Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990
31
Leikskólalög fyrir hverja?
eftir Kristínu
Dýrfjörð
Síðastliðið vor var lagt fram á
Alþingi frumvarp til laga um leik-
skóla og annað um félagsþjónustu
sveitarfélaga. Bæði þessi frumvörp
voru langþráð og út af fyrir sig
mikill áfangi. Málefni dagvistar-
heimila/leikskóla hafa hingað til
heyrt undir menntamálaráðuneytið
og er það skýlaus krafa okkar
fóstra að svo verði áfram. Málum
er svo háttað í dag að réttur okkar
fóstra til starfa á dagvistarheimil-
um/leikskólum er mjög vel tryggður
í lögum nr. 112/1976 um byggingu
og rekstur dagvistarheimila. Við
gerð verkaskiptalaganna var ákveð-
ið að stofnkostnaður dagvistar-
heimila/leikskóla yrði alfarið í
höndum sveitarfélaga en áður
greiddi ríkið 50% í stofnkostnaði.
Efiaust spyija margir fyrir
hveija er þá verið að búa til ný lög
um leikskóla, ef réttur fóstra er
tryggður í gömlu lögunum og skyld-
ur sveitarstjórnanna í lögunum um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga. Jú, lesandi góður, lögin eru
gerð fyrir þá sem mestu máli
skipta, börrtin. Lögin íjalla nefni-
lega um það að öll börn eigi jafnan
rétt. Rétt til að njóta ákveðinnar
Kristín Dýrfjörð
kennslu. Lögin fjalla um það að
starfsemi dagvistardeilda/leikskóla
sé og eigi að vera viðbót við það
uppeldi sem foreldrarnir veita. Leik-
skólanum hefur aldrei verið ætlað
það hlutverk að vera aðal uppalandi
bamanna heldur fyrst og fremst
viðbót og stuðningur við uppeldi
foreldranna.
Við fóstrur höfum ávallt skil-
greint okkur sem kennara yngstu
barnanna. Við teljum störf okkar
sambærilegust störfum kennara,
við eigum aðild að alþjóðasamtök-
um kennara (WCOTP). Við sinnum
ákveðinni kennslu þó ekki sé hún
í formi algebru-formúlu. Við teljum
okkar mál tilheyra menntamálaráð-
unejdi, ráðuneyti kennslumála þar
sem þau hafa hingað til verið.
Síðastliðið haust afhentum við
Steingrími Hermannssyni forsætis-
ráðherra 1.822 undirskriftir fóstra
og annarra starfsmanna leikskóla/
dagvistarheimila þar sem við skor-
uðum á að okkar málaflokkur yrði
hér eftir sem hingað til í einu ráðu-
neyti, ráðuneyti menntamála. Að
setja málaflokkinn undir tvö ráðu-
neyti eins og nú er í bígerð hljóta
að teljast stjórnunarleg mistök á
sama tíma og hagræðing og einföld-
un í stjórnsýslu eru kjörorðin.
Stjórnmálamenn sem virða að
vettugi skoðanir heillar stéttar í
þeim málum sem skipta hana einna
mest, málum sem hingað til hafa
næstum verið talin einkamál henn-
ar, þ.e.a.s. velferð og menntun
yngstu barnanna. Ég spyr hvaða
ankannalegu sjónarmið liggja þar
að baki?
Höfundur er fóstra og 1. fulltrúi
Reykjavíkurdeildar Fóstrufélags
íslands.
Maður í glerhúsi ætti
ekki að grýta grjóti
eftirJónÁ.
Gissurarson
Þann 4. nóv. sl. gagmýnir Ingvi
Hrafn Jónsson í Morgunblaðinu við-
brögð Ijölmiðla til prófkjörs Sjálf-
stæðisflokks um síðustu mánaða-
mót. Stöð 2 fær harðan dóm vegna
samtalsþáttar við Friðrik Soph-
usson réttri viku fyrir prófkjör.
Stöð 2 er einkafyrirtæki. Tekjur
eru eingöngu áskriftargjöld og
greiðsla auglýsinga. Keppikefli
verður því að ná athygli sem flestra
svo sem með samtalsþáttum í létt-
um dúr við frammámenn hveiju
sinni. Fyrsti þingmaður Reykjavík-
ur hlýtur að teljast í þeirra hópi.
Þótt tímasetning þáttar Friðriks
Sophussonar orki tvímælis, finnst
mér fýrst kasta tólfunum að Ingvi
Hrafn skuli gerast siðameistari í
slíku máli vegna eigin framferðis
við ekki ólíkar aðstæður.
Fyrir réttum fjórum árum var
þáverandi fyrsti þingmaður Reykja-
víkur, Albert Guðmundsson, kvadd-
ur til viðtals í Ríkissjónvarpinu með
óvenjulegum hætti. Ekki hafði at-
riði þetta verið auglýst, aðrir þætt-
ir rugluðust eða hurfu með öllu.
Ingvi Hrafn var dagskrárstjóri og
stjórnaði þætti þessum. Albert
hafði talið þann kost vænstan að.
segja lausu embætti íjármálaráð-
herra, kosningar til alþingis á
næsta leiti og Albert í framboði.
Engin dægrastytting var þetta á
borð við þátt Friðriks Sophussonar.
Albert rakti raunir sínar, taldi sig
saklausan hafa orðið fyrir aðkasti
vondra manna, en Ingvi Hrafn
spurði af mikilli samúð og „mjúk-
lega“.
Ríkissjónvarpið er opinber stofn-
un sem fær megintekjur með skatt-
heimtu af öllum sem sjónvarpstæki
eiga. Skýr lög kveða því á um sam-
Jón Á. Gissurarson
skipti þess við þá sem í kjöri eru
til alþingis svo að fyllsta jafnréttis
sé gætt. Þessi lög virti Ingvi Hrafn
að vettugi og brást trúnaði í starfi.
Hann er því manna vanhæfastur
að hafa siðbætandi áhrif á ijölmiðla.
Höfundur er fyrrverandi
skólastjóri Gagnfræðaskóla
Austurbæjar.
Keilusaturi
)LABAN
Piannja þakstál
Aðrir helstu sölu- og
þjónustuaðilar:
Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi,
sími 78733.
Blikkrás hf, Akureyri,
Sími 96-26524.
Hjá okkur færðu allar
nýjusfu gerðir hins vinsæla
og vandaða þakstáls
frá Plannja. Urval lita
og mynstra, m.a Plannja
þakstál með mattri litaáferð,
svartri eða tígulrauðri.
Vélaverkstæði Bjöms og Kristjáns,
Reyðarfirði, sími 97-41271.
Vélaverkstæðið Þór,
Vestmannaeyjum, slmi 98-12111
ÍSVÖR HF.
Dalvegur 20. 200 Kópavogur. x
Póstbox 435. 202 Kópavogur. <
S: 91-64 12 55. Fax:64 1266. >
STEIKAR-
TILBOÐ
miðvikudag, fimmtudag, föstudag
N AUTAGRILLSTEIK
M. ÖLLU
kr. 695.-
SIEMENS
Litlu raftœkin frá SIEMENS gleðja
augað og eru afbragðs jólagjaflr!
Ikaffivélar
hrærivélar
brauðristar
|| vöfflujárn
strokjárn
handþeytarar
eggjaseyðar
dj úp steikingarpottar
hraðsuðukönnur
dósahnífar
áleggshnífar
kornkvamir
,j-aclette“-tæki
veggklukkur
vekjararklukkur
rakatæki
bílryksugur
handryksugur
blástursofnar
hitapúðar
hitateppi o.m.fl.
Lítiö inn til okkar og skoöiö vönduö tœki.
Muniö umboðsmenn okkar víös vegar um landið!
SVÍNAGRILLSTEIK
M. ÖLLU
kr. 550
w