Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990 Vandi byggingarsjóðs ríkisins eftir Kristínu ■ Einarsdóttur Árið 1986 gengu í gildi ný lög um Húsnæðisstofnun ríkisins. Aðal- breytingin frá fyrri lögum varð sú að fólk varð að hafa verið í lífeyris- sjóði í ákveðinn tíma til að eiga rétt á láni. Einnig var tryggð fjár- mögnun kerfisins þar sem lífeyris- sjóðirnir skuldbundu sig til að lána Húsnæðisstofnun hluta af því fé sem þeir höfðu til ráðstöfunar. Húsnæðisstofnun lánaði síðan hús- byggjendum og kaupendum pening- ana sem hún fékk hjá lífeyrissjóðun- um. Aðalgallinn við þetta kerfi var sá að Húsnæðisstofnun þurfti að greiða 6-7% vexti af lánsfénu frá lífeyrissjóðunum en lánaði það hús- næðiskaupendum með 3,5% vöxt- um. Það sjá auðvitað allir að þetta gengur ekki upp nema einhver greiði mismuninn eða vaxtamuninn eins og það hefur verið kallað. Strax og þetta kerfi var lögleitt bentu Kvennalistakonur á að til þess að þetta kerfi gengi upp þyrfti að koma fé úr ríkissjóði sem næmi vaxtamuninum ef vextir lækkuðu ekki á lánamarkaðinum. Því miður hafa vextir fremur hækk- að en lækkað og ríkissjóður hefur ekki lagt fé til Byggingasjóðanna sem nægir fyrir vaxtamuninum. Gjaldþrot blasir við Það ætti því ekki að koma nein- um á óvart sú niðurstaða sem Ríkis- endurskoðun kemst að og birtist í skýrslu í september síðastliðnum að þó svo að allri útlánastarfsemi yrði hætt nú þegar, yrðu sjóðir Húsnæðisstofnunar gengnir til þurrðar. Fé Byggingarsjóðs ríkisins eftir 15 ár og Byggingarsjóðs verk- amanna eftir 11 ár. í skýrslu Ríkis- endurskoðunar kemur einnig fram að hætti sjóðirnir útlánastarfsemi sinni strax jafnframt því sem fram- lög ríkissjóðs féllu niður, þyrfti í árslok 2028 að ieggja þeim til 62 milljarða króna til að gera upp skuldir við lánardrottna. Haldi sjóð- irnir áfram óbreyttri starfsemi þarf 2-2,5 milljarða á ári úr ríkissjóði til að halda óbreyttri stefnu en þá er miðað við að ný lán beri 4,5% vexti og að þau lán sem Húsnæðis- stofnun tekur beri 6% vexti. Árlegt framlag ríkisins til Byggingarsjóðs- ins þyrfti að vera um milljarður næstu árin ef sjóðurinn á að geta staðið undir skuldbindingum sínum. Hvað er til ráða? Það er augljóst að þegar svo er komið fyrir sjóðum Húsnæðisstofn- unar ríkisins, verður eitthvað að gera. Margar leiðir hafa verið nefndar í þessu sambandi. Allir SIEMENS -gæði TRAUSTUR OG AFKASTAMIKILL ÞURRKARIFRÁ SIEMENS íslenskar fjölskyldur í þúsundatali telja SIEMENS þvottavélar og þurrkara ómissandi þægindi. Þú getur . alltaf reitt þig á SIEMENS. WT 33001 Þurrkar mjög hljóðlega. Tromla snýst til skiptis réttsælis og rangsælis. Tímaval upp í 140 mínútur. Hlífðarhnappur fyrir viðkvæman þvott. Tekur mest 5 kg af þvotti. Verd kr. 50.500,- Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið. SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 MERUN GERIN NEYÐARSPENNUGJAFAR FYRIR TÖLVUR OG TÖLVUKERFI Stærðir: 250VA - 4800kVA Getum einnig útvegað með stuttum fyrirvara: - Spennujafnara (Line Conditioner) - Spennusíur (Filters) MERLIN GERIN býður vönduð og nákvæm tæki, þar sem öryggi er í fyrirrúmi. VOLTI Vatnagörðum 10 Símar 685854, 685855. hljóta að vera því sammála að ekki er hægt að hækka vexti sérstaklega á þeim sem eru að fá ný lán til að greiða niður vexti fyrir þá sem fengu lán hér áður fyrr. Ekki getur það heldur talist lausn að ýta vand- anum fram til aldamóta og láta þá sem á eftir koma glíma við vand- ann. Það er leið sem hingað til hef- ur verið valin en verður að teljast í fyllst máta óeðlileg. Aukið framlag ríkissjóðs er einn- ig lausn. Það er auðvitað alltaf matsatriði hvernig á að veija skatt- peningunum. Ég tel að aðstoð ríkis- sjóðs við húsbyggjendur eigi fyrst og fremst að vera til þeirra sem eru tekju- og eignaminni, en ekki jafnt til allra, líka þeirra sem meira mega sín. Sú leið sem mest hefur verið tal- að um undanfarna daga er að hækka vexti á lánum sem tekin hafa verið hjá Húsnæðisstofnun rík- isins eftir 1. júlí 1984 og hafa borið 3,5% vexti. Margir hafa skilið þetta svo að þeir sem eru með göm- ul lán fengju reikning uppá ógreidda vexti mörg ár aftur í tím- ann. Það er misskilningur. Þetta myndi þýða að þeir sem eru með slík lán þyrftu að greiða hærri vexti frá og með næstu afborgun. Breytilegir vextir Ástæðan fyrir því að talað er um 1. júlí 1984 er sú að frá þeim tíma hefur staðið í skuldabréfum sem fólk skrifar undir þegar það fékk lán hjá Húsnæðisstofnun, að vextir séu breytilegir á lánstímanum. Þess vegna hefði fólk átt að reikna með því að vextir gætu breyst á lánstím- anum. Fyrir árið 1984 var ákveðið í lögum hver vaxtaprósentan væri og er það mat sérfróðra að ekki sé hægt að breyta vöxtum á þeim lán- um. Árið 1986 voru þau lán sem fólk gat fengið hjá Húsnæðisstofn- un hækkuð verulega. Lán til ný- Kristín Einarsdóttir „ Yið lausn á vandanum verður að gæta þess að taka tillit til allra þátta málsins en taka ekki ákvarðanir sem aug- ljóslega ganga ekki upp, hvorki fyrir fjöl- skyldurnar í landinu né fyrir ríkissjóð.“ bygginga tvöfölduðust og til kaupa á eldri íbúðum þre- til fjórfölduð- ust. Stærsti bagginn er því væntan- lega vegna lána tekinna 1986 og síðar. Vaxtabætur í stað niðurgreiddra vaxta Greiðslubyrði eykst auðvitað hjá þeim sem þurfa að greiða hærri vexti. Um síðustu áramót var tekið upp s.k. vaxtabótakerfí. Það miðast við að fólk sem greiðir vexti af lán- um til íbúðarkaupa fær vaxtabætur úr ríkissjóði sem miðast við tekjur og eignir. Þeir sem eru með meðal- tekjur og lægri ættu því að geta fengið dijúgan hluta af aukinni vaxtabyrði bættan. Þeir sem eru með hærri tekjur og eiga miklar eignir fá þá væntanlega minna eða ekkert. Þetta þarf að taka með í reikninginn þegar meta á hvemig breyting á vöxtum kemur út fyrir einstaka lántakendur. Lög um greiðslujöfnun Nú er komið í ljós að lög sem kveða á um að greiðslubyrði af lán- um til íbúðakaupa þyngist ekki, m.a. vegna hækkunar vaxta, gera það að verkum að ekki er hægt að breyta vöxtum eins og gert var ráð fyrir. Er því verið að athuga þann möguleika að lán fylgi ekki íbúðum eins og nú er heldur þurfí þeir sem selja að greiða upp sín lán. Kaup- endur þurfa þá að taka lán með þeim kjörum sem bjóðast á hveijum tíma en yfírtaka ekki lán frá fyrri eiganda. Þetta hefur ekki þótt fær leið hingað til þegar Kvennalista- konur hafa bent á hana en e.t.v. er hún fær nú þegar einhver annar stingur uppá henni. Vandann verður að leysa Kjarni málsins er að vandann verður að leysa. Það hljóta ailir að sjá að ekki er hægt að láta sem ekkert sé. Það er auðvitað hægt að stinga höfðinu í sandinn eins og strúturinn og vona að vandamálið sé horfið þegar höfuðið er dregið upp aftur. Þannig er ekki hægt að vinna. Við lausn á vandanum verður að gæta þess að taka tillit til allra þátta málsins en taka ekki ákvarð- anir sem augljóslega ganga ekki upp, hvorki fyrir fjölskyldurnar í landinu né fyrir ríkissjóð. Höfundur er þingmaður fyrir Kvennalistann í Reykjavík. Greining olíukostnaðar fiskiskipa eftir Benedikt Valsson í síðasta sérblaði Morgunblaðsins „Úr verinu“ er haft eftir Sveini Hirti Hjartarsyni, hagfræðingi LÍÚ, að hlutfall olíukostnaðar í rekstrar- kostnaði togara sé um þessar mund- ir um 13,8% og eigi eftir að hækka í 19,3%. Vð þessa talnagreiningu er nauðsynlegt að koma nokkrum athugasemdum á framfæri. Þegar staða fyrirtækja eða at- vinnugreina er skýrð eru gjarnan notaðar svokallaðar kennitölur eins og hér að framan greinir. Kennitala um olíukostnað fískiskipa getur verið með ýmsum hætti. Ef gengið er út frá síðustu verðhækkun Verð- lagsstofnunar á gasolíu er mögu- leiki á eftirfarandi kennitölum fyrir olíukostnað togara minni en 500 brl.: „Samkvæmt upplýsing- um frá Fiskifélagi ís- lands voru u.þ.b. 20 tog- arar með svartolíu- brennslu um síðustu áramót. Þessi vitneskja skiptir verulegu máli, þar sem gasolía hefur hækkað mun meira en svartolía.“ Olíukostnaður sem hlutfall af breytil. heildar- rekstrar- rekstrar- tekjum kostnaði kostnaði 10,6% 13,8% 11,2% ★ Pitney Bowes Frímerkjavélar og stimpilvélar Vélar til póstpökkunar o. fl. OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 9 -105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 I4ÝTT esn^ (Heimild: Þjóðhagsstofnun.) Af þessum tölum að dæma er augljóst að Sveinn Hjörtur hefur valið hæstu kennitöluna. Hvað snertir hækkun kennitölu olíukostnaðar togara í 19,3% af breytilegum rekstrarkostnaði samkvæmt áætlun Sveins Hjartar þarf olíuverð að hækka um 50% á næstunni til viðbótar þeirri 40% hækkun á gasolíu, sem varð um síðustu mánaðamót. Ekki nóg með það, þá verður annar breytilegur kostnaður í útgerðarrekstri að vera óbreyttur í verði til að tryggja að umrædd kennitala upp á 19,3% standist. Að lokum má geta þess, að fram- angreindar hækkanir á olíuverði eru miðaðar við gasolíu. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskifélagi íslands voru u.þ.b. 20 togarar með svart- olíubrennslu um síðustu áramót. Þessi vitneskja skiptir verulegu máli, þar sem gasolía hefur hækkað mun meira en svartolía. Þetta leiðir til þess, að olíukostnaður togara í rekstraráætlunum Þjóðhagsstofn- unar hér að framan er ofmetinn. Höfundur er framkvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasambands íslands. Kynning- á stjörnum og stj örnumer kj um Náttúrufræðistofa Kópavogs og Náttúruverndarfélag Suð- vesturlands standa fyrir kynn- ingu fimmtudaginn 15. nóvember kl. 20.30 til að auðvelda byrjend- um að þekkja stjörnur og stjörnumerki. Kynningin verður undir leiðsögn stjörnufróðra manna í Náttúru- . fræðistofu Kópavogs, Digranesvegi 12, niðri. Öllum er heimil þátttaka og er ekkert þátttökugjald. f sambandi við kynninguna verð- ur boðið upp á stjörnuskoðunarferð einhver næstu kvöld þegar vel sést til stjarnanna. Seinna verður einnig boðið uppá skoðunarferð í Stjörnu- athugunarstöð Stjömuskoðunarfé- lagsins, en stöðin er staðsett í Val- húsaskóla á Seitjamarnesi. Tilgangur kynningarinnar og ferðanna er að vekja athygli á hve skemmtilegt getur verið á haust- og vetrarkvöldum að virða fyrir sér stjörnurnar og stjörnumerkin á himinhvolfinu auk pláneta, tungls og norðurljósa. Þá er tilgangur ferðanna einnig að minna á að gegnsæi lofthjúpsins yfír íslandi er oftast mikið og sjálf- sagt að kynna það fyrir öðrum þjóð- um sem lítið gegnsæi hafa vegna mikillar loftmengunar. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.