Morgunblaðið - 14.11.1990, Side 36

Morgunblaðið - 14.11.1990, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMljER 1990 36 Asmundur Orn Guð- jónsson — Minning Fæddur 11. febrúar 1954 Dáinn 4. nóvember 1990 í dag kveðjum við félagarnir úr vesturbænum vin okkar, Ásmund Örn Guðjónsson. Yinskapinn við Ása má rekja til þess tíma, er við pottormarnir eydd- um lunganum úr deginum úti á KR-velli við Kaplaskjól. Þar bund- ust margir vinaböndum, sem ekki slitnuðu þar í frá. Þegar hugurinn leitar aftur verður ljóst, að þá komu í ljós þeir kostir, sem prýddu Ása; kappsemi, glettni og á stundum meinlaus stn'ðni samfara mikilli hreinskilni. Ási var okkar fremstur í sportinu, og þá var til þess tekið, og vakti líklega smá öfund okkar, þegar hann var fluttur upp um lið, og spilaði með A-liðinu, þegar við minni spámennimir urðum að sætta okkur við C-liðið. Þegar unglingsárin tóku við urðu áhugamálin fleiri og vinahópurinn stækkaði. Þá varð heimili foreldra hans fljótlega aðalsamkomustaður okkar kunningjanna. Þolinmæði sú sem Ása og Gauji sýndu okkur hávaðasömum og fyrirferðarmikl- um strákum var aðdáunarverð, sér- staklega þegar galsinn í kjallara- herberginu á Reynimelnum vildi raska svefntíma friðsamra manna. En skemmtunin var saklaus, og vinur okkar, forráðamaður kjallar- ans, var hrókur alls fagnaðar. Tveir eru þeir staðir, þar sem Ási haslaði sér völl, og helgaði krafta sína. Hann hóf vinnu á ungl- ingsárum hjá Eimskipafélaginu, fyrst á kæjanum og í skálunum, vann síðan um árabil við varnarliðs- flutninga félagsins, og á síðustu árum við akstursdeildina. Þar nutu menn þess, að hann var afburða glöggur, sérstaklega á tölur, við- hafði ekki málalengingar um hlut- ina, og kom fljótt auga á kjarnann í hverju máli. Til viðbótar sá svo meðfætt jafnaðargeð og glettni um, að hann varð afburðavinsæll með starfsfélögum sínum. Hinn vettvangurinn var gamla góða KR. Þegar hann hætti sjálfur þátttöku í íþróttum vegna liðagigtar gekk hann til liðs við bakvarðasveit- ina og var í hópi eindregnustu stuðningsmanna félagsins, og fylgdi félaginu í gegnum sætt og súrt. Stærsti sólargeislinn í lífi hans var dóttirin Bima Gyða, sem flutt- ist snemma til Svíþjóðar, en kom heim reglulega og oftar á seinni árum. Bima Gyða og Ási vom sér- staklega samrýnd, og sá tími, sem hún dvaldist héma, var ekki til ráð- stöfunar fyrir annað. Við gömlu félagarnir höfðum fyrir reglu á seinni ámm að hittast nokkmm sinnum á ári. Var þar glatt á hjalla og Ási sem fyrr ómiss- andi. Sjálfur var hann að öllu jöfnu lítið ræðinn um sjálfan sig og hon- um í raun fjarri að velta vöngum yfir eigin erfiðleikum. Lífsviðhorfið breyttist ekki en það var umfram annað fólgið í að sjá tilvemna í spaugilegu ljósi. Svo tengist minning okkar um Ása öðm fremur ánægju og gleði, að hún yfirskyggir annað, og vonum við að sú mynd af vini okkar megi styrkja Bimu Gyðu, Gauja og bræð- urna, á þessari stund. Árni, Benni, Bóbó, Gummi, Óli, Palli, Stebbi og Siggi og eiginkonur. Frændi, þegar fiðlan þegir fuglinn krýpur. lágt að skjóli' þegar kaldir vetrarvegir villa sýn á borg og hóli, sé ég oft í óskahöllum ilmanskópm betri landa, ljúfling minn sem ofar öllum íslendingum kunni að standa. (Halldór Laxness.) Það er fegurð í öllum sköpuðum s hlutum. Það er fegurð í gráum himni, það er fegurð í dimmbláum fjöllum, það er fegurð í kvöldkulinu og morgunhrollinum, það er jafnvel dulin fegurð í dauðanum svo skringilega sem það kann að hljóma. Getur nokkur neitað því að fagrar minningar og fagrar hugs- anir geta gert gott. Og í fegurð dauðans hlýtur yndisleiki lífsins því að speglast. Og yndislegt getur lífið verið ef maður er á sömu sveif og almættið. Því ætti maður ekki að formæla dauðanum heldur gleðjast yfír góðu lífí sem var. En það veit Guð að erfitt er að sætta sig við dauða ungs manns sem átti til gnótt af fegurð. Og nú þegar sól lækkar á lofti, dagamir styttast og kólna fer í veðri er gott að eiga hlýjar og fallegar minningar um yndisleg- an mann þó sól hans hafí hnigið um hádegisbil. Ég á margar góðar minningar um Ásmund Örn Guð- jónsson. Ég ætla ekki á þessari stundu að riija þær upp heldur ætla ég að hlýja mér við þær í ein- rúmi. Og nú er þegar elskui vinurinn minn hefur tekið sér far með feiju- manninum yfír móðuna miklu get ég lítið annað gert en að óska hon- um góðrar ferðar og þakkað fyrir samveruna. Dóttur hans, bræðrum og föður sendi ég samúðarkveðjur og bið guð að gefa okkur öllum styrk. Hvíli hann í friði. Guðni Már Henningsson í hjarta mér myndaðist gífurleg- ur tómleiki er mér var tilkynnt um andlát míns kæra vinar, Ásmundar Arnar, og enn einu sinni stóð ég berskjaldaður frammi fyrir lífsgát- unni, með spurninguna Af hveiju? í huga mér. Mig langar til að setja nokkrar fátæklegar línur á blað, til að minnast vinar míns, Ásmundar, og kveðja hann hinstu kveðju, en við störfuðum hjá sama fyrirtæki, Eimskip, um árabil. Þeir sem til þekkja vita að ekki gekk Ásmundur heill til skógar. Oft og tíðum var hann sárþjáður af liða- gigt og húðsjúkdóm, en engan þekkti ég eða veit um sem heyrði Ásmund nokkurn tímann kvarta yfir þrautum sínum, þvert á móti var lund hans ávallt létt og alltaf stutt í hláturinn. Sínar innstu til- fínningar og hugsanir lét Ásmundur ekki í ljós, en í gegnum vinskap okkar á undanförnum árum, komst ég að raun um að trú hans á æðra tilverustig var óbilandi og oft var talað um að ekki væri nein ferð án enda, því að allt sem hefur upphaf hlýtur að hafa endi, en að endirinn á ferð okkar hér, væri upphafíð að annarri ferð annars staðar, var bjargföst skoðun okkar og nú hefur annar okkar fengið staðfest svar við þeirri skoðun. Ásmundur reynd- ist mér traustur vinur, en á undan- förnum árum hef ég þurft að dvelja um lengri eða skemmri tíma á sjúkrahúsum og var það jafnöruggt og að sólin settist, að vinur minn Ásmundur kom að sjúkrarúmi mínu að kveldi er hann hafði lokið störf- um og ávallt var glaðværðin í fylgd með honum og í þau skipti er ég hafði fótavist, var hann óþreytandi að taka mig út í skemmri eða lengri bfltúra og þarna sýndi hann, hve mikill og traustur vinur hann var í raun. Oft var vinur minn þreyttur og kvalinn af sjúkdómum sínum, þegar hann kom — en hann kom. Þegar ég rifja þetta upp, sé ég og fínn hve mikið Ásmundur Örn gaf mér, án þess að ég væri megnugur að gjalda í sömu mynt. Viðskiptavinir Eimskips geta vottað um hve bóngóður Ásmundur var, en þar hélt hann að nokkru leyti um stjórnvölinn á Akstursdeild fyrirtækisins og sá um að viðskipta- vinirnir fengju vörur sínar keyrðar til sín og var hann mjög vel kynnt- ur í þeim fyrirtækum, sem eiga við- skipti við Eimskip, en oft var vinnu- dagur hans langur og strangur. Það sá ég er hann kom í heimsókn til mín að afloknum vinnudegi og kannski sofnaði er hann settist nið- ur hér á heimili mínu, en nú er sæti hans hér autt og verður það vandfyllt, því að góðir, tryggir og öruggir vinir eru ekki á hveiju strái. Sólargeislinn í lífí Ásmundar vin- ar míns var dóttir hans, Birna, sem nú sér á eftir ástkærum föður, en Birna er búsett hjá móður sinni í Svíþjóð og veit ég að Ásmundur hefði kosið að hafa meiri samvistir við dóttur sína, en samband þeirra var mjög gott og á undanfömum ámm hefur Birna komið í tíðar heimsóknir til íslands og þegar Ásmundur sagði mér að hún væri væntanleg, þá heyrði ég alltaf til- hlökkun í rödd hans. í Sundahöfn hér í Reykjavík er upphaf og endir hina ýmsu ferða og nú hefur Ásmundur Örn Guð- jónsson farið þaðan í hinsta sinn og hefur myndast tómarúm í Sundahöfn, sem tekið er eftir, en minning hans mun ávallt lifa þar. Að lokum vil ég þakka höfundi til- verunnar fyrir að gefa mér tæki- færi til að kynnast Ásmundi Erni Guðjónssyni og trúi ég að hann leiði Ásmund styrkri hönd um nýja bú- staði. Birnu, dóttur Ásmundar, Guðjóni, föður hans og öllum bræð- rum Ásmundar og fjölskyldum þeirra, votta ég mína dýpstu og innilegustu samúð_, með þeirri von um að minning Ásmundar Arnar Guðjónssonar verði ljós í lífí þeirra allra. Blessuð sé minning hans. Sigurjón Símonarson Það var vinátta, sem á vængjum friðar hné frá himni í helgum blæ; fagnaði fold, fylltust gleði efri loft og undirdjúp; sá var fyrstur nefndur sumardagur. Hreinlynd hjörtu » og hugarprúð ást einlægri æðri kynja ylnuðu þá, er um aldir síðan vóx, viðhélzt; þaðan er vinur um kominn. (Jónas Hallgrímsson.) Síðustu mánuði hefur mér oft orðið hugsað til unglingsáranna, þar sem elsta barnið mitt, dóttir, stendur nú á þröskuldi þessa vand- meðfama tímabils. Hún kemur til mín með blik í augum og sérkenni- legt bros leikur um vanga hennar. Hún er skotin í strák. Strák sem fær hjartað til að slá hraðar og ein- kennilegt máttleysi kemur í fæ- tuma þegar hún sér hann. Þau dansa saman á diskótekum í skólan- um. Þannig var þetta líka 1968. Þau hittast á hverju kvöldi, ásamt öðrum í hópnum, í ísbúðinni á Hjarðarhag- anum. Þau fara saman að passa barn hjá frænda hans á Brekku- stígnum. Vinahópurinn er stór. Það er margt brallað. Allt lífíð er fram- undan. Leiðir skiljast. Sumra aðeins tímabundið, því úr þessum fræjum vináttu, sem sáð var á unglingsár- unum urðu tvö hamingjusöm hjóna- bönd. Þar sem leiðir skildu var fylgst með úr fjarlægð. Kærar þakkir færi ég Ása fyr- ir þessar löngu liðnu samvemstund- ir. Hvíli hann í friði. Ég votta aðstandendum og vin- um mína dýpstu samúð. Sossa Kveðja frá Knattspyrnudeild KR Þann 5. nóvember sl. lést langt fyrir aldur fram Vesturbæingurinn og KR-ingurinn Ásmundur Örn Guðjónsson, aðeins 36 ára að aldri. Þrátt fyrir þá staðreynd að hann hafí um all langt skeið átt við mikla vanheilsu að stríða kom hið skyndi- lega fráfall hans mjög á óvart. Hann var sonur hjónanna Ás- gerðar Sófusdóttur sem lést 1984 og Guðjóns Pálssopar vélstjóra hjá Reykjavíkurhöfn. Ási, eins og hann var alltaf kallaður, ólst upp í Vest- urbænum ásamt bræðram sínum þremur þeim Sófusi, Gylfa og Páli Sævari og bjó þar alla tíð, fyrst á Brekkustíg, síðar á Reynimel og loks á Flyðrugránda þar sem hann átti heima þegar hann lést. Hann var ekki hár í loftinu þegar hann fór að elta bolta eins og títt er með stráka og þar sem hann bjó vestast í Vesturbænum leið ekki á löngu þar til leiðin lá niður á KR- völl og hann gekk í KR og byijaði að æfa knattspyrnu í 5. flokki. Það kom fljótt í ljós að hér var mikið efni á ferð og bar hann af jafnöldram sínum í knattspyrnunni og komst fljótlega í kapplið KR í 5. flokki. Hann lék knattspymu með 5., 4. og 3. flokki og sömuleið- is handknattleik og körfuknattleik og alls staðar var hann í fremstu röð enda mikili boltastrákur eins og stundum er sagt. Sá sem þessar línur ritar var svo lánsamur að kynnast Ása í 3. flokki árið 1969. Hann var einn af lykil- mönnum í sigursælu liði 3ja flokks það ár sem sigraði á öllum mótum og tapaði ekki leik það sumar. Ég minnist Ása sem glæsilegs íþrótta- manns, góðs félaga og í alla staði ' hins besta drengs. A þeim tíma efaðist enginn um það að þama færi einn af framtíðarleikmönnum meistaraflokks KR í knattspyrn- unni. En enginn má sköpum renna og örlögin höfðu ákveðið að íþróttaiðk- un Ása yrði í framtíðinni þröngur stakkur sniðinn. Innan við tvítugt varð hann fyrir því að veikjast hastarleg af liðagigt og var alla tíð síðan þjáður af þeim sjúkdómi sem sífellt herti tökin á honum. Hann átti því við veralegt heilsuleysi að stríða mikinn hluta ævi sinnar þó ekki yrði hún löng. Þess má nærri geta hvflíkt áfall það var fyrir ungan og glæsilegan íþróttamann í fremstu röð að hljóta þann dóm að öll íþróttaiðkun væri fyrir bí. Hann lét þó ekki deigan síga því hann gerði sér grein fyrir því að kappleikir vinnast ekki bara úti á íþróttavellinum heldur er ekki síður naúðsynlegt að vel sé stutt við bakið á þeim sem keppa fyrir félag sitt hveiju sinni af þeim sem utan vallar standa. Og þar stóð hann sig svo sannarlega vel. Það er sama hvar gripið er niður að því er varðar fjáröflun knattspyrnu- deildar KR sl. áratugi að Ási er þar ávallt í fremstu röð. Þegar sala getraunamiða var aðaltekjulind deildarinnar var hann ötull sölu- maður og sá til þess ásamt fleiri góðum mönnum að starfsmenn Eimskipafélags íslands voru aðal- viðskiptavinir deildarinnar á því sviði. Hann var og mikill „tippari" sjálfur og var einn af fastagestun- um út í KR-heimiIi á hveijum laug- ardagsmorgni yfir vetrarmánuðina til að „tippa“ og spjalla við kunn- ingjana yfír kaffíbolla. Og laugar- daginn áður en hann lést var hann að sjálfsögðu mættur þar. Hann var einn af lykilmönnum í flugeldasölu félagsins og vegna starfs síns hjá Eimskipafélagi Is- lands gat hann stundum gert félag- inu smá greiða á þeim vettvangi og þá stóð ekki á því. Þegar ráðist var út í þá fram- kvæmd að reisa áhorfendastúku við KR-völlinn var Ási að sjálfsögðu fyrsti maður sem skrifaði sig fyrir framlögum í þá byggingu og tók virkan þátt í öllu starfí því viðvíkj- andi. En hann sinnti ekki bara fjáröfl- un því hann mætti nánast á hvern einasta leik meistaraflokks KR í knattspymu og skipti þar engu máli hvort leikið var heima eða að heiman. Hann fylgdist og vel með leikjum yngri flokka og mætti þar ef hann gat því við komið. Eins og sjá má á þessari upptaln- ingu _sem auðvitað er ekki tæmandi var Ási mikill KR-ingur og ávallt reiðubúinn að leggja félagi sínu lið. Það er vegna manna eins og hans að KR er það stórveldi sem það er í dag og stendur því knattspyrnu- deild KR og félagið í heild í mikilli þakkarskuld við hann. Ási var ógiftur en átti eina dótt- ur, Bimu Gyðu sem nú er 18 ára. Hún hefur búið með móður sinni undanfarin ár en þrátt fyrir fjar- lægðina var samband þeirra feðgina ávallt mjög gott. Ási hafði létta lund og gott skap og þrátt fyrir veikindi sín og þá staðreynd að oft var hann sárþjáður heyrðist hann aldrei kvarta. Hann var drengur góður og hvers manns hugljúfí og þannig munum við KR-ingarnir geyma í hugum okkar minninguna um Ásmund Örn Guð- jónsson. Hans verður sárt saknað og hann er kvaddur með virðingu og þakk- læti en sárastur er harmur hans nánustu, föður, bræðra og dóttur og era þeim hér með sendar inni- legustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ásmundar Arnar Guðjónssonar. GP Kveðja frá Akstursdeild Eimskips Hröð er fórin örskömm dvöl á áningarstað verum því hljóð hver snerting er kveðja í hinzta sinni (Birgir Sigurðsson.) Stórt skarð er komið í hópinn. Stórt skarð sem erfítt verður að fylla og reyndar enginn sem bjóst við að til slíks kæmi. Félagi okkar, Ásmundur Örn Guðjónssoner fall- inn frá, langt fyrir aldur fram. Hann var sá vinnufélagi sem flestir vilja hafa, ósérhlífinn, samvisku- samur og í alla staði fyrirtaksfé- lagi. En Guð gefur og Guð tekur. Þó okkur þyki sárt að sjá á eftir Ásmundi trúum við því að hans nýju heimkynni séu yndisleg og að honum líði vel þar. Það er líka gott til þess að hugsa að þegar við sjálf föram þessa leið þá bíður hann okkar á ströndinni hinumegin og tekur þar á móti okkur með út- breiddan faðminn og bros á vör. Fyrir hönd samstarfsfélaga í Sundahöfn sendi ég dóttur hans bræðrum og föður samúðarkveðjur. Minning þessa góða manns lifír. Gunnlaugur Gunnlaugsson Kveðja frá vinnufélögum Með örfáum orðum langar okkur að kveðja góðan vin og félaga sem kvatt hefur svo snögglega. Margs er að minnast og margs að sakna. Ásmundur hóf störf hjá Eimskip árið 1968 og hafa því mörg okkar átt því láni að fagna að starfa með honum í fjölda ára. Og án efa er ekki hægt að hugsa sér betri starfs- félaga en Ása. Ási var ekki einungis góður starfsmaður, hann var ekki síður góður félagi. Undanfarin ár starfaði hann sem fulltrúi í akstursdeild og átti því mikil samskipti við fólk bæði innan og utan Eimskips, og vora þau samskipti á margan hátt sérstök. Þau einkenndust af lipurð, hjálpsemi og ekki síst því, að Ási sló gjaman á létta strengi og mun- um við lengi minnast kímni hans. Ási var jafnan hrókur alls fagn- aðar í okkar hópi. Það var því eng- in tilviljun hversu oft var leitað til

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.