanns kjördæmisráðs. Sigrún Sturludóttir, formaður Félags framsóknarkvenna, sagði hún sæi ekki hvernig hægt væri að hnekkja þeim reglum sem settar voru um skoðanakönnunina á á mjög fjölmennum fulltrúaráðsfundi allra félaganna. „Maður harmar það að svona eftirmálar skuli koma. Ef þetta mál berst okkur þá munum við ljalla um það og afgreiða, en ég vona að ekki komi til þess. Þetta eru reglur sem við samþykktum og við erum vön að fara eftir því sem við erum búin að samþykkja, en ekki að hlaupa upp til handa og 'fóta út af hveiju sem er.“ Hann sagði að seinni umferð forv- alsins væri áætluð 23. og 24. nóv- ember, og stefnt væri að því að fund- ur yrði í kjördæmisráði þann 25. þar sem endanlega yrði gengið frá röðun á framboðslistann. Forval Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi: Margrét og Ragnar með 90% tilnefninga MARGRÉT Frímannsdóttir alþingismaður og Ragnar Oskarsson frá Vestmannaeyjum voru með yfirgnæfandi fjölda tilnefninga eftir fyrri umferð forvals Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.